Morgunblaðið - 20.05.2015, Side 4
Morgunblaðið/Golli
Félagsdómur Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga þótti ekki tekið nægjanlega mikið tillit til at-
hugasemda þeirra áður en ríkið gaf út öryggisskrá/undanþágulista og fór því til Félagsdóms.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Við vorum ekki sátt við að ríkið hefði bætt
fjölda hjúkrunarfræðinga á öryggisskrána á
milli ára, en ekki var tekið nógu mikið tillit til
athugasemda okkar áður en
hún var gefin út. Auk þess
sér félagið ekki hvaða
breytingar hafa orðið á
starfseminni, sem réttlæta
þessa fjölgun,“ segir Ólafur
G. Skúlason, formaður Fé-
lags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga.
Öryggisskrá, sem oftast
er nefnd undanþágulisti,
var gefin út fyrr á árinu fyr-
ir árið 2015. Þetta er listi yf-
ir störf sem undanþegin eru verkfalli. Á honum
er tilgreindur sá fjöldi hjúkrunarfræðinga sem
skal vera við störf í verkfalli á hverri stofnun
og deild ríkisins. Tilgangurinn er að tryggja
lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu og koma í
veg fyrir skaða.
Eins og fyrr segir var Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga ekki sátt við fjölgun stöðugild-
anna og vildi fækka þeim um 40, úr 90 og niður
í 50 og sendi því málið til Félagsdóms sem úr-
skurðaði 15. maí sl. Þar var þeim fækkað um 15
talsins. Ólafur segir að félagið muni una nið-
urstöðunni.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga átti
stuttan fund með ríkissáttasemjara í gær. Þar
lögðu hjúkrunarfræðingar fram kröfugerð sína
á ný. Að sögn Ólafs gekk fundurinn ágætlega
en sá næsti verður á morgun. Hann bindur
vonir við að samninganefnd ríkisins skoði vel
kröfur þeirra og bregðist við þeim á næsta
fundi. „Við viljum að menntun hjúkrunarfræð-
inga og ábyrgð sé metin til launa á sambæri-
legan hátt og annarra háskólamenntaðra,“
segir Ólafur og bætir við að alltaf sé von þegar
fólk talar saman í kjaraviðræðum.
Hjúkrunarfræðingar samþykktu verkfall 27.
maí næstkomandi. Beiðnirnar um undanþágur
vegna verkfallsins hafa enn ekki komið til um-
ræðu en væntanlega verður farið yfir stöðuna á
fundi með Landspítalanum á föstudaginn
næsta.
Hjartagáttin lokuð í verkfallinu
Ef til verkfallsins kemur þá liggur fyrir að
hjartagáttinni á Landspítalanum verður m.a.
lokað ef litið er til öryggisskráarinnar. Hjarta-
gáttin er lokuð um helgar og þá er sjúklingum
bent á að fara á slysadeildina.
Ríkið fjölgaði á öryggisskrá
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vildi fækka stöðugildum á öryggisskrá
um 40 en fækkað var um 15 eftir úrskurð Félagsdóms Fundur á morgun
Ólafur Guðbjörn
Skúlason
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Félagsmenn stéttarfélaga sem fara í
verkfall og eru atvinnuleitendur á
fyrstu fjórum vikum atvinnuleysis-
bóta, missa atvinnuleysisbæturnar
tímabundið vegna verkfallsins.
„Ef þú ert að sækja um atvinnu-
leysisbætur og félagið þitt fer í verk-
fall þá færðu ekki greiddar bætur
fyrstu fjórar vikurnar,“ sagði Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumálastofn-
unar. Leysist verkfallið áður en þess-
ar fjórar vikur eru liðnar hefst
greiðsla bóta. Hann sagði ákvæði um
þetta vera í lögum.
„Samhliða því að þú sækir um at-
vinnuleysisbætur þá sækir þú um
starf í gegnum Vinnumálastofnun.
Við gerum kröfu um að fólk tilgreini
þrjú óskastörf í
umsókn sinni. Þau
eru ekki endilega í
sömu starfsgrein
og þú kemur úr,“
sagði Gissur.
Hann sagði að
fyrstu fjórar vik-
urnar í atvinnu-
leysi gæti um-
sækjandi hafnað
starfi sé það í ann-
arri starfsgrein en hann kemur úr.
Eftir fjórar vikur geti umsækjandinn
ekki lengur hafnað starfi úr annarri
grein án afleiðinga. „Eftir fjórar vikur
horfum við ekki á úr hvaða stéttar-
félagi eða starfsgrein umsækjandinn
kemur heldur á það hvaða starf er
laust,“ sagði Gissur.
Atvinnuleitandi sem hefur til dæm-
is verið tvær vikur á atvinnuleysis-
skrá þegar stéttarfélagið hans fer í
verkfall mun því tapa atvinnuleysis-
bótum næstu tvær vikurnar ef verk-
fallið stendur það lengi.
„Við höfum reynt að túlka lögin
frekar rúmt en þröngt í þessu sam-
bandi,“ sagði Gissur. „En þetta varð-
ar bara fyrstu fjórar vikurnar sem
fólk er á bótum og hefur áhrif á hvort
það fær bætur greiddar þann tíma
eða ekki. Eftir það fær fólk greiddar
bætur svo fremi sem fólkið sem greið-
ir bæturnar er ekki líka í verkfalli, en
það er annað mál.“ gudni@mbl.is
Atvinnuleitendur geta misst
bætur komi til verkfalla
Bótamissirinn gildir um fyrstu fjórar vikur atvinnuleitar
Gissur
Pétursson
Leiðsögu-
menn til ríkis-
sáttasemjara
Kjaranefnd Fé-
lags leiðsögu-
manna hefur
vísað samninga-
viðræðum til
ríkissátta-
semjara. Þótt
aðeins hafi þok-
ast í samkomu-
lagsátt hefur enginn viðunandi ár-
angur náðst, segir á heimasíðu
félagsins. Þar segir einnig að kjara-
nefnd og félagið hafi lagt mikla vinnu
í undirbúning vegna kjaraviðræðn-
anna en formaður nefndarinnar er
Snorri Ingason.
„Niðurstaðan varð því sú að 18.
maí afhenti Vilborg Anna Björns-
dóttir, starfandi formaður félagsins,
ríkissáttasemjara og SA bréf um að
kjaraviðræðum hefði verið slitið.
Þess er vænst að innan viku frá af-
hendingu bréfsins verði kjaranefnd
boðuð til fundar hjá ríkissáttasemj-
ara,“ segir á ennfremur á vef leið-
sögumannafélagsins.
Þingvellir Ferða-
menn skoða sig um.
Þessir ferðamenn náðu síðustu sólargeislunum við Sæbrautina í gær áður
en ský dró fyrir sólu og þungskýjað varð yfir Esjunni og sundunum bláu.
Ekki ósvipuð lýsing á við stöðuna á vinnumarkaðnum þessa dagana þar
sem aukin harka hefur færst í deilur viðsemjenda. Allt stefnir í verkföll.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þungt yfir Esjunni eins og á vinnumarkaðnum
„Í þessu verkfalli hefur
öllu verið frestað sem
mögulega er hægt, en
við höfum lagt áherslu
á að láta bráðastarf-
semina ganga. Það sem
við höfum lagt áherslu
á er að forgangsraða
því brýnasta en það er
ekki gott að hafa yfir-
sýn yfir að hvort þeim
sem bíða versni og það er ljóst að vand-
inn safnast upp,“ segir Sigríður Gunnars-
dóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á
Landspítalanum. Hægt hefur á allri starf-
semi á Landspítalanum og hefur t.d.
meðallegutími sjúklinga lengst um
nokkra daga.
Undirbúningur er þegar hafinn fyrir
næsta verkfall sem verður í næstu viku
ef samningar nást ekki í tæka tíð. „Við
erum að skoða hvernig við getum unnið
með þá undanþágulista sem við höfum
og erum að teikna upp þá mynd núna en
ráðunum fækkar sem við getum gripið
til. Í mínum huga er það ljóst að það
verður að afstýra þessu verkfalli. Okkar
hlutverk er að reka heilbrigðisþjónustu
og það er ekki auðvelt að halda henni úti
núna því þetta bitnar á sjúklingunum.“
Sigríður bendir á að rúmlega 400
hjúkrunarfræðingar séu á undanþágulist-
anum. Stöðugildin á Landspítalanum eru
rúmlega 1.000. „Það er enn vika til
stefnu og við vonum að það sé nóg til að
samningar náist,“ segir Sigríður vongóð.
Ráðunum fækkar
sem gripið er til
UNDIRBÚA NÆSTA VERKFALL
Sigríður
Gunnarsdóttir
Deilur á vinnumarkaði
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
2.–9. júní. Íbúð með einu
svefnherbergi og sjávarsýn
79.900 KR.
PORTO DRACH
Superior íbúðahótel í Porto Cristo.
Í næsta nágrenni við hótelið eru
verslanir, veitingastaðir, barir og
smábátahöfn. Hótelið stendur í
nágrenni við Drekahellana sem
enginn má láta framhjá sér fara.
m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 136.500 kr. m.v. 2 fullorðna.
Þeir sem b
óka ferð til
Mallorca í
maí fá frítt
fyrir
alla fjölsky
lduna í
Aqualand,
á meðan
birgðir end
ast.
VA
LIÐ
BESTAHÓTELIÐMALLORCA