Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Síða 33

Húnavaka - 01.05.1964, Síða 33
INGVAR PÁLSSON: Eftirminnilegt feráalag Arið 1909, þegar ég var 13 ára gamall, átti ég heima í Holti í Svínadal. Ég dvaldi þar hjá þeim góðu hjónum Guðmundi IJor- steinssyni og Björgu Magnúsdóttur. Fyrri part vetrar átti ég að stunda þar barnalærdóm undir ferming- una fram yfir áramót, en fara þá á barna- skóla vestur að Ási í Vatnsdal. Sigurbjörg dóttir þeirra hjóna kenndi mér og hefir að sjálfsögðu ekki verið öf- undsverð af því, því ég var latur, en þó varð henni nokkuð ágengt. Þannig leið veturinn fram að jólum. F.n þegar jólin nálguðust, þá vantaði Björgu húsfreyju ýmislegt smávegis úr kaupstað. Hún hafði vænzt þess, að Gvendur Póli yrði á ferðinni og gæti farið þessa ferð fyr- ir hana. En svo varð ekki. Þegar aðeins voru eftir 3 dagar til jóla, fór Björg fram á það við mann sinn, að fá vetrarmanninn til þessarar ferðar, en hann var Ingólfur Daníelsson frá Steinsstöðum í Skagafirði. En einhverra hluta vegna varð það ekki. Annar var þá ekki til að ganga á beitarhúsin. En þá bauðst ég til að fara þessa ferð. „Heldurðu að það sé nokk- urt vit í að senda þig, barnið, þessa ferð,“ sagði Björg. En ég hélt því fram, að ég gæti þetta engu síður en Gvendur Póli. Þeir bræðurnir Jakob og Jóhann mæltu heldur með því, að ég gæti þetta og svo varð það afráðið. Það var nýafstaðinn hlákubloti sem hafði hleypt öllu í gadd og frosið svo á eftir. Færið mátti teljast gott, en víða hált. l)ieyar Pálsson.

x

Húnavaka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.