Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Side 44

Húnavaka - 01.05.1964, Side 44
42 HÚNAVAKA hressingu og segja honum hve mikilvægan þátt hann hefði átt í því undarlega ævintýri, að Iialda þessum félagsskap lifandi í gegnum árin. En eitt af frumskilyrðum fyrir áframhaldandi lífi félagsskapar sem þessa, er, að hann geri sér ekki stærri hugmyndir um getu sína til risnu en efnin leyfa. Karlakórinn hefur tvívegis áður gert sér nokkurn dágannm í sam- bandi við starlsalmæli. Var það lyrst er hann var tvítugur og síðan aftur er Iiann var 25 ára. En þrítugsafmælið leið hjá án nokkurs til- halds. Það er mér nokkurt undrunarefni, að engum kórfélaga skuli hat'a dottið í hug, a. m. k. ekki gert það uppskátt, að láta þessa gleði standa í tvo daga, til að vinna þannig upp hversdagsleikann á þrí- tugsafmælinu. En það sýnir bara, hvað við erum hófsamir í öllum munaði og tökum þennan félagsskap alvarlega. Þó væri held ég skakkt, að álíta okkur sérstaka meinlætamenn á neinu sviði. Að þessu sinni höfum við leylt okkur nokkra tilbreytingu í sam- bandi við afmælið. Er sú helzt, að við höfum getið út sögu Karla- kórsins, sem ég vona, að þið hafið fengið í hendur. Hún geymir auk sögunnar 15 karlakórslög eftir þrjá lyrrverandi scingstjóra okkar. Séra Gunnar Árnason samdi söguna af mikilli þekkingu og hlýjum skilningi, sem hans var von og vísa, en ritari kórisins, Guðmundur Tryggvason, skrautritaði liana af sinni frábæru listrænu smekkvísi. Munum við seint fá íullþakkað þessum mönnum þeirra mikla og óeiigingjarna starf í þágu félagsskaparins. Ég tel rétt, áður en ég skilst við þennan þátt, að nefna hér natn Gísla sáluga Pálmasonar á Bergsstöðum, en liann var söngstjóri kórsins um nokkurt skeið. Það er ekki af ræktarleysi við minningu hans, að við birtum ekki lög eltir hann ásanit hinum, sem í bók- inni eru. Gísli Pálmason mun hafa gert freniur lítið af tónsr.ilði svo vitað sé. Þó er vitað um eitt lag eftir hann fyrir blandaðan kór. Hafi Iiann gert meira af tónsmíði, en almenningi er kunnugt hér uíli slóðir, var ekki vitað hvar þau væru niðurkomin, en timi orðinn naumur til að grafa slíkt uppi, þegar senda þurfti heimildir og önn- ur gögn í sambandi við ÚDgáfuna suður. En hitt mun söngbræðrum Gísla sáluga kunnugt, að hann var mjög músikalskur, mikill söng- maður og frábær orgelleikari af sjálfmenntuðum manni að vera. Mér hefur stundum verið hugsað til þeirra tíma, þegar Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps var stofnaður. Og mér hefur fundizt, að þeir

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.