Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Síða 56

Húnavaka - 01.05.1964, Síða 56
Fréttir og fró&leikur Frá S. A. H. Hjá S. A. H. var slátrað 38.499 kindum sl. haust eða um 3500 kindum færra en haustið 1962. Dilkar reyndust með allra rýrasta móti. Meðalþungi var 13,31 kg. Innlögð mjólk á árinu 1963 var 3.4 millj. kg. og er það um 7,6% aukningfrá því árinu áður. Keyptar hafa verið nýjar vél- ar til þurrmjólkurvinnslu, sem koma í apríl og kosta um 2 millj. kr. með nauðsynlegum breyting- um vegna þeirra. Félagsheimilið á Blönduúsi. Kvikmyndasalur félagsheimilis- ins var tekinn í notkun í júlí- byrjun. Þjóðleikhúsið sýndi þá leikritið „Andorra“. Kvöldið eft- ir sýndi Leikfélag Reykjavíkur „Hart í bak“. Þá þurfti að setja um 30 laus sæti í leiksalinn, sem tekur 296 manns í sæti. Sl. haust var sett upp kvikmynda- sýningarvél af fullkomnustu gerð I’hilips sýningarvéla. Það er hægt að sýna bæði „breiðtjalds- og Cinemaseopesmyndir“, og eru sömu möguleikar til sýninga og hjá öllum kvikmyndahúsunum í Reykjavík nema Laugarásbíó og Háskóiabíó, sem geta sýnt mynd- ir í ,,7'odd a o“ Breidd myndar á tjaldi getur \erið allt að 6,70 m og hæð 4 m. Taldi örvggiseftirlitsmaður ríkis- ins allan frágang og aðbúnað í sýningarklefa sérstaklega vand- aðan. F a s t a r kvikmyndasýningar Iiafa verið 3 á viku. Sýningargest- ir hala verið að meðaltali 320— 330 á viku en flestir hafa þeir verið 580 á viku. Nú má heita að byggingu lél- agsheimilisins sé lokið, en þó er eftir að innrétta eldluis, búnings- herbergi fyrir leikstarfsemi og gera við lóð. Byggingakostnaður er nú um 10i/2 millj. kr. og eru þá taldir með vextir af bygginga- skuldum. Framkvæmdastjóri hússins er

x

Húnavaka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.