Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 12
12 föstudagur 11. september 2009 fréttir Litlar breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Íslandsbanka frá banka- hruninu. Þar starfa nánast sömu yf- irmennirnir og voru hjá Glitni áður en bankinn var yfirtekinn. Auk þess starfa enn undir þeim sömu starfs- menn og voru þar áður. Fjórir yfir- menn fengu margra milljarða króna kúlulán til hlutabréfakaupa í bank- anum. Eins og frægt er fékk Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslands- banka, hins vegar aldrei lán vegna „tæknilegra mistaka“. Lausafé til 12 mánaða Þann 1. ágúst 2008 kynnti Lárus Welding, þáverandi forstjóri Glitn- is, uppgjör annars ársfjórðungs hjá bankanum. Þar kom fram að Glitn- ir hefði lausafé og aðrar eignir til að standa undir öllum fjárhagslegum skuldbindingum til næstu tólf mán- aða. Þann 5. ágúst 2008 kynnti Lár- us uppgjörið í London ásamt Rósant Má Torfasyni, þáverandi fjármála- stjóra bankans. Þann 15. septemb- er 2008 varð bandaríski bankinn Lehman Brothers síðan gjaldþrota og þar með lokaðist fyrir endurfjár- mögnun bankans í október. Glitnir átti gjalddaga á 70 milljarða króna láni í október. Eftirleikinn þekkja lík- legast flestir. Allt sömu starfsmenn Þegar Fjármálaeftirlitið (FME) tók yfir Glitni þann 7. október 2008 skip- aði FME Sverri Örn Þorvaldsson, framkvæmdastjóra áhættustýringar Glitnis, og Ágúst Hrafnkelsson, for- stöðumann innri endurskoðunar Glitnis, í skilanefnd bankans. Mán- uði síðar var Ágúst aftur ráðinn í gamla starfið sitt þar sem hann starf- ar enn í dag sem innri endurskoð- andi bankans. Í innri endurskoðun Íslandsbanka starfa sex starfsmenn. Þeir störfuðu allir hjá bankanum fyr- ir bankahrun. Sverrir Örn starfar í dag sem for- stöðumaður áhættustýringar Ís- landsbanka. Þar starfa 22 starfs- menn. Enginn breyting hefur verið gerð á starfsmannahaldi áhættustýr- ingar. Í lánaeftirliti Íslandsbanka starfa 20 starfsmenn. Þar er Guðrún Gunn- arsdóttir forstöðumaður. Hún var í sama starfi í gamla bankanum. Und- ir hana heyra lánanefndir sem þurfa að samþykkja lánveitingar bankans. Allir starfsmenn þar störfuðu áður hjá Glitni. Eftir bankahrunið bættust við starfsmenn úr öðrum deildum. Kúlulánakóngar Rósant Már Torfason, fyrrverandi fjármálastjóri Glitnis, sem kynnti uppjör annars ársfjórðungs í Lond- on 5. ágúst 2008 ásamt Lárusi Weld- ing, starfar enn hjá bankanum. Eftir bankahrunið var Rósant gerður að yfirmanni áhættustýringar, lánaeft- irlits og lögfræðisviðs Íslandsbanka. Sverrir Örn, forstöðumaður áhættu- stýringar, og Guðrún Gunnarsdótt- ir, forstöðumaður lánaeftirlits, starfa undir Rósant. Eignarhaldsfélög í eigu Rósants fengu 800 milljóna króna lán til hlutabréfakaupa í Glitni. „Það er ljóst að eiginfjárstaða þessa félags er verulega neikvæð,“ sagði Rósant í samtali við DV í lok mars 2009. Vilhelm Már Þorsteinsson var framkvæmdastjóri fjárstýringar og viðskiptaþróunar Glitnis. Hann starf- ar í dag sem framkvæmdastjóri fyr- irtækjasviðs Íslandsbanka. Vilhelm fékk 800 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í gegnum eignarhaldsfélag sitt AB 154. Hann er sonur Þorsteins Vilhelmssonar, fyrr- verandi eiganda Samherja og síð- ar Atorku. Undir honum starfar líka Magnús A. Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. Hann kom til starfa á sama tíma og Lárus Welding en þeir eru sagðir góðir vinir. Jóhannes Baldursson var fram- kvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis. Hann starfar í dag sem yfir- maður fjárstýringar og markaðsvið- skipta Íslandsbanka. Jóhannes fékk 800 milljóna króna kúlulán til hluta- bréfakaupa í Glitni í gegnum eign- arhaldsfélag sitt Gnóma. Þeir Jó- hannes, Rósant og Vilhelm fengu því samtals 2.400 milljóna króna kúlulán hjá Glitni í byrjun sumars 2008 en á sama tíma og þeim voru veitt lánin sagði Glitnir upp 88 starfsmönnum. Stefán Sigurðsson, framkvæmda- stjóri eignastýringar Íslandsbanka, fékk síðan 170 milljóna króna kúlu- lán á sama tíma og þeir. Hann var áður starfsmaður í þeirri deild sem Vilhelm Már var yfir. Ekki má gleyma Birnu Einarsdóttur. Hún var fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs og fékk 185 milljóna króna kúlulán þegar hún tók við því starfi í mars 2007. Lánið gufaði síðar upp en Birna er sem kunnugt er bankastjóri Íslandsbanka í dag. Óbreytt yfirstjÓrn Íslandsbanka AnnAs sigmundsson blaðamaður skrifar: as @dv.is Nánast engar breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Íslandsbanka frá því að bank- inn var yfirtekinn síðasta haust. Þar starfa sömu yfirmenn í áhættustýringu, innri endurskoðun og í útlánaeftirliti. Hjá þessum deildum starfa 50 starfsmenn og unnu þeir allir hjá gamla Glitni. Þrír af æðstu stjórnendum Íslandsbanka fengu samtals 2.400 milljónir króna í kúlulán á sama tíma og Glitnir sagði upp 88 starfsmönnum. sömu stjórnendur Birna Einarsdóttir var framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis áður en hún var gerð að banka- stjóra. Engin breyting var gerð á yfirstjórn Íslandsbanka eftir hrunið. Þar starfar enn sama fólkið og stjórnaði þar áður. spyrja kröfuhafa Vilhjálmur Bjarnason segist ekki hafa sérstaka skoðun á óbreyttri yfirstjórn Íslandsbanka. Nær væri að spyrja um skoðun kröfuhafanna á því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.