Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Side 23

Húnavaka - 01.05.1964, Side 23
HÚNAVAKA 21 ar sig og pantar leigubíl. Hún tekur töskuna sína og sezt inn í bílinn. Hún nefnir húsnúmerið og þau þjóta ai' stað. Bíllinn nem- ur staðar hjá ríkmannlegri villu. Engin Ijós í gluggum, sýnilega enginn heirna. Hún borgar bílstjóranum og gengur hikandi heim að húsinu. Há tré með slútandi greinum þöktum snjó. Grenitré eru svo yndisleg. Hún gengur upp tröppurnar, opnar hikandi og kveikir Ijós. Hér eru dúnmjúk teppi á gólium, lilýtt og mjtalegt. Bórður veit ekki af henni, en lieldur að hún komi eftir tvcj daga. Hann verður giaður, augu hans munu ljóma þegar hann kemur heim og sér hana. Hún litast um, í stofunni, eldhúsinu og baðinu. Aldrei hefir hana dreymt um annað eins skraut. hetta á hann allt og dvelur hér einn. Hann sagði að gömul kona tæki til lijá honurn tvisvar í viku. \ú ;itti hún að búa hér og eiga allt með honum. Hún brosir ieyndar- dómsfuilu brosi við mynd sinni í speglinum. Hún er þunn á vang- ann, augun sýnast of stór í fölu andlitinu, en í þeim er bjarmi frá innri eldi. Barnið þeirra á að alast hér upp við allan þennan munað. Hún fer úr kápunni, leggur hana á stól á ganginum. Hún opnar hurð, og kveikir, svefnherbergið hans. . . . Hún stendur á gólfinu eins og negld niður. I rúminu liggur konan sem kom í sumar að Hrauni. Hún sefur með hvítar liendur með rauðum nöglum, ofan á sænginni. Móna slekkur, reikar náföl til dyra og opnar. Hurðin lellur í lás á eftir henni. Hún rankar við sér þegar ískaldur vind- urinn tekur í kjólinn hennar. Kápan liennar varð eftir inni, hún tekur í hurðina, hún er iæst, en lykillinn er í kápuvasanum. Jæja það gerir ekkert til. Hún reikar niður götuna. Hríðin eykst. Hvert fer hún? Það er sama. Aðeins ef hún kemst nógu langt frá þessu iiræðilega húsi. Löngu seinna kemur gamall maður eftir götu í útjaðri bæjarins og finnur stynjandi stúlku í skafli í húsasundi. Lögregla, sjúkravagn, læknar. Hvítklæddar verur allt um kring, að lokum ekkert. . . . Þórður kom raulandi upp tröppurnar og gekk inn. Hann ætlaði að hafa skyrtuskipti og borða úd. Ekkert tesull í kvöid. Móna kem- ur eftir tvo daga. Augun ljóma. Hann gengur að svefnherbergis- dyrunum við skímuna úr forstofunni og hraðar sér. Hann sér sof- andi konuna og hrópar: Hvað leyfir þú þér? Hún vaknar hrædd. Teygir armana til hans. Þórður ég fer aldrei frá |jér aftur. Fyrir-

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.