Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 41
Lára Hanna Einarsdóttir, mbl.is „Langbesti bloggarinn. Nákvæm, góð- ur penni og skrifar af mikilli þekkingu á þeim málefnum sem hún tekur fyrir. Myndbrotin hennar bæta enn frekar við gæði bloggsins.“ „Meira en bloggari, eiginlega fjölmiðill og gagnasafn í ákveðnum málaflokkum. Dugleg að setja inn upptökur af viðtölum og öðru athyglisverðu efni. Auk blaðagreina. Flott kona!“ „Rökföst, fylgist vel með tíðarandanum og því sem er að gerast.“ „Nákvæm og vinnur sína vinnu kauplaust fyrir þjóð sína. Hún safnar öllum upplýsingum og vinnur svo úr þeim og notar þegar það á við. Safn hennar er gullkista og er hún einn mest upplýsandi fjölmiðill Íslands.“ Egill Helgason, eyjan.is „Veit náttúrlega allt sem þarf að vita í samfélaginu og þorir að skrifa um það.“ „Egill stendur fyrir sínu, enda með mikið forskot á alla aðra.“ „Stuttur og hnitmiðaður.“ Illugi Jökulsson, DV.is. „Illugi er fjölhæfur og afkastamikill. Yfirleitt áhugavert og ágætlega fram sett hjá honum.“ „Bloggið var búið til fyrir fólk eins og Illuga, punktur!“ Ármann Jakobsson „Skrifar skemmtilega og afar gáfulega pistla, enda bæði rithöfundur og gáfumaður.“ „Hinar stuttu, hnyttnu pælingar og beitt samfélagsgreining hans björguðu oft deginum hjá mér. Yrði það mikið gleðiefni ef hann tæki til við bloggið aftur.“ Ketill Sigurjónsson, mbl.is „Orkubloggið markar sér einstaka sérstöðu vegna þess að þar er aðeins rætt um einn tiltekinn, en mjög mikilvægan málaflokk, orku, í löngum, mjög vel skrifuðum og áhugaverðum færslum sem fræða, skemmta og upplýsa. Dæmi um það hvernig blogg bæta við og víkka út fjölmiðlun en eru ekki álappaleg endurvinnsla frétta.“ „Súper.“ Eiríkur Jónsson, DV.is. „Stutt, hnitmiðað og myndrænt. Eiríkur í hnotskurn - vægðarlaus og fyndinn á sama tíma.“ „Hittir oft naglann á höfuðið - það er iðulega broddur í skrifum hans sem gaman er að.“ Stefán Pálsson, kaninka.net/stefan „Gamalreyndur bloggari sem er ekkert að fara út af sinni gömlu línu og er fastur á sínu.“ Bolur Bolsson, mbl.is „Geystist fram á ritvöllinn í ágúst- mánuði 2007 og náði því að verða vinsælasti Moggabloggarinn á innan við tveimur vikum með gríni og glensi, drakk Carlsberg í morgunmat og lét ýmsa fá það óþvegið, þá helst Moggabloggara. Eftir vikurnar tvær lokaði hann blogginu sínu og reyndist hann þá vera Henry Þór Gunnarsson íþróttafréttamað- ur á Fréttablaðinu.“ Guðríður Haraldsdóttir, DV.is „Lýsingarnar hennar á Bold eru ómiss- andi – þarf ekki að horfa á Bold þegar Gurrí stendur sig! Og einhvern veginn tekst henni að gera strætóferðir af Skaganum ótrúlega spennandi! Eitthvað svo einlæg.“ Þórarinn Þórarinsson, dv.is „Hárbeittur og fer gegn straumnum. Gerir kannski heldur mikið í því stund- um að vera rebel en það er gaman að honum.“ Stefán Friðrik Stefánsson, mbl.is „Líklega umdeildasti bloggarinn og ótrúlega margir sem láta hann fara í taugarnar á sér. Ég hef lært að meta Stefán Friðrik og sjá bloggfærslurnar hans með kómískum augum. Þeir sem ekki þola hann ættu að hætta að taka sig svona hátíðlega.“ Dr. Gunni, this.is/drgunni „Maður les alltaf þótt Doktorinn sé sjaldnast neitt mjög núanseraður í skoðunum sínum. Það er hins vegar einhver glaðhlakkalegur og vinsam- legur tónn í bloggunum sem gleður og kætir.“ Nanna Rögnvaldardóttir, nannar.blogspot.com „Því miður að mestu hætt að blogga en Konan sem kyndir ofninn sinn var til skamms tíma eitt albesta blogg sem til var, bæði fræðandi og skemmtilegt. Nanna var persónuleg og skemmtileg en sparaði sér heimskulega umorðun fréttatímanna og sagði manni eitthvað nýtt.“ Jónas Kristjánsson, jonas.is „Beittur og skrifar stuttan og snarpan stíl. Hins vegar á ég til að hrökkva við þegar ég les það sem hann skrifar þegar hann er hvað hvassastur því oft finnst mér færslurnar á mörkum þess að sæmandi sé að birta þær.“ Óli Gneisti Sóleyjarson, truflun.net/oligneist „Skemmtilegar pælingar um allt milli himins og jarðar. Hef gaman af að fylgjast með honum og öðrum Vantrúarmeðlimum.“ Matthías Ásgeirsson, orvitinn.com „Skemmtilegt sambland af sögnum úr einkalífinu og samfélagsumræðu. Oft mjög gagnrýninn og því gaman að rýna í það sem hann hefur fram að færa því það hrærir oft upp í skoðunum manns.“ Ólafur Arnarson, pressan.is „Hefur kjark og þor til að taka öðruvísi á málunum og segja óvinsæla hluti.“ Margrét Hugrún Gústavs- dóttir, eyjan.is „Fjallar um allt milli himins og jarðar, bendir oft á ýmislegt sérkennilegt og skemmtilegt, er með frjótt hugmynda- flug.“ Marta María Jónasdóttir, pressan.is „Skemmtilegur lífsstílsbloggari sem fylgist mjög vel með straumum og stefnum.“ Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, eyjan.is „Stórskemmtilegar og ljóðrænar lýsingar á daglegu lífi skreytt með fallegum myndum.“ Sigrún Daníelsdóttir, eyjan.is „Mjög flott blogg. Rýnir í yfirborðs- kenndan lífsstíl nútímakonunnar og reynir að vinda ofan af megrunarrugl- inu.“ Jens Guð, mbl.is „Skemmtilegastur. Með ólíkindum fær um að gera stórar sögur úr engu, skeytingarlaus gagnvart því hvað öðrum finnst um hann og hvað hann er að skrifa fær mann oft til að hlæja.“ Björn Bjarnason, bjorn.is „Þurr en málefnalegur.“ Páll Vilhjálmsson, mbl.is „Hnyttinn og rökfastur.“ helgarblað 11. september 2009 föstudagur 41 Stefán Friðrik Stefánsson, mbl.is. „Eyðilagði fréttabloggið - ófrumlegur og hefur lítið að segja og bætir nánast engu við sjálfa fréttina.“ „Konungur endurvinnslunnar sem gæti drepið risaeðlu úr leiðindum kynni slík skepna að lesa. Tuggusendingar Stebba eru eins og þýðing- arforrit Google, vart er frétt komin inn á netmiðlana fyrr en umritun hennar er komin inn á Stebbasíðu. Elja Stebbans er ein og sér það merkilegasta við bloggið hans.“ „Ofvirkur og tjáir sig um allt milli himins og jarðar, oft af meiri vilja en mætti.“ „Ótrúlega andlaust tuð og staðreyndabelgingur.“ Jón Valur Jensson, mbl.is „Langlokur Jóns Vals og trúarhræsni hans fer illa í flest fólk þótt honum hafi tekist að klifra upp metorðastigann á Moggablogginu, en þar þarf ekki mikið til.“ „Ef hann væri fyndinn væri vaðallinn þolanlegur en dauðasynd Jón Vals er hve leiðinlegur, fyrirsjáanlegur og staglkenndur hann er. Alvarlegast er þó framlag hans til haturs, misklíðar og heiftúðugskapar í samfé- laginu. Slíkar raddir eru sannarleg samfélagsmein.“ Páll Vilhjálmsson, mbl.is „Beinlínis kvalafullt að lesa bloggið hans. Ótrúlegt að fréttamiðlar skuli alltaf vera að vitna í þessi skrif.“ Egill Helgason, eyjan.is „Fellur oft í þann pytt að birta dylgjur um fólk og leggja neikvætt til.“ Jakob Falur Kristinsson, mbl.is „Dæmigerður copy/paste bloggari, tekur hverja fréttina á fætur annarri og kópíerar hana beint inn á bloggið sitt.“ Guðbjörg Hildur Kolbeins, mbl.is „Einn misheppnaðasti bloggarinn hlýtur að vera sjálfur kennarinn í blaðamannaskólanum sem geystist fram á ritvöllinn um árið og sá klámmynd út úr mynd af fermingarstelpu á forsíðu Smáralindarbæklingsins og neyddist til að loka blogginu sínu um tíma eftir ritsmíð sína.“ Sigurður Kári Kristjáns- son, mbl.is. „Leiðinlegur og ófrumlegur bloggari og stjórnmálamaður - úr deild stuttbuxnadrengja Sjálfstæðisflokksins og það er álíka að lesa bloggið hans og að drekka súra mjólk.“ Tryggvi Þór Herbertsson, eyjan.is. „Pínlegt, nánast óbærilegt að lesa blogg hans, veruleikafirring hans virðist svo algjör - alveg burtséð frá ritstíl.“ Ólína Þorvarðardóttir, mbl.is „Lélegasta og aumasta bloggið. Segist blogga til að vera í tengslum við fólkið og til að finna vilja þjóðarinnar og hælir sér mikið af því á eigin síðu. En svo ef einhver vogar sér að mótmæla henni eða setja út á störf hennar eða hennar flokks þá bregst hún ókvæða við og hótar að hætta að blogga. Blogg Ólínu fjallar ekki um neitt í raun, er hvorki fugl né fiskur, og með eindæmum barnalegt og þrasgjarnt. Er með ólíkindum að hér fari háttvirt þingkona okkar Íslendinga.“ Jens Guð, mbl.is „Besserwisser sem telur sig vita allt best.“ Dr. Gunni, this.is/drgunni „Maðurinn er almennt leiðinlegur og sjálfsöruggur, sem sýnir sig best á að hann skreytir sig með stolnum fjöðrum, það er doktorstitli.“ Lára Hanna Einarsdóttir, mbl.is „Ofmetnasti bloggarinn, þó dugleg sé. Hún vill vera talsmaður og tekin alvarlega en hún tekur sjálfa sig allt of alvarlega.“ Jónas Kristjánsson, jonas.is „Fellur því miður oft í þann pytt að birta dylgjur um fólk og leggja neikvætt til.“ Össur Skarphéðinsson „Innihaldslaus, ómálefnalegur og lélegur að hætta að blogga núna þegar þjóðin hefði loks áhuga á að heyra í honum.“ Ólafur Arnarson, pressan.is „Innistæðulítill besservisser.“ bestu og verstu bloggararnir VERSTu BLOGGARARNIR ÞAu VORu LÍKA NEFND: Sigurður Jónsson, mbl.is „Með sínar órökstuddu röngu fullyrðingar skorar hann hátt fyrir rógburð sinn á Moggabloggi.“ Eiður Guðnason, mbl.is „Mesta tuð aldarinnar. Málfarsröfl um ekki neitt og sem skilar ekki neinu.“ Friðjón R. Friðjónsson, mbl.is „Sameinar það versta sem bloggið hefur upp á að bjóða: spunavitleysu og ofurtrú á flokksskírteini sínu. Hefur þann leiða ávana að vera aldrei fyndinn og yfirleitt alltaf vælandi. Hægrimönnum er ekki greiði gerður með skrifum Friðjóns.“ Jakobína Ólafsdóttir, mbl.is „Einhver mislukkaðasti bloggari landsins, hún er svo fljótfær, les greinilega ekki til enda það sem hún er að kommentera á, og konan með háskólagráðu. Hreint út sagt ótrúlegt. Og þá snýst þetta við, að maður fer að lesa hana sér til skemmtunar.“ Kristján B. Jónasson, bókaútgefandi Anna Kristjánsdóttir, bloggari Svanur Már Snorrason, blaðamaður Helgi Seljan, fjölmiðlamaður Katrín Rut Bessadóttir, ritstýra á smugan.is Anna Kristine Magnúsdóttir, blaðamaður Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrv. þingmaður Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrv. þingmaður Rannveig Karlsdóttir, meistaranámsnemi Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Arndís Þorgeirsdóttir, fréttastjóri Halla Rut Bjarnadóttir, verslunarkona Bjarni Harðarson, bóksali Karen D. Kjartansdóttir, blaðamaður Guðmundur Franklín Jónsson, athafnamaður ÁLITSGJAFAR:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.