Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Hörður Óskarsson,
fyrrverandi fjármála-
stjóri og síðar aðal-
bókari Ísfélags Vest-
mannaeyja, lést að
heimili sínu, Hrauntúni
12, Vestmannaeyjum,
16. maí sl. á 58. aldurs-
ári.
Hörður fæddist í
Vestmannaeyjum 18.
ágúst 1957. Foreldrar
hans voru Ásta Har-
aldsdóttir húsfreyja og
Óskar Haraldsson
netagerðarmeistari.
Hörður lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1977 og útskrifaðist
sem viðskiptafræðingur frá Háskóla
Íslands árið 1981.
Að námi loknu hóf Hörður störf
hjá Vestmannaeyjabæ og starfaði
þar uns hann réð sig til starfa hjá
Lífeyrissjóði Vestmannaeyja. Árið
1985 hóf hann störf hjá Hraðfrysti-
stöð Vestmannaeyja, sem síðar
sameinaðist Ísfélagi Vestmannaeyja
og starfaði hann þar til dánardags,
fyrst sem fjármálastjóri og nú hin
síðustu ár sem aðalbókari.
Hörður kom víða að trúnaðar- og
félagsstörfum í Vestmannaeyjum.
Hann var félagi í Akóges í Vest-
manneyjum frá 1983, sat þar í
stjórn og var formaður félagsins um
skeið. Hörður var virkur í starfi
ÍBV íþróttafélags og kom þar víða
að, sat í stjórn knattspyrnuráðs um
tíma og var gjaldkeri Shellmóts-
nefndar félagsins frá aldamótum til
dánardags. Þá var Hörður lengi
skoðunarmaður reikninga félagsins
og sat í nýstofnaðri
fjárhagsnefnd félags-
ins allt frá stofnun
hennar til dánardags.
Hörður sat einnig í
stjórn Golfklúbbs
Vestmannaeyja frá
aldamótum til dán-
ardags og var þar
virkur félagi og
stundaði golf af miklu
kappi. Hörður sat í
stjórn Vestmanna-
eyjadeildar Rauða
kross Íslands um tíma
og tók þátt í æfingum
og öðrum þeim við-
burðum sem deildin stóð fyrir.
Hann var virkur félagi í Sjálfstæð-
isflokknum í Vestmannaeyjum og
var m.a. formaður fulltrúaráðs
flokksins um tíma. Hin síðari ár sat
Hörður í stjórn Sparisjóðs Vest-
mannaeyja frá endurreisn hans árið
2010 þar til hann sameinaðist
Landsbankanum í lok mars sl. Þá
var Hörður margsinnis í kjörstjórn í
Vestmannaeyjum við sveitar-
stjórnar-, alþingis- og forsetakosn-
ingar.
Eftirlifandi eiginkona Harðar er
María Guðbjörg Pálmadóttir,
grunnskólakennari í Vestmanna-
eyjum. Þau eiga þrjú börn: Pálma,
f. 1987, Elínu Ósk, f. 1992 og Ástu
Maríu, f. 1996.
Útför Harðar verður gerð frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 30. maí kl. 11. Blóm
og kransar eru vinsamlega afþakk-
aðir en þeim sem vilja minnast
Harðar er bent á Kvenfélagið Líkn í
Vestmannaeyjum.
Andlát
Hörður Óskarsson
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Óvænt en velkomin viðbót varð í
fjárhúsunum á Krossnesi í Árnes-
hreppi á Ströndum í fyrrinótt. Auk
unglambanna hafði ærin Golsa, tíu
vetra, bæst í hóp lambánna. Hún
hefur að líkindum gengið úti í urð-
um í fjallinu milli Fells og Munað-
arness í vetur og sótt í klettasyllur
sem fuglinn helgar sér á sumrin.
Þar festir ekki snjó en getur blásið
hressilega á móti norðrinu. Hugs-
anlega hefur litasamsetningin hjálp-
að þessari lífsreyndu, golsóttu á í
frelsisbaráttunni og virkað sem
felulitir í fjallinu.
Oddný Þórðardóttir, bóndi á
Krossnesi, segir að það hafi verið
ánægjulegt að heimta Golsu því
nánast hafi verið búið að afskrifa
hana. Þessi frjósama ær var ein á
ferð í fjallinu því lömbin hennar tvö
skiluðu sér með öðru fé í fjárhúsin í
haust. Golsa hefur frá því að hún
var veturgömul ævinlega borið
tveimur eða þremur lömbum. Slíkt
verður ekki endurtekið í vor því
engan fékk hún félagsskapinn í
fjallinu í desember.
Sást fyrsta sólardaginn
Þegar fjárhópur frá bæjum í Ár-
neshreppi var sóttur á Munaðarnes
síðari hluta nóvember var Golsa
bágræk og sótti að lokum niður í
fjöru. Þar var hún skilin eftir, en
tveimur tímum síðar þegar Úlfar
bóndi ætlaði að sækja hana á drátt-
arvél fannst hún hvergi.
Daginn sem sólin sást í fyrsta
skipti á árinu, 10. janúar, fór Björn
bóndi Torfason á Melum í göngu í
góðu veðri yfir fjallið og sá Golsu
þá í Munaðarnesurðunum. Í þá
kletta fara menn ekki. Nokkrir leið-
angrar voru gerðir út í vetur til að
leita að Golsu og öðrum kindum
sem vantaði af fjallinu milli bæj-
anna Munaðarness, Fells, Krossnes
og Steinstúns, en Golsa lét ekki sjá
sig.
Komin heim á tún við Fell
Bæirnir Fell og Munaðarnes eru
báðir í eyði, en um helgina komu
eigendur heim að Felli til að gera
klárt fyrir sumardvöl. Á mánudag
kom í ljós að Golsa var komin á tún
við bæinn, en eigraði niður í fjöru
þegar hún varð vör við athygli.
Talsvert bras var síðan að koma
henni aftur upp bakkann við gilin á
Felli. Golsa er sæmilega á sig kom-
in að sögn Oddnýjar og er enn í
skjólgóðri ullinni.
Oddný segir að veturinn hafi ver-
ið stormasamur í Árneshreppi og
tíðin heldur leiðinleg, þó svo að oft
hafi snjóað meira. Sauðburður er
nú að ná hámarki, en lítið hefur
minnt á sumarið þar til í gær að brá
til betri tíðar. Að kvöldi fyrsta sum-
ardags brast á með fjögurra sólar-
hringa norðanbyl og síðan hefur
verið hryssingur í veðrinu, að sögn
Oddnýjar. Vegurinn norður í Ár-
neshrepp lokaðist á ný í þessu
áhlaupi, en búið er að opna hann
fyrir nokkru.
Tún eru orðin auð og fyrstu
grænu stráin byrjuð að stingast
upp úr sverðinum eftir vætu mánu-
dagsins. Hugsanlega verða fyrstu
lambærnar settar út í dag.
Í felulitum í fjallinu í allan vetur
Golsa á Krossnesi í Árneshreppi skilaði sér heim á miðjum sauðburði Tíu vetra og hefur alltaf átt
2-3 lömb þar til nú Stormasamur vetur að baki og sumarið byrjaði með fjögurra daga norðanbyl
Ljósmynd/Oddný Þórðardóttir
Treg í taumi Magnús Guðmundsson og Ásþór Jökulsson, afkomendur síðustu ábúenda á Felli, fundu Golsu og komu
henni upp úr bröttu gilinu neðan við bæinn. Úlfar Eyjólfsson bóndi á Krossnesi fylgist með aðförunum.
Komin heim Golsu var vel tekið í fjárhúsunum og sátt við tugguna.
LISTHÖNNUNARDEILD
GRAFÍSK HÖNNUN
Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og
frumlega framsetningu hugmynda. Á þremur árum
öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í
faginu, sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi
verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla ogmargmiðlun.
Námseiningar: 180
FAGURLISTADEILD
FRJÁLS MYNDLIST
Námið í Fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára
sérhæft nám sem veitir starfsmenntun í frjálsri
myndlist. Nemendur fá nauðsynlega þjálfun og
tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík
viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni.
Námseiningar: 180
MYNDLIST - HÖNNUN - ARKITEKTÚR
FORNÁM
Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum.
Listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir framhalds-
nám á sviði myndlistar, hönnunar og arkitektúrs.
Myndlistaskólinn á Akureyri býður upp á hnitmiðað
72ja eininga heildstætt nám í sjónlistum.
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 2015-2016
WWW.MYNDAK.IS
462 4958 · Kaupvangsstræti 16 · Pósthólf 39 · 602 Akureyri
Mannanafnanefnd hefur hafnað því
að skrá kvenmannsnöfnin Prins-
essa og Gail í mannanafnaskrá en
samþykkt nafnið Tíalilja. Karl-
mannsnöfnin Kvasir og Góði voru
samþykkt en nafninu Ethan var
hafnað.
Í úrskurði nefndarinnar segir
meðal annars að orðið prinsessa sé
samnafn sem þarfnist ekki sér-
stakrar útskýringar, enda vel þekkt
í íslensku máli. Allmörg dæmi eru
um það í íslensku að samnöfn séu
notuð sem mannanöfn, t.d. Hrafn.
Samnöfn sem merkja titla eða
starfsheiti, til dæmis ráðherra, for-
seti eða drottning, eru hins vegar
ekki notuð sem sérnöfn.
Telur nefndin ljóst miðað við
hefðir íslensks máls að mannanöfn
af þessu tagi séu ekki í samræmi við
hefðir í íslensku máli.
Góði í lagi en ekki
Prinsessa og Ethan
Morgunblaðið/Ásdís
Nafn Íslenskar stúlkur má ekki skíra
Prinsessa. En Tíalilja var þó samþykkt.
Starf stýrihóps um sameiginlega at-
hugun ríkis, Reykjavíkurborgar og
Icelandair Group á flugvallar-
kostum á höfuðborgarsvæðinu, þ.e.
Rögnunefndin, og greiningarvinna
hefur til þessa kostað 34,8 millj. kr.
án vsk. Þetta kemur fram í svari
innanríkisráðherra við fyrirspurn
Ögmundar Jónassonar um störf
stýrihópsins.
Segir í svarinu að hlutur ríkisins
sé þriðjungur af heildarkostnaði,
eða 11,6 millj. kr. án virðisauka-
skatts. Kostnaður deilist jafnt á að-
ila samkomulagsins. Unnið er að
sérstöku samkomulagi um lok vinn-
unnar sem ekki liggur fyrir.
Rögnunefndin hefur
kostað 35 milljónir