Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 2
Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson gerði myndband um systur Hreiðars Más Sigurðssonar, Þórdísi, þeg- ar hún varð fertug í fyrra. Gréta Sigurðardóttir, móðir Þórdísar og Hreiðars, fékk Loga til verksins. Logi ræddi í myndbandinu við vini Þórdísar um hana eins og honum einum er lagið. hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni Óskynsamlegt að borga Gamli Glitnir þarf líklega að afskrifa rúmlega 800 millj- óna króna skuld félags í eigu Bjarna Ármannssonar. Bjarni segir að lánið hjá Glitni hafi verið tekið í ársbyrjun 2008 til að fjármagna kaup á hlutabréfum í norska fasteignafélaginu Glitnir Prop- erty Holding. Hann segir fjárfesting- una vera sorgarsögu. Bjarni fékk 7 milljarða í vasann þegar hann hætti hjá Glitni árið 2007 en segir að það væri óábyrg meðferð á fé að greiða skuldina við Glitni til baka. „En við komumst að samkomulagi. Ég borgaði eitthvað og við kláruðum málið,“ segir Bjarni sem gengur frá Imagine Investment án þess að greiða nema brot af því sem hann skuldaði bankanum. Hann tapaði þó rúmlega 300 milljóna króna hlutafé sem hann lagði í félagið. níðst á börnum Bárður Ragnar Jónsson, formaður Breiðavíkursamtakanna, segir nýja skýrslu vistheimilisnefndar staðfesta að barnaverndar- yfirvöld hafi algjörlega brugðist hlutverki sínu. Í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í vikunni kemur fram að fjöldi barna og unglinga, sem dvöldust á Kumbaravogi, Bjargi og í Heyrnleysingjaskólanum, var beittur líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Félagsmálaráðherra baðst opinberlga afsökunar vegna málsins. „Þarna eru staðfestir hlutir sem við vissum fyrir. Eftirlitið var ekki neitt,“ segir Bárður. Skýrslan um starfsemina er kolsvört. Niðurstaða nefndarinnar er að meiri líkur en minni séu á að fjöldi þeirra barna og unglinga sem þar voru vistuð hafi orðið fyrir líkam- legu og kynferðislegu ofbeldi. í viðskiptum við mömmu Kaupþing banki var langstærsti við- skiptavinur Gjafavers, fyrirtækis sem var í eigu móður Hreiðars Más Sigurðssonar forstjóra samstæðunnar. Gréta Sig- urðardóttir, móðir Hreið- ars, seldi fyrirtæki sitt fyrir 80 til 100 milljónir í ársbyrjun 2007 en starfaði hjá því áfram. Gjafaver seldi Kaup- þingi jólagjafir til starfsmanna bank- ans og ýmiss konar auglýsingavöru, eins og til dæmis penna merkta Kaupþingi. Gjafaver sá erlendum útibúum Kaupþings einnig fyrir slíkri vöru. Samkvæmt heimildum DV seldi Gjafaver einnig jólagjafir og auglýsingavörur til útibúa Kaup- þings í öðrum löndum. Starfsemi Gjafavers var því alþjóðleg á meðan Gréta átti félagið og átti það tryggð viðskipti við öll útibú Kaupþings- samstæðunnar. 2 3 1 SPARAÐU OG GRÆDDU sparnaður umsjón Baldur Guðmundsson Sparar tíma og peninga „Ég er talsvert fljótari að hjóla og fara í sturtu en að taka strætó,“ segir Guðmundur Andri Hjálmarsson, heimspekingur og tölvunar- fræðingur. Andri hefur í um eitt ár hjólað til vinnu sinnar, úr Garðabæ niður í miðbæ Reykjavíkur. Leiðin er að sögn Andra um 10 kílómetrar og því hjólar hann um 20 kíló- metra alla vinnudaga. Á einni viku hjólar hann 100 kílómetra. Mikill tímasparnaður Hjólreiðar geta verið skilvirk leið til að spara peninga. Samkvæmt tölum frá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda kostaði um síðustu áramót 4.800 krónur á dag að reka tveggja milljóna króna bíl. Margfalt ódýrara er þó að taka strætó en níu mánaða kort kostar 30.500 krónur, samkvæmt heimasíðu Strætós. Það má því ljóst vera að hjólreiðar geta sparað mikinn peninga. Andri segir þó tímasparnað helstu ástæð- una fyrir því að hann hóf að hjóla í vinnuna. „Það tekur svo langan tíma að taka strætó. Auk þess er þetta fín líkamsrækt,“ segir hann og bætir við að hann hafi ekki sérstaklega horft í sparnaðinn, þegar hann ákvað að byrja að hjóla í vinnuna. „Það kemur inn alls kyns viðhald á hjólinu og þess háttar en það er svo sem sáralítill kostnaður,“ segir hann. Nagladekk á veturna Andri segir ekki mikið mál að hjóla í vinn- una á veturna, þegar veður eru misjöfn. „Ég set nagladekk undir og klæði mig vel. Þá er þetta bara frábært,“ segir Andri sem hjólar á reiðhjólastígum stóran hluta leiðarinnar. Hann segir að það sé lítið mál. „Það kemur hins vegar fyrir að maður fer aðeins í um- ferðina og það getur verið svolítið erfitt. Fólk er ekkert roslega tillitssamt,“ segir Andri að- spurður. Hann segir að merkilega margir hjóli í vinnuna. „Það eru alltaf einhvejrir. Mér finnst það hafa aukist undanfarið, alveg tví- mælalaust.“ baldur@dv.is Guðmundur Andri Hjálmarsson SéRblAÐ Um SPARnAÐ F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is miÐvikUDAGUR OG fimmtUDAGUR 9.–10. september 2009 dagblaðið vísir 124. tbl.99. árg. – verð kr. 347 SkUlD bJARnA HJÁ Glitni vERÐUR AfSkRifUÐ HEfÐivERiÐ ÓÁbYRGt AÐ bORGA, SEGiR bJARni SLEPPUR VIÐ 800 MILLJÓNIR BJARNI ÁRMANNSSON: „ÍSlAnD vERÐUR blESSAГ StYRkiR öRYRkJA StJÓRnin HÆkkAR mAtinn 16 kr . 160 k r. 8 kr . fRéttiR nEYtEnDUR fÓlk HEllSAnGElS: kROSStEnGSl JÓnS ÁSGEiRS dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 8. sepTember 2009 dagblaðið vísir 123. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 geTa ekið 50 þúsUnd kílómeTra á þinn kosTnað beðið í bíó sporT rannsakar skipskaða fréTTirmóðir hreiðars í stórviðskiptum við kaupþing: KEYPTI GJAFIR KAUPÞINGS HJÁ MÖMMU finnUr og krisTinn Tengdir á 850 VegU krossTengsl finns ingólfssonar og krisTins hallgrímssonar korTlögð fréTTir beggi í hjarta- þræðingu sTefáni hóTað erlenT korTer er hámark fUndinsek Umað Vera íbUXUm „þeTTa er úrsliTa- leikUr“ ValUr mæTir sTjörnUnni neyTendUr Vegleg fríðindi þingmanna fréTTir hún seldi öllUm úTibúUm bankans VörUr seldi kaUpþingi jólagjafir Til sTarfsmanna seldi sVo fyrirTækið á 80 Til 100 milljónir „ég má mig hVergi hræra“fólk 2 föstudagur 11. september 2009 fréttir fréttir 9. september 2009 miðvikudagu r 9 „ÞARNA ER ENGUM HLÍFT“ „Þarna eru staðfestir hlutir sem við vissum fyrir. Eftirlitið var ekki neitt,“ segir Bárður Ragnar Jóns- son, formaður Breiðavíkursam- takanna, um skýrslu vistheimilis- nefndar um Kumbaravog, Bjarg og Heyrnleysingjaskólann. Kolsvört skýrsla um starfsemina á heimil- unum var kynnt í gærmorgun en þar er fjallað um starfsemi þess- ara heimila sem starfrækt voru á árunum 1947 til 1992. Niðurstaða nefndarinnar er að meiri líkur en minni séu á að fjöldi þeirra barna og unglinga sem þar voru vistuð hafi orðið fyrir líkamlegu og kyn- ferðislegu ofbeldi. Skýrslan er rúmar 400 blaðsíður. Sannleikurinn ljós Georg Viðar Björnsson, varafor- maður Breiðavíkursamtakanna, segir skýrsluna faglega unna. „Þarna er engum hlíft. Þeir greini- lega leggja áherslu á staðreynd- irnar og eru ekki að reyna að fela sannleikann. Þarna sést að yfirvöld brugðust algjörlega,“ segir hann. Breiðavíkursamtökin eru regn- hlífarsamtök sem stofnuð voru eft- ir að upp komst um hrikalega mis- notkun sem átti sér stað á fjölda heimila sem starfrækt voru í skjóli barnaverndaryfirvalda áratugum saman. Samtökin eru því sam- eiginlegur vettvangur þeirra sem á heimilunum dvöldust en eru kennd við Breiðavík þar sem fyrst komst upp um ofbeldið. DV fjallaði fyrst fjölmiðla um Breiðavíkurmálið í ársbyrjun 2007. Helgi Jón Davíðsson greindi þá frá ömurlegri reynslu sinni af vistun á Breiðavík og fleiri komu í kjölfar- ið. Ljóst var að stórkostlegar brota- lamir voru í eftirliti með slíkum heimilum af hálfu barnaverndar- yfirvalda. Skýrslan um starfsemina í Breiðavík var kynnt á síðasta ári og var þar staðfest, líkt og með hin þrjú heimilin nú, að þar voru ungmennin beitt alvarlegu ofbeldi af þeim sem falið var að hlúa að þeim. Engin afsökun fyrir stjórnvöld Bárður Ragnar segir að með skýrsl- unum hafi orðið straumhvörf í embættisfærslum á Íslandi og að lofsvert sé í alla staði að farið sé út í vinnu sem þessa. Enn er óunnin skýrsla um starfsemi fleiri heimila, svo sem Silungapolls og Reykja- hlíðar. Til stóð að þeirri skýrslu yrði skilað í sumar en nefndin fékk skilafrestinn framlengdan um ár. Búist er við að allri rannsóknar- vinnu um heimilin verði lokið árið 2011 sem Bárði finnst heldur lang- ur tími. Hann heldur einnig fast í gagn- rýni Breiðavíkursamtakanna á þær bætur sem ríkið bauð fórnarlömb- unum sem dvöldust á Breiðavík og segir þær vera til skammar. Honum finnst mikilvægt að sátt náist í því máli sem fyrst þar sem þær bæt- ur verði fordæmi fyrir bótagreiðsl- um til þeirra sem dvöldust á hin- um heimilunum. „Stjórnvöld hafa enga afsökun fyrir að ljúka ekki Breiðavíkurmálinu. Sú skýrsla er löngu tilbúin og öll gögn liggja fyr- ir. Ég óttast að þau séu að reyna að sleppa sem ódýrast því hér á í hlut jaðarhópur og smælingjar. Ég von- ast hins vegar til að þau geri þetta sómasamlega,“ segir hann. Lokuð niðri í sandkassa Þegar á heildina er litið telur nefnd- in að meiri líkur en minni séu á því að fyrrverandi vistmenn vistheim- ilisins að Kumbaravogi hafi þurft að sæta illri meðferð eða ofbeldi. Á Kumbaravogi voru tvö vistheimili; Kumbaravogsheimilið og Snekkju- vogsheimilið. Frá árinu 1965 til ársins 1984 voru 20 einstaklingar vistaðir af hálfu barnaverndaryfirvalda á Kumbaravogsheimilinu. Frá 1970 til 1975 voru 16 einstaklingar vist- aðir á Snekkjuvogsheimilinu. Fjórir fyrrverandi vistmenn greindu nefndinni frá því að þeir hefðu þurft að sæta líkamlegu of- beldi af hálfu forstöðuhjónanna eða orðið vitni að slíku. Þeir sögð- ust einnig annaðhvort hafa þurft að sæta kynferðislegu ofbeldi af hálfu gestkomandi á heimilinu eða haft vitneskju um að slíkt ofbeldi ætti sér stað. Fimm greindu frá því að refs- ingar hefðu verið algengar á heimilinu, og fjórir sögðu al- gengt að börn hefðu verið lokuð inni á salerni eða í herbergjum ef þau komu of seint inn á mat- málstímum. Fjórir vistmenn sem dvöld- ust á Snekkjuvogsheimilinu sögðu að harður agi hefði ein- kennt uppeldisaðferðir umsjón- armannsins. Þá var greint frá því að fyrir framan húsið hefði verið yfirbyggur sandkassi með hlera sem unnt var að læsa og komið hefði fyrir að börn væru lokuð þar inni í refsingarskyni. Vistmennirnir sögðu einnig að einn umsjónarmaður heim- ilisins hefði talað niðrandi um ungmennin sem þar dvöldust og fjölskyldur þeirra. Einnig hefði hann komið með niðrandi at- hugasemdir um útlit þeirra og þyngd í viðurvist annarra. Áreittar af starfskonum Skólaheimilið Bjarg var starfrækt á árunum frá 1965 til 1967. Þar voru tuttugu stúlkur á aldrinum 14 til 16 ára vistaðar. Í skýrslunni kemur fram að meirihluti þeirra sem gaf skýrslu fyrir dómi og hjá lögreglu hafi lýst illri meðferð eða ofbeldi. Þá séu meiri líkur en minni á að sumar stúlknanna hafi mátt þola kynferðislega áreitni af hálfu einhverra starfskvenna. Þá telur nefndin að opinberu eftir- liti með starfseminni hafi verið ábótavant. Í skýrslunni kemur einnig fram að drjúgur hluti fyrrverandi nem- enda Heyrnleysingjaskólans á ár- unum 1947 til 1968 og 1968 til1982 hafi lýst illri meðferð eða ofbeldi. Á tímabilinu 1968 til1982 séu meiri líkur en minni á því að hluti nem- enda skólans hafi sætt kynferð- islegu ofbeldi og kynferðislegri áreitni af hálfu samnemenda, kyn- ferðislegri áreitni af hálfu tiltekins kennara við skólann og kynferðis- legu ofbeldi af hálfu utanaðkom- andi einstaklings. Má aldrei gerast aftur Árni Páll Árnason, félags- og trygg- ingamálaráðherra, hefur beð- ist opinberlega afsökunar vegna málsins. „Það er ótvíræð niður- staða skýrslunnar að opinbert eft- irlit með starfsemi vistheimilanna hafi í öllum tilvikum brugðist. Þessi staðreynd hefur valdið fjölda fólks miklum sársauka og á því er rétt og skylt að biðjast afsökunar,“ segir hann í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. „Við skuldum því fólki sem á um sárt að binda vegna mis- taka í fortíðinni að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að slíkir atburðir hendi aldrei aft- ur,“ segir Árni Páll. Bárður Ragnar og Georg Viðar lofa afsökunarbeiðnina en finnst að verk þurfi að fylgja orðum þeg- ar kemur að því að bæta vistmönn- unum skaðann sem þeir urðu fyrir í skjóli íslenskra yfirvalda. ErLa HLynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is „Þarna sést að yfirvöld brugðust algjörlega.“ Bárður ragnar Jónsson Sigurður Sigurðarson, sem nú er vígslubiskup í Skálholti, var starfs-maður í Breiðuvík í þrjú sumur á þeim tíma sem Þórhallur Hálfdán-arson var forstöðumaður þar. Hluta úr ári leysti hann forstöðumanninn af. Drengirnir sem voru vistaðir í Breiðuvík segja að Sigurði hafi ver-ið fullkunnugt um það ofbeldi sem Þórhallur og fleiri starfsmenn beittu drengina. Sigurður vildi ekki tala efnislega um málið þegar DV leit-aði eftir því. Það á hann sameigin-legt með öðrum fyrrverandi starfs-mönnum í Breiðuvík.Sigurður Sigurðarson var að-eins 26 ára gamall þegar hann réðst til starfa í Breiðuvík. Á næstu opnu er viðtal við tvo þeirra drengja sem dvöldu í Breiðuvík, Maron Berg-mann Brynjarsson og félaga hans sem kýs nafnleynd og er nefndur Einar hér í DV. Þeir, eins og fleiri sem vistaðir voru í Breiðuvík, hafa lýst því að Sigurður hafi orðið vitni að ofbeldi sem þar var beitt, en því neitar núverandi vígslubiskup. Þegar fullyrðingar fyrrverandi vistmanna í Breiðuvík um ofbeldi, svelti og kynferðislega misnotk-un voru bornar undir Sigurð, vildi hann ekkert tjá sig opinberlega um málið. Hann segist búast við því að rannsókn verði gerð á starfseminni og þá þurfi hann að gera hreint fyrir sínum dyrum. Fyrr muni hann ekki tala opinberlega. Kynfæraskoðun og umskurðurSögum drengjanna sem voru vistaðir í Breiðuvík ber saman um að þeir hafi verið leiddir fyrir Sig-urð og kynfæri þeirra verið skoðuð. Í einhverjum tilfellum var talað um að umskera drengina. Staðfest er að þessi kynfæraskoðun var stunduð og farið var með tvo drengi til læknis í kjölfarið.Tveir fyrrverandi vistmenn segja að tilgangurinn með þessari kyn-færaskoðun hafi verið að koma í veg fyrir samkynhneigð og hindra kyn-ferðislegt samneyti milli yngri og eldri drengjanna.Sigurður virðist ekki hafa verið þátttakandi í líkamlegu ofbeldi á staðnum. Drengirnir segjast hafa getað leitað til hans. Biturð þessara fyrrverandi vistmanna beinist að því að hulunni skuli ekki hafa verið svipt af starfseminni í Breiðuvík. Augljósar barsmíðarMaron Bergmann segir það vera öruggt að Sigurður hafi vitað um það ofbeldi sem fór fram í Breiðuvík. „Herbergið hans var á ganginum okk-ar. Veggirnir voru þunnir og barsmíð-ar og óp fóru ekki framhjá neinum,“ segir Maron. Einar vinur hans geng-ur lengra og fullyrðir að Sigurður hafi horft upp á barsmíðar á drengjunum af hálfu Þórhalls Hálfdánarsonar for-stöðumanns og hlegið.Maron og Einar virðast ekki reiðu-búnir að fyrirgefa. „Ég vil sjá ein-hvern dreginn til ábyrgðar, jafnvel þótt langt sé um liðið,“ segir Maron. Hann segir að nú þurfi að ljúka mál-inu. „Það er verið að tala um að nú-verandi barnaverndaryfirvöld bjóði okkur upp á sálfræðihjálp. Ég mun aldrei treysta þessum stofnunum. Ég vil sjá þær lagðar niður.“ Ekkert öryggisnetBarnaverndaryfirvöld voru gagn-rýnd á áttunda áratugnum fyrir að senda drengina til Breiðuvíkur og gleyma svo tilvist þeirra. Á þeim tíma sem Sigurður leysti af sem forstöðu-maður beindist gagnrýnin fyrst og fremst að því að yfirvöld skyldu nota Breiðuvík sem langtímaúrræði. Jafn-framt að yfirvöld skyldu láta und-ir höfuð leggjast að að finna aðrar lausnir. Ekkert öryggisnet hafi verið til staðar fyrir drengina eftir að þeir komu út. Þessi gagnrýni kemur aftur fram í ritgerð Gísla H. Guðjónssonar réttarsálfræðings, árið 1975. Ritgerð sem menntamálaráðuneytið tók að sér að stinga undir stól. föstudagur 9. febrúar 200712 Fréttir DV Saka Séra Sigurð um aðgerðaleySi Þeir sem störfuðu í Breiðuvík og DV hefur náð tali af eiga það sammerkt að neita að hafa verið þátttakendur í ofbeldi gegn börn-unum og að hafa orðið að vitni að því. Þeir geta ekki útilokað að aðr-ir hafi beitt drengina ofbeldi. Fram-burður starfsmannanna fyrrverandi stangast algjörlega á við framburð þeirra fjölmörgu sem voru vistaðir í Breiðuvík og hafa komið fram síð-ustu daga. Núverandi vígslubiskup í Skál-holti sem starfaði við uppeldis-heimilið í Breiðuvík gerir ráð fyrir að þurfa að svara um sína aðkomu að málinu þegar það verður rann-sakað. Bjarni, sonur Þórhalls Hálf-dánarsonar, er borinn sökum en hann neitar að hafa beitt ofbeldi, en segir föður sinn hafa verið harð-an mann.Vígslubiskupinn í Skálholti séra Sigurður Sigurðarson var í Breiðu-vík þrjú sumur og gegndi stöðu for-stöðumanns að auki í einn vetur. Hann var þar meðal annars á sama tíma og Þórhallur Hálfdánarson, hann er sá sem sakaður hefur verið um hvað hrottalegastar misþyrm-ingar. Í viðtali við Sigurð segist hann ekki hafa horft á ofbeldi og bætir við að hann muni hreinlega ekki hvort drengirnir hafi sagt honum frá því sem þeir máttu þola. „Herbergið hans var á gangin-um okkar. Veggirnir voru þunnir og barsmíðar og óp fóru ekki fram hjá neinum,“ segir Maron Bergmann Brynjarsson, fyrrverandi vistmaður, um veru Sigurðar í Breiðuvík. Hon-um þykir það afar ólíklegt að það sem gekk á hafi farið framhjá nokkr-um manni. Þarf að gera hreint fyrir sínum dyrumMaron Bergmann er reiður biskupnum fyrir að hafa aldrei af-hjúpað þær misþyrmingar sem lýst hefur verið í DV. Sjálfur segir vígslu-biskupinn að hann geti ekki tjáð sig um málið opinberlega fyrr en opin-ber rannsókn fari fram. Sigurður segist búast við að rannsókn verði gerð á starfseminni í Breiðuvík og þá þurfi hann að gera Sonurinn útilokar Sigurður Sigurðarson Breiðuvík Vígslubiskupinn í Skálholti sigurðursigurðarson vann sem sumarstarfsmaður í breiðuvík frá 1966 til 1968. Hann leysti svo af sem forstöðumaður hluta ársins 1970. drengirnir sem voru vistaðir í breiðuvík á þessum tíma telja að sigurður hafi brugðist með því að tilkynna ekki yfirvöldum um það ofbeldi sem átti sér stað þar. „Þetta var hryllileg lífsreynsla,“ segir Sigur- dór Halldórsson sem var vistmaður í Breiðu-vík þeg-ar hann var aðeins tíu ára gam-all. Sigurdór segist hafa orðið fyrir mikl-um sálrænum skaða á heimilinu en þar mátti hann sæta ofbeldi og kyn-ferðislegri misnotkun. Hann var fík-ill og glæpamaður næstu tuttugu árin. Hann segir að það sé ekki fyrr en í dag, eftir að DV opnaði mál-ið um hryllinginn í Breiðuvík, sem hann getur tekist á við sínar eigin tilfinningar. „Ég hef verið innilokaður í þrjá-tíu ár,“ segir Sigurdór sem hefur tekist á við alfeiðingar af vist sinni í Breiðuvík síðan hann var tíu ára gamalt barn. Hann var sendur þang-að að beiðni séra Braga Benedikts- sonar sem þá var Fríkirkjuprestur í Hafnarfirði. Þá hafði Sigurdór rat-að í ógöngur vegna þjófnaðar. Hann grunaði aldrei hversu dýrkeyptur þjófnaður grunlauss barns gat ver-ið. Næstu tuttugu árin átti hann eft-ir að sprauta sig með fíkniefnum, stunda innbrot og bæla niður gríð-arlega reiði sem hann upplifði í garð Breiðuvíkur. Ég var misnotaður„Ég var misnotaður kynferð-islega í Breiðuvík,“ segir Sigurdór með brostinni rödd. Hann segir að misnotkunin hafi átt sér stað eft-ir að Þórhallur var hættur og son-ur hans Bjarni Þórhallsson tek-inn við. Að sögn Sigurdórs var það ókunnugur maður sem kom í heimsókn eitt kvöldið. Hann seg-ir manninn hafa verið kunnug- an Bjarna en hann fékk að sofa á bedda inni á skrifstofu hjá honum. Hann á að hafa leitt Sigurdór inn í herbergi til sín og lagst með hon-um í rúmið.„Hann káfaði á mér og lét mig káfa á sér,“ segir Sigurdór og það er ljóst að frásögnin er honum erfið. Hann segir að sér hafi tekist að ljúga að manninum að hann hafi þurft að fara fram. Þá leyfði hann honum að gat aldrei sagt börnunum mínum að ég elskaði þau Sigurdór Halldórsson Bjarni Þórhallsson Þórhalls Hálf- dánarsonar Breiðuvíkur- börnin DV Fréttir föstudagur 9. febrúar 2007 13 hreint fyrir sínum dyrum. Það er ljóst að ekki eru öll kurl komin til grafar og ólíkt þeim sem hafa ver-ið vistmenn í Breiðuvík vill sá mað-ur sem mesta þekkingu hefur á uppeldisheimilinu á þessum tíma ekki upplýsa hvað raunverulega fór fram, fyrr en opinber rannsókn hefst. Útilokar ekki ofbeldi„Faðir minn var mjög strangur maður en sjálfur varð ég aldrei var við ofbeldi á heimilinu,“ segir Bjarni Þórhallsson, sonur Þórhalls Hálf-dánarsonar. Bjarni var forstöðu-maður uppeldisheimilisins í einn vetur. Hann dvaldi nokkuð á heim-ilinu á sjöunda áratugnum en seg-ist aldrei hafa orðið var við ofbeldi, frekar en Sigurður vígslubiskup. Hann útilokar þó ekki að slíkt hafi viðgengist aðspurður hvort vitnis-burður mannanna sem fram hafa komið sé rangur.Breiðuvíkurbarnið Sigurdór Halldórsson segist hafa þurft að þola kynferðislega misnotkun, barsmíðar og niðurlægingu þeg-ar hann dvaldi í Breiðuvík á þeim tíma sem Bjarni var þar. „Einn strákurinn sagðist ekki vilja hafragraut heldur kornflexið. Þá gekk Bjarni í skrokk á honum, en alla daga eftir það fengum við kornflex í morgunmat,“ segir Sig-urdór þegar hann lýsir átakanlegri baráttu við morgunverðarborðið. Sjálfur segir Bjarni að hann kannist ekki við að hafa nokkurn tímann beitt piltana ofbeldi og bendir á að vistin hafi skánað tals-vert eftir að hann tók við af föður sínum. Einnig hefur bróðir hans, Hálfdán Þórhallsson, verið sakað-ur um að hafa beitt piltana ofbeldi. Hann vildi ekki tjá sig um ásakan-irnar. Félagsskapur kennaransFram kom í umfjöllun DV í síð-ustu viku að lítil sem engin kennsla hafi verið í Breiðuvík. Kennarinn Eiríkur Hjartarson kenndi vetur-inn 1964. Hann segir að engin eig-inleg kennsla hafi farið fram, held-ur hafi skólatímarnir í raun verið einhvers konar félagsskapur pilt-anna. Ástæður þess að lítil kennsla fór fram var fyrst og fremst sú að aldursbil strákanna var talsvert og greindarmunur einnig. Því hafi ver-ið erfitt um vik að samhæfa mark-vissa kennslu. „Ég varð aldrei var við ofbeld-ið sem á að hafa verið í Breiðuvík,“ segir Eiríkur og þvertekur einn-ig fyrir að matur hafi verið naumt skammtaður. Hann segir að kom-ið hafi verið fram við börnin líkt og starfsfólk og aldrei hafi hann upplifað neitt misjafnt. Hann útilokar ekki ofbeldið frekar en Sigurður vígslubiskup og Bjarni Þórhallsson. Sjálfur segist hann hugsa til staðarins með hlýhug en fregnir af heimilinu undanfarna daga hafa komið honum verulega á óvart. Hann segir samband sitt við Þórhall hafa verið gott og sjálf-ur hafi hann ekkert upp á hann að klaga. Breiðuvíkurbörn í kaupbæti„Það var haft í flimtingum þeg-ar ég keypti býlið að Breiðuvíkur-börnin fylgdu með í kaupbæti,“ segir Keran Ólason sem ásamt konu sinni Birnu Mjöll Atladótt-ur rekur hótel þar sem uppeldis-heimilið var til húsa. Keran og Birnu varð ljóst stuttu síðar hvað átt var við en þá voru gamlir vistmenn að hringja í tíma og ótíma í hótelið, yfirleitt drukkn-ir, til þess að gera upp óhugnan-lega fortíð sína. Keran segir sögu Breiðuvík-ur óhugnanlega en brotunum hafi hann ekki púslað saman fyrir al-vöru fyrr en undir síðustu helgi þegar DV kom út. Þangað til hafði hann afskrifað minningar mann-anna sem drykkjuraus.Komið hefur í ljós að sögurnar virðast raunsannar og hrollvekj-andi að auki. Hugrakkur steig fyrstur framÞað var Helgi Davíðsson sem steig fyrstur fram og sagði sögu sína í DV á föstudaginn í liðinni viku. Eftir það hafa fjölmargir menn brotið þrjátíu ára gamlan þagn-armúr og sagt keimlíkar sögur og Helgi. Nokkrir hafa sagst hafa sætt kynferðislegu ofbeldi auk þess að þola niðurlægingu, svarthol í kjall-aranum og gegndarlausar bar-smíðar. Margir þessara manna bera enn þann dag í dag þungan kross. Margir hafa hugsað um hefnd, aðr-ir vilja réttlæti af hálfu stjórnvalda. Það er staðreynd að kennslu var ábótavant. Mennirnir voru svipt-ir rétti sínum til þess að lifa mann-sæmandi lífi og sviptir sakleysi sínu á barnsaldri. Þeir hafa tapað æsk-unni og jafnvel ellinni líka. ekki ofbeldið Sigtryggur JóHannSSonblaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is vaLur grEttiSSonblaðamaður skrifar: valur@dv.is Framhald á næstu opnu fara en Sigurdór segist aldrei hafa beðið þessa atviks bætur. Baráttan um kornflexið„Þegar Bjarni var forstöðumað-ur sátum við og borðuðum morg-unmat. Við vorum með hafragraut en hann og systur hans voru með kornflex. Einn strákurinn sagðist ekki vilja hafragraut heldur korn-flexið. Þá gekk Bjarni í skrokk á honum, en alla daga eftir það feng-um við kornflex í morgunmat,“ segir Sigurdór um þá hörðu baráttu sem þeir þurftu að heyja. Hann segir að strákarnir hafi verið þakklátir pilt-inum sem á að hafa lent í Bjarna fyrir að hafa tekið á sig höggin fyrir morgunmatinn. Elskar börnin sínÞegar Sigurdór komst frá Breiðu-vík gat hann ekki sótt nám. Ástæð-una fyrir því segir hann vera: „Ég kunni ekkert eftir vistina, við lærð-um ekki neitt.“Þar næst fór hann á sjóinn en það leið ekki langur tími þar til hann varð háður áfengi og fíkni-efnum. Þá hófst langur afbrota-kafli í lífi hans sem lauk ekki fyrr en 1992. Það var þá sem hann tók trú og hætti allri neyslu. Reynslan reyndist Sigurdóri þung: „Ég skildi ekki tilfinningar mínar fyrr en umfjöllun um málið hófst. Ég hef verið blindur svo lengi að ég gat ekki einu sinni sagt við mín eigin börn að ég elskaði þau,“ segir Sigurdór sem brestur í grát í miðju viðtali. Hann segir umfjöllun DV hafa opnað mikið svöðusár sem þurfi að lækna, en það er ekki fyrr en nú sem hann getur hafið nýtt líf. Aðspurður hvað taki nú við í lífi hans segir Sigurdór: „Ég ætla að segja börnunum mínum að ég elska þau.“ Kannast ekki við ofbeldi„Ég man ekki eftir því að hafa beitt slíku ofbeldi,“ segir Bjarni Þór-hallsson, sonur Þórhalls Hálfdánar-sonar, en hann er fyrsta barn hans sem tjáir sig opinberlega um málið. Bjarni var forstöðumaður uppeldis-heimilisins árið 1972 til 1973. Hann var einn vetur en svo tók Georg Gunnarsson við heimilinu. Sjálfur er Bjarni skósmiður á Selfossi í dag. Önnur börn Þórhalls vilja ekki tala um tímann í Breiðuvík.„Faðir minn var mjög strang-ur maður en sjálfur varð ég aldrei var við ofbeldi á heimilinu,“ seg-ir Bjarni, en hann útilokar þó ekki að slíkt gæti hafa viðgengist. Hann segir málið komið í réttan farveg og hann vilji sem minnst skipta sér af því sjálfur. „Þetta mál hefur sinn gang,“ segir Bjarni og neitar að tjá sig frekar um það. G „Einn strákurinn sagðist ekki vilja hafragraut heldur kornflexið. Þá gekk Bjarni í skrokk á honum en alla daga eftir það fengum við kornflex í morgunmat.“ Sigurdór Halldórsson segist hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun og hlaut enga menntun á meðan á nauðungarvist hans í breiðuvík stóð. BreiðuvíkMargir hafa sagt frá hræðilegri vist sinni í breiðuvík. DV Fréttir föstudagur 9. febrúar 2007 1 7 Stelpurnar á bjargi tóku nýfætt barnið af örvilnaðri móðurinni Helvíti á jörðu Harðræði, innilokun og frelsissvipting var hluti þess sem þessar unglingsstúlkur þurftu að þola. Þeim var komið fyrir á Bjargi, sem var heimili rekið af Hjálpræðishernum, og nú fjörutíu árum síðar kraumar enn hatur og beiskja í þeim konum sem þar voru vistaðar. DV hefur fundið gögn um starfið á Bjargi og birtir hér hluta þeirra og viðtöl við fólk sem þekkir vel til þess sem þar fór fram. Framhald á næstu opnu föstudagur 9. febrúar 200718 Fréttir DV Stelpurnar á bjargi „Má móðir taka dóttur sína og láta vista hana í húsi, þar sem hún má varla fara út í tvö ár, bara vegna þess að stúlkan var of lengi úti eitt kvöld?“ Fyrir fjörutíu árum var þessari spurningu var beint til Gísla Gunnarssonar, prófessors í sagn-fræði, sem þá kenndi félagsfræði við Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Umfjöllunarefni kennslustundar-innar var sjálfræði unglinga.„Mér var mjög brugðið og bað stúlkurnar að ræða við mig eft-ir tímann. Þær sögðu mér að um-rædd stúlka væri vistuð á stúlkna-heimilinu Bjargi á Seltjarnarnesi og við sammæltumst um að þegar hún losnaði þaðan, talaði hún við mig. Hún kom til fundar við mig í ágúst árið 1967, ásamt tveimur öðrum stúlkum sem höfðu verið á Bjargi. Þær sögðu mér af aðstöð-unni þar og ég varð skelfingu lost-inn, aðallega yfir einangruninni, sem mér finnst alltaf hafa verið versti hluti Bjargsmálsins. Skoð-un mín á Bjargi var að mestu leyti um einangrunina, bæði á Bjargi og sérstaklega þó þegar stúlkurn-ar þar voru sendar í refsieinangrun eða einangrun við upphaf vistar á ríkisupptökuheimilið í Kópavogi. Einnig að þeim var stöðugt hótað á Bjargi að vera settar í einangrun.“ Í algjörri einangrunGísli sýnir mér pappíra; heilu möppurnar, sem innihalda skýrslu-tökur af stúlkum sem dvöldu á Bjargi, blaðaúrklippur og afrit bréfa til yfirvalda. Í vitnisburði einnar stúlkunnar, skýrslu sem er vottfest af tveimur lögmönnum standa eftirfarandi orð:„Á ríkisupptökuheimilinu var hún sett í herbergi með einu járn-rúmi. Annað húsgagna var þar ekki... Gluggi var spenntur aftur. Þarna var hún læst inni og fékk aldrei allan tímann að fara út nema til að fara á salerni eða í bað. Mjög slæmt loft var í herberginu og lykt varð þar slæm fljótt. Læs-ing var þannig að bundið var fyrir hurð og skrölti mikið þegar opn-að var. Öll föt hennar voru tekin af henni, nema nærbuxur og henni fengin náttföt til að vera í, eða all-an innilokunartímann, 28/5-4/6 eða 7 daga...“„Forstöðukona upptökuheim-ilisins, Ólöf Þorsteinsdóttir, tjáði mér að kvenlögreglukonurnar Guðlaug Sverrisdóttir og Auður Eir Vilhjálmsdóttir hafi viljað hafa innilokunina miklu strangari en hún sjálf hefði óskað,“ skrifaði Gísli í skýrslu til yfirvalda 1967. „Það þótti góður undirbúningur á Bjargi að hafa stúlkurnar í einangrun frá fimm upp í tíu daga. Þær fengu ekki að hlusta á útvarp né lesa blöð. Eina lesefnið var kristilegt efni eða hrós um Bjarg. Þær áttu að vera sem mest með sjálfum sér og þeim sagt að, svo ég vitni orð-rétt í eina stúlkuna: „Til að ná best sambandi við Guð í bæn sé þegar maður er einn og hefur engan til að trufla.“ Með einangruninni átti Guð að frelsa þær.“Gísli Gunnarsson hefur aldrei komið inn á Bjarg, en hann hafði upplýsingar sínar frá fyrstu hendi:„Ég kom í fyrstu að málinu sem „vinsamlegur skoðandi“ og starfs-konur ríkisupptökuheimilisins veittu mér góðfúslega upplýsingar, enda voru þær mótfallnar því að vera notaðar á þennan hátt. Þær fengu síðar skammir fyrir að veita mér upplýsingarnar, þótt ég sem kennari, hafi átt fullan rétt á þeim. Þegar málið fór að vinda upp á sig reyndu starfskonur Bjargs að koma sem mestri sök yfir á konurnar á ríkisupptökuheimilinu og þóttust ekki kannast við neitt, jafnvel þótt það hefðu verið Guðlaug Sverris-dóttir og Auður Eir sem komu með stúlkurnar af Bjargi inn á ríkisupp-tökuheimilið. Þegar ég kom að málinu hafði Bjarg verið starfrækt í tvö ár en reglan var sú að stúlkur ættu helst að dvelja þar í tvö ár.“ Allir aðrir brugðustÞegar Gísli hafði tekið skýrsl-ur af nokkrum stúlknanna sendi hann málið til fjölmargra aðila. „Allir þeir aðilar fengu bréf og skýrslu mína um einangrun stúlknanna,“ segir Gísli. „Eini mað-urinn sem svaraði mér var bæjar-fógetinn í Kópavogi, sem gerði sína athugun á ríkisupptökuheim-ilinu. Hann var eina yfirvaldið sem brást löglega við. Allir aðrir brugð- ust. Formaður Sálfræðingafélags-ins hafði samband við mig og gaf mér hreinskilnislegasta svar sem ég hef á ævinni fengið: „Við höfum ekki siðferðilegan styrk til að eiga í þessu máli.“ Réttlætiskenndinni misboðiðAð sögn Gísla sátu í Barnavernd-arráði Íslands á þessum tíma auk Gunnlaugs: Sveinbjörn Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem var for-maður ráðsins, Magnús skólastjóri Hlíðaskóla, séra Gunnar Árnason, prestur í Kópavogi og móðurbróðir séra Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur og Símon Jóhann Ágústsson, sem hafði verið í öllum barnaverndarmálum frá því á fjórða áratugnum.„Barnaverndarráð samanstóð því eingöngu af gömlum karl- mönnum. Gunnlaugur var eigin-lega unglambið, 48 ára! Við Sím-on Jóhann vorum vinir, hann hafði kennt mér við háskólann og hann fylgdist með Bjargsmálinu frá upp-hafi. Hann laumaði til mín upplýs-ingum um hvað barnaverndarráð var að gera eða ekki að gera. Á yfir-borðinu var hann stuðningsmaður Bjargs, en hann lék tveimur skjöld-um í þessu máli og aðstoðaði mig dyggilega. Hann var í rauninni eini fagmaðurinn í Barnaverndarráði.“En hver er ástæða þess að gagn-fræðaskólakennari tekur upp á sitt eindæmi að rannsaka stúlkna-heimilið Bjarg, með þeim afleiðing-um að því er lokað nokkrum mán-uðum síðar?„Réttlætiskennd minni var mis-boðið og þegar ég byrjaði með mál-ið og mætti andstöðu og fjandsemi þá kom upp í mér þrjóska og bar-áttuvilji. Ég sagði við sjálfan mig að ef ég myndi láta málið niður falla, þá myndu fylgismenn Bjargs herja á mig með allt sitt lið og það var ekkert lítið! Ég ákvað að ég yrði að sigra í þessu máli til að geta lifað áfram. Ég var farinn að berjast fyrir minni eigin tilvist sem kennari og sem virtur þegn í samfélaginu.“Var reynt að stöðva þig?„Já, stöðugt og ég fékk fjölmarg-ar hótanir. Ég vann einn að mál-inu í nær fimm mánuði, með smá-stuðningi frá Símoni Jóhanni og manni sem var fljótur að vélrita. Ég bar málið jafnóðum undir tvo lögfræðinga, sem fylgdust með til að gæta að því að ég væri ekki með neitt ólögmætt í höndunum. Ann-ar þeirra varð síðar virtur prófessor í lögfræði.“ Heiftin engu minni en fyrir fjörutíu árumGísli segir stúlkurnar hafa verið misjafnlega á sig komnar andlega þegar hann hitti þær. Hann hefur nýverið heyrt í tveimur þeirra sem óskuðu eftir samtali við hann af ástæðum sem fljótlega verða þjóð-inni kunnar.„Heift þeirra í garð Bjargs er ennþá til staðar. Þessar konur eru nú á sextugsaldri og bera enn þá þann heiftarhug til Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur og Bjargs og þær gerðu fyrir fjörutíu árum.“Eftir að Bjargi var lokað, 23. okt-óber 1967 hafði Gísli ekkert sam-band við stúlkurnar í áratugi.„Ég mat það svo að þær vildu fá að vera í friði næstu árin og fá að gleyma þessum tíma. En svo fór hann að rifjast upp fyrir þeim þeg-ar þær urðu fullorðnar konur og margar þeirra orðnar mæður og sumar ömmur“.Kynferðisleg áreitni og of-beldi hefur komið mikið við sögu í Breiðuvíkurmálinu sem mikið er fjallað um þessa dagana. Kom eitt-hvað slíkt til tals í þínum athugun-um?„Ég kannaði aldrei slíkt. Ég lagði áherslu á þann þátt sem sneri að einangrun stúlknanna, sem ég leit alvarlegustu augum. Umræða um slíkt kom hins vegar upp af hálfu stúlknanna, en þær fundu fljótt að ég vildi ekki um það ræða.“Myndirðu spyrja öðruvísi í dag en þú gerðir fyrir fjörutíu árum?„Ég hygg ekki. Ég var einungis að athuga einangrun.“Bjargi var lokað 23. október 1967, en rannsókn málsins hófst 18. nóvember. Öll gögn málsins liggja á borðinu fyrir framan okk-ur. Það er eins og talnaþraut að lesa sig í gegnum ferlið.„Málinu var vísað til ráðuneytis í lok nóvember, ráðuneytið sendi það áfram til saksóknara til athug-unar 20. desember. Þaðan fór mál-ið aftur til saksóknara, sem sendi til Barnaverndarráðs sem sendi það til bæjarfógeta, sem sendi aft-ur til saksóknara og þaðan til ráðu-neytis og síðan lýsti ríkissaksókn-ari því yfir í desember 1968 að engin málshöfðun verði að höfðu samráði við menntamálaráðu-neytið. Lögfræðingur Bjargs, Logi Guðbrandsson, lýsti sig ánægðan með þessar málalykt-ir... Barnaverndarráð Íslands var svo lamað fram til ársins 1970 að Gunnlaugur Þórð-arson var gerður að formanni þess og hann var hvatamaður þess að Breiðuvík var lokað.“ Sonurinn tekinn með valdi af móðurinniVar þér kunnugt um að fær-eyska stúlkan, Marion Gray, eign-aðist son sem var tekinn af henni?„Já. Drengurinn fæddist á Fæð-ingarheimili Reykjavíkur og síðar var farið með hann á Bjarg þar sem Marion fékk að gefa honum brjóst í nokkra daga. Þetta veit ég frá Mar-ion sjálfri og stúlkunum sem voru samtímis henni á Bjargi. Forráða-konur Bjargs voru ráðalausar og fyrsta hugmyndin var sú að gefa drenginn til ættleiðingar. Mar-ion neitaði því og þá var leitað til barnaverndarnefndarinnar í Þórs-höfn í Færeyjum sem kvað upp þann úrskurð að barnið skyldi sent til Færeyja til umsjónar nefndar-innar. Drengurinn var tekinn af Marion með valdi.“Gísli segir að þegar Marion fór síðar til Færeyja hafi henni verið lofað að hún fengi að sjá barnið sitt ef hún undirritaði skjöl þess efnis að allt sem hún hefði sagt um Bjarg á Íslandi væru ósannindi.„Þegar Marion hafði undirrit-að það plagg var hún meðhöndl-uð sem úrhrak í Færeyjum og fékk aldrei að sjá son sinn.“ Sannleikurinn er skjalfesturFrá því DV hóf umfjöllun um Breiðuvíkurmálið í síðustu viku hafa fjölmiðlar verið undirlagðir af því. Við höfum fengið ábendingar um fleiri mál, þeirra á meðal það sem hér er til umræðu. Telur þú að Bjargsmálið muni rísa upp tvíeflt aftur eins og Breiðavíkurmálið?„Ég veit að það mun gerast,“ svarar Gísli að bragði.“Ég hef heyrt að verið sé að vinna að ítarlegri og áhrifaríkri athugun á þessu máli. Meira get ég ekki um það sagt, ég er bundinn þagnarskyldu.“ Og verður niðurstaða þeirrar athugunar þannig að þú getir tek-ið undir lokaorð Matthildar Haf-steinsdóttur í viðtali í blaðinu í dag að þegar saga Bjargs verði gerð op-inber muni mörgum misbjóða?„Já, ég get tekið undir þau orð. Ég tel tvímælalaust að þær stúlk-ur sem vistaðar voru á Bjargi hafi skaðast sálarlega. Bjargsmálið hvíl-ir á þeim sem skuggi og er kannski neikvæðasta atriði lífs þeirra. Þær voru margar geymdar á Bjargi með samþykki foreldra sinna - þó ekki allar - og inn í málin blandast því uppgjör við foreldrana. Þær vilja ekki ennþá vita allt sem foreldrar þeirra gerðu. Eftir að dómsrann-sókn hófst í málinu og lögreglan fór að taka skýrslur af Bjargsstúlk-unum kom margt hræðilegt í ljós. Sann-leikurinn um Bjarg er skjalfestur og margt um hann er að finna vel geymt í ráðuneyti í Reykja-vík.“ Sama heiftin eftir 40 ár AnnA KRiStine blaðamaður skrifar: annakristine@dv.is „Ég tel tvímælalaust að þær stúlkur sem vistaðar voru á Bjargi hafi skaðast sálarlega. Bjargsmálið hvílir á þeim sem skuggi og er kannski neikvæðasta atriði lífs þeirra.“ Kennarinn sem kannaði málin „Mér var mjög brugðið þegar ég heyrði af unglings-stúlkum í einangrun,“ segir gísli gunnarsson,sem hóf rannsókn á starfsemi bjargs fyrir fjörutíu árum. fyrir framan hann á borðinu er ein af þeim möppum sem innihalda skýrslur og viðtöl við stúlkur sem dvöldu á bjargi. DV Fréttir föstudagur 9. febrúar 2007 1 9 „Þetta mál hefur hvílt þungt á mér í fjörutíu ár en nú get ég ekki þag-að lengur. Umfjöllun DV um Breiðu-víkurmálið gerði það að verkum að minningarnar streymdu fram. Það voru ekki bara ungir piltar sem upp-lifðu að þeir sem áttu að aga þá eyði-lögðu líf þeirra.“Matthildur Hafsteinsdóttir er kona á sextugsaldri sem hefur boðað mig á sinn fund. Frá því DV kom út í síð-ustu viku með frásögnum ungra pilta sem dvöldu vestur í Breiðuvík við skelfilegt ofbeldi, hefur hún vart get-að sofið. Hún vill segja sína upplifun af stúlknaheimilinu Bjargi, sem rekið var af Hjálpræðishernum vestur á Sel-tjarnarnesi í tvö og hálft ár. Því heimili var lokað eftir að nokkrar stúlknanna höfðu greint frá dvöl sinni þar. Þangað var frænka Matthildar send frá Fær-eyjum fjórtán ára að aldri og dvaldi þar í eitt ár.„Minningarnar um Marion frænku mína hafa haldið fyrir mér vöku,“ segir Matthildur og hefur greinilega undirbúið vel hverju hún vill koma á framfæri.“Frásagnirnar af ofbeldinu í Breiðuvík heltóku mig og ýfðu upp sárar minningar. Við Marion vorum systradætur. Mæður okkar voru fær-eyskar, en móðir mín flutti ung til Íslands ásamt annarri systur sinni. Marion frænka mín var tveimur árum yngri en ég, fædd síðla árs 1951. Við sáumst fyrst þegar ég heimsótti fjöl-skylduna í Þórshöfn í Færeyjum þeg-ar ég var þrettán ára.“ Bjarg var fangelsiMarion, þá tæplega ellefu ára, dökkhærð með gneistandi brún augu, sýndi stóru frænku sinni heimabæ sinn. Í minningunni ber smitandi hlátur hennar hæst.„Marion var alltaf hlæjandi og lífs-gleði hennar hafði áhrif á alla sem voru nálægir. Hún var afskaplega fjörug og hafði mikla útgeislun“ seg-ir Matthildur. „Þegar ég var sextán ára var ég komin í sambúð með Hinriki Jóni Magnússyni, sem var eiginmað-ur minn til dauðadags fyrir þremur árum. Við bjuggum í agnarlitlu húsi við Grettisgötu og þangað bárust mér fregnir af því að Marion frænka mín væri komin til dvalar á Bjargi. Skýr-ingin sem mamma hennar hafði gefið var sú að Marion væri óstýrilát og það þyrfti að aga hana. Hún hefði valið Bjarg, því það væri rekið á kristilegum nótum, en Anna, mamma Marion, starfaði með Frelsishernum í Fær-eyjum. Marion hvorki reykti né drakk eftir því sem ég best vissi og ég skildi ekki hvers vegna mamma hennar hefði sent hana til vistar á Bjargi.“Matthildur taldi sig vel geta haft litlu frænku sína hjá þeim Hinriki og þau héldu á Skódanum sínum rak-leiðis vestur á Seltjarnarnes til fundar við frænkuna.„Það fyrsta sem ég sagði við Hinrik þegar við höfðum hringt bjöllunni var að það væri engu líkara en við vær-um að koma í fangelsi. Við heyrðum hringl í lyklum enda voru stelpurn-ar læstar inni. Lyklakippan var stór og þung og sú sem opnaði því lengi að finna rétta lykilinn. Andlitið sem mætti okkur í dyrum Bjargs þennan fyrsta dag var andlit hinnar norsku Kröte, sem spurði með þjósti hverja við vildum hitta. Bjarg var ekkert ann-að en fangelsi. Marion fékk þó að vera hjá okkur tvær eða þrjár helgar í fyrstu, en svo breyttist viðhorfið í garð fjölskyldunnar og okkur var meinað að heyra í og hitta Marion... „ Stórt sár í sálinni„Starfsstúlkurnar voru allar norsk-ar, fyrir utan Auði Eir Vilhjálmsdótt-ur, sem réði mestu um daglegt starf Bjargs,“ segir Matthildur. „Ég man alltaf fyrsta fund okkar Auðar Eirar. Þá kom ég að heimsækja Marion og ætlaði upp á herbergið hennar en Auður Eir blokkeraði stigann upp og sagði mér að fara inn í viðtalsherberg-ið. Ég sá því aldrei herbergið henn-ar Marion þetta ár sem hún dvaldi á Bjargi. Þetta var ekki heimili. Þetta var fangelsi. Þessi staður gerði stúlkurn-ar ekki að betri manneskjum held-ur eyðilagði líf þeirra flestra. Ég hef hitt margar þeirra og það var ótrúlegt að heyra frásagnir þeirra af lífinu á Bjargi. Dvölin á Bjargi hefur skilið eft-ir stórt sár í sálu þeirra.“Marion gaf Matthildi engar skýr-ingar á því hvers vegna hún hefði ver-ið send að Bjargi, aðrar en þær að mömmu hennar líkaði ekki við kær-astann hennar. Hún hélt sannleikan-um leyndum, þangað til hann varð ekki lengur umflúinn. Marion var barnshafandi. „Mér fannst sérkennilegt hvað Marion var í ljótum og víðum fötum,“ segir Matthildur. „Eftir að ég varð eldri og þroskaðri, geri ég mér grein fyrir hvers vegna hún sagði mér aldrei að hún ætti von á barni.Hún hagaði sér í raun eins og barn sem hefur ver-ið misnotað; það þegir yfir verknaðin-um.“Um upphaf stúlknaheimilisins að Bjargi segist séra Auði Eir Vilhjálms-dóttur svo frá í ævisögu sinni, Sól-in kemur alltaf upp á ný, sem Edda Andrésdóttir skráði:„...mér sem fleirum þótti vanta hér skólaheimili fyrir stúlkur svo að þær fengju tíma til að átta sig á því sem hafði farið úrskeiðis í lífi þeirra, þar sem þær kæmust inn í reglulegt nám, tækju próf og héldu sína góðu leið í lífinu, Ég var lögreglukona þegar þetta var og þótti úrræðin sem þeim stúlkum buðust ekki mikil en að þau yrðu og gætu verið meiri.“ „Vond verk í nafni Drottins“Matthildur getur ekki leynt andúð sinni á séra Auði Eir og segir starfsem-ina á Bjargi dæmi um vond verk, unn-in í nafni Drottins.„Ég söng með kirkjukórnum á Flateyri um margra ára skeið og það get ég sagt þér að það aðfangadags-kvöld sem ég sá að það var séra Auður Eir sem hafði verið fengin til að leysa séra Lárus af, þá gekk ég út. Í minni kirkju er ekki pláss fyrir hræsnara. Þegar Marion fæddi son sinn haustið 1967 fóru mamma og systir hennar á Fæðingardeildina og ætluðu að grípa inn í líf þeirra. En þær komu of seint. Móðir Marion hafði greinilega svipt dóttur sína sjálfræði og falið Auði Eir allt vald yfir henni.“Í viðtalsbókinni við séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur er frásögnin á þessa leið:„...færeyska stúlkan sem rætt var við í blaðinu (Þjóðviljanum 20. okt-óber 1967) hafði reynst barnshaf-andi þegar hún kom á skólaheimil-ið. Var barn hennar flutt til Færeyja eftir fæðingu í samráði við móður-ömmu þess og barnaverndaryfir-völd í Færeyjum. Í viðtalinu í Þjóð-viljanum var lýst aðdraganda þess að stúlkan kom á skólaheimilið og dvölinni sem lauk með því að hún “strauk“....“„Hún strauk ekkert,“ segir Matt-hildur. „Henni var rænt af mann-inum mínum, Hinriki Jóni og vini hans og komið fyrir á heimili Ragn-ars Stefánssonar jarðskjálftafræðings og foreldra hans á Sunnuvegi. Gísli Gunnarsson, kennari við Austur-bæjarskólann kenndi vinkonu einn-ar stúlkunnar á Bjargi, sem sagði honum frá aðstæðum og hann fór að kanna þær. Síðar kom Gunnlaug-ur Þórðarson, lögfræðingur að mál-inu, en hann átti sæti í Barnavernd-arráði.Það var staður þar sem fram fór fangelsun og frelsissvipting ungl-ingsstúlkna. Það var ekki eins og þessar stúlkur væru einhver vand-ræðabörn samfélagsins. Þær voru bara of óstýrilátar fyrir foreldra sína, sem vildu losna við þær.“ „Endalok heimilisins voru ekki flókin; þau réðust einfaldlega af upp-lognum sögum“, segir séra Auður Eir í bókinni. „Við höfðum verið rænd til-trúnni; við hefðum aldrei getað hald-ið áfram og okkur hefði aldrei dottið það í hug.“ Mörgum mun misbjóða sannleikurinnMarion sneri aftur að Bjargi eft-ir fæðingu sonar síns. Gjörbreytt ung stúlka að sögn Matthildar.„Glaða stúlkan var horfin að ei-lífu,“ segir Matthildur. „Þegar Bjargi var lokað nokkrum vikum síðar eftir að upp komst hvernig búið hafði ver-ið að bjargarlausum unglingsstúlk-unum fór Marion heim til Færeyja. Henni hafði verið lofað að hún fengi soninn þegar hún kæmi heim. Hann sá hún aldrei. Marion varð eins og skugginn af sjálfri sér. Hún kvaldist þá stuttu ævi sem hún átti eftir, en hún lést fertug að aldri úr krabbameini. Eftir að nýfæddur sonurinn var tekinn af henni hvarf lífslöngun hennar með öllu. Það er ekki hægt að gera ljótari hlut en þann að taka nýfætt barn af móður. Það gerði kona sem er prest-ur og rekur sérstaka Kvennakirkju. Mig hryllir við þessu. Bjarg var ekki stúlknaheimili. Það var fangelsi fyrir saklaus börn. Þegar saga Bjargs verð-ur gerð opinber – og þess er ekki langt að bíða – mun mörgum misbjóða, því get ég lofað.“ Földu Marion Meðan mál stúlknanna á Bjargi voru rannsökuð var gripið til þess ráðs að fela Marion Gray á stað þar sem hennar yrði örugglega ekki leitað. Ragnar skjálfti man vel eftir þessari unglingsstúlku.„Gísli Gunnarsson, sem var góð-ur vinur minn bað mig og foreldra mína að taka Marion að okkur tíma-bundið,“ segir Ragnar Stefánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, betur þekktur sem Ragnar „skjálfti“ jarðskjálftafræðingur. „Gísli taldi af ýmsum ástæðum best að Marion væri á heimili þar sem hennar yrði ekki leitað og hún gæti verið örugg meðan mál hennar upplýstust bet-ur. Gísli vissi að hún hafði ekki átt góðar stundir á Bjargi.“Ragnar segir Marion hafa dvalið hjá sér og foreldrum sínum í nokk-urn tíma.„Ég kunni ágætlega við þessa stúlku og ég átti ómögulegt með að skilja hvers vegna hún var lok-uð inni á stúlknaheimili. Hún kom vel fyrir sjónir og það var gaman að ræða við hana.“Sagði hún þér frá syni sínum sem hún fæddi og hafði verið tekinn af henni?„Nei, þessar fréttir koma mér alveg að óvörum,“ segir Ragnar og undrunin leynir sér ekki í rödd hans. „Hún talaði að vísu mest við móður mína, því við pabbi vor-um í vinnu á daginn og það má vel vera að hún hafi trúað mömmu fyr-ir þessu. Okkur fannst öllum Mar-ion vera indælisstúlka og var mjög til friðs á heimili okkar. Mér fannst Gísli vera að gera mjög góða hluti því ég gat ekki séð nokkra ástæðu fyrir því að hún væri vistuð á Bjargi. Mér skildist að fjölskylda henn-ar í Færeyjum væri afskaplega sið-vönd og ástæða þess að þau hefðu sent hana á Bjarg væri sú að hún hefði ekki hagað sér nægilega vel að þeirra mati. En þessi frétt um að hún hafi verið barnshafandi og eignast son hér á landi, skýrir margt fyrir mér. Ég hafði spurnir af Marion síðar og svo virðist sem hún hafi orðið hálfgert rekald eftir lífs-reynslu sína hér á Íslandi.“Stefán Bjarnason, faðir Ragnars, staðfestir að fjölskyldan hafi fallist á að veita Marion húsaskjól og hún hafi verið elskuleg stúlka. „Ég vissi af fæðingu sonarins, en man ekki hvort hún sagði mér sjálf af henni eða einhver annar,“ segir Stefán. Aðspurður hvort Gunnlaugur Þórðarson lögfræðingur hafi komið á heimilið til að taka skýrslu af Mar-ion segist Stefán muna eftir manni sem kom á heimilið til að ræða við hana.„Hvort það var Gunnlaugur heit-inn Þórðarson veit ég ekki, en Mar-ion var nokkuð brugðið við komu þessa manns. Hún fór að gráta því hún taldi að verið væri að sækja sig og flytja aftur á Bjarg. Umræddur maður fullvissaði hana um að hann væri þarna til að hjálpa henni og fór mjög rólega að henni og talaði hlý-lega við hana.“ Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir var mest var áberandi í sambandi við Bjargsmálið. Á henni stóðu öll spjót þegar málið var rannsakað og á hana er hart deilt í viðtölum í DV í dag.„Af hverju ertu að fara að skrifa um þetta?“ spyr hún þegar haft var samband við hana síðdegis í gær. „Ég skal segja þér hvað ég vil segja. Við settum þetta heimili á stofn. Þetta var skólaheimili.“Og fór þar fram einhver kennsla? „Þú hefur enga þekkingu á þessu máli og hefur engan rétt á að hringja í mig og krefjast svara. Ég nenni ekki að tala um þetta... Ég nenni þessu ekki lengur.“Auður Eir segir að vissulega hafi verið mikið um þetta mál fjall-að á sínum tíma, en segir:„Mig langar ekkert inn í þessa umræðu aftur. Þetta er ekkert grín, ég ræddi þetta á sínum tíma og vil ekki ræða þetta frekar.“Þegar vitn-að er í frásögn Marion Gray, sem birtist í Þjóðviljanum 20. október 1967 og varð í raun Bjargi að falli svarar Auður:„Þetta var alls ekki eins og Marion lýsir þessu. Við settum þetta heim-ili á stofn, þetta var skólaheimili. Ég vil ekki tjá mig um þetta mál, ég gerði það á sínum tíma frá morgni til kvölds. Það getur vel verið að ég svari öðrum á morgun um málið. Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið. Þú verður að finna þitt hjarta og hvernig það slær,” sagði prestur Kvenna-kirkjunnar, séra Auður Eir Vil-hjálmsdóttir og kvaddi.valur@dv.is „Tala ekki um þetta“ Ragnar „skjálfti“ Stefáns-son og foreldrar hans skutu skjólshúsi yfir Marion „Ég hafði spurnir af henni síðar og svo virðist sem hún hafi orðið hálfgert rekald eftir lífsreynslu sína hér.“ Bjarg var fangelsi Vond verk unnin í nafni DrottinsMatthildur Hafsteinsdóttir segir stúlkur sem dvöldu á bjargi hafa verið beittar andlegu ofbeldi. Sátt við veðrið „Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið,“ segir séra auður eir Vilhjálmsdóttir. DV Fréttir föstudagur 16. febrúar 2007 13 Þrælabúðir barna „Ég þekkti ekkert annað en að vera á barnaheimili á æskuárum mínum,“ segir Elvar Jakobsson, tæplega fimmtugur maður, sem búsettur er í Þýskalandi. „Ég er næstyngstur sex systkina og vegna veikinda minna í bernsku og mik-ils vinnuálags á foreldrum mínum var mér komið fyrir á vöggustofu og barnaheimilum. Þegar ég var ellefu ára kom ég að Kumbaravogi, sem átti eftir að verða heimili mitt næstu fimm árin.“Forstöðumenn Kumbaravogs voru hjónin Hanna Guðrún Hall-dórsdóttir og Kristján Friðbergs-son. Þar segist Elvar hvorki hafa fengið ástúð né blíðu, en verið not-aður til vinnu eins og önnur börn á heimilinu. „Þetta voru þrælabúðir barna,“ segir hann með mikilli áherslu. Sagan hefur legið á honum eins og mara í áratugi og hann tekur sér nokkra daga til að undirbúa þetta viðtal.„Við vorum tólf eða fjórtán börn á bænum þegar ég dvaldi þar og vorum öll látin vinna hörð-um höndum. Þarna var hænsna-bú með yfir þúsund hænum og ég gleymi aldrei þegar við vorum að moka skítinn úr hænsnahúsinu með skóflum þar til við fengum blöðrur á hendurnar. Frá Kumb-aravogi var mikil „útgerð“, þaðan voru seldir kjúklingar og egg og það var í verkahring okkar barn-anna að hlaða eggjunum upp og sjá um þetta bölvaða hænsnahús, svo ég taki vægt til orða,“ segir hann og hlær lítillega. „Almáttug-ur, hvað ég hataði þetta hænsna-bú! Ef við vorum dugleg fengum við ís að launum.“ Í grænmetisgarðinum frá morgni til kvöldsAuk vinnunnar við hænsna-húsið segist Elvar hafa verið látinn stjórna stórri kartöfluvél og negla tjörupappa á þök, ellefu ára að aldri.„Annars lágum við mest á fjór-um fótum á Kumbaravogi. Við vor-um að taka upp gulrætur, gulrófur og kartöflur frá morgni til kvölds og látin bera níðþunga kartöflu-pokana í kartöflugeymsluna. Við vorum líka látin festa þakplötur, ellefu, tólf ára börnin og þau einu sem ég veit til að hafi sloppið við þrældóminn voru þrjú systkini sem komu um það leyti sem ég var að fara af Kumbaravogi. Sum barnanna voru í eftirlæti hjá hjón-unum... Sá yngsti sem var með mér í þessari þrælkunarvinnu var Einar heitinn Agnarsson, sem var níu ára þá.... Við vorum lát-in negla tjörupappa á húsþök, hreinsa timbur, grafa skurði og bera sérstakt efni á timbur svo ég nefni þér dæmi. Og ekki nóg með það, heldur var sett upp pokaverk-smiðja þarna og við börnin vorum látin sauma heyábreiður og ann-að. Við sátum við risasaumavél-ar sem fæst okkar réðu við, enda saumaði ég í gegnum fingurinn á mér. Ef það er ekki barnaþrælkun að láta börn koma beint úr skóla til að setjast við vinnuvélar, þá veit ég ekki hvað barnaþrælkun er. Hér í Þýskalandi, þar sem ég hef búið í áratugi, væru forstöðumenn slíks heimilis löngu komnir á bak við lás og slá. Það var komið fram við okk-ur eins og vinnudýr og sem dæmi þá fengum við aldrei að koma inn í húsið nema bakdyramegin.“Hann segist aldrei hafa fundið fyrir hlýju eða alúð af hálfu hjón-anna. Eina manneskjan sem hann hafi tengst sterkum böndum hafi verið jafnaldra hans, stúlka úr Reykjavík sem hann kallar fóst-ursystur sína. Hún er sú eina sem hann heldur sambandi við af Kumbaravogsbörnunum. „Ég man aldrei eftir að nokkur hafi sýnt mér ástúð á æskuárum mínum,“ segir Elvar og þagnar. „Og þó. Ég man þegar ég var nokkra daga í Reykjavík hjá mömmu minni þegar ég var að fermast að þá fékk ég nokkra hlýju frá henni.“Hann segist oft hafa reynt að strjúka ásamt öðrum börnum. En annaðhvort náðust þau eða hann sneri til baka að eigin ósk.„Ég átti nefnilega hest þarna,“ segir hann til útskýringar. „Það eina sem ég gat sýnt blíðu voru dýrin. Ég elskaði að vera innan um dýr, tók að mér veika fugla og hlúði að þeim. Eini tíminn sem gafst þó til þess að sinna hugðarefnunum var á laugardögum, því þetta var aðventistaheimili þar sem laugar-dagurinn var hvíldardagur.“ Langaði til himinsins, til Guðs...Herbergjum deildu börnin ým-ist tvö eða þrjú saman. Að sögn Elvars voru herbergin þrifaleg og þótt honum hafi ekki þótt matur-inn góður, var nóg af honum.„Það sem mér fannst best voru stappaðar gulrætur, rófur og kart-öflur í smjöri,“ segir hann hlæjandi. Framhald á næstu opnu AnnA Kristineblaðamaður skrifar: annakristine@dv.is elvar Jakobsson „Ég er búinn að grafa minningarnar svo djúpt að ég held að enginn nái þeim úr þessu. Ég veit ekki hvort það sé hægt að hjálpa mér lengur.“ föstudagur 16. febrúar 200714 Fréttir DV lítill og hugrakkur „Eftir að hafa skriðið í grænmet-isgörðunum frá morgni til kvölds og hakkað í mig grænmeti, þá var þetta engu að síður eftirlætismat-urinn minn. Sem segir kannski ým-islegt um matseldina, eða hvað?“ segir hann í spurnartón. „Ég elsk-aði þegar ég fékk að fara til mömmu til Reykjavíkur og fá almennilegan heimilismat... Og oj! Linsubaunir... þær get ég ekki horft á. Það voru notaðar linsubaunir í alla rétti, linsubaunabúðingur og annað eft-ir því. Síðar fór ég á aðventistaskól-ann, Hlíðardalsskóla, og þar voru linsubaunir líka notaðar í alla rétti. Hvaða ást ætli þetta sé milli aðvent-ista og linsubauna?“Sárnaði þér ekki að vera eina barnið af sex sem ekki fékk að alast upp hjá foreldrunum?„Auðvitað særði það,“ segir hann án umhugsunar. „Það særði mig djúpt. En ég var hálfgert vand-ræðabarn held ég og þegar ég var í Reykjavík áður en ég var sendur að Kumbaravogi, mætti ég til dæm-is helst aldrei í skólann. Ég strauk inn að Fáksheimili til að vera nálægt hestum.“Hann safnaði sér fyrir hesti, vann eitt sumar í frystihúsinu á Stokkseyri og rétti Kristjáni á Kumbaravogi launaumslagið. Fyrir hluta þeirra peninga keypti hann sér hest sem hann sneri alltaf til aftur.„Einu góðu tímarnir sem ég man virkilega eftir á Kumbaravogi voru þegar ég fór aleinn í reiðtúr á hest-inum mínum meðfram ströndinni og líka þegar tjörnin var frosin á vet-urna. Þá skautaði ég á henni, lagðist á svellið og gerði engil með hönd-um og fótum. Þá horfði ég á falleg-an, stjörnubjartan himininn með norðurljósunum og óskaði mér þá að ég kæmist til himins, því ef Guð væri til, þá hlyti hann að búa þar.“ Þeim minnsta var hegnt harðastÞegar ég segi Elvari að það fari alveg tvennum sögum af hjónunum á Kumbaravogi, segist hann ekki hissa. „Mér fannst Hanna betri en Kristján,“ segir hann. „Hefði hún ekki verið þarna, hefðum við krakk-arnir farið miklu verr út úr þessari lífsreynslu en raun ber vitni.“Fóruð þið mörg illa út úr henni?„Já, mjög mörg,“ svarar hann að bragði. „Við fórum mörg yfir í of-notkun áfengis þegar við losnuðum og fundum frelsið. Einhverjir lentu í afbrotum og enn aðrir í fíkniefnum. Þeirra á meðal litli vinur minn hann Einar Agnarsson...“Einars er getið hér hinum megin á opnunni. Lík hans og vinar hans fundust í Daníelsslippi við Mýrar-götu þann 1. mars 1985. Báðir voru þeir 25 ára og enn er margt á huldu varðandi það hvernig dauða þeirra bar að. Elvar minnist Einars með miklum hlýhug.„Einar var minnstur og grennst-ur, en hann var sá hugrakkasti. Hann svaraði alltaf fyrir sig full-um hálsi og það var alltaf verið að hegna honum. Breiðavík var notuð sem grýla á okkur og okkur hótað að vera send þangað. Einar var sendur þangað... En Einar var gríðarlega húmorískur og stríðinn. Einhverju sinni kom hann að Kristjáni að taka í nefið og ákvað að herma eftir hon-um næst þegar Kristján kom að at-huga hvort við værum ekki örugg-lega að vinna. Kristján reiddist svo þessari eftiröpun að hann tók Ein-ar upp á hnakkadrambinu og bar hann þannig 500 metra án þess að fætur Einars snertu nokkurn tíma jörðina. Einar var alltaf að fara úr axlarlið vegna meðferðar sem þess-arar og þegar hann lést var hann ný-kominn úr axlaraðgerð. Hann hefur ekki getað varið sig...“Og ert þú þeirrar skoðunar eins og margir, að Einar hafi verið myrt-ur?„Það get ég ekki sagt um en það er alveg eins hugsanlegt, enda ekki öll kurl komin til grafar í því máli.“ Sagði hug sinn í bréfiÉg heyri að þú ert Kristjáni reið-ur...„Já, ég er honum óskaplega reiður. Ég skrifaði honum, því eftir andlát Hönnu var stofnaður sjóður í hennar nafni, sem við krakkarnir á Kumbaravogi áttum að geta sótt um styrk úr til náms. Mig langaði svo á verslunarskóla í Þýskalandi en Kristján svaraði aldrei bréf-inu. Fyrir svona sex, sjö árum var það hluti af meðferð minni við að vinna úr hatrinu, sorginni og reið-inni, að skrifa Kristjáni hug minn til hans. Hann svaraði því bréfi held-ur aldrei. Svo fékk ég samviskubit og skrifaði honum afsökunarbréf og nú sé ég mest eftir því. Ég þurfti ekki að biðja Kristján afsökunar á neinu. Ef við gerðum ekki það sem hann bauð, læsti hann okkur inni á baðherbergi eða inni í her-bergi, stundum upp í sólarhring í einu. Einu sinni gleymdi hann mér á baðherberginu. En verstur var hann við Einar. Hann var verstur við þann minnsta, þann sem gat ekki varið sig líkamlega. En Ein-ar var samt sá hugrakkasti og var algjörlega óttalaus drengur. Mér fannst við oft beitt andlegu ofbeldi. Einu sinni vorum við tvö barnanna að koma úr rófugarðinum og vor-um að þvo moldina af höndum okkar, þegar Kristján kom til okk-ar og sagði okkur að hann ætlaði að ættleiða okkur. Við svöruðum bæði nei, að það vildum við ekki. Kristján varð eldrauður af reiði og húðskammaði og svívirti okk-ur. Hann sagði að foreldrar okkar væru ræflar og drykkjufólk og þeir hefðu aldrei viljað svona vesal-inga eins og okkur. Við fórum bæði að háskæla. Svo sagði hann að við myndum vera miklu betur stödd í framtíðinni ef hann ættleiddi okk- ur. Ég get aldrei gleymt þessu, því þetta með foreldra mína hitti mig svo í hjartað – að foreldrar mínir vildu ekki eiga mig.“En hafði ekki barnaverndar-nefnd eftirlit með staðnum?„Jú, en hún gerði alltaf boð á und-an sér. Við vissum hvenær barna-verndarnefnd var að koma. Það var þegar við vorum kölluð inn, vorum þvegin og strokin og sett í bestu fötin. Þá stóðum við stillt og sögðum ekki orð. Við vorum eins og dúkkur.“ NauðgunElvar á gríðarlega erfitt með að rifja upp árin fimm á Kumbaravogi. Hann hefur lítið sofið næturnar áður en viðtalið er tekið og sárindin liggja djúpt. Þegar ég spyr hann beint út hvort hann hafi verið beittur kyn-ferðislegu ofbeldi játar hann því.„Á Kumbaravog kom oft maður sem heitir Vignir að millinafni og var aðventisti. Þetta er lítill, ljótur og ógeðslegur karl með útstæð augu. Mig hryllir við að hugsa um hann... Þessi maður bauð mér sælgæti fyrir að fá að misnota mig.“Það kemur löng þögn. Ég held að sambandið hafi slitnað þegar ég heyri brostna rödd hans aftur.„Ég skammast mín svo fyrir að hafa látið hafa mig út í þennan við-bjóð. Fyrir sælgæti... Fyrst hélt ég að ég væri sá eini sem hann misnotaði. Svo sá ég hann lokka Einar inn á herbergi og loka. Síðar annan strák og loks læsti hann sig inni með okk-ur öllum. Við vorum ekki einu sinni orðnir kynþroska og hann lét okk-ur þukla hvern á öðrum og á sér og hann þuklaði á okkur. Sársaukinn var ólýsanlegur.“Umræddum manni segir Elvar hafa verið úthýst af Kumbaravogi eftir að stúlka þar lét vita af fram-ferði hans. Elvar telur hjónin ekk-ert hafa vitað hvað fram fór bak við luktar dyr en bætir við:„Sá sem þekkir og elskar barn hlýtur að taka eftir breytingu á hegð-un þess og framkomu eftir að slíkur glæpur hefur verið framinn. Vignir var aldrei kærður svo ég viti til, en tveir drengir af Kumbaravogi sem heimsóttu hann til Vestmannaeyja lentu í klónum á honum. Þeir sögðu örugglega frá.“Honum er verulega brugðið þeg-ar ég segi honum að heimildir hermi að umræddur maður starfi nú við umönnun aldraðra.„Guð minn almáttugur. Guð minn...“Þrátt fyrir að hafa sótt ótal tíma hjá sálfræðingum, dvalið um margra vikna skeið á heilsuhælum í Þýskalandi, unnið eftir bókum og segulbandsspólum hefur Elvar ekki komist yfir sektarkenndina, sem hann á ekki að bera.„Ég veit að þetta var ekki mér að kenna. Það hafa allir sem hafa reynt að hjálpa mér sagt mér. En ég kemst ekki upp úr þessu feni, þessari sekt-arkennd að ég hefði þrátt fyrir ungan aldur ekki átt að láta þennan mann komast upp með þetta. Ég kvelst við tilhugsunina um þetta.“ „Sum barnanna voru í eftirlæti hjá hjónunum... Sá yngsti sem var með mér í þessari þrælkunarvinnu var níu ára. Við vorum látin negla tjöru- pappa á húsþök, hreinsa timbur, grafa skurði og bera sérstakt efni á timbur svo ég nefni þér dæmi. Og ekki nóg með það, heldur var sett upp pokaverksmiðja þarna og við börnin vorum látin sauma heyábreiður og annað. Við sátum við risasaumavélar sem fæst okkar réðu við, enda saumaði ég í gegnum fingurinn á mér. Ef það er ekki barnaþrælkun að láta börn koma beint úr skóla til að setjast við vinnuvélar, þá veit ég ekki hvað barnaþrælkun er.“ Börnin á KumbaravogiÞessi mynd er tekin árið 1970, þegar yngri börn voru komin á heimilið. elvar er fremstur til vinstri í köflóttri skyrtu, einar besti vinur hans fyrir miðju. búið er að krota yfir andlit „perrans“ og skrifa orðin oj, oj... Einar Agnarsson og Sturla Lam­bert Steinsson fundust látnir í bif­reið í Daníelsslipp árið 1985. Rann­sóknarlögregla ríkisins rannsakaði málið og úrskurðaði að þeir hefðu framið sjálfsvíg. Ragnar Agnarsson, bróðir Einars, segir þá ekki hafa fall­ið fyrir eigin hendi.Strax og Ragnar Agnarsson, bróð­ir Einars, skoðaði föt þeirra látnu fylltist hann grun um að ekki væri allt með felldu. Það var að morgni 1. mars 1985 sem þeir Einar og Sturla fundust látnir í bílnum í Daníels­slipp.Búið var að breiða gráan segldúk yfir bílinn. Ragnar segir útilokað að þeir hafi gert það sjálfir. Ragnar er sannfærður um að einhver óþekkt­ur maður hafi gert það og átt þátt í dauða tvímenninganna. Það er fleira sem Ragnar efast um í rann­sókn lögreglunnar. Einar átti erfiða æsku, ólst upp á Kumbaravogi og síðar Breiðuvík. Þar sætti hann hrikalegum misþyrm­ingum. Elvar Jakobsson segir í við­tali, hér á opnunni, frá hluta þeirra misþyrminga sem Einar sætti. Einn­ig að hann hafi hugsanlega þurft að þola nauðgun af hálfu manns þegar hann var á Kumbaravogi. Undarlegur dánartími„Ég hitti leigubílstjóra eftir að mér var sagt að Einar og Sturla hefðu tekið líf sitt. Hann var undr­andi yfir þeirri fullyrðingu og sagð­ist hafa verið með fimm öðrum bíl­stjórum við Kaffivagninn seint hina afdrifaríku nótt, það er aðfaranótt 1. mars 1985. Öllum bílstjórunum bar saman um að ekkert virtist ama að þeim Einari og Sturlu,“ segir Ragn­ar. Leigubílstjórinn er nú látinn. Samkvæmt rannsókn málsins létust Einar og Sturla um miðnætti, sem stangast algjörlega á við framburð vitna, að sögn Ragnars. Hann segir þá ekki hafa haft sjálfsvíg í huga þegar þeir hittu bíl­stjórana um nóttina. Dularfullt blóðAð sögn Ragnars fékk hann föt þeirra eftir rannsóknina. Hann segir að grunur hans hafi vaknað fyrir al­vöru þegar hann skoðaði fötin. „Ég sturtaði fötunum úr pokan­um, föt Einars lyktuðu af bensíni en voru annars tandurhrein. Aftur á móti voru föt Sturlu blóðug, rifin og moldug líkt og hann hefði lent í átökum. Af þeim var ekki bensín­lykt,“ segir Ragnar. Hann segir það greinilegt að þeir hafi ekki látið lífið saman eða á sama hátt. Ragnar hitti almennan lögreglu­þjón sem hafði komið á vettvang daginn sem þeir látnu fundust. Hann sagði Ragnari að aðkoman í Daníelsslipp hefði verið undar­leg. Helst vegna þess að búið var að breiða gráan segldúk yfir bílinn. Krufningarskýrslan „Þá fór ég til rannsóknarlög­reglunnar í Kópavogi og var harð­ákveðinn í að fá skýr svör um dauða bróður míns,“ segir Ragnar alvar­legur í bragði. Hann segist hafa hitt lögreglumann og eftir nokkurt þóf á hann að hafa sagt við Ragnar að málið væri ekki jafn einfalt og það liti út fyrir að vera. Ragnar sagði honum það sem hann vissi um dúk­inn og blóðið og spurði hvernig það hafi komist í föt Sturlu.„Þá las hann upp úr krufning­arskýrslunni fyrir mig og þar stóð að blóðið væri þannig tilkomið að lungnapípur hefðu sprungið og Sturla gubbað blóði,“ segir Ragnar og bætir við: „Sturla var myrtur.“ Róandi lyfÞegar Ragnar vildi fá að vita um dánarorsök bróður síns neitaði lögreglumaðurinn að segja meira. Hann skýrði það með þeim rökum að Ragnar væri of nátengdur Ein­ari. Aftur á móti sýndi hann Ragn­ari lyfjaglas með róandi lyfi. Ragnar fullyrðir að það efni hafi ekki geta orðið þeim að bana, enda báðir vanir ýmsum efnum sökum óreglu. Að sögn Ragnars lyktaði samræð­unum þannig að málið væri til rannsóknar og yrði áfram. „Endan­leg dánarorsök var sú að þeir hafi látist vegna koltvísýringseitrunar,“ segir Ragnar um lok rannsóknar­innar. Hann efast enn um að nið­urstöður lögreglurannsóknarinnar séu þær réttu. Engar upplýsingar„Þetta var áfall fyrir mig,“ seg­ir Ragnar um örlög bróður síns og Sturlu. Hann, ásamt systur sinni, hefur reynt að komast til botns í málinu. Í tuttugu ár hefur málið leg­ið eins og mara á þeim og Ragnar vill fá svör. valur@dv.is DV Fréttir föstudagur 16. febrúar 2007 15 Bróðir minn var myrturÞorir ekki að treystaElvar ætlaði um tíma að verða bakari. Hann fór í nám í bakaríinu á Selfossi og segir að þar hafi systir fóstursystur sinnar á Kumbaravogi bjargað sér.„Ég var fimmtán ára unglingur og þessi unga stúlka, sem er fjórum árum eldri en ég, tók mig í hálfgert fóstur. Heima hjá henni lærði ég og við hana gat ég rætt allt milli him­ins og jarðar. Ég sagði henni allt. Svo var mér hegnt á kvöldin fyrir að hafa ekki komið beint heim úr skól­anum. Þessi kona gerði mér meira gagn en hana órar fyrir...“Ást hans á dýrum jókst ef eitt-hvað var. Hann fór í Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal.„Þar lauk ég tveimur vetrum á einum og útskrifaðist sem búfræð­ingur nítján ára að aldri...“Þegar Elvar var 21 árs hafði hann leiðst út í drykkju. Einn dag tók hann ákvörðun. Hann ætlaði að loka á minningarnar með því að fara úr landi.„Mamma reyndi að stöðva mig, en ég hafði tekið ákvörðun. Hér á Íslandi gat ég ekki búið. Ég hóf nýtt líf, fyrst í Kaupmannahöfn, síðar í London og loks í Þýskalandi þar sem ég hef búið í áratugi. Fyrstu árin forðaðist ég að koma heim. Ég var í góðum störfum og mín flóttaleið var sú að vinna myrkr­anna á milli. Með mikilli vinnu gat ég útilokað ljótu minningarnar frá Kumbaravogi. En ég hef aldrei ver­ið sambúðarhæfur. Um leið og ein­hver sýnir mér ást yfirgef ég við­komandi. Ég þori ekki að treysta.“ Gleðst yfir rannsókn á barnaheimilumElvar segist hafa átt góða ævi síðan hann yfirgaf Ísland árið 1979. Hann hefur komist í góðar stöður og í fjöldamörg ár var hann aðstoðarhótelstjóri á fimm stjörnu hóteli í Hamborg. Þar tók hann á móti mestu stórstjörnum verald-ar sem fengu aldrei að sjá bak við grímuna. Þær sáu bara einkenn-isklæddan, broshýran Íslending sem bar sig eins og lífið væri leik-ur einn.„Ég hef upplifað margt skemmtilegt og séð allan heim­inn,“ segir hann. „Það er nefni­lega mikilvægt og má ekki gleym­ast að ég á fimm yndisleg systkini, föður og æðislega fóstursystur. Þetta er fólk sem ég virði mjög mikils. Þau hafa staðið mér við hlið og sýnt mér mikla ástúð og traust síðustu tuttugu árin. Án hjálpar þeirra og kærleiks hefði ég aldrei komist gegnum þessa martröð. Ég geri mér grein fyrir að ég þarf hjálp. Ég þarf hjálp til að ýta verstu minningunum upp á yfirborðið og drepa þær. Ég veit ekki hvort það sé hægt að hjálpa mér lengur. Ég er búinn að grafa þetta svo djúpt að ég held að eng­inn nái minningunum upp úr þessu. Ég er farinn að fá martrað­ir. Í öllum meðferðum festist ég í minningunni um nauðgunina. Ég skammast mín svo fyrir að hafa leyft að láta fara svona illa með mig. Að ég hafi þegið sælgæti fyr­ir að láta nauðga mér. Ég á að vita að þetta var ekki mér að kenna. Ég var ókynþroska unglingur. En minningarnar hafa sótt að mér, bæði eftir að ég kom heim til Ís­lands um síðustu jól eftir sex ára samfellda fjarveru, en sérstaklega nú síðustu daga þegar ég las um Breiðuvíkurmálið. Það gleður mig að sjá að ríkisstjórnin ætli að láta rannsaka hvað fór fram á barna­heimilum Íslands fyrr á árum. Þar fór nefnilega ekki fram uppeldi, heldur ofbeldi og á þeim stað sem ég bjó lengst, vinnuþrælkun.“annakristine@dv.is Einar Agnarsson Sturla Lambert Steinsson Ragnar Agnarsson „Þá las hann upp úr krufningarskýrslunni fyrir mig og þar stóð að blóðið væri þannig tilkomið að lungnapíp- ur hefðu sprungið og Sturla gubbað blóði.“ Einar Agnarsson fyrir framan Kumbaravog „einar var minnstur og grennstur, en hann var sá hugrakkasti,“segir elvar Jakobsson í viðtali við blaðið.„Ég skammast mín svo fyrir að hafa leyft að láta fara svona illa með mig. Að ég hafi þegið sælgæti fyrir að láta nauðga mér.“ Framhald á næstu síðu Unglingurinn Elli „Ég var hálfgert vandræðabarn held ég og þegar ég var í reykjavík áður en ég var sendur að Kumbaravogi, mætti ég til dæmis helst aldrei í skólann. Ég strauk inn að fáksheimili til að vera nálægt hestum.“ föstudagur 16. febrúar 200716 Fréttir DV DV mynD Stefán Upplifun barnanna sem dvöldu á Kumbaravogi um árabil er misjöfn. Einn þeirra sem þar bjó um átta ára skeið er Róbert Har-aldsson, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, sem segist hafa fundið þar bæði ástúð og hlýju. „Ég dvaldi á Kumbaravogi frá árinu 1967 fram til 1975 og þar leið mér vel,“ segir Róbert. „Ég fann fyrir ástúð og hlýju frá fóstur-foreldrum mínum, en það leiddi af verkaskiptingu þeirra daga að mæðurnar sinntu börnunum meira en feður og ég fann því sér-staklega mikla hlýju frá Hönnu, fósturmóður minni. Hún var ein-staklega elskuleg kona.“Róbert segist vissulega hafa saknað foreldra sinna oft, enda raun að þurfa að yfirgefa þá á við-kvæmum aldri.„En mér leið vel á Kumbara-vogi og fannst vel að mér búið,“ segir hann. „Það var gaman að al-ast upp á Stokkseyri.“Í viðtali við Elvar Jakobsson hér í blaðinu líkir hann miklu vinnu-álagi á börnin á Kumbaravogi við þrælkun. Ert þú ekki sama sinnis?„Nei, mér finnst það alltof fast að orði kveðið. Fósturforeldr-ar mínir lögðu vissulega mikla áherslu á að við tækjum þátt í heimilisstörfum og myndum venjast allri algengri vinnu. Það var mikil virðing borin fyrir vinnu-semi á heimili okkar.“ Vinnuálag árstíðabundið En var mikil vinna lögð á herð-ar ykkar? „Við unnum meira en ung-menni eiga að venjast nú í dag, en vinnuálagið var árstíðabund-ið. Það var til dæmis unnið hörð-um höndum á haustin við upp-skeruna. Við unnum líka við hænsnarækt, byggingarvinnu og í pokagerðinni. En við fengum líka mikinn tíma til að leika okkur, ferðast og stunda námið. Ég varði miklum tíma í Stokkseyrarfjör-unni og í móum og mýrum norð-austur af Kumbaravogi þar sem er mikið og fjölbreytt fuglalíf. Raunar undrast ég hve oft og hve víða fóst-urforeldrar okkar ferðuðust með okkur um Ísland, þennan stóra barnahóp. Við fórum á skátamót víða um land, lengri og skemmri bíltúra og iðulega í styttri ferðir á laugardögum. Við unnum líka í frystihúsinu á Stokkseyri í fisk-vinnslu líkt og önnur ungmenni í þorpinu.“Ykkur var launað með ís ef þið stóðuð ykkur vel. Finnst þér það eðlileg uppeldisaðferð?„Ég minnist þess nú ekki að ís hafi verið eitthvert sérstakt uppeld-istæki á Kumbaravogi, að minnsta kosti ekki meira en gerist á venju-legum íslenskum heimilum!“Þið fóruð alltaf inn bakdyra-megin. Finnst þér það eðlilegt?„Ég skil ekki hvað spurningin gefur í skyn og hef í raun aldrei leitt hugann að þessu, því um-gengni öll var hin eðlilegasta. Mjög eðlilegt skipulag sem tíðkast víða til sjávar og sveita og var einn-ig hjá okkur. Þurrkklefi og slík að-staða var bakdyramegin og miklu meira rými til að geyma yfirhafnir en við aðalinnganginn. Við hefð-um hlegið hressilega strákarn-ir á Kumbaravogi, er ég hræddur um, ef við hefðum fengið á okkur þessa spurningu.“ Öruggt og gott heimiliHvaða hug berð þú til æskuár-anna núna?„Ég ber góðan hug til æskuára minna. Það var gott að alast upp á Stokkseyri. Heimilið var öruggt og gott og reyndar mikil framför frá þeim tveimur heimilum eða stofnunum sem ég þekkti til og hafði áður dvalið á í stuttan tíma. Ég tel mig heppinn að hafa dval-ið á Kumbaravogi miðað við þær aðstæður. Ég hef heyrt í öðrum uppeldissystkinum sem eru sama sinnis.“En hvernig hugsaðirðu um þessar aðstæður þegar þú varst yngri?„Ég man að ég saknaði oft for-eldra minna og það er svo margt sem barnshugurinn ekki skilur. En eftir því sem ég best man var ég sáttur krakki og glaðvær.“Tengdistu vel öðrum börnum á Kumbaravogi?„Auðvitað misvel í svo stórum hópi, en ég eignaðist afskaplega góða félaga og vini í hópnum. Og ég átti góð samskipti við öll fóstur-systkini mín, án undantekningar.“Tengdistu hjónunum vel?„Ég hef lært að meta þau betur og betur með hverju ári sem líður. Ég ber mikla virðingu fyrir ævi-starfi þeirra sem ég tel einstakt að mörgu leyti.“Kristján þykir hlýlegur maður af sumum, en er illa liðinn af öðr-um. Upplifðir þú hann aldrei sem harðan mann? „Það hefur aldrei nokkur mað-ur sagt í mín eyru að hann hafi haft illan bifur á Kristjáni. Kristj-án gat verið hlýr og hann gat ver-ið strangur líkt og góðir foreldr-ar. Ég varð hins vegar aldrei fyrir neinu harðræði af hans hálfu. Ég ber mikla virðingu fyrir Kristjáni og ævistarfi hans. Mér hefur fund-ist hann með fádæmum útsjónar-samur og úrræðagóður maður og hann er með fjölmörg járn í eld-inum ennþá þótt hann sé kominn hátt á áttræðisaldur.“ Varst þú einn þeirra sem var í eftirlæti hjá hjónunum?„Ég minnist þess ekki að þau hafi gert upp á milli okkar barn-anna. Mér finnst ég hafi átt gott samband við þau bæði en það var auðvitað ekki eins náið og sam-band milli barns og foreldris í lít-illi kjarnafjölskyldu. Það gefur augaleið.“ fjarri því að harðræði væri beittEinar Agnarsson er sagður hafa verið sá minnsti en jafn-framt sá hugrakkasti og sagð-ur hafa svarað fyrir sig, staðið uppi í hárinu á Kristjáni sem hafi hegnt honum. Einar var sendur í Breiðuvík í hegningarskyni. Hvað finnst þér um það núna í ljósi þeirra upplýsinga sem við höfum um Breiðuvík?„Ég veit ekki til hvers þú ert að vísa hér og ég vil ekki ræða einstaka einstaklinga. Þegar ég hugsa til Einars heitins þá get ég almennt sagt að sitthvað er gæfa og gjörvileiki. Það var fjarri fóst-urforeldrum mínum að beita nokkurn harðræði. Lýsingu af þessu tagi kannast ég ekki við. Og ég verð að segja almennt að mér finnst miður að æskuheimili okk-ar skuli sett í samhengi við þessa umræðu um Breiðuvík. Þessu tvennu verður ekki líkt saman.“Þið talið hvert um annað sem „systur“ eða „bróður“. Bundust þið svona sterkum böndum?„Já, mér hefur alltaf fundist ríkja hlýhugur á milli okkar fóst-ursystkinanna. Ég skynja hann enn í dag í hvert sinn sem ég hitti þau.“ Hvert er samband ykkar í dag, barnanna sem dvöldu á Kumb-aravogi?„Ég hef mismikið samband við þau. En eins og ég segi þá finn ég fyrir miklum hlýleika milli okkar. Við hittumst langflest að minnsta kosti einu sinni á ári, á annan í jólum hjá Kristjáni á Kumbara-vogi og verjum eftirmiðdegi sam-an.“ Leiðarljósið var að skapa eðlilegt fjölskyldulífHefur þú þurft að vinna í minningunum, er eitthvað sem þú varst ósáttur við úr æsku eftir að þú fullorðnaðist?„Mér finnst ég ekki hafa meira af slíku í mínu lífi en gerist og gengur. Það er ekkert eitt sem ég hef þurft að gera upp, eða neitt af því tagi. En sjónarhorn manns breytist með árunum og maður áttar sig betur á því hverjir hafa reynst manni vel.“ Hvert er viðhorf þitt til þess að ríkisstjórnin hefur ákveðið að láta fara fram rannsókn á aðbúnaði barna á barnaheimilum „fyrri tíma“? Er slíkt nauðsynlegt að þínu mati?„Mér sýnist að þessi heimili hafi verið mjög ólík og haft mjög ólíkar hugsjónir að leiðarljósi. Sú hugsjón sem fósturforeldrar mín-ir höfðu að leiðarljósi var að skapa börnum sem komu úr erfiðum fjölskylduaðstæðum eðlilegt fjöl-skyldulíf þar sem móðir og faðir voru til staðar og börnin mynduðu systkinahóp. Við töluðum aldrei um Kumbaravog sem barnaheim-ili heldur sem heimili okkar. Og við litum ekki á þau hjónin sem forstöðufólk sem gæti komið og farið. Flest börnin kölluðu þau mömmu og pabba. Mér sýnist að hin kristna hugmyndafræði þeirra hafi skilað góðum árangri, skapað festu og öryggiskennd hjá okkur börnunum.“Telur þú rétt að þau börn sem bjuggu á barnaheimilum og eiga enn um sárt að binda fái sálfræði-aðstoð?„Að sjálfsögðu.“ Telur þú líklegt að mörg þess-ara barna hafi grafið reynsluna djúpt í undirmeðvitund og hafi ekki náð að fóta sig í lífinu?„Langflestir krakkanna á Kumbaravogi hafa náð að fóta sig í lífinu og mörgum hefur gengið vel, jafnvel mjög vel. Meirihluti okkar hefur hlotið háskólamenntun eða sérhæfða iðnmenntun og ég veit ekki betur en flest okkar starfi á vettvangi sem við erum sátt við og höfum náð að mynda okkar eigin fjölskyldur. Undantekningar frá þessu eru ekki margar, en þær eru til. Ég lít svo á að þessi árangur sé mikil meðmæli með því starfi sem fósturforeldrar mínir unnu og þeim hugsjónum sem þau lögðu til grundvallar.“ Þakklátur fyrir þá aðstoð sem mér var veittÍ viðtalinu við Elvar kemur fram að hann var beittur kyn-ferðislegu ofbeldi af gestkomandi manni, sem var tíður gestur á heimilinu. Grunaði þig einhvern tíma að slíkt ætti sér stað?„Það tekur mig mjög sárt að heyra að hann hafi orðið fyrir ein-hverju slíku af hálfu gestkomandi manns. Sjálfur varð ég ekki vitni að því. Og ég veit ekki hvort rétt sé að tala um þennan mann sem tíð-an gest á heimilinu. Hitt veit ég að grunsemdir vöknuðu um þennan mann og var brugðist við því svo ákveðið að ég minnist þess ekki að hafa séð hann á heimilinu eft-ir að þær grunsemdir vöknuðu. En mig langar líka að taka fram að neikvætt viðhorf til heimilis-ins sem virðist koma fram í þessu viðtali er mikið minnihlutaviðhorf. Ég veit að meirihluti okkar hefur þau jákvæðu viðhorf til fósturfor-eldranna sem ég hef lýst. Það hef ég skynjað fyrr og síðar, til dæmis þegar við fósturbörnin sömdum minningargrein um fósturmóður okkar árið 1992.“Hvað telur þú gott hafa leitt af uppeldinu á Kumbaravogi?„Ég lærði dugnað, þrautseigju, reglusemi og virðingu fyrir mik-ilvægi menntunar á Kumbara-vogi. En það sem situr ef til vill dýpst í mér er virðing fyrir lífrík-inu og náttúrunni enda er fjaran á Stokkseyri dásamleg og lífrík-ið allt. Ég fer oft austur til að fá mér göngutúr í fjörunni, einn eða með fjölskyldu minni.“ Leiddi eitthvað slæmt af þeirri dvöl?„Ég ber ekki kala til nokkurr-ar manneskju eftir dvöl mína á Kumbaravogi. Þvert á móti er ég þakklátur fyrir þá aðstoð sem ég og fjölskylda mín fengum á erf-iðum tíma. Ég var einnig svo lán-samur að eiga góða foreldra sem héldu góðum tengslum við mig og ég sneri aftur til þeirra fimmt-án ára gamall. Fósturforeldra minna og -systkina á Kumbara-vogi minnist ég með hlýhug og þakklæti.“ Þakklátur fyrir árin á kumbaravogi elvar Róbert Róbert Haraldsson er þakklátur „sú hugsjón sem fósturforeldrar mínir höfðu að leiðarljósi var að skapa börnum sem komu úr erfiðum fjölskyldu-aðstæðum eðlilegt fjölskyldulíf, þar sem móðir og faðir voru til staðar og börnin mynduðu systkinahóp.“ „Ég ber góðan hug til æskuára minna. Það var gott að alast upp á Stokkseyri. Heimilið var öruggt og gott.“ AnnA KRiStineblaðamaður skrifar: annakristine@dv.is DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 13 Heimur Heyrnarlausra Framhald á næstu opnu Sumir taka svo djúpt í árinni að kalla það glæp að sett voru lög árið 1962 um skólaskyldu heyrn-arlausra barna frá fjögurra ára aldri. Það þýddi að mörg börn utan af landi og úr nágrannasveit-arfélögum Reykjavíkur voru vist-uð á heimavist Heyrnleysingja-skólans, fyrst í Stakkholti og síðar í Vesturhlíð. Reyndar var það svo að þar bjuggu líka börn úr Reykja-vík, enda þótti æskilegt að heyrn-arlausir dveldu á heimavistinni.„Það var reynt að gera heima-vistina eins heimilislega og hægt var. Húsin voru þrjú og í hverju þeirra voru „foreldrar“; oftast hjón sem ráku hvert heimili þar sem bjuggu fimm upp í sjö börn,“ segir einn viðmælenda blaðsins. Minningar bernskunnar„Einhverju sinni þegar ég var úti að leika mér með vinum mín-um þegar ég var kornung tók ég eftir því að mamma fór að pakka fötunum mínum í tösku,“ segir viðmælandi blaðsins, kona sem biður um nafnleynd þar sem fjöl-skyldu hennar hafi reynst erfitt að horfast í augu við hvernig lífið var, þótt hún hafi aðeins gert það sem þurfti á þeim tíma. „Mamma gat ekki útskýrt fyrir mér hvað hún var að gera því þótt ég væri ekki alveg heyrnarlaus var ég mjög heyrnar-skert. Þegar ferðatöskurnar voru tilbúnar náði mamma í bílinn og benti mér á að koma núna því við værum að fara. Ég var undrandi á þessu umstangi, en kvaddi og kyssti systkini mín og ömmu mína. Mamma og pabbi sátu fram í og ég aftur í á hörðu og óþægilegu sæti og horfði fram á milli sætanna. Ég vinkaði út um bílgluggann til syst-kina minna og ömmu.“ Mamma og pabbi fóru án þess að kveðjaFrásögn stúlkunnar ber okkur um hlykkjótta vegi að norðan suð-ur til Reykjavíkur. Fyrstu nóttina í Reykjavík svaf hún milli foreldra sinna í húsi gamallar konu, en daginn eftir beið hennar nýtt líf. „Við komum að mjög stóru, hvítu húsi. Þetta var Heyrnleys-ingjaskólinn í Stakkholti. Fyr-ir utan voru mörg börn að leika sér. Ég horfði undrandi í kringum mig þegar ég gekk fram hjá og inn í húsið. Við gengum upp á aðra hæð. Þar var Brandur, sem þá var skólastjóri. Ég horfði undrandi á hann og hélt mér fast í mömmu. Við gengum inn í stóra stofu þar sem krakkar voru úti um allt, bað-andi höndum út í loftið. Ég hélt í mömmu og starði steinhissa á krakkana baða út höndunum. Þeir toguðu í mig og bentu mér að koma að borða. Ég lét undan en togaði mömmu með mér. Ég settist við matarborðið og borðaði en mamma stóð fyrir aftan mig á meðan. Krakkarnir við borðið töluðu eitthvað með höndunum. Meðan ég var að borða og fylgjast með krökkunum stakk mamma af og pabbi líka. Þau voru bæði horf-in. Þegar ég áttaði mig á því að þau voru horfin missti ég stjórn á mér og grét og grét. Ég leitaði að þeim úti um allt en þau voru horfin. Ég hágrét og lét öllum illum látum.“ Í faðmi huggara„Heyrnarlaus kona tók mig í fangið og reyndi að hugga mig en ég hágrét og spriklaði í fanginu á henni. Að lokum fór ég með henni upp í svefnherbergi þar sem ég settist á rúmið og hélt áfram að hágráta. Hún reyndi eins og hún gat að hugga mig og háttaði mig síðan. Ég snökti enn og fékk að sofa við hliðina á henni. Ég grét mikið næstu daga en jafnaði mig svo smám saman. Hægt og bítandi fór ég að læra táknmálið, tákn eins og mamma og pabbi og aðlagað-ist hópnum betur. Þessi kona tók mig reglulega með heim til sín um helgar. Ég svaf í hjónarúminu hjá henni. Ég kallaði hana alltaf mömmu og eiginmann hennar sem var heyrandi kallaði ég pabba. Á jólunum fór ég ekki heim til for-eldra minna frekar en önnur börn í skólanum. Brandur skólastjóri átti dóttur sem kom sem jólasveinn og gaf öllum krökkunum jólagjöf, við dönsuðum í kringum jólatréð og höfðum það skemmtilegt.“Þegar leið að sumri kom frændi stúlkunnar og sótti hana. Hún hélt að dvöl sinni á heimavistinni væri þar með lokið. „En þá vildi ég ekki fara, harð-neitaði og fór að hágráta. Ég hékk utan í konunni sem ég kallaði mömmu en hún reyndi að ýta mér frá sér og hvetja mig til að fara með frænda mínum. Ég hágrét og harðneitaði að fara en að lokum féllst ég á það. Frændi minn bauð mér inn í bílinn og ég var mjög sár og leið þegar ég settist inn í hann. Hann ók þó nokkurn spotta þar til við vorum komin á flugvöllinn. Við flugum með risastórri flug-vél til Danmerkur þar sem ég fór í heyrnarmælingu. Þegar ég fór um borð í flugvélina hafði ég ekki hugmynd um hvert ég væri að fara. Flugferðin var löng. Ég varð flugveik og kastaði upp. Við lent-um í stórri borg og ókum að stór-um spítala. Þar mældu læknarn-ir heyrnina og skoðuðu mig alla. Nokkrum dögum síðar flugum við aftur heim til Íslands. Ég fór með frænda mínum og við ókum langa leið eftir hlykkjóttum vegin-um alla leiðina norður. Mamma varð ofsalega glöð að sjá mig en ég hékk utan í frænda mínum og sagði mömmu að fara. Pabbi hvatti mig til að fara til mömmu. Sár og hrædd kvaddi ég frænda minn og fór til mömmu. Smátt og smátt rifjuðust minningarnar upp, um mömmu og systkini mín. Með tímanum aðlagaðist ég lífinu þar og naut sumarsins.“ „Ég er búin að vera í Heyrn-leysingjaskólanum!“Það var ekki fyrr en leið að hausti að barnið gerði sér grein fyr-ir að dvölin heima var bara sum-ardvöl. „Ég brast í grát þegar ég áttaði mig á að ég væri aftur að fara í skólann. Ég grét og grét og Brand-ur reyndi að hugga mig en ég grét og vildi ekki vera nálægt honum og hékk utan í frænda mínum. Þegar við komum að stóra, hvíta skólahúsinu grét ég og sagði: „Ég er búin að vera í Heyrnleysingja-skólanum. Ég er búin að vera þar. Nei, nei, nei!“ Frændi minn bað mig um að koma með sér. Ég fór með honum inn í skólann sár og niðurdregin. Þar sá ég þessa konu sem ég hafði kallað mömmu, flýtti mér til hennar og kúrði mig upp að henni. Ég kvaddi frænda minn og þurrkaði tárin þegar ég horfði á eftir honum. Huggari minn leiddi mig áfram. „Komdu, viltu mat? Ertu ekki svöng? Komdu með mér.“ Ég fór með henni og fékk mér að borða. „Núna áttu að fara að sofa. Komdu, við skulum hátta saman,“ sagði hún. Ég snökti með-an við gengum upp í svefnher-bergi. „Nú átt þú að fara að sofa,“ sagði hún ákveðið en blíðlega. Í svefnherberginu voru mörg rúm sem lágu í röð báðum megin í her-berginu. Rúmin voru með hvítum rimlum eins og á spítala. „Háttaðu nú,“ sagði konan. Ég háttaði mig og barðist við tárin. „Ég er ekki heyrnarlaus!“ sagði ég en þá lagði hún til að hún svæfi hjá mér þessa fyrstu nótt. Við lögðumst í rúmið hlið við hlið. Það tók mig nokkra daga að jafna mig. Þá varð allt í lagi og ég gat leikið mér með krökkun-um. Svona gekk þetta ár eftir ár, ég flakkaði á milli skólans og heim-ilis míns meðan ég var í Heyrn-leysingjaskólanum. Ég fór heim á jólunum og á sumrin. Fyrsta árið mitt gat ég ekki farið heim um jól-in en eftir það fór ég alltaf heim og hafði gaman af því í hvert skipti.“ Grét af söknuði eftir foreldrum sínum Valgerður Stefánsdóttir er forstöðu-maður Samskiptamiðstöðvar heyrn-arlausra og heyrnarskertra. Þegar hún hóf störf sem kennari við Heyrn-leysingjaskólann fyrir þrjátíu árum hafði hún aldrei hitt heyrnarlausa manneskju og hafði ekki hugmynd um að nokkuð væri til sem héti tákn-mál.„Þegar ég útskrifaðist úr Kenn-araháskólanum sótti ég um vinnu á fimm stöðum, þeirra á meðal í Heyrnleysingjaskólanum en ég hafði aldrei hitt heyrnarlausa mann-eskju þegar ég byrjaði að kenna við skólann,“ segir Valgerður um fyrstu kynni sín af starfinu. „Ég kunni að sjálfsögðu ekki táknmál og vissi heldur ekki að það væri til. Ekkert okkar sem kenndi við skólann gerði sér grein fyrir því að til væri tákn-mál. Heyrnarlaust fólk gerði það heldur ekki, geri ég ráð fyrir. Það tal-aði táknmál sín á milli en það var samt ekki meðvitað um að táknmál væri mál.“En þessi heimur heillaði Valgerði og hún kenndi við Heyrnleysingja-skólann fram til ársins 1989.„Það var mjög erfitt að vera kenn-ari heyrnleysingja á þessum tím-um,“ segir Valgerður. „Okkur nýju kennurunum var sagt að við ættum að kenna nemendunum íslensku; námsgreinarnar væru ekki mark-mið í sjálfu sér heldur íslenskan. Þegar börnin hefðu náð læsi og lært að lesa af vörum gætu þau lært allt annað. Þetta var trú manna á þess-um tíma en nú vitum við að þessi leið er ekki fær. Þessi kennsluaðferð sem kölluð er „oralismi“ leiddi til þess að heyrnarlaust fólk fékk ekki menntun og útskrifaðist úr skólan-um með að meðaltali lestrargetu á við 8 ára barn.“ Alhliða ruglingurAð sögn Valgerðar dró smám saman úr áherslunni á kennslu talmálsins.„Tákn fóru að bætast inn og það tímabil er kennt við al-hliðaboðskipti. Þá var leyft að nota tákn og bendingar og all-ar þær aðferðir sem gátu orðið til þess að ná skilningi. Þessi aðferð heit-ir á ensku „Total Communication“ en er kölluð af táknmálstalandi fólki „Total Con-fusion“ eða alhliða ruglingur. Fólk sem talar táknmál lítur á þessa að-ferð sem niðurlægingu við málið sitt og skilur mjög illa samskipti sem fara fram með þessari aðferð. Síðan jókst áherslan á táknmál í skólanum eftir 1985 og upp úr 1990 var farið að tala um tvítyngi þar sem kennslu-málið er táknmál og ritmálið er ís-lenska. Markmiðið var að börnin lærðu bæði málin vel.“Viðhorf Valgerðar til táknmáls segir hún hafa breyst þegar haldin var norræn menningarhátíð heyrn-arlausra á Íslandi árið 1986.„Við undirbúning hátíðarinn-ar var Félagi heyrnarlausra bent á að það þyrfti að hafa íslenska tákn-málstúlka á hátíðinni. Félagið safn-aði þá saman tíu manns sem þeim fannst kunna mest í táknmáli og boðaði til fundar í félaginu. Þangað mættu foreldrar, prestur, vinir, syst-kini og börn heyrnarlausra og svo vorum við tvær úr hópi kennara úr Heyrnleysingjaskólanum. Á fund-inum var okkur sagt að við værum boðuð þangað til að læra að verða táknmálstúlkar. Við tókum þessu öll og mættum í félagið tvisvar í viku til þess að læra táknmál. Svo vor-um við fjórar sem héldum áfram og æfðum okkur allan júnímánuð í að túlka en hátíðin var fyrstu dagana í júlí 1986.“ Nemendur kenndu kennurum sínumTúlkanámskeiðin voru haldin á kvöldin og um helgar. Kennarar kennaranna voru nemendur þeirra úr Heyrnleysingjaskólanum, fjögur ungmenni.„Þau kenndu okkur glósulista og æfðu okkur í hlutverkaleikjum og þýðingum en þau voru aldrei ánægð með frammistöðu okkar,“ segir hún hlæjandi. „Það var alltaf eitthvað vitlaust. Enginn vissi hvað það var. Nú í dag vitum við að við notuðum málfræði ís-lenskunnar þegar við tjáð-um okkur. Ekkert okkar var meðvitað um málfræði táknmálsins. Þau notuðu hana að sjálfsögðu rétt en kunnu ekki okkar málfræði. Við kunn-um íslenska málfræði en ekki málfræði táknmálsins.“ Valgerður grein-ir frá því brosandi að haldin hafi verið nokkurs konar frum-sýning á nýju túlkun- um á sviði Þjóðleikhússins á opn-unarhátíð menningarhátíðar 4. júlí árið 1986.„Heyrnarlausir Íslendingar sátu stoltir úti í sal og horfðu á okkur, fyrstu íslensku táknmálstúlkana. En ekki veit ég nú hversu skiljanlegar við vorum!“ Frá þessari stundu fóru kennar-arnir tveir að lesa sér til um mál-fræði táknmáls og báru hana saman við íslenska táknmálið ásamt tveim-ur „túlkakennurum“.„Við reyndum að átta okkur á reglum málsins með því að vinna með nemendum okkar, sem þá voru komnir í framhaldsdeild skólans. Í framhaldi af því fórum við að túlka fyrir heyrnarlausa í framhaldsskól-um og fórum svo að kenna öðrum það sem við fundum út í samvinnu við nemendur okkar.“ Valgerður segir að þau hafi fljót-lega gert sér grein fyrir að til að vinna að rannsóknum, kennslu og túlkaþjónustu, yrði að koma á fót sérstakri stofnun.„Þá byrjaði baráttan fyrir Sam-skiptamiðstöð heyrnarlausra,“ seg-ir Valgerður. „Júlía Hreinsdóttir var nemandi í bekknum sem ég byrj-aði að kenna þegar ég hóf störf við Heyrnleysingjaskólann. Hún var einn af kennurunum í túlkanáminu í Félagi heyrnarlausra og veturinn 1988-1989 var hún í Þroskaþjálfa-skólanum og ég túlkaði fyrir hana. Þar studdi okkur dyggilega í að berj-ast fyrir stofnun Samskiptamið-stöðvar, auk Félags heyrnarlausra, Bryndís Víglundsdóttir skólastjóri.“Valgerður segir alla geta lært táknmál eins og önnur mál. Það taki þó tíma og þjálfun.„Táknmál er mál sem myndað er með hreyfingum handa, höfuðs og líkama, með svipbrigðum, munn- og augnhreyfingum. Handformin mynda hljóðkerfi málsins og táknin eru orðaforðinn. Þau eru sett sam-an á ákveðinn hátt og táknaröðin, hreyfingarnar og svipbrigði andlits-ins lúta ákveðnum reglum sem eru málfræði og setningafræði málsins. Röð tákna í setningu er ólík þeirri orðaröð sem við eigum að venjast í íslensku. Ef við röðum táknunum upp eftir íslenskri málfræði, eins og við gerðum þegar við vorum að byrja að túlka, verður setningin mál-fræðilega röng og það leiðir iðulega til misskilnings. Táknmál er ann-að mál sem lýtur öðrum málfræði-legum lögmálum en íslenskan. Það væri vissulega mjög jákvætt ef al-menningur kynni táknmál, en fyrst og fremst er þó mikilvægt að heyrn-arlaust fólk hafi óhindraðan aðgang að táknmálstúlkaþjónustu.“ Valgerður Stefánsdóttir Heimur Heyrnarlausra „Lærðum mest af nemendum okkar“ Hljóður og einangraður ANNA KriStiNeblaðamaður skrifar: annakristine@dv.is Valgerður Stefánsdóttir„Okkur var sagt að kennanemendunum íslensku;námsgreinarnar væru ekkimarkmið í sjálfu sér,“ segirValgerður Stefánsdóttir,forstöðumaður Samskipta-stofnunar heyrnarlausra ogheyrnarskertra, um fyrstu ársín sem kennari viðHeyrnleysingjaskólann. föStudagur 23. febrúar 200714 Helgarblað DV „Það er ólýsanleg kvöl að skilj-ast við barnið sitt,“ segir Valdís Ingi-björg Jónsdóttir, heyrnar- og tal-meinafræðingur á Akureyri, sem brást þannig við lögum um skóla-skyldu fjögurra ára heyrnarlausra barna að hún aflaði sér réttinda sem heyrnleysingjakennari.„Þegar ég eignaðist dóttur mína var ég sem betur fer aðeins búin að kynnast heimi heyrnarlausra. Það kom til vegna þess að þegar ég var við nám í Kennaraskólanum kom Brandur, skólastjóri Heyrnleysingja-skólans, og auglýsti eftir sjálfboða-liðum því þá voru að hellast inn í skólann börnin úr rauðu hunda far-aldrinum sem geisaði árið 1964. Það sárvantaði því kennara við Heyrn-leysingjaskólann og því betra að fá kennaranema en engan til að kenna börnunum.” Það er ekki skrýtið að maður fái oft á tilfinninguna að lífið búi mann undir það sem koma skal. Ári síðar eignaðist Valdís dóttur sína Önnu; heilbrigt barn að áliti lækna og hjúkrunarfólks sem fundu ekki að barnið hafði fæðst heyrnarlaust.„Ég fór með heilbrigt barn heim af fæðingardeildinni og það var ekki fyrr en níu mánuðum síðar að ég uppgötvaði sjálf að hún var heyrnar-laus,“ segir Valdís. „Eftir að ég hafði yfirstigið áfallið sem ég fékk við þá uppgötvun sagði ég við sjálfa mig: Hugsaðu um hvað Anna mun geta gert í framtíðinni, ekki hugsa um hvað hún mun ekki geta og hvers hún fer á mis.“ Heyrnarlaus börn læra að lesa í aðstæðurValdís og Anna notuðu bending-ar í samskiptum sínum. „Ég var hins vegar svo vitlaus á þessum tíma að ég hélt eins og aðr-ir að það væri hægt að kenna henni að tala með því að kenna henni að mynda talhljóð og lesa af vör-um. Vissulega lærði hún sumt, en hvernig á til dæmis heyrnarlaus manneskja að lesa mun á orðunum „banna“ og „panna“ af vörum – hvað þá að geta sagt þessi orð? Til þess að tala rétt þarftu að heyra til sjálfrar þín. Sem betur fer er Anna afburða-vel gefin og heyrnarlaus börn læra líka að lesa í aðstæður. Við náðum að stilla okkur inn á hvor aðra og þegar maður deil-ir tilverunni með öðrum þá lærir maður að skilja hver annan jafnvel án orða. Þetta þekkist líka hjá þeim sem heyra.“Hvernig tókstu því að heyrnar-laus börn væru gerð skólaskyld frá fjögurra ára aldri? „Ég brást þannig við að það skyldi aldrei verða að ég sendi frá mér barnið mitt svona ungt enda búin að heyra hryllilegar sögur af líðan barna sem höfðu verið send svona ung í heimavist Heyrnleysingjaskól-ans þar sem þau grétu úr sér augun. Lausnin varð sú að fjölskyldan tók sig upp og ég aflaði mér menntun-ar í Danmörku sem heyrnleysingja-kennari. Þannig gat ég haldið Önnu heima þar til hún varð níu ára.“ Ein uppi við vegg í frímínútumValdís kenndi dóttur sinni að lesa, reikna og skrifa og þjálfaði tal-hljóðin hjá henni.„Á þeim tíma kenndi ég við sér-deild og hafði Önnu í henni. Áður hafði ég prófað að hafa hana einn vetur í almennri deild, en það gekk ekki. Hún var utangátta og varð það reyndar líka í sérdeildinni því hún gat ekki átt nein tjáskipti við hin börnin. Ég hafði ætlað mér að hjálpa henni í gegnum almenna skólakerfið en þegar hún var far-in að standa ein uppi við vegg í frí-mínútum og fylgjast með krökkun-um í leik uppgötvaði ég að þótt ég gæti kennt henni gat ég ekki búið til félaga handa henni. Þá var kominn tími á að senda hana suður.“Anna var níu ára þegar hún fór að heiman í fyrsta sinn. Valdís seg-ir það hafa verið gert afar varlega og með skilyrðum.„Skilyrðin voru þau að hún fengi að fara heim minnst einu sinni í mánuði yfir helgi, svo lengi sem hún vildi. Mér er minnisstætt eitt sinn þegar ég var að fara heim til Akur- eyrar. Anna sat við gluggann í rút-unni og andlit hennar speglaðist í rúðunni. Ég sá að tárin láku nið-ur vangana, svo ég spurði hvort hún vildi ekki koma heim og ég skyldi reyna að læra táknmál til að geta hjálpað henni. Þá sneri hún sér að mér, brosti í gegnum tárin og sagði: “Nei, mamma, þetta verður allt í lagi.” Henni var svo mikils virði að vera með sínum líkum.“Getur þú lýst hvaða tilfinningar bjuggu innra með þér þegar þú skild-ir hana eftir í fyrsta sinn?„Tilfinningar móður að skilja við barnið sitt held ég að hver geti svarað fyrir fyrir sig. Það er ólýsan-leg kvöl. Hins vegar var vel að Önnu búið á heimavistinni. Fólk gerði eins vel og það gat, en kunni bara ekki nægilega mikið fyrir sér í táknmáli til að geta átt veruleg tjáskipti við börnin,að minnsta kosti ekki eins og við getum átt við okkar heyrandi börn. Það er kannski þess vegna sem kyn-ferðisleg misnotkun átti sér stað af því að enginn gat skilið hvað börn-unum fór á milli þegar þau töluðu táknmál sín á millum.“ Forheimskir, menntaðir mennHeldur þú að það hefði orðið börnunum til meira gagns að þurfa ekki að fara frá foreldrum sínum?„Já, því ég er fullviss um að þessi gjörningur, þessi lagasetning, hafi skaðað þessa einstaklinga fyrir lífs-tíð. Að setja skólaskyldulög á fjög-urra ára börn og slíta þau frá for-eldrum, sem gátu ekki skýrt fyrir þeim hvers vegna þau urðu að fara. Þessi lög voru forheimska mennt-aðra manna. Hvort sem barn heyr-ir eða ekki, þá þolir það ekki að vera slitið frá foreldrum sínum svo ungt og það á hver heilvita maður að sjá og vita.“Hvað finnst þér mest gagnrýni-vert í því hvernig samfélagið kemur fram við heyrnarskerta og heyrnar-lausa?„Það er það skilningsleysi að sjá ekki að táknmál er mál sem lýtur öll-um reglum talmáls. Fólk hélt að það gæti talað tákn-mál með því að nota einhver tákn... Það er svona svipað því og að ég færi að tala mál sem ég kann ekkert í með því einu að fletta upp einhverj-um orðum í orðabók. Ég veit það í dag að með því að kunna ekki tákn-mál kom ég ekki fræðslu við hæfi inn í vel greindan heyrnarlausan ein-stakling. Þar með rændi ég viðkom-andi þeirri menntun sem hæfði hans greind. Þetta er beiskur sannleikur.“En hvað má betur fara í málefn-um heyrnarlausra og hvernig breyt-um við því?„Við verðum að greiða leið heyrn-arlausra að samfélagi okkar hinna. Það verður einungis gert með því að lögvernda táknmálið og gera túlka-þjónustu öfluga. Dóttir mín getur til dæmis ekki farið til læknis öðruvísi en að vera með túlk. Nýlega lenti hún í því að henni stóð til boða að hækka í launum með að sækja nám-skeið í slysavörnum. Hún fékk eng-an túlk og þar með fór það tækifæri,“ segir Valdís, sem segist aldrei ætla að hætta baráttu sinni fyrir bættum hag heyrnarlausra. DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 15 h heimur Framhald á næstu síðu Við þurftum engin orð Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, heyrnar- og talmeinafræðingur „Ég veit það í dag að með því að kunna ekki táknmál kom ég ekki fræðslu við hæfi inn í vel greindan heyrnarlausan einstakling. Þar með rændi ég viðkomandi þeirri menntun sem hæfði hans greind. Þetta er beiskur sannleik-ur.“ „Ég brást þannig við að það skyldi aldrei verða að ég sendi frá mér barnið mitt svona ungt enda búin að heyra hrylli- legar sögur af líðan barna sem höfðu verið send svona ung í heimavist Heyrnleysingjaskólans þar sem þau grétu úr sér augun. Lausnin varð sú að fjölskyldan tók sig upp og ég afl- aði mér menntunar í Danmörku sem heyrnleysingjakennari. Þannig gat ég haldið henni heima þar til hún varð níu ára.“ Júlía G. Sveinsdóttir og tvíbura-bróðir hennar fæddust heyrnar-laus árið 1964. Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur og því gátu systkin-in dvalið heima meðan þau sóttu kennslu við Heyrnleysingjaskól-ann. Júlía er fagstjóri í táknmáli við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra. Hún er einnig menntaður kennari og þroskaþjálfi og er í meistara-námi í uppeldis- og menntunar-fræði við Háskóla Íslands. „Það hefur margt breyst á síð-astliðnum árum og áratugum, en engu að síður er margt óunn-ið,“ segir Júlía. „Flestir viðurkenna núna að táknmál er mál, en það þarf að viðurkenna það með laga-setningu. Túlkaþjónusta hefur breytt miklu. Með túlkaþjónustu getum við átt samskipti við heyr-andi fólk eins og ég við þig núna. Takmarkaður aðgangur að túlka-þjónustu er hins vegar hindrun og það eru fyrst og fremst pening-ar sem ráða því. Heyrnarlaust fólk hefur nú aukinn aðgang að fram-haldsnámi sem ekki var áður en það þýðir einfaldlega að við get-um aflað okkur menntunar og unnið önnur störf en sjómennsku og saumaskap, sem lengi vel voru einu störfin sem heyrnarlausum buðust. Nú er hugmyndafræði í kennslu heyrnarlausra tvítyngi sem þýðir að táknmálið er kennslumál og íslenskan er ritmál. Svo er líka notaður túlkur í kennslunni.“ Börnin misstu tengingu við fjölskyldu sínaJúlía bendir enn fremur á nýja tækni, heyrnartæki sem grædd eru inn í höfuð barna.„Sú tækni gefur þeim einhvers konar heyrn sem hjálpar til við að læra íslensku. Vonandi fá þau að læra vel bæði málin og geta valið hvort málið þau nota við mismun-andi aðstæður.“Að mati Júlíu hafði það skaðleg áhrif á börn að vera tekin frá for-eldrum sínum fjögurra ára að aldri og búið til nýtt heimili á heimavist.„Auðvitað hafði það slæm áhrif,“ segir hún. „Þau höfðu lítil samskipti áður en þau voru tekin en með flutningi af heimilinu var algjörlega skorið á samskiptin5 við foreldrana og fjöl-skylduna. Þetta olli miklu ör-yggis- leysi hjá börnunum og þau misstu tengingu við fjölskyldu sína. Fæst-ir þekkja foreldra sína vel. Aðr-ir heyrnarlausir urðu fjölskylda þeirra, enda segjast þau flest eiga tvær fjölskyldur, „döff“ fjölskyld-una og blóðfjölskylduna.“ Bækurnar notaðar ár eftir ár...Við forvitnumst betur um hvernig heyrnarlausum var kennt á árum áður.„Aðaláherslan var lögð á að lesa af vörum. Það voru fáir nemendur í bekk eða að meðaltali fjórir. Við sátum í hálfhring og kennarinn talaði með skýrum munnhreyf-ingum. Hann reyndi að tala skýrt og einfalt mál og endurtók oft. Kannski náði einn nemandi inni-haldinu og þá einbeitti hann sér að næsta en stundum gátu nemendur túlkað til hinna það sem kennarinn hafði sagt. Allt var á mjög einföld-uðu máli. Við fengum ekki bækur í hendurnar heldur sátu kennararn-ir eftir kennslu og einfölduðu efni bókanna yfir á mjög takmarkað mál. Þeir unnu mikið en því mið-ur fengum við mjög takmarkað ís-lenskt mál út úr þessu. Ef við feng-um bækur, þá voru þær notaðar ár eftir ár og voru ætlaðar yngstu bekkjunum. Ég lék mér við önn-ur heyrnarlaus börn og við lékum okkur eins og heyrandi börn nema að við töluðum saman á táknmáli.“ Vissum ekki hvað misnotkun varÍ ljósi nýjustu upplýsinga um kynferðislega misnotkun á heyrn-arlausum, telur þú að þau börn hafi reynt að vekja athygli á því á sinn hátt? „Já, ég veit um nokkur dæmi um slíkt. Ég man eftir einum dreng sem reyndi að segja frá því að hon-um hefði verið nauðgað en eng-inn skildi hann. Við vissum ekki hvað misnotkun var og höfðum engan aðgang að neinni umræðu um hvað mátti og hvað mátti ekki. Hann fékk bara klapp á kollinn og gafst upp á að reyna að segja frá og fór með það. Enn fremur veit ég það frá konu sem var tíu ára þeg-ar hún sá tvo einstaklinga gera eitthvað sem hún segist hafa vit-að að var rangt. Hún fór til fullorð-ins starfsmanns og sagði honum frá. Hann spurði hana bara hvaða vitleysa þetta væri í henni. Hún fór inn í herbergið sitt á heimavistinni og leið mjög illa. Síðar var þessi kona sjálf misnotuð og enn þann dag í dag treystir hún sér ekki til að stíga fram, segja sögu sína og fá hjálp. Það er margt hræðilegt sem ég hef heyrt og mér kom því um-ræðan um misnotkun á heyrnar-lausum ekki á óvart. Lítill dreng-ur úti á landi varð fyrir hroðalegri nauðgun og gerandinn reyndi að drekkja honum. Það varð honum til lífs að einhver heyrði ópin. Þessi maður hefur líka geymt söguna með sjálfum sér og aðeins sagt ör-fáum sem hann treystir frá þessu. Það er gríðarlega sárt að horfa upp á fólk sem hefur þjáðst áratugum saman.“ föstudagur 23. febrúar 200716 Helgarblað DV Ný tækNi gefur voN Heimur HeyrNarlausra Með lögum númer 13 frá 1962 var lögleidd kennsluskylda fjögurra ára barna sem voru heyrnarlaus eða heyrnar-lítil. Sumir ganga svo langt að kalla þessa lagasetningu „glæp“, því flestum barnanna var gert að dvelja á heimavist Heyrnleysingjaskólans og voru þar með svipt rétti sínum til að alast upp við eðlilegt heimilislíf með foreldrum sínum og syst- kinum. Börnin höfðu lítil samskipti við fjölskylduna og það olli hjá þeim öryggisleysi sem þau hafa mörg hver glímt við fram á fullorðinsár.For-eldrar þurftu meðal annars að grípa til þess ráðs að skilja barn sitt eftir á heimavistinni, án þess að kveðja það. Hvernig útskýrir foreldri fyrir fjögurra ára heyrnarlausu barni að það sé „farið að heiman“? Í ljósi nýrra upplýsinga um misnotkun á heyrn-arlausum börnum hefur almenningi orðið ljóst hversu þýðingarmikið það er að táknmál verði viðurkennt sem mál; að sem flestir geti skilið heyrn-arlausa og talað við þau á þeirra máli. Kennurum við Heyrnleysingjaskólann seint á áttunda áratugnum var gert að kenna börnunum fyrst og fremst íslensku; aðrar námsgreinar væru ekki markmið í sjálfu sér. Sú kennslu-aðferð leiddi til þess að heyrnarlaust fólk fékk ekki menntun og útskrif-aðist 16-18 ára með lestrargetu á við átta ára börn. Fyrstu táknmálstúlk-ar þjóðarinnar voru „frumsýndir“ á sviði Þjóðleikhússins árið 1986 á norrænni menningarhátíð heyrnar-lausra. Táknmálstúlkarnir voru kenn-arar sem fengu bestu kennsluna frá heyrnarlausum nemendum sínum. Á vefsíðunni www.valdis.muna.is er áskorun til stjórnvalda að viðurkenna táknmál sem opinbert mál á Íslandi við hlið íslensku og að styðja aðgerðir félags heyrnarlausra til þess að koma félagsmönnum til hjálpar. Um sextán hundruð manns höfðu skrifað undir áskorunina þegar DV fór í prentun. Hámenntuð þrátt fyrir heyrnarleysið Júlía g. sveinsdóttir er kennari og þroskaþjálfi og stundar meistaranám í uppeldis- og menntunarfræði, auk þess sem hún er fagstjóri í táknmáli hjá samskiptamiðstöð heyrnarlausra. „Þau höfðu lítil samskipti áður en þau voru tek- in en með flutningi af heimilinu var algjörlega skorið á samskiptin við foreldrana og fjölskyld- una. Þetta olli miklu öryggisleysi hjá börnun- um og þau misstu tengingu við fjölskyldu sína. Fæstir þekkja foreldra sína vel.“ föstudagur 23. janúar 200710 Fréttir DV Frelsaði systkini sín a Í umræðunni sem skapast hefur um barnaheimili fyrr á tímum og þá rannsókn sem fara á fram á starfsemi þeirra hefur nafn doktors Gunnlaugs heitins Þórðarsonar oft komið við sögu. Gunnlaugur átti sæti í Barna-verndarráði Íslands og varð síðar formaður þess. Hann var maðurinn sem sá til þess að Breiðuvík og Bjargi var lokað og í samtali við fyrrum eig-inkonu hans, Herdísi Þorvaldsdóttur, leikkonu, hér í blaðinu sagði hún:„Gunnlaugur var einstakur mað-ur, duglegur, góður og örlátur. Eft-ir að hann hætti sem forsetaritari fékk hann lögmannsréttindi og rétt til að vinna að sínum málum utan vinnutímans í ráðuneytinu.Gunn-laugur vann mörg störf og í mörg ár vann hann fyrir Rauða krossinn og í barnaverndarnefnd. Það voru mjög tímafrek og slítandi störf og fólk hringdi á öllum tímum og í alls konar ástandi, oftast til að kvarta eða jafn-vel hóta. Gunnlaugur bar hag barna fyrst og fremst fyrir brjósti og átti stóran þátt í því að stúlknaheimilinu Bjargi og drengjaheimilinu í Breiðu-vík var lokað.“Um þátt doktor Gunnlaugs í lok-un stúlknaheimilisins Bjargs á Sel-tjarnarnesi sagðist Gísla Gunnars-syni sagnfræðingi svo frá í viðtali við DV fyrir hálfum mánuði:„Á þessum tíma átti Gunnlaugur Þórðarson lögmaður sæti í Barna-verndarráði Íslands. Hann hélt í fyrstu að ég væri einhver óeirðar-seggur en eftir að Þjóðviljinn birti grein um Bjargsmálið 20. október 1967, snerist hann mjög harkalega gegn Bjargi. Það var í raun og veru hann, með aðstoð Símons Jóhanns Ágústssonar, prófessors í sálarfræði, sem lokaði Bjargi. Barnaverndarráð Íslands var svo lamað fram til ársins 1970 að Gunnlaugur Þórðarson var gerður að formanni þess og hann var hvatamaður þess að Breiðuvík var lokað.“ Markaði djúp spor í barnssál-inniNokkrum árum áður en þetta var, eða árið 1960, sat Gunnlaugur heit-inn þegar í Barnaverndarráði Ís-lands. Þangað leitaði tólf ára drengur eftir aðstoð til að frelsa systkini sín af barnaheimili, þar sem honum fannst þau ekki eiga að vera. Þegar hann fékk engan stuðning frá kerfinu, greip hann til eigin ráða. Hann rændi systkinum sínum af barnaheimil-inu Silungapolli. Snáðinn var Davíð Oddsson, síðar forsætisráðherra og núverandi Seðlabankastjóri.Fortíðin hvílir þungt á fjölskyldu Davíðs og þeir ættingjar sem DV tal-aði við forðast að koma fram og tala um Silungapoll og hvers vegna syst-kinin voru vistuð þar. Sjálfur er Davíð í fríi í útlöndum og þrátt fyrir ítrekað-ar tilraunir hefur ekki tekist að ná tali af honum.„Það var enginn vondur við okk-ur á Silunga-polli og ráðskonan var okk-ur sér-staklega góð,“seg-ir bróð-ir Dav-íðs, sem biðurum að nafns hans sé ekki getið af tillitssemi við aðstandendur. „Auðvitað langaði okkur alltaf heim. Það markar djúp spor í sálu barns að vera tekið af heimilinu.“Þegar Dav-íð hafði frelsað systkini sín úr vistinni mun hann hafa sagt þeim að þegar hann yrði stór myndi hann sjá til þess að Silunga-pollur yrði jafnaður við jörðu. Litlu systkinin litu mikið upp til stóra bróð-ur, sem með ástina að vopni réðst í það að frelsa þau, enþótt þau hafi vissulega viljað trúa hon-um hefur þau vart órað fyrir að þessi bróðir ætti síðar eftir að verða einn af valdamestu mönnum þjóðarinnar. Maðurinn sem var borgarstjóri árið 1984 þegar Silungapollur var jafnað-ur við jörðu. Með ofurást að vopni„Engir krakkar eru svo slæmir að þeir séu ekki betur komnir hjá for-eldrum sínum en í einhverri stofnun eða fyrirtæki úti í sveit,“ sagði Davíð síðar við doktor Gunnlaug Þórðar-son hæstaréttarlögmann, sem vitn-aði til þess samtals í bók Eiríks Jóns-sonar, „Davíð - líf og saga“, sem kom út árið 1989. Gunnlaugur segir þar að með ofurást að vopni hafi Davíð gripið til þess ráðs að ræna systkin-um sínum af Silungapolli þegar hon-um fannst kerfið bregðast. Lék á kerfiðDavíð var víst ekki hár í loftinu, en sálin var stór. Hann lék á kerfið, tók lög og rétt í eigin hendurog DV Fréttir föstudagur 23. janúar 2007 11 Davíð Oddsson,seðlabankastjóri ogfyrrv, forsætisráðherra IngibjörgLúðvíksdóttir,húsm. í Rvík Lúðvík Norðdal,læknir á Selfossi Dav íðJónatansson,verkam. í Rvík ÞorgrímurJónatansson,b.á KárastöðumÁsdísÞorgrímsdóttir,á HvítárbakkaValborgSigurðardóttir,fyrrv. skólastj. SigríðurSnævarrsendiherra JónatanDavíðsson,b. Marðarnúpi Ásta Jónsdóttir,húsfr. á Selfossi Jón Jónsson,landpóstur áNúpsstað Jón Jónsson, b.á Svínafelli TorfhildurGuðnadóttir,húsfr. Núpsstað GuðnýGuðnadóttir,í ÖlversholtiBrynjólfurBjarnason, form.Kommúnista. GuðniMagnússon,b. í Forsæti Guðrún Vigfúsd.Thorarensen,húsfr. í Forsæti SteinunnVigfúsd.Thorarensen,húsfr. á Hæli GesturEinarsson.b. á Hæli IngigerðurEinarsdóttir,húsm. í RvíkHelgaIngimundardóttir,húsfr. í Rvík BenediktSveinsson, hrl.BjarniBenediktsson,alþm. í Garðabæ IngimundurSveinsson,arkitekt í Rvík SteinþórGestsson,alþm. á HæliGesturSteinþórsson,skattstjóri í Rvík ÞorvaldurLúðvíksson,fyrrv. gjaldh.stj.Ólafur BörkurÞorvaldssonhæstar.dómari OddurÓlafsson,læknir í Rvík ÓlafurOddsson,ljósmyndari ValgerðurBriem,húsfr. í Rvík OddurEyjólfsson,b. Sámsstöðum E yjólfurOddsson,b. Torfastöðum RagnhildurBenediktsdóttir,Sámsstöðum Benedik tErlingsson,b. í Fljótsdal HelgaErlingsdóttir,HlíðarendakotiErlingurPálsson,b. í StórumörkÞo rsteinnErlingssonskáld ÞrúðurÞórarinsdóttir,Búlandsnesi HaraldurBriem,b. Búlandsnesi Sigríður Briem,húsfr. að Ho íHörgárdal ÓlafurDavíðssonfræðimaður RagnheiðurDavíðsdóttir,FagraskógiDavíðStefánssonfrá Fagraskógi Ólafur Briem,timburmeistari,Grund, Eyjarði Eggert Briem,sýslumaður áReynisstaðKristín Briem,húsfr. í RvíkMaría KristínClaessen, Páll BriemamtmaðurÞórhildurBriem,húsfr. í RvíkPáll Líndal,ráðuneytisstjórií Rvík Sigurður Líndallagaprófessorí Rvík ÞórhildurLíndalmannréttindaf. GunnarThoroddsenforsætisráðh. Jóhanna Briemí Laufási TryggviGunnarssonbankastjóri KristjanaGunnarsdóttir áMöðruvöllum HannesHafstein, skáldog ráðherraJóhannHafsteinforsætisráðh. HannesHafstein, fyrrv.forstjóri SVFÍ ÞórunnHafstein, húsfr.á Húsavík LauraHavsteen,húsfr. í Rvík Frændgarður Davíðs Oddsonar seðlabankastjóra F silungapOlli hafði sitt fram í þessu viðkvæma máli, eftir því sem doktor Gunnlaug-ur heitinn sagði í bókinni sem við grípum hér niður í: „Þannig var mál vaxið að tvö hálfsystkini Davíðs höfðu verið vist-uð á Silungapolli skammt utan við Reykjavík. Á Silungapolli var upphaf-lega rekið sumardvalarheimili fyrir börn á vegum Oddfellowreglunnar. Reykjavíkurborg tók síðar yfir rekst-urinn og breytti í vistheimili fyrir börn sem einhverra hluta vegna áttu ekki í önnur hús að venda. Reyndar var reksturinn tvískiptur því á sumr-in komu börn á vegum Rauða kross-ins á Silungapoll og blönduðu geði í leik og starfi við önnur börn sem höfðu þar vetursetu. Þannig var fyrir-komulagið árið 1960 þegar þessi saga gerist,“ sagði Gunnlaugur heitinn sem sagðist enn vera furðu lost-inn yfir framgöngu og frammi-stöðu þessa tólf ára drengs sem hann átti óvenjuleg samskipti við.Lýsing hans á því sem gerðist á Silungapolli þetta árið er blandin að-dáun á hvernig þessi barnungi drengur náði því fram sem hann stefndi að. Reyndi að miðla málum og milda hugi deiluaðila„Þegar börnin voru vistuð á Sil-ungapolli var ég varaformaður barnaverndarráðs,“ sagði Gunnlaug-ur.“Ég man að það var vilji margra að leysa þetta mál með einhverjum hætti. Þá er það að Sveinbjörn Jóns-son, hæstaréttarlögmaður og for-maður Barnaverndarráðs Íslands fær þá hugmynd að láta Davíð litla Oddsson miðla málum og milda hugi deiluaðila. Hér var að sjálf-sögðu mikið á barnið lagt, aðeins tólf ára gamlan dreng, en Davíð vildi allt fyrir hálfsystkini sín gera og mér er umhyggja hans fyrir þeim ógleym-anleg. Þegar málin höfðu verið rædd án sýnilegs árangurs grípur Davíð til eigin ráða og leggur út í aðgerð sem enginn hafði búist við. Hann skipu-leggur rán á systkinum sínum og hef-ur þau á brott af Silungapolli. Davíð fékk Odd föður sinn með í þennan leiðangur sem heppnaðist eins og til var stofnað. Tókst þeim feðgum að leyna systkinunum í Reykjavík í að mig minnir tvo eða þrjá daga. Mér hefur alltaf þótt þetta kapp Davíðs sýna hvaða ofurást hann hafði á hálf-systkinum sínum og mannlega hlýju, sem er fágæt.“Doktor Gunnlaugur segir að erfitt sé að lýsa þessu öllu með orðum. Eft-ir árangurslitlar samningaumleitan-ir rænir tólf ára gamall drengur syst-kinum sínum af Silungapolli án þess að yfirvöld fái rönd við reist. Davíð vildi hjálpa systkinum sínum en um leið sýna fullorðna fólkinu sem hlut átti að máli að því ástandi sem á var komið yrði að ljúka. Gunnlaugi og Sveinbirni Jónssyni, þáverandi for- manni Barnaverndarráðs Íslands, ber saman um að þarna hafi Davíð sýnt mikinn þroska, þó ekki væru að-gerðir hans réttmætar að mati þeirra, eins og á stóð. Fáheyrður kjarkur og leikni„Ég er viss um að Davíð var sjálf-ur höfundurinn að ránsferðinni og skipulagði hana frá upphafi. Hann vann eftir því lögmáli að í stríði sé allt löglegt. Hann gat rökrætt við okkur í barnarverndarráði þó ung-ur væri en var svo blindur á velferð systkina sinna að hann sveifst ein-skis. Mig minnir að hann hafi látið svo um mælt að engir krakkar væru svo slæmir að þeir væru ekki bet-ur komnir hjá foreldrum sínum en í einhverri stofnun eða fyrirtæki úti í sveit.“Doktor Gunnlaugur segist í við-talinu aldrei gleyma þessu; hversu hnyttinn, rökfastur og fylginn sér Davíð hafi verið á þessum árum, að-eins tólf ára gamall. Hann gaf full-orðnum mönnum ekkert eftir og hafði sigur að lokum þótt leiðirnar sem hann valdi að settu marki hefðu ekki verið hefðbundnar eða í takt við gildandi reglur. „Aldrei bjóst ég við að Davíð yrði stjórnmálamaður. Ég hélt að hann yrði listamaður. En eftir á að hyggja, þegar maður skoðar baráttu hans fyrir velferð hálfsystkina sinna eins og hér hefur verið lýst, þá má segja að þar hafi Davíð sýnt á sér pólitísku hliðina með útsjónarsemi, fáheyrð-um kjarki og leikni,“ sagði doktor Gunnlaugur Þórðarson í þessu sam-tali fyrir bók Eiríks Jónssonar fyrir átján árum. Húsið sem hinn tólf ára gamli davíð Oddsson bjargaði systkinum sínum úr á silungapolli var rifið undir miðjan ní-unda áratug síðustu aldar. Þar má segja að ræst hafi heit það sem hann gaf systkinum sínum um að láta jafna húsið við jörðu. nokkrar vangaveltur höfðu verið um framtíð húsanna að silungapolli. Vatnsveitan og borgaryfirvöld höfðu áhyggj-ur af að starfsemi í húsunum kynni að spilla fyrir vatnsból-um reykvíkinga í gvendarbrunnum. um þetta var farið að ræða þegar árið 1979 og hélt sú umræða áfram í nokkur ár. Það var þó ekki fyrr en davíð Oddsson var orðinn borgar-stjóri sem skriður komst á málin. FjaRlægt eða RiFið?Veturinn 1983 til 1984 komust ráðamenn og embættis-menn á þá skoðun að nauðsynlegt væri að fjarlægja byggingarnar við silungapoll. Ekki voru þó allir á sammála um hvaða leið skyldi fara. Bygginganefnd samþykkti fyrir sitt leyti að húsin yrðu rifin en fór fram á að álits umhverfisráðs yrði leitað. umhverfisráð fékk borgarminjavörð á sinn fund. niðurstaðan var sú að mælt var með að auglýst yrði eftir félagasamtökum sem vildu eignast húsið. skilyrði væri þá að samtökin flyttu húsið á sinn kostnað. sex tilboð bárust auk þess sem starfs-mannafélag reykjavíkur óskaði eftir að fá húsið með það fyrir augum að flytja það að úlfljótsvatni. Innkaupastofn-un reykjavíkur lagði hins vegar til að tilboði Björns nokkurs sigurðssonar yrði tekið. umhverfisráði fannst þó betra að húsið væri auglýst aftur fyrir félagasamtök og lagði það til við borgarráð. Þetta var 1. mars 1984.fimm dögum síðar fjallaði borgarráð um málið. Þá var ákveðið að húsið skyldi rifið frekar en að auglýsa það aftur. stóra húsið var rifið en guðmundur gíslasonskrúðgarðyrkjumaður fékk leyfi fyrir að fjarlægja tvær viðbyggingar gegn því að ganga vel frá þar sem grunnur hússins var áður. önnur viðbyggingin þoldi ekki flutninginn en í hinu er enn búið. loFoRðið eFntniðurstaðan varð því sú að loforðið sem davíð gaf yngri systkinum sínum þegar hann frelsaði þau tólf ára gamalt var efnt. stóra húsið á silungapolli var jafnað við jörðu. Ekki er þó vitað hvort þarna séu bein tengsl á milli og rétt að hafa í huga að stefnt hafði verið að því að fjarlægja húsið. Ekki náðist í davíð Oddsson í vikunni en hann er erlendis. aðrir sem komu að málinu eru sumir látnir og aðrir búnir að gleyma hvernig ákvörðun um niðurrif bar að. Eina sem ljóst er af skjölum úr borgarkerfinu frá þessum tíma er að nokkur áhugi var fyrir að flytja húsið annað, borginni að kostnaðarlausu, en ekki var gengið að þeim tilboðum. Silungarpoll Barnaheimilið jafnað við jörðu Nokkur áhugi var á að flytja húsið annað, borginni að kostnaðarlausu, en ekki var gengið að þeim tilboðum. 9. febrúar 2007 DV opnaði umfjöllun um Breiðavík 9. febrúar 2007. 9. febrúar 2007 Í sama blaði hófst umfjöllun DV um Bjarg. 16. febrúar 2007 DV hóf umfjöllun um Kumbaravog 16. febrúar 2007. 23. febrúar 2007 DV fjallaði um Heyrnleysingja- skólann 23. febrúar 2007. 23. febrúar 2007 DV fjallaði um Silungapoll 23. febrúar 2007. Bíða eftir að rannsókn ljúki Bárður Ragnar Jóns- son og Georg Viðar Björnsson eru sammála um að skýrslan sé faglega unnin en finnst ferlið allt þó taka helst til langan tíma. Enn á eftir að vinna skýrslur um fleiri heimili, svo sem Silungapoll og Reykjahlíð. Mynd KriStinn MagnúSSon Logi Bergmann Eiðsson, sjónvarps- maður á Stöð 2, gerði myndband um Þórdísi J. Sigurðardóttur, systur Hreið- ars Más Sigurðssonar, þegar hún varð fertug í febrúar í fyrra. Myndbandið var síðan sýnt í fertugsafmælisveislu Þórdísar. Móðir Þórdísar og Hreið- ars, Gréta Sigurðardóttir, hafði sam- band við Loga og bað hann um að gera myndbandið og Logi tók vel í beiðnina, enda segist hann kannast við Þórdísi. Hreiðar Már var, sem kunnugt er, forstjóri Kaupþingssamstæðunnar en Þórdís, systir hans, starfaði hjá Baugi sem yfirmaður norrænna fjárfestinga og var jafnframt stjórnarformaður móðurfélags fjölmiðlasamsteypunnar 365, sem meðal annars á Stöð 2. Gréta átti hins vegar fyrirtæki sem hét Gjafa- ver sem sérhæfði sig í því að selja aug- lýsingavörur og gjafir til fyrirtækja og var Kaupþing einn helsti viðskiptavin- ur félagsins, líkt og DV greindi frá á þriðjudaginn. Öll eru þau prýðilega vel stæð en Hreiðar Már var, sem kunnugt er, skatta- kóngur Reykjavíkur í fyrra. Systir hans þurfti heldur ekki að lepja dauðann úr skel á Íslandi góðærisins því hún var með sex millj- ónir króna í laun á mán- uði í starfi sínu hjá Baugi. Gréta er svo heldur ekki á flæðiskeri stödd en hún seldi Gjafaver í ársbyrjun 2007 til fyrirtækisins Bross fyrir 80 til 100 milljónir króna. Greiði við Grétu Af orðum Loga að dæma var þátttaka hans í afmæli Þórdísar hins vegar ekki mjög mikil. „Vinir hennar komu til mín, ég spjallaði við þá um Þórdísi og svo var þetta sýnt í afmælinu hennar. Þetta voru bara svona fíflalæti,“ segir Logi. Aðspurður hvað hann hafi feng- ið greitt fyrir viðvikið segir Logi að um greiða hafi verið að ræða og að hann hafi því ekki fengið neitt fyrir mynd- bandið. „Þetta var bara greiði. Ég fékk ekkert greitt fyrir þetta. Þetta er ekkert stórmál. Þú bara gerir þetta og þetta tekur bara smástund. Ég kannað- ist líka aðeins við Þórdísi,“ segir Logi Bergmann og bætir því við að hann hafi stundum gert sambærilega hluti fyrir afmæli fólks og fyrir árshátíðir. Í afmælum efnafólks Sagan af myndbandi Loga Berg- manns um Þórdísi vekur upp minn- ingar um sambærilegar sögur þar sem þekktir leikarar og fjölmiðla- menn hafa verið fengnir til að bregða á leik í afmælum hjá eignafólki. Fræg er til dæmis sagan af því þegar Pálmi Gestsson leikari var fenginn til að leika Björgólf Guðmundsson at- hafnamann í leik- sýningu í Þjóð- leikhúsinu þar sem lífshlaupi Lands- bankamannsins fyrrverandi var lýst á dramatísk- an hátt í tilefni af 65 ára afmæli hans. Þar naut Björgólfur þess örugglega að Lands- bankinn var einn helsti styrktaraðilinn þegar leiksviðið Kass- inn var tek- ið í notkun í leikhús- inu. Sams konar sög- ur er að segja af nokkrum öðrum þekktum eigna- mönnum sem leituðu einnig gjarn- an út fyrir landsteinana að skemmti- kröftum, til að mynda þeir Ólafur Ólafsson og Björgólfur Thor Björg- ólfsson sem fengu Elton John og rapparann 50 Cent til að koma í af- mælin sín. Flogið til Frakklands í einka- þotu Eftir afmælið héldu Hreiðar Már, Þórdís og Gréta til Frakklands og fóru þar á skíði í frönsku Ölpunum. Þau flugu til London þar sem þau tóku einkaþotu til Frakklands. Sam- kvæmt heimildum DV var ein af ástæðunum fyrir því að þau ákváðu að fljúga í einkaþotu sú að Hreiðar vildi leyfa móður sinni að prófa einu sinni hvernig það væri að fara til út- landa í slíkri vél, enda mun hún ekki hafa reynt það áður. Þó að efnahagskerfið á Íslandi sé nú fallið verður samt ekki annað sagt en að íslenska góðærið hafi farið vel með þau Hreiðar, Grétar og Þórdísi, enda urðu þau öll sterkefnuð þegar undrið gekk yfir þjóðina og gátu leyft sér ýmislegt sem aðrir gátu ekki. Ekk- ert bendir heldur til þess að þau komi sérstaklega illa undan hruninu. LOGI GERÐI MYND- BAND UM SYSTUR HREIÐARS „Vinir hennar komu til mín, ég spjallaði við þá um Þórdísi og svo var þetta sýnt í afmælis-veislu hennar.“ InGI F. VILHjáLMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Myndband um Þórdísi Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson gerði myndband um Þórdísi, systur Hreiðars Más Sigurðssonar, þegar hún varð fertug í fyrra. Vel stæð Hreiðar Már var skattakóngur Reykjavíkur í fyrra en móðir hans og systir voru heldur ekki á flæðiskeri staddar: Þórdís, systir hans, var með 6 milljónir á mánuði frá Baugi og Gréta, móðir hans, seldi fyrirtæki sitt á 80–100 milljónir króna í ársbyrjun 2007. Þórdís j. Sigurðardóttir Móðir Þórdísar og Hreiðars Más, Gréta Sigurðardóttir, bað Loga Bergmann um að gera myndbandið. Fjölskyldan flaug svo til Frakklands í einkaþotu eftir afmælið og fór á skíði. GenGisfall í sePTeMBeR Allar pizzur á matseðli 1.500 kr miðað við sóttar pizzur 568-6868
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.