Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 45
Sport 11. september 2009 föStudagur 45 Það eru ekki margir sem fá tæki- færi til þess að upplifa drauminn. Og jafnvel enn færri sem stökkva á tækifærið þegar það gefst. En hinn 36 ára gamli Giancarlo Fisichella lét tækifæri lífs síns ekki renna sér úr greipum. Hann mun upplifa æsku- draum sinn um helgina þegar hann keppir fyrir hið fornfræga Ferrari- lið í Formúlu 1 á Monza-brautinni sem er bæði heimavöllur Ferrari og hans sjálfs. Eftir að Felipe Massa slasaðist illa var varaökumaður Ferrari, Luka Badoer, fenginn til þess að keyra bíl- inn í tveimur mótum. Hann var hins vegar svo vandræðalega lélegur að Ferrari gat ekki annað en fengið inn nýjan mann út tímabilið. Fisichella náði sínum besta árangri í ríflega þrjú ár um síðustu helgi þegar hann kom annar í mark á eftir núverandi liðsfélaga sínum, Kimi Raikkonen, í Belgíu. Ferrari-menn búast þó ekki við miklu um helgina en Red Bull- menn verða að fara að hala inn stig- um ætli þeir að veita Jenson Button keppni á toppnum. Farþegi í Formúlunni Giancarlo Fisichella er á sínu þrett- ánda ári í Formúlu 1. Hann keppti fyrst fyrir Minardi árið 1996 en hef- ur síðan þá söðlað um og keyrt fyrir Jordan, Benetton, Jordan aftur, Sau- ber, Renault og nú síðast Indlands- kraftinn eða Force India. Hann hef- ur aldrei verið líklegur til afreka heldur verið meira eins og farþegi í Formúlu-heiminum. Fisichella á að baki þrjá sigra á ferlinum, þann síðasta í Malasíu í byrjun árs 2006, en það var hans besta ár er hann keyrði fyrir Renault. Hann tók sæti hjá Force India í fyrra sem ætlar sér að byggja upp sterkt lið. Gengið hefur þó ekki ver- ið frábært, ekkert stig í fyrra og ekk- ert stig var komið í hús enn fyrr, en Fisichella náði öðru sætinu um þarsíðustu helgi. En hann hefur nú gefið Force India upp á bátinni fyrir fimm keppnir með Ferrari en ekki er nokkur möguleiki að hann haldi starfinu sem fyrsti eða annar ökumaður hjá ítalska risanum eftir tímabilið. Verður hann þó líklega þriðji ökumaður liðsins á næsta ári. „Ég valdi Fisichella því hann á sætið skilið. Hann er frábær öku- maður og í toppformi. Þá vildi ég ítalskan ökumann fyrir Monza- keppnina og í framtíðinni verður hann þriðji ökumaður liðsins. Þetta er mikilvæg stund í sögu Ferrari og ekki sakar að við unnum síðustu keppni,“ segir forseti Ferrari, Mont- ezemolo. Button þarf að passa sig Jenson Button leiðir enn þá heims- meistarakeppni ökuþóra. Hann hef- ur þó aðeins hirt öfrá stig í síðustu sex keppnum eftir að hafa unnið sex af fyrstu sjö. Hefur hann enn þá sextán stiga forskot á félaga sinn hjá Brawn, Rubens Barrichello, og nítj- án stiga forskot á Sebastian Vettel hjá Red Bull. Button hefur ekkert getað síðan síðasta sigur hans kom í hús og er farið að tala um hversu ómerkilegur heimsmeistari hann yrði vinni hann ekki fleiri mót. Taka þarf þó fram að Lewis Hamilton vann aðeins fimm mót á leið sinni að heimsmeistaratitlinum í fyrra en það er víst betra að dreifa sigrun- um. Að því virðist. Eftir sigurinn um síðustu helgi hjá Kimi Raikkonen er hann kom- inn nítján stigum á eftir Vettel um þriðja sætið og gæti farið að pressa á menn um sæti á endanlegum verðlaunapalli. Það þykir alla- vega ekki líklegt en Ferrari- menn eru líka í harðri baráttu við McLaren um þriðja sæti í heimsmeistarakeppni bíla- smiða. Jenson Button veit alla- vega alveg af því hvað fólk er að segja. „Ég verð að fara að vinna aftur. Auðvitað er ég búinn að vinna sex keppnir og ef það dugar á endanum meðan ég hala inn einhver stig þá tek ég heimsmeistaratitil- inum fagnandi. En ég veit alveg hvað fólk er að segja. Ég veit líka að ég hef ekkert verið sér- stakur að undanförnu. Við munum sækja til sig- urs á Monza eins og allt- af í öllum keppnum. Það væri allavega óskandi að fara að komast á pall aftur til að finna bragðið,“ segir Bretinn Jenson Button. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is ÍtalSki draumurinn Draumur ítalska ökuþórsins Giancarlos Fisichella rætist um helgina þegar þrettánda Formúlu 1-mótið fer fram á árinu. Hann mun loksins fá að aka Ferrari-bíl á heimavelli liðsins og hans sjálfs, á Monza-brautinni. Hann gefur frá sér kappakstur á næsta ári fyrir fimm mót með Ferrari. Það dreg- ur saman með forystusauðnum Jenson Button og öðrum í toppbaráttunni. UNGveRjAlANdS- kAppAkSTURiNN 2008 eFSTU MeNN 1. Sebastian Vettel, Red Bull 2. Heikki Kovalainen, McLaren 3. Robert Kubica, BMW 4. Fernando Alonso, Renault 5. Nick Heidfeld, BMW RáSpÓll 2008 Sebastian Vettel, Red Bull - 1:37:555 FljÓTASTUR í eiNSTökUM hRiNG 2008 Kimi Raikkönen, Ferrari - 1:28:047 BRAUTARMeT Rubens Barrichello, Honda - 1:21:046 FyRRi SiGURveGARAR 2004: Rubens Barrichello, Ferrari 2005: Juan Pablo Montoya, McLaren 2006: Michael Schumacher, Ferrari 2007: Fernando Alonso, McLaren 2008: Sebastian Vettel, Red Bull HeiMiLd: KAPPAKStuR.iS vann loksins Kimi Raikkonen vann loksins aftur í síðustu keppni en býst ekki við öðrum sigri á Monza. Upplifir drauminn Giancarlo Fisichella gefur frá sér kappakstur á næsta ári til að aka fimm mót með Ferrari. jenson Button Þarf að fara að vinna keppnir aftur. MyNd AFp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.