Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Morgunblaðið/Styrmir Kári Með upprennandi KR-ingum Guðjón ásamt leikskólabörnum úr Ægisborg sem heimsóttu höfuðstöðvarnar. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Eins og flestir strákar semalast upp í nágrenni KR íVesturbæ Reykjavíkurvar Guðjón Guðmundsson ekki hár í loftinu þegar hann byrjaði að sparka bolta með félaginu. Hann var – og er vitaskuld enn, svo sannur KR-ingur að í huga hans var ekkert sjálfsagðara en sjálfboðaliðastarf í þágu félagsins um leið og hann hafði aldur og getu til. Það var fyrir tæpri hálfri öld. Og enn starfar Guðjón fyrir KR, nú sem formaður stjórnar Fram- tíðarsjóðs KR. Hann var formaður knattspyrnudeildar KR frá 1998 til 2003 þegar hann tók við formennsku félagsins, sem hann gegndi í tíu ár. Aðspurður kveðst Guðjón hafa átt hugmyndina að Framtíðar- sjóðnum, sem stofnaður var fyrir þremur árum, en hafi fram til þessa kannski ekki verið á allra vitorði. „Stofnun sjóðsins var með mínum síð- ustu verkum sem formaður. Hug- myndin vaknað fyrst og fremst vegna þess að mér fannst vanta vettvang fyrir fólk sem hafði alist upp með fé- laginu og vildi leggja sitt af mörkum til að tryggja KR fjárhagslega til framtíðar; safna peningum í sér- stakan sjóð sem meðal annars væri notaður til uppbyggingar barna- og unglingastarfinu, í stað þess að þeir færu í daglegan rekstur.“ Hornsteinn félagsins Svarthvíta þráðinn í 116 ára sögu félagsins segir Guðjón vera barna- og unglingastarfið og það samfélagslega hlutverk sem KR hafi gegnt í nærsamfélaginu frá upphafi. Metnaður KR til að sinna þessu mik- ilvæga hlutverki enn betur speglist í stofnun Framtíðarsjóðsins, sem KR- ingar leggi nú sérstaka áherslu á að kynna fyrir velunnurum félagsins. „Markmiðið er að sjóðurinn verði með tíð og tíma hornsteinn félagsins og varanlegur grunnur að framþróun þess.“ Framtíðarsjóður KR er sjálfs- eignarstofnun. Framlög í sjóðinn mynda höfuðstól sem skerðist ekki heldur vex með nýjum framlögum. Guðjón segir að aðeins megi nota ávöxtun sjóðsins umfram verðbólgu til úthlutunar í verkefni sem teljist stuðla að framtíðarheill félagsins. Sem dæmi nefnir hann að fénu verði varið til uppbyggingar og þróunar á starfsemi og aðstöðu. „Úthlutun úr sjóðnum á hvorki að standa undir daglegum rekstri né einstaka deild- um nema því aðeins að gefandinn setji slíkt sem skilyrði. Verkefnin eru óþrjótandi, kostnaður við menntun þjálfara er eitt, uppbygging aðstöðu er líka viðvarandi verkefni, sem sjóð- urinn getur væntanlega lagt fé í þeg- ar fram líða stundir og ótal margt fleira mætti tína til.“ Háleit markmið Velunnarar KR hafa vitaskuld í hendi sér með hvaða hætti þeir styðja við félagið. Framlögin geta verið í formi styrkja og gjafa. Guðjón segir dæmi um að í stað þess að þiggja gjafir á stórafmælum hafi margir „sem eigi allt“ mælst til að gestir láti andvirði gjafanna renna til KR. „Framlögin, sem eru eyrnamerkt þeim einstaklingi, fyrirtæki eða félagi sem að þeim standa, geta verið í tengslum við skipulagt söfnunarátak, minningarkort og arf auk þess sem velunnarar geta greitt ákveðna fjár- hæð sem eingreiðslu eða mánaðar- lega stuðningsgreiðslu,“ segir hann og bendir á vefinn kr.is, vilji fólk fá nánari upplýsingar. Spurður hvort sjóðurinn muni styrkja einstaklinga eða lið vegna fjárfrekra verkefna segir Guðjón slíkt koma til greina ef stjórnin meti til- tekið verkefni koma framtíðarþróun og uppbyggingu félagsins til góða. Hann tekur þó fram að fénu verði ekki varið til að kaupa leikmenn. „Markmiðin eru háleit, við vilj- um stuðla að því að láta drauma ungra KR-inga í öllum deildum fé- lagsins rætast. Við erum að vinna að því að kynna sjóðinn, koma honum á kortið ef svo má segja og ég trúi því að arðsemin verði góð og nýtist vel í uppbyggingu félagsins. Við setjum okkur ekki tímamörk en markmiðið er að úthluta úr sjóðnum þegar 50 milljóna takmarkinu er náð,“ segir Guðjón. Núna eru 3 milljónir í kass- anum og því töluvert í að þeim áfanga verði náð. Búið í haginn fyrir KR- inga framtíðarinnar Svarthvíti þráðurinn í sögu Knattspyrnufélags Reykjavíkur er öflugt barna- og ung- lingastarf sem Guðjón Guðmundsson, fyrrverandi formaður KR, segir gegna þýðingar- miklu samfélagslegu hlutverki. Hann er formaður stjórnar Framtíðarsjóðs KR, sem sett- ur var á laggirnar til að viðhalda því starfi og láta drauma ungra KR-inga rætast. Morgunblaðið/Ómar Alls konar íþróttir Innan vébanda KR eru starfræktar margar deildir. Knattspyrnufélag Reykjavíkur var stofnað 1899. Árum saman snerist starfsemin eingöngu um fótbolta en með tímanum færði félagið út kví- arnar og stofnaðar voru fleiri íþróttadeildir. Innan vébanda KR eru nú níu deildir auk knattspyrnudeildarinnar; badminton-, borðtennis-, frjáls- íþrótta-, glímu-, handbolta-, körfubolta-, sund- og skíðadeild. Aðbúnaður og aðstaða hefur að vonum mikið breyst í áranna rás og er allsendis ólíkt því sem Pétur Á. Jónsson óperusöngvari upplifði þegar hann sparkaði bolta í nafni KR í lok 19. aldar. Í æviminningum sínum sagðist honum svo frá: „Flestir sem íþróttina iðkuðu voru krakkar og unglingar. Enginn átti knattspyrnustígvél. Var fótabúnaður með margvíslegu móti, sumir jafn- vel á kúskinns- eða selskinnsskóm, og mun boltinn þá ekki hafa verið þægilegur viðureignar, einkum þegar hann var rennblautur upp úr poll- inum. Knötturinn, sem þá hét fótbolti, var áreiðanlega af ódýrustu gerð, oft linur og gúlóttur. Sá þótti mesti maðurinn sem lengst gat sparkað, hvern- ig sem á stóð, eða vaðið gegnum fylkingu með boltann og þjösnast ein- hvern veginn með hann í gullið. KR-ingar á kúskinnsskóm EINU SINNI VAR . . . Laugavegi 103 | 101 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is Eurovision tilboð 30% afsláttur af Adax ferðatöskum 18-30 maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.