Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Tæpum tveimur sólarhringum eftir að 7,9 stiga jarðskjálfti varð í Nepal í lok apríl með þeim afleiðingum að mörg þúsund létust og tugþúsundir slösuðust var ungur björgunarsveit- armaður, Andri Rafn Sveinsson, lagður af stað á hamfarasvæðið. Hann segir aldrei hafa komið annað til greina en að gefa kost á sér í verk- efnið, þörfin fyrir að láta gott af sér leiða rekur hann áfram. Andri starfar með fjarskiptahópi Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, sem er hluti af viðbragði íslensku al- þjóðasveitarinnar. Um leið og fréttir bárust af jarðskjálftanum laugar- daginn 25. apríl og ástandinu í land- inu kom fjarskiptahópurinn saman og í framhaldinu var ákveðið að einn úr þeirra hópi færi út og yrði alþjóða- samtökunum NetHope til aðstoðar, en samtökin aðstoða hjálparsamtök við fjarskipti. Andri gaf kost á sér, pakkaði niður á 45 mínútum og var þar með ferðbúinn. Að auki fór hann með um 90 kíló af ýmsum búnaði með sér. Eftir nokkurt ferðalag með við- komu í Kaupmannahöfn og Doha í Katar lenti Andri á alþjóðaflugvell- inum í Katmandu, höfuðborg Nepal, um hádegisbil á þriðjudegi. Á móti honum tók annar Íslendingur sem starfar með NetHope, Gísli Rafn Ólafsson, sem hafði komið til Nepal daginn áður. „Þegar ég lenti úti voru ennþá talsverðir eftirskjálftar,“ segir Andri. Hann segir flugvöllinn hafa verið nokkuð illa farinn eftir skjálft- ana og greinilegt að hann hafi ekki verið byggður fyrir þá miklu flug- umferð sem fylgdi í kjölfar hamfar- anna. „Þarna voru t.d. nánast engir lyftarar og fá tæki til að afferma vél- ar sem voru að koma með hjálpar- gögn.“ Hann segir heimamenn hafa hafst við að mestu utandyra fyrstu dagana eftir að hann kom út. Margir misstu heimili sín og aðrir hefðu ekki þorað að vera inni í húsum sínum. „Menn komu sér upp skýlum undir segldúk- um eða plasti. Ég sá fólk á umferðar- eyjum sem voru metri á breidd, þar hafði það reist lítil skýli og hafðist þar við.“ Fengu aðstoð frá Hafnarfirði Meðal verkefna Andra í Nepal var að vera heilbrigðisyfirvöldum til ráð- gjafar, koma á netsambandi fyrir Sameinuðu þjóðirnar og setja upp senda í dreifðum byggðum landsins sem fóru illa út úr skjálftanum. „Í stuttu máli tryggjum við fjarskipta- samband milli þeirra hjálparaðila sem starfa á hamfarasvæðinu,“ segir Andri, spurður um hlutverk Net- Hope. „Við komum upp gervihnatta- sambandi og HF- og VHF-sambandi sem er sú tíðni sem talstöðvar nota. Það sem gerðist í Nepal var að raf- magnið fór, þar með fóru GSM- sendarnir út og fjarskipti voru í lág- marki.“ Að auki sér NetHope um ýmsar tæknilegar uppsetningar og kemur tækjabúnaði á borð við gervihnatta- síma, símakort í viðkomandi löndum, talstöðvar, netbúnað og fartölvur til hjálparsamtaka. Búnaðinn fá sam- tökin að gjöf eða láni frá framleið- endum hans eða kaupa hann fyrir gjafa- og söfnunarfé. Fjarskiptahópurinn í Hafnarfirði var á stöðugri vakt á meðan Andri var ytra og lagði honum og félögum hans í NetHope lið á ýmsan hátt. M.a. með því að leita að gögnum um staðhætti og aðstæður og vinna úr þeim, auk tæknilegrar aðstoðar. Sjáumst helst ekki aftur Talsverður fjöldi fólks kom víða að úr heiminum til björgunarstarfa í Nepal. Andri segir allan gang vera á því hvort um sé að ræða sjálfboðaliða eða fólk sem hefur slík störf að at- vinnu sinni, hann segir sama fólkið hittist aftur og aftur á þessum al- þjóðavettvangi neyðarhjálpar og vin- skapur myndist. „Við kveðjumst þó alltaf með orðunum; sjáumst helst ekki aftur. Við erum að hittast við erfiðar aðstæður, það hafa orðið hamfarir. Auðvitað vonum við að það líði sem lengstur tími þangað til það gerist aftur.“ Andri fór frá Nepal á þriðjudaginn í síðustu viku, 12. maí. Er hann var að funda með samstarfsfólki sínu skömmu fyrir brottför reið aftur yfir kröftugur skjálfti, 7,3 stig, og í hon- um létust a.m.k. 70 manns og þús- undir slösuðust. „Það var skrýtin til- finning, fyrst héldum við að þetta væri eftirskjálfti en hann stigmagn- aðist og stóð yfir í um mínútu.“ Varstu hræddur? „Já, ég get ekki neitað því. En ég var mjög feginn að vera staddur nákvæmlega þar sem ég var; á skrifstofu inni í gámi á svæði hjálparstarfsmanna.“ Var á ebóluslóðum Andri er 26 ára og starfar hjá Ell- ingsen þar sem hann veitir ráðgjöf um reiðhjól og annan búnað. Hann hefur starfað með björgunarsveitum frá 14 ára aldri, fyrst í heimabænum Reyðarfirði og gekk síðan til liðs við Björgunarsveit Hafnarfjarðar þegar hann flutti á höfuðborgarsvæðið. Þar er hann í áðurnefndum fjarskiptahóp og einnig í leitarhóp. Hann hefur áð- ur farið til hjálparstarfa á vegum NetHope, til Síerra Leóne fyrr á árinu. Þar geisaði ebólufaraldur, núna lá leiðin á jarðskjálftasvæði. Hvað fær ungan mann til að víkja öllu til hliðar og fara til hjálparstarfa á fjarlægar slóðir þar sem hættu- ástand ríkir? „Ég hef mikla þörf fyrir að gefa af mér. Mér finnst gott að vita að ég geri gagn. Svo hef ég ein- faldlega mikinn áhuga á hjálpar- störfum.“ Færirðu aftur út á morgun ef þú yrðir beðinn um það? „Já. Ég fer á meðan þörfin er til staðar.“ Gleði Sænskur félagi Andra í barnahópi er þeir settu upp fjar- skiptabúnað fyrir sjúkrahús Lækna án landamæra í Nepal. Að störfum Liðsmenn NetHope í Nepal. Samtökin koma m.a. upp fjarskiptasambandi og leggja til ýmsan fjarskiptabúnað. Ljósmyndir Andri Rafn Sveinsson Hamfarir Fyrri jarðskjálftinn í Nepal varð 25.apríl og sá síðari 12. maí. Þúsundir létu lífið og tugþúsundir slösuðust. Ég fer á meðan þörfin er til staðar Morgunblaðið/Styrmir Kári Hugsjón „Ég hef mikla þörf fyrir að gefa af mér,“ segir Andri. „Mér finnst gott að vita að ég geri gagn. Svo hef ég mikinn áhuga á hjálparstörfum.“  Ungur björgunarsveitarmaður var við hjálparstörf í Nepal  Starfaði að fjarskiptamálum fyrir alþjóðlegu samtökin NetHope Fjarskipti riðlast oft þegar ham- farir á borð við jarðskjálfta ríða yfir. Til að skipuleggja björg- unarstarf og neyðaraðstoð er þörf á greiðum og öruggum samskiptaleiðum á milli hjálp- arsamtaka og annarra aðila og þar kemur NetHope til sög- unnar. Um er að ræða regnhlíf- arsamtök 42 hjálparsamtaka, m.a. Save the Children og Al- þjóða Rauða krossins. Þegar Andri og aðrir björg- unarsveitarmenn sem starfa á alþjóðavísu fara í ferðir sem þessar er sjaldan vitað á hverju er von þegar á staðinn er komið og því eru þeir við öllu búnir. Í farteski Andra var því m.a. tjald og annar viðlegubúnaður, þurr- matur til tveggja vikna og nokkrir lítrar af vatni. „Ég vissi ekkert hvað ég gæti fengið þarna, segir hann. Ástandið var þó miklu betra en ég bjóst við, þarna var matur og vatn og ég fékk inni á gistiheimili.“ NetHope greiðir fyrir fjarskiptum ANDRI VAR VIÐ ÖLLU BÚINN Paradísareyjan Sri lanka Hrífandi náttúra, einstök menning og fjölbreytt dýralíf sem eiga varla sinn líkan, ævintýraleg upplifun í einstöku umhverfi. Við förum m.a. í Safariferð á jeppum og skoðun villt dýr í sínu náttúrurlega umhver- fi. Sri lanka er eyjan sem Sinbað sæfari og Marco Polo heimsóttu á ferðum sínum. Við kynnumst fra- mandi og heillandi heimi sem tekur á móti ferðalöngum með opnum örmum. Einstök ferð 3.-16. nóvember 2015 Verð kr. 549.900 á mann í tveggja manna herbergi Innifalið í verði: Hálft fæði, flug, hótel, skattar, íslenskur fararstjóri og allar ferðir m.a. Safarí ferð um Yala þjóðgarðinn. Sími 588 8900 transatlantic.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.