Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 78
FRÁ VÍN Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Eurovision. Enginn getur búiðþig undir hvað þetta erstórt. Svo sagði Valli Sport mér allavega þegar ég hitti hann og Maríu Ólafs á mánudaginn og heyrði aftur í gær þegar ég ræddi við norsku keppendurna. Þessi keppni er alltaf í 10. veldi við það sem fólk býst við, sama hvað það bjó sig undir. Valli hefur óþægilega rétt fyrir sér. Umstangið og utanumhaldið í kringum þessa keppni, sem er stærsta söngvakeppni í heimi, er ótrúlegt. Mörg þúsund manns koma að keppnninni sem starfsfólk og sjálfboðaliðar, fyrir utan allar sendinefndir, aðdáendur og blaða- menn. Blaðamannasalurinn er á stærð við fótboltavöll og er þétt setinn flestum stundum. Bara kaffið sem er drukkið hér á hverjum degi hleypur örugglega á hundruðum lítra. Eins og allir vita eru blaða- menn í raun ekkert nema vélar sem breyta orðum og kaffi í fréttir og greinar. Jafnvel þótt okkur Íslend- ingum takist einhverntíma að sigra í þessari keppni, þá er hreinlega spurning hvort við höfum mannafla, eða kaffi, til að halda hana. Sjálfmenntaðir sérfræðingar Samanlögð sérfræðiþekking viðstaddra, aðdáenda og blaða- manna, mælist örugglega í terabæt- um. Á móti mér sat til að mynda maður sem gat nánast rakið stiga- gjöfina í keppninni 1999, þegar við vorum hársbreidd frá sigri, og mundi nokkurn veginn hvenær Sví- ar náðu forystunni. Svona þekking verður ekki til án raunverulegs áhuga. Hér er valinn maður í hverju rúmi. Það er hjálplegt fyrir Euro- vision-græningja eins og undirrit- aðan. Þegar Conchita Wurst sigraði í Eurovision fyrir ári sat ég dolfall- inn ásamt þýsku og austurrísku sambýlisfólki mínu við túbu- sjónvarpið þeirra í íbúðinni okkar í 7. hverfi Vínarborgar. Þá þegar einsetti ég mér að fara á Eurovision í Vínarborg. Og viti menn, aftur er ég kominn í gömlu íbúðina mína í 7. hverfi. Eina breytingin er að ég sef á sófanum og það er kominn flatskj- ár í staðinn fyrir túbusjónvarpið. Höfðingjar heim að sækja Fyrir suma er þessi keppni eins og jólin. Stærri en jólin. Fólk sturl- ast af gleði þegar það sér kepp- endur, svo ekki sé talað um að það fái mynd af sér með þeim. Meðal- stóískur maður eins og ég er meira að segja gripinn með í stemning- unni. Á sunnudagskvöldið var opn- unarpartí hátíðarinnar, þar sem nokkrir keppendur létu sjá sig. Fólk trylltist og slóst nánast um að vera með þeim á mynd. Ísrael hélt svo sitt partí á mánudagskvöldið. Ísraelar eru löngu búnir að sanna sig sem bestu gestgjafarnir í keppninni, og ekki til umræðu annað en að Ísrael taki þátt. Hlaðborðið þeirra svignaði undan hummus og alls konar ísr- aelsku góðgæti. María Ólafsdóttir kom fram í partíinu og flutti, í fyrsta skipti að mér vitandi, dans- útgáfu af „Unbroken“. Það á eftir að heyrast á B5 í allt sumar. Á leiðinni í opnunarpartíið var ég fyrir tilviljun samferða ísraelsk- um aðdáanda keppninnar, sem sagði að þegar hann var sorgmædd- ur unglingur þá hefði lagið hennar Selmu, „All Out of Luck“,, fært hon- um smá gleði. Þarf að segja meira? Já, sennilega. Sami maður sagði mér, þegar Conchita sigraði í fyrra, að hann hefði bókað herbergi í öll- um meðalstórum borgum í Aust- urríki; Vín, Linz, Graz, Salzburg, með árs fyrirvara, til að geta örugglega komist á keppnina. Ég á enn eftir að vefja hausnum almenni- lega utan um þetta. Ekki fyrir viðkvæma Þessi keppni hefur líka opnað fyrir mér nýjar víddir. Ég get til dæmis núna gert mér í hugarlund hvernig það er að vera sæt stelpa á skemmtistað. Aldrei í mínu lífi hef- ur jafnmikið verið reynt við mig á jafnstuttum tíma – og eingöngu af karlmönnum. Ég hef á tilfinning- unni að ég sé, eins og persónan í Little Britain, eini homminn í þorp- inu – bara með öfugum formerkj- um. Afsakið orðaleikinn. En ég kvarta ekki. Eurovision hefur alla tíð snúist um að fagna fjölbreyti- leikanum, áður fjölbreytileika þjóða en í síðari tíð, og sérstaklega á keppninni í ár, fjölbreytileika mannfólksins, sem er í öllum stærð- um, hneigðum og gerðum. Þeir sem eru það óöruggir með eigin gagn- kynhneigð að þeim mislíki að karl- menn reyni við sig ættu sennilega bara að halda sig heima. Þó svo að hafa aldrei áður farið á Eurovision áður hef ég það fram- yfir aðra sem koma að keppninni að Eurovision 2015 Stanslaust stuð að eilífu Ljósmynd/ Elena Volotova (EBU) Norðmennirnir Dúóið Mørland og Debrah Scarlett á æfingu að flytja lagið „Monster Like Me“, framlag Noregs í Eurovision í ár. 78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Sumardrykkur 300,- Se nd um íp ós tk rö fu · s. 52 88 20 0 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Æfingar íslensku sendinefndarinnar í Vínarborg í Austurríki hafa gengið vel að undanförnu. Hópurinn hefur æft daglega í sal í Margarete, sem er fimmta hverfi borgarinnar. Fyrra undankvöld Eurovision fór fram í gær þar sem tíu atriði komust áfram í úrslitin á laugardag og síð- ari undanriðillinn því næstur á svið, undanriðillinn sem Ísland er í. María Ólafsdóttir og hennar föru- neyti munu í dag taka síðasta rennslið fyrir undankvöldið sem er á morgun, en dómnefnd mun dæma atriði síðari undanriðilsins í kvöld og því mætti segja að undankvöldið hefjist með formlegum hætti í dag. Vægi dómnefndar er 50 prósent, á móti öðru eins vægi símakosningar. Aldrei af hótelinu ótilhöfð María hafði nýlokið við hádegis- mat með sendiherra Íslands í Aust- urríki þegar Morgunblaðið náði tali af henni í gær. „Æfingin á laugar- daginn gekk mjög vel og ég er orðin róleg yfir deginum,“ sagði hún en engar breytingar hafa verið gerðar á atriðinu frá æfingunni á laugardag sem gefur til kynna að hópurinn telji atriðið tilbúið fyrir stóru stundina. Aðspurð hvernig dagur í lífi Euro- vision-stjörnu sé úti í Austurríki segir María að það sé aldrei logn- molla í kringum keppendur. „Ég þarf alltaf að vakna mjög snemma, fer í förðun og læt laga á mér hárið. Ég má helst ekki fara út af hótelinu án þess að vera búin að láta hafa mig til,“ segir María og hlær sínum sanna hlátri sem hefur vafalaust sitt að segja um þann með- byr sem íslenska atriðið hefur fengið í skrifum erlendra blaðamanna. Umfjöllunin stressaði hana upp María segir marga blaðamenn og aðdáendur taka af henni myndir og því sé hún alltaf vel tilhöfð áður en haldið er út af hótelinu. Dagskrá hennar frá því að út var haldið hefur verið samsett af viðtölum við blaða- menn og æfingum með íslenska hópnum. Aðspurð hvort skrif erlendra blaðamanna, sem eru að mestu leyti jákvæð í garð íslenska atriðisins, hafi áhrif á hana, segir hún svo vera. Til að mynda hafi það verið umtalað Syngur fyrir dómnefnd í dag  Undanriðillinn hefst formlega í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.