Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
Sylvía
Löggiltur fasteignasali
sylvia@fr.is
Brynjólfur
brynjolfur@fr.is
SVIÐSLJÓS
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Ég var ekki viss um að það yrði
neitt vor, en núna þegar ég er bú-
inn að fá gæsareggin þá veit ég að
vorið er komið.“ Þetta segir Agnar
Kristjánsson, bóndi í Norðurhlíð í
Aðaldal, en honum finnst öll egg
góð og hann gleðst mikið yfir
eggjum gæsanna.
„Ég er brjálaður í stropuð egg,
en þá verður hvítan harðari og
mjög gott að naga hana. Ég er
heldur ekkert hræddur við ung-
ann. Hins vegar hef ég eggin yfir-
leitt linsoðin því þannig verða þau
bragðmeiri og bara rosalega góð.
Þá bíð ég aldrei til kvölds ef ég fæ
egg að degi til. Ég fer strax og
sýð mér tvö egg sem er mátulegur
skammtur. Ég get ekki beðið til
kvölds eftir svona kræsingum,“
segir hann og hlær.
Fór snemma að borða egg
Agnar fór snemma að borða egg
og þótti sá matur góður. Á hans
bernskuheimili í Norðurhlíð voru
egg á borðum á vorin, en hann
segir að þau hafi ekki tínt mikið
undan mófuglum. Á hans æskuár-
um var mikið af öndum við Laxá
og verptu þær í hólmunum. Þessi
andavörp voru nytjuð og allir
hlökkuðu til að fá andaregg í mat-
inn. Nú er öldin önnur og mjög fá-
ar endur verpa í þeim hólmum þar
sem áður var krökkt af fugli.
Gæsirnar eru seint á ferðinni
þetta vorið í Þingeyjarsýslu því
hretið á dögunum virðist hafa sett
strik í reikninginn. Þær voru
liggjandi í snjónum svo dögum
skipti og höfðu lítið upp í sig. Eft-
ir að snjóa fór að leysa eru margir
varpstaðir gæsanna undir vatni
eða mjög blautt undir. Þar af leið-
andi virðast færri fuglar vera
komnir í varp en venja er til á
þessum tíma. Þetta getur átt eftir
að lagast og margar eiga eflaust
eftir að byrja þegar jörð þornar
og gæsirnar hafa jafnað sig eftir
norðanáhlaupið.
Allir vildu fá egg í matinn
Það var mikil hefð fyrir nýtingu
eggja í Þingeyjarsýslu fyrr á ár-
um og sérstaklega þar sem endur
verptu í stórum flokkum í Laxár-
hólmum. Sumir settu eggin í ker-
öld og geymdu þau í kalki fram
eftir öllu sumri og fram á vetur.
Voru þá alltaf til góð egg til matar
og baksturs, en kalkið var ótrú-
lega góð geymsluaðferð. Fúlegg
voru líka nýtt til manneldis og
stundum kom fólk úr öðrum sveit-
um eða frá Húsavík til þess að
tína fúlegg eftir að endurnar
höfðu ungað út. Enn er til fólk
sem heldur fúleggjaveislur þegar
varptíma lýkur.
Gæsum hefur heldur fjölgað
Það er alltaf til nóg af eggjum í
búi Agnars, en hann og kona hans
Elín Kjartansdóttir búa með u.þ.b.
30 landnámshænsni. Agnari þykir
bjargfuglsegg mjög góð, en á
sveitabæjum inni í dölum var ekki
alltaf aðgangur að slíku góðmeti í
hans uppvexti. Hann vonar svo
sannarlega að gæsirnar nái sér á
strik svo það fáist fleiri egg á
þessu vori, enda er það auðvitað
alveg meinlaust að fækka undir
þeim. Gæsum hefur fjölgað mikið
á undanförnum árum og þær hafa
valdið miklu tjóni á túnum Þing-
eyinga.
Ekkert vor án gæsareggja
Mikil hefð fyrir nýtingu eggja í Þingeyjarsýslu Enn er til fólk sem heldur fúleggjaveislur
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Egg í öll mál Agnar Kristjánsson, bóndi í Norðurhlíð í Aðaldal, með gæsaregg en honum finnst öll egg góð.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum,
VSV, hefur fest kaup á tveimur upp-
sjávarskipum HB Granda, Faxa RE
og Ingunni AK. Þau munu leysa Kap
VE 4 og Ísleif VE 63 af hólmi. Jafn-
framt kaupir Vinnslustöðin tæplega
0,7% af loðnukvótanum af HB
Granda, en miðað við tæplega 400
þúsund tonna loðnukvóta eins og var
á síðustu vertíð hefði um 2.800 tonn-
um meira komið í hlut VSV. Við þessi
viðskipti minnkar aflahlutdeild HB
Granda í loðnu úr 18,67% í 18,0%.
Heildarsamningsverð er 2.150 millj-
ónir króna. Samningurinn er gerður
með fyrirvara um samþykki stjórna
félaganna og ástandsskoðun.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum, segir að að-
dragandi þessara viðskipta hafi ekki
verið langur, en gengið var frá þeim í
fyrradag. Áður hafði fyrirtækið með-
al annars kannað möguleika á og
fengið tilboð í nýsmíði í Kína, en sá
kostur var ekki talinn fýsilegur að
mati stjórnenda Vinnslustöðvarinnar.
Áætla má að nýtt uppsjávarskip geti
kostað 3-4 milljarða króna. Í Kína er
nýr ísfisktogari, Breki, í smíðum fyrir
Vinnslustöðina.
Fyrirtækið tekur við Ingunni AK í
byrjun júlí og Faxa RE í desember. Í
næstu viku er Venus, nýtt uppsjávar-
skip HB Granda, væntanlegt til lands-
ins frá Tyrklandi og Víkingur, einnig
nýsmíði frá Tyrklandi, í lok ársins.
Mikil breyting fyrir útgerðina
Sigurgeir reiknar með að Kapin
verði seld og Ísleifi lagt þegar kaupin
verða að fullu komin til framkvæmda.
Hann reiknar með að áhafnir á skip-
um Vinnslustöðvarinnar flytjist yfir á
nýju skipin, en í raun er verið að
fjölga um eitt veiðiskip, því Ísleifur
hefur ekki verið virkur á veiðum
nema að hluta á loðnuvertíð. Skipið
hefur á sumrin að mestu verið notað
sem hleri á makríl á tvílembingsveið-
um á móti Sighvati og Kap.
Athygli vekur að Faxi er ári eldri
en Kapin, en Sigurgeir segir að Faxi
hafi verið mikið endurnýjaður. Þann-
ig sé hann með nýja og öflugri vél og
mun meiri kæligetu. Þessi kaup þýði
mikla breytingu fyrir útgerð Vinnslu-
stöðvarinnar.
Ingunn fer á makrílveiðar í sumar
undir nýju nafni og segir Sigurgeir að
áfram verði stundaðar tvílembings-
veiðar, sem hafi gefið góða raun hjá
Vinnslustöðinni. Þá togar eitt skip,
annað er notað sem hleri og það þriðja
er í löndun. Skipin munu skiptast á
hlutverkum í þessari keðju. Sighvatur
og Kap eru nú á kolmunna í færeyskri
lögsögu.
Til hagsbóta fyrir báða aðila
Á heimasíðu HB Granda er haft
eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni, for-
stjóra HB Granda, að hann telji að
salan á Faxa RE og Ingunni AK,
ásamt 0,67% af heimildum til veiða á
loðnu og veiðarfærum til togveiða, sé
bæði seljanda og kaupanda, Vinnslu-
stöðinni, til hagsbóta. Ekki náðist í
Vilhjálm við vinnslu fréttarinnar.
Faxi og Ingunn
til Vestmannaeyja
Uppsjávarskipin
» Ísleifur VE 63 var smíðaður í
Færeyjum 1976.
» Kap VE 4 var smíðuð í Dan-
mörku 1988.
» Sighvatur Bjarnason VE 81
var smíðaður 1975 í Noregi.
» Faxi RE 9 var smíðaður í Pól-
landi 1987.
» Ingunn AK 150 var smíðuð í
Síle árið 2000.
» Lundey NS 14 var smíðuð í
Þýskalandi 1960, er á söluskrá.