Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 61
61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
4ra rétta seðill og
A la Carte í Perlun
ni
Veitingahúsið Perlan
Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207
Netfang: perlan@perlan.is
Vefur: www.perlan.is
REYKT BLEIKJA
með hnúðkáli, kryd
dbrauði og agúrkus
orbet
HUMARSÚPA
Rjómalöguð með M
adeira og steiktum
humarhölum
LAMB Á TVO VEGU
, LÉTTSTEIKT OG H
ÆGELDAÐ
með heslihnetum,
seljurót, rósmarín-
kartöflupressu og r
auðvínssoðgljáa
*** eða ***
FISKUR DAGSINS
ferskasti fiskurinn h
verju sinni
útfærður af matrei
ðslumönnum Perlu
nnar
TVEGGJA LAGA SÚ
KKULAÐIMÚS
með ástaraldin-hla
upi, haframulningi
og vanilluís
Gjafabréf
Perlunnar
Góð gjöf við
öll tækifæri!
Sumar
Stefán Elí Stefánsson,
yfirmatreiðslumaður
Perlunnar og sigurvegari
matreiðslukeppninnar
Bragð Frakklands 2014,
mælir með 4ra rétta seðli
Perlunnar.
og hvítar rendur þversum neð-
arlega á kjólnum. „Mynstrið á
kjólnum skapar fallega og sterka
grafík og allt yfirbragð kjólsins
rímar vel við tóninn í laginu. Þarna
varð fyrir valinu kjóll sem smell-
passaði við sjóið, fór bæði Önnu og
laginu vel. Kjóllinn gerir líka Önnu
Mjöll stærri og meira áberandi á
sviðinu. Hún er smávaxin og er
greinilega í mjög háum hælum
undir kjólnum og spilað með hlut-
föllin til að forma hana á réttan
hátt og gefa aukna þyngd á skján-
um.“
Bakraddasöngvararnir voru
klæddir í hvít jakkaföt, nokkuð víð
og axlamikil eins og tískan var.
„Þessi jakkaföt eru svolítið börn
síns tíma og í dag væru þessir
menn klæddir í slim-fit, en þetta
virkar samt.“
Heildarmyndin í lagi
Linda tilgreinir einnig þau Grétu
Salóme og Jónsa sem sungu „Ne-
ver Forget“ í Baku árið 2012.
Svarti liturinn var áberandi í
klæðnaði þeirra, hann í svörtum
jakkafötum og hvítri skyrtu með
uppbrettan kraga, en hún í svört-
um síðkjól undir sterkum áhrifum
frá íslenska skautbúningnum.
„Fötin spila vel með öllu atriðinu
og tilvitnanir í íslenskar hefðir
njóta sín,“ segir Linda. „Formið á
kjólnum var mjög fallegt í fjar-
mynd en útsaumurinn fallegur í
nærmynd. Þarf að hugsa um bæði
fjarmynd og nærmynd, og var gert
í þessu tilviki. Heildarmyndin og
konseptið var gott.“
Að lokum hrósar Linda klæðnaði
Pollapönks-liða sem sungu fyrir ís-
lands hönd í fyrra. „Þeir voru að
vísu í Henson-joggingöllum í for-
keppninni en skiptu þeim út fyrir
marglit jakkaföt í aðalkeppninni.
Það sem tekst vel til hjá þeim er
að viðhalda góðu samræmi og
sterkri heildarmynd sem á vel við
boðskap lagsins og léttleikann.
Konseptið er skýrt en heldur ekki
gengið of langt. Þeir hefðu getað
verið í glimmer-jakkafötum til að
vera enn meira áerandi en það
hefði kaffært allt hitt. Húmorinn
og gleðin skín í gegn en er samt
laus við hvers kyns offors.“
Rangar buxur á röngum stað
Rétt eins og Linda er viljug að
hrósa því sem vel er gert þá liggur
hún ekki á skoðunum sínum um
þau skipti sem henni þykir klæðn-
aður íslensku söngvaranna hafa
verið í ólagi. Hún segir verstu til-
vikin einkennast af slæmum
saumaskap, sniðum sem hentuðu
ekki þeim sem klæddist flíkinni og
hreinlega fatavali sem væri meira í
samræmi við ferð á bar eða
skemmtistað en að syngja fyrir
framan alla Evrópu.
Fyrst á listanum er Birgitta
Haukdal sem söng smellinn „Open
Your Heart“ í Riga árið 2003.
„Hún klæðist hvítum útvíðum bux-
um og flegnum hvítum toppi, að
ógleymdu stóru hvítu blómi í
hárinu. Fer þessi samsetning henni
ekki vel, ekkert heildar-konsept
sem koma má auga á, enginn stíll,
heldur bara hrærigrautur af alls
konar hlutum. Förðunin var heldur
ekki vel heppnuð en Birgitta segist
sjá um förðunina sína sjálf. Þarna
hefði mátt fá fagmann til verks-
ins.“
Jóhanna Guðrún, sem söng „Is
It True“ í Moskvu árið 2009, og
var hársbreidd frá fyrsta sætinu,
fær heldur enga vægð hjá Lindu.
Jóhanna var í heiðbláum síðkjól
sem Linda er ekki nógu ánægð
með. „Kjóllinn fór henni ekki vel
og virðist ekki vel gerður. Hann er
illa fomaður og saumaður úr bút-
um og gerir hana klunnalega á
sviðinu. Þá hefði ekki átt að velja
bláan lit enda sviðið allt upplýst
með bláum ljósum. Rauður eða
appelsínugulur hefði skapað skýr-
ari andstæður á skjánum.“
Selma Björnsdóttir söng „All ot
of Luck“ í Jerúsalem árið 1999.
Heppnin virðist ekki hafa verið
með henni á tískusviðinu í það
skiptið ef marka má Lindu. „Hún
er í ljósum einföldum kjól en vant-
að hefur upp á saumaskapinn því
hálsmálið hélt ekki formi sínu,“
segir Linda og gleymir heldur ekki
dönsurunum tveimur sem lífguðu Ljósmynd/Sander Hesterman
Litir Pollapönks-liðar hitta í mark hjá Lindu með skýrri heildarmynd þar sem ekki var farið yfir strikið. SJÁ SÍÐU 62
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift