Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 42
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Gunnþór I. Svavarsson
sjómaður á Grenivík
Gunnþór fæddist á Akureyri
en ólst upp á Grenivík. Hann
var í Grunnskóla Grenivíkur
og í Stóru-Tjarnarskóla.
Gunnþór vann við frysti-
hús ÚA á Grenivík á ungl-
ingsárunum og starfaði við
beitningu hjá föður sínum.
Hann hóf sjómennsku sex-
tán ára og hefur stundað sjó-
mennsku síðan sem háseti á bátum
frá Grenivík. Hann er nú á bátnum
Hákoni EA.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnþórs er
Guðrún Árnadóttir, f. 7.8.
1974, kennari við Greni-
víkurskóla.
Börn Gunnþórs og
Guðrúnar eru Kara Eik
Sigþórsdóttir, f. 3.5. 1997;
Guðni Sigþórsson, f. 4.3.
1999; Elmar Ingi Gunn-
þórsson, f. 23.5. 2006.
Foreldrar Gunnþórs eru Hall-
grímur Svavar Gunnþórsson, f. 11.7.
1941, sjómaður á Grenivík, og Dórót-
hea Hallgrímsdóttir, f. 8.5. 1940, d.
17.10. 2004, húsmóðir.
30 ára á föstudag 80 ára á mánudag
Brynleifur H. Steingrímsson
fyrrv. yfirlæknir oG forseti bæjarstjórnar á selfossi
Brynleifur fæddist á Blönduósi og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá
MA 1950, embættisprófi í læknisfræði
frá HÍ í ársbyrjun 1956, stundaði fram-
haldsnám í Svíþjóð 1958-68, nám við
University of Bristol á Englandi 1972-
73 og við Óslóarháskóla vorið 1973.
Þá dvaldi hann við nám við Lasarett-
et í Lundi, lyflæknisdeild, 1988-89,
stundaði námskeið í heilbrigðis- og
réttarlækningum við Folkhálsan Kar-
olinska Institutet í Stokkhólmi 1965
og i hjarta- og æðasjúkdómum við
Centrallasarettet í Linköping 1968.
Brynleifur var héraðslæknir í
Kirkjubæjarhéraði 1957-58, læknir í
Svíþjóð 1958-68, héraðslæknir í Sel-
fosshéraði 1969-82, sérfræðingur í lyf-
lækningum við Sjúkrahús Suðurlands
frá 1983, síðan yfirlæknir lyfjadeildar
þar og auk þess starfandi yfirlæknir
við Vinnuhælið á Litla-Hrauni 1969-
87. Þá var hann læknir við Heilsu-
gæslustöðina í Reykjanesbæ í þrjú ár
eftir að hann hafði hætt læknisstörf-
um fyrir aldurs sakir á Selfossi.
Brynleifur var kennari við fram-
haldsdeildir Gagnfræðaskóla Selfoss,
við Fjölbrautaskóla Suðurlands og við
Hjúkrunarskóla Islands.
Brynleifur sat í stúdentaráði HÍ
1953-54, var formaður Læknafélags
Suðurlands 1969-72, 1977-79 og 1982-
84, formaður Krabbameinsfélags Ár-
nessýslu 1969-74, formaður kjara-
nefndar Læknafélags Íslands 1970-72
og formaður læknaráðs Sjúkrahúss
Suðurlands 1992-99. Brynleifur var
hreppsnefndarmaður á Selfossi 1974-
78 og bæjarfulltrúi á Selfossi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 1986-90, sat í bæj-
arráði og var forseti bæjarstjórnar og
formaður bæjarráðs um skeið. Þá sat
hann í stjórn Samtaka sveitarfélaga
á Suðurlandi, í héraðsnefnd Árnes-
sýslu og var formaður Veitustjórnar
Selfosskaupstaðar frá 1987 auk fleiri
nefndarstarfa.
Fjölskylda
Fyrri kona Brynleifs var Þorbjörg Sig-
ríður Friðriksdóttir, f. 6.7. 1930, d.
19.12. 1975, húsfreyja. Hún var dótt-
ir Friðriks Hans Guðmundssonar,
verkamanns á Raufarhöfn, og k.h.
Guðrúnar Hansdóttur húsfreyju.
Börn Brynleifs og Sigríðar eru
Guðrún Helga, f. 22.6. 1954, lögfræð-
ingur og hagfræðingur í Reykjavík, gift
Gunnlaugi Jónssyni dr. theol, prófess-
or við guðfræðideild HÍ; Helga, f. 4.3.
1956, cand. pedag. frá KHÍ, kennari
í Reykjavík, gift Jóni G. Haukssyni,
viðskiptafræðingi og ritstjóra Frjálsr-
ar verslunar; Friðrik, f. 15.5. 1958, d.
22.12. 1990, stud. pharm. við HÍ, var
kvæntur Ólöfu Halldórsdóttur kaup-
manni; Brynja Blanda, f. 11.8. 1971,
BA í þýsku og stjórnmálafræði og við-
skiptafræðingur, gift Ingvaldi Einars-
syni, MBA í viðskiptafræði.
Brynleifur kvæntist 27.6. 1976
seinni konu sinni, Huldu Guðbjörns-
dóttur, f. 27.12. 1951, B.Sc. í hjúkr-
unarfræði. Hún er dóttir Guðbjörns
Guðjónssonar, stórkaupmanns í
Reykjavík, og k.h., Hrafnhildar Helga-
dóttur meinatæknis. Þau skildu.
Sonur Huldu er Hrafn Tryggva-
son, f. 8.3. 1970, sjómaður á Akur-
eyri.
Sonur Brynleifs og Huldu er
Steingrímur, f. 30.3. 1977, starfsmað-
ur Norðuráls.
Foreldrar Brynleifs: Steingrímur
Árni Björn Davíðsson, f. 17.11.1891,
d. 9.10.1981, skólastjóri og vegaverk-
stjóri á Blönduósi, og k.h., Helga
Dýrleif Jónsdóttir, f. 8.12. 1895, d.
7.6.1995, húsfreyja.
Ætt
Föðurbróðir Brynleifs var Lúðvík
Nordal læknir, afi Davíðs Oddssonar,
fyrrv. forsætisráðherra. Steingrím-
ur var sonur Davíðs, vinnumanns á
Neðri-Mýrum, bróður Þorgríms, afa
Önnu, forstöðumanns Kvennasögu-
safnsins, og Valborgar, fyrrv. skóla-
stjóra, móður Stefáns Snævarr, dokt-
ors í heimspeki, og Sigríðar Snævarr
sendiherra. Davíð var sonur Jón-
atans, b. á Marðarnúpi Davíðsson-
ar. Móðir Jónatans var Ragnheiður,
dóttir Friðriks, pr. á Breiðabólstað
í Vesturhópi Þórarinssonar, sýslu-
manns á Grund, Jónssonar, ættföð-
ur Thorarensenættar. Móðir Frið-
riks var Sigríður Stefánsdóttir, móðir
Jóns Espólíns sagnaritara og systir
Ólafs, stiftamtmanns í Viðey, ættföð-
ur Stephensensættar. Móðir Davíðs
var Guðrún Benjamínsdóttir, b. í Tún-
garði, Þórarinssonar. Móðir Stein-
gríms var Sigríður Jónsdóttir.
Helga Dýrleif var dóttir Jóns Hró-
bjartssonar, b. og smiðs á Gunnfríð-
arstöðum i Langadal í Svínavatns-
hreppi, og k.h., Önnu Einarsdóttur
húsfreyju.
Brynleifur verður að heiman á af-
mælisdaginn en heilsar öllum sem
vilja taka kveðju hans.
Sverrir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og á Álftanesi á Mýrum.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1950
og sveinsprófi í húsgagnasmíði og
prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík
1960, og öðlaðist meistararéttindi í
húsgagnasmíði.
Sverrir starfrækti eigið húsgagna-
verkstæði á árunum 1967-2002.
Sverrir var formaður Félags hús-
gagna- og innréttingaframleiðenda
1971-76 og er heiðursfélagi þess frá
1991. Hann var formaður Hesta-
mannafélagsins Andvara í Garða-
bæ 1976-83, formaður Lionsklúbbs
Garðabæjar 1981-82 og heiðursfé-
lagi beggja félaganna, svæðisstjóri
Lions á Reykjanesi 1982-83, for-
maður Sjálfstæðisfélags Garðabæj-
ar 1983-86, í stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Garðabæ 1983-90
og formaður þess frá 1993, í flokks-
ráði Sjálfstæðisflokksins 1993, vara-
bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í
Garðabæ 1982-86, fulltrúi í bygging-
arnefnd Garðabæjar frá 1982-94 og
formaður hennar 1994.
Sverrir bjó í Vesturbænum í
Reykjavík til 1967 er hann flutti í
Garðabæinn.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist 29.1. 1955 Þórunni
Ingibjörgu Árnadóttur, f. 24.5. 1936,
húsmóður. Hún er dóttir Árna Gísla-
sonar, verktaka í Reykjavík, og k.h.,
Guðrúnar P. Magnúsdóttur hús-
móður.
Börn Sverris og Þórunnar Ingi-
bjargar eru Guðrún, f. 31.3. 1955,
hárgreiðslumeistari í Garðabæ, gift
Bjarna Geirssyni húsgagnasmíða-
meistara og eiga þau tvo syni, Sverri
og Geir; Þór, f. 7.12. 1961, húsgagna-
smíðameistari í Garðabæ, kvæntur
Bjarneyju Sigurðardóttur hjúkrun-
arfræðingi og eiga þau fjögur börn,
Kristínu, Fannar, Þórunni og Kol-
bein; Guðríður, f. 18.8. 1966, hár-
greiðslumeistari í Garðabæ, gift Lár-
usi Halldórssyni fasteignasala og
eiga þau tvö börn, Halldór Snæ og
Lovísu Rós, en sonur Guðríðar frá
því áður er Óliver Óskarsson; Frið-
rik, f. 21.4. 1968, iðnfræðingur, við-
skiptafræðingur í alþjóðaviðskipt-
um og framkvæmdastjóri en kona
hans er Lilja Bergmann og eiga þau
tvo syni, Victor og Dag.
Systkini Sverris: Sveinn Hall-
grímsson, f. 25.12. 1928, d. 13.9.
1988, tæknifræðingur, var kvæntur
Margréti Sigurðardóttur viðskipta-
fræðingi og eru börn þeirra tvö,
Hallgrímur og Björg; Elína Helga
Hallgrímsdóttir, f. 24.12. 1935, fyrrv.
gæðastjóri hjá Granda hf., gift Ing-
ólfi Örnólfssyni viðskiptafræðingi
og eru börn þeirra Ragnhildur, Hall-
grímur, Guðrún Anna, Guðríður og
Elína Margrét.
Foreldrar Sverris voru Hallgrím-
ur Sveinsson, f. 4.9. 1905, d. 9.10.
1948, skrifstofustjóri hjá Almennum
tryggingum, og Guðríður Ottadóttir,
f. 1.11. 1904, d. 11.3. 1964, húsmóð-
ir.
Ætt
Hallgrímur var sonur Sveins, banka-
gjaldkera í Reykjavík, Hallgrímsson-
ar, biskups í Reykjavík Sveinssonar.
Guðríður var dóttir Otta Guð-
mundssonar, skipasmiðs frá Eng-
ey, og Helgu Jónsdóttur frá Laxnesi
í Mosfellssveit.
Sverrir heldur upp á afmælið í
faðmi fjölskyldunnar.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
75 ára á sunnudag
Sverrir Hallgrímsson
húsGaGnasmíðameistari í Garðabæ
Berglind Ásta Jónsdóttir
húsmóðir í reykjanesbæ
Berglind fæddist í Reykja-
vík en ólst upp í Keflavík
og í Svíþjóð um fimm ára
skeið. Hún var í Grunn-
skóla Njarðvíkur og barna-
skóla í Svíþjóð.
Berglind vann í fisk-
vinnslu í Vogum hf í Njarð-
vík, vann við ræstingar og í
flugeldhúsinu í Leifsstöð
um skeið.
Berglind er áhugasöm um
hundaræktun, á fjóra cavalier-
hunda og sækir hundasýningar með
hunda sína.
Fjölskylda
Eiginmaður Berglindar er Trausti
Pálsson, f .30.9. 1978, sjómaður.
Börn Berglindar og
Trausta eru Viðar Páll
Traustason, f. 10.3. 1998;
Elvar Þór Traustason, f.
24.4. 2002; Katrín Lilja
Traustadóttir, f. 9.8. 2004;
Almar Ingi Traustason, f.
23.1. 2009.
Systkini Berglindar
eru Ragnheiður Helga
Jónsdóttir, f. 8.8. 1974, starfskona við
flugeldhúsið í Leifsstöð; Arnór Elvar
Jónsson, f. 24.1. 1978, sjómaður í
Reykjanesbæ; Þóra Dögg Jónsdóttir,
f. 25.6. 1982, búsett í Reykjanesbæ.
Foreldrar Berglindar eru Jón Við-
ar Gíslason, f. 8.4. 1956, vörubílstjóri
í Reykjavík, og Hulda Þórsdóttir, f.
18.2. 1956, húsmóðir.
30 ára á föstudaginn
Eva Dögg Jónsdóttir
leikskólakennari á akureyri
Eva Dögg fæddist á Akur-
eyri og ólst þar upp. Hún
var í Lundaskóla, Gagn-
fræðaskóla Akureyrar, lauk
stúdentsprófi frá VMA og
lauk B.Ed- prófi sem leik-
skólakennari frá HA árið
2008.
Eva Dögg vann í fiski við
Hraðfrystistöð Þórshafnar
og hjá ÚA á Akureyri, stundaði versl-
unarstörf á Akureyri og í Reykjavík,
starfaði í nokkur ár við leikskólann
Síðusel.á Akureyri en hefur verið
leikskólakennari við leikskólann
Flúðir frá því hún lauk námi.
Fjölskylda
Maður Evu Daggar er
Heiðar Valur Hafliða-
son, f. 3.2. 1981, sjó-
maður.
Sonur Evu Daggar og
Heiðars Vals er Mika-
el Darri Heiðarsson, f.
16.5. 2005.
Bróðir Evu Daggar
er Ómar Örn Jónsson, f. 3.10. 1973,
verktaki á Akureyri.
Foreldrar Evu Daggar eru Jón
Gestsson, f. 21.3. 1952, rafvirki, og
Ásta Pálmadóttir, f. 24.12. 1953,
skrifstofumaður.
30 ára á föstudag
Þormóður Geirsson
lyfjafræðinGur oG framkvæmdastjóri í reykjavík
Þormóður fæddist í Svíþjóð
en ólst upp á Akureyri frá
þriggja ára aldri. Hann var í
Barnaskóla Akureyrar, Gagn-
fræðaskóla Akureyrar, lauk
stúdentsprófi frá MA árið
2000 og lauk meistaraprófi í
lyfjafræði frá HÍ 2008.
Þormóður sinnti ýmsum
störfum með skóla, m.a. við garðyrkju,
var byggingaverkamaður og sinnti
lagerstörfum. Hann starfaði við ap-
ótek á námsárum sínum í lyfjafræði,
starfaði á Lyfjastofnun að námi loknu
2008 og til áramóta en hefur verið
framkvæmdastjóri Lipid Pharmac-
euticals ehf. frá síðustu áramótum.
Fjölskylda
Kona Þormóðs er Erla Björk Jónsdótt-
ir, f. 1.12. 1978, að ljúka
MA-prófi í guðfræði við
HÍ.
Dætur Þormóðs og
Erlu Bjarkar eru Auður
Rós Þormóðsdóttir, f. 26.4.
2003; Freydís Lilja Þór-
móðsdóttir, f. 21.8. 2006.
Systur Þormóðs eru
Steinunn Geirsdóttir, f. 4.3. 1971,
dýralæknir í Reykjavík; Nanna
Geirsdóttir, f. 23.1. 1975, bygg-
ingafræðingur í Danmörku; Auður
Geirsdóttir, f. 24.3. 1976, viðskipta-
fræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Þormóðs eru Geir
Friðgeirsson, f. 18.8. 1947, barna-
læknir í Reykjavík, og Kolbrún Þor-
móðsdóttir, f. 11.1. 1952, grunn-
skólakennari við Valhúsaskóla.
30 ára á föstudag
42 föstudaGur 11. september 2009 ættfræði