Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 58

Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sagan hefur sýnt að Eurovision getur verið stórt tækifæri fyrir hæfileikaríkt tónlistarfólk. Fyrir marga hefur keppnin reynst stökk- pallur inn í heimsfrægðina og gert lítt þekkta listamenn að vellauðug- um stjörnum. Aðrir hafa nánast gleymst strax og byrjað er að telja stigin. Valgeir Magnússon fylgir ís- lenska hópnum út til Vínarborgar og er þar í hlutverki markaðs- stjóra, fjölmiðlastjóra, umsjón- armanns og umboðsmanns. Þetta hefur hann gert frá árinu 2010. Valgeir er framkvæmdastjóri aug- lýsingastofunanr Pipar/TBWA og segir hann að þetta hlutverk hafi fallið í hans skaut í gegnum mark- aðsstarfið þar. „Fram að því hafði ég látið mér nægja að fylgjast með keppninni eins og allir aðrir.“ Risastór gluggi Eurovision er mikið ævintýri og sjónarspil, og ef listamennirnir halda rétt á spilunum geta þeir notað keppnina til að koma sér á kortið til langframa. „Eurovision-keppnin er umfram allt stór gluggi, og sennilega stærsti glugginn sem lítt þekktur söngvari getur fengið aðgang að. Það eru helst sjónvarpsþættir eins og Amerian Idol sem komast ná- lægt því að skapa viðlíka sýnileika en Eurovision er mun stærri við- burður og frábrugðið Idol að því leyti að söngvarinn eignast sitt eigið lag sem fylgir honum út allan ferilinn. Idol-keppnirnar felast ein- göngu í því að flytja ábreiður.“ Hlutverk Valgeirs er að stuðla að því að keppendur nýti gluggann sem best. Felst stór hluti vinnunn- ar í því að skapa umgjörðina í kringum keppandann eða keppend- urna svo að fjölmiðlar og fólkið heima í stofu skynji vel fyrir hvað listamaðurinn stendur. „Starfið felst meðal annars í því að útbúa gott kynningarefni, halda úti vandaðri vefsíðu fyrir íslenska liðið og senda reglulega út frétta- bréf til fjölmiðla og aðdáenda,“ segir Valgeir. „Við undirbúum okkur líka vel fyrir blaðamanna- fundina, pælum í því hvaða spurn- inga má vænta og hvernig svör eru við hæfi svo að listamaðurinn komi persónu sinni og ímynd vel til skila.“ Búa til heilsteypt vörumerki Þarf að huga vandlega að heild- arsamræminu á öllum vígstöðvum, og hvert smáatriði getur skipt máli, frá búningunum yfir í vel heppnaða myndatöku. „Í reynd er- um við að vinna að því að gera listamanninn að vörumerki.“ Að þessu sögðu verður að muna að halda jarðsambandi. Jafnvel ef allt gengur að óskum í keppninni eru frægð og frami ekki vís. Val- geir segir líka hægt að skilgreina árangurinn á marga mismunandi vegu. Mjög fáir nái að nýta Euro- vision til að verða næsta Celine Dion eða Abba en mörgum takist að skapa sér frægð víða um heim, öðlast skara aðdáenda og halda vel sótta tónleika hér og þar. Markvisst hjá Heru Af öllum íslensku keppendunum segir Valgeir að Heru Björk hafi tekist best að nýta tækifærið og hún hafi byggt ferilinn markvisst upp. „Útkoman er sú að hún hefur verið á þeytingi um heiminn undanfarin fimm ár og á fjögur al- þjóðlega þekkt lög sem eru í spilun í fjölda landa.“ Það gerir árangur Heru ekki síst merkilegan að henni reiddi ekkert sérstaklega vel af í Euro- vision þar sem hún landaði 19. sætinu. „Hún hefur unnið statt og stöðugt að þessu marki. Fyrst komst hún á kortið í forkeppninni í Danmörku með laginu „Someday“. Þá keppti hún fyrir hönd Íslands með „Je Ne Sais Quoi“, sendi frá sér lagið „Feel the Love Tonight“ sem varð einkennislag Gay Pride í New York og Mr. Gay USA, og loks ári síðar að hún tekur þátt í söngvakeppni í Síle með lagið „Be- cause You Can“. Valgeir bendir líka á að Hera hafi gætt þess að hafa svipaðan stíl á þeim lögum sem hún lagði áherslu á. „Sumir brenna sig á því að verða frægir fyrir ákveðið lag, en breyta svo strax um stefnu með næsta lagi. Sá hópur sem fékk áhuga á listamanninum vegna fyrra lagsins reynist kannski ekki hrifinn þegar breytt er um stíl og snýr sér að einhverju öðru.“ Möguleikarnir heima Markmiðið þarf síðan ekki endi- lega að vera heimsfrægð. Það eitt að taka þátt, og hvað þá að sigra í forkeppninni heima fyrir, skapar strax nýja möguleika á heima- markaðinum. „Nú þegar hafa Mar- íu Ólafsdóttur opnast tækifæri sem henni hefðu aldrei staðið til boða fyrir fjórum mánuðum. Er búið að bóka hana á fjölda tónleika og verður í miklu að snúast hjá henni þegar jólatónleikatímabilið gengur í garð.“ Keppnin er stökkpallur  Valgeir Magnússon segir að vanda verði til verka ef tónlistarfólkið í Eurovision vill nýta alla möguleikana sem keppnin býður þeim  Skapa þarf listamanninum heildstæða ímynd og huga að hverju minnsta smáatriði Morgunblaðið/Rósa Braga Frami „Eurovision-keppnin er umfram allt stór gluggi, og sennilega stærsti glugginn sem lítt þekktur söngvari get- ur fengið aðgang að,“ segir Valgeir. Hann hefur verið íslenska liðinu innan handar undanfarin fimm ár. Reuters Bomba Celine Dion er dæmi um tónlistarmann sem breyttist í stórstjörnu þökk sé Eurovision. Hún söng sigurlag Sviss á sínum tíma.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.