Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Blaðsíða 32
32 föstudagur 11. september 2009 helgarblað Það er svo skrítið að eiginlega frá því að þetta kom upp þá hef ég raunverulega verið ótrúlega óttalaus,“ segir mynd- og tónlistarmaður Jóhann G. Jóhannsson sem hefur fært landsmönnum ófáar tónlistar- perlurnar í gegnum árin. Jóhann hefur undanfar- in tvö ár glímt við krabbamein og veikindi. Hann ákvað hins vegar fljótlega að horfast blákaldur í augu við veikindin og fara sínar eigin leiðir til þess að ná bata í stað frekari skurðaðgerða og lyfjameðferða. Jóhann er að vinna að nýrri plötu sem kemur út í október og undirbýr myndlista- sýningu þar sem hann mun meðal annars bjóða verk og póstkort til styrktar Fjölskylduhjálp Ís- lands. Jóhann hefur sterkar skoðanir á íslensku útvarpi og segir það sorglegt að megnið af þeirri íslensku tónlist sem gerð er fái aldrei að hljóma svo mikið sem einu sinni á útvarpsstöðvum landsins. Flestir kannast við lagið hans Don´t Try To Fool Me sem hefur jafnvel verið nefnt eitt besta íslenska popplagið frá upphafi. Jóhann segir meðal annars frá því hvernig lagið varð til í hálfkæringi en fór svo í gegnum langt ferli áður en það varð á endanum að ódauðlegum smelli. Lærði af Sigga Z „Myndlistin kom fyrst,“ segir Jóhann þegar hann spurður hvort hafi komið á undan, mynd- eða tónlistin. Flestir landsmenn kannast frekar við Jóhann sem einn færasta tónlistarmann og laga- höfund landsins en myndlistin hefur fylgt hon- um allt frá barnæsku. „Ég var sem krakki alltaf að teikna. Í gegnum barna- og gagnfræðaskóla fékk ég alltaf sérstaka athygli frá teiknikennaranum. Ég man eftir því að þegar ég var í grunnskóla og á leiðinni upp í gagnfræðaskóla fengu allir bekk- irnir einn vegg til að skreyta en ég fékk sér vegg,“ og segir Jóhann það hafa verið fyrstu einkasýn- inguna á ferlinum. Jóhann ætlaði alltaf að verða myndlistamað- ur og að hann hafi fengið neistann frá mynd- listamanni sem gekk undir nafninu Siggi Z. „Það var sagt um Sigga að hann hafi eitt sinn falsað verk eftir Kjarval svo vel að Kjarval sjálfur átti að hafa sagt þegar hann sá það „Þetta er ekki eft- ir mig. Þetta er alltof vel gert til þess“.“ Þær voru margar sögurnar af Sigga Z og í einni þeirra átti hann að hafa sagst sjálfur hafa falsað Picasso- verk sem var á þekktu safni í Danmörku. „Hann átti meðal annars að hafa falsað fimmhundruð- kalla,“ bætir Jóhann við. Jóhann leitaði til Sigga Z eftir ráðleggingum sem krakki og sýndi honum meðal annars teikningar eftir sig. „Þá gaf hann mér gamla bók á ensku. Bók sem ég á ennþá og í henni var allt um hvernig þú átt að byggja upp myndir og annað sem til þurfti. Siggi sagðist hafa lært allt sem hann kunni af þessari gömlu bók.“ Bókin reyndist Jóhanni vel. „Ég notaði hana þó ekki jafn mikið og hann greinilega gerði. Því hún var öll út krotuð og teiknuð eftir karlinn sem hafði ágætis húmor. Maður sá það á því sem hann hafði bætt við sumar myndirnar.“ Nóg að vera úr Keflavík Á unglingsárunum fór tónlistin að eiga meiri sess í lífi Jóhanns. Enda ungur maður úr Kefla- vík þar sem allt iðaði af lífi í tónlistargeiranum. „Í gagnfræðaskólanum voru ýmsir farnir að koma fram með skólahljómsveitinni sem seinna áttu eftir að láta mikið að sér kveða. Þá var Gunnar Þórðarson á trommum, Rúnar Júlíusson kom þar fram í söngvarakeppni og bróðir minn heit- inn Eiríkur Jóhannsson. Þar með var dellan byrj- uð, Little Richard og allt það.“ Ferill Jóhanns hófst hins vegar ekki fyrr en hann fór í skóla á Bifröst. „Þá vonaðist ég til að komast inn í skóla- hljómsveitina. Jafnvel þótt ég kynni ekki mikið. Á þeim árum var eiginlega bara nóg að vera úr Keflavík og eiga gítar,“ segir Jóhann og hlær. „En mér var boðið í hljómsveitina og seinna árið var ég orðinn hljómsveitarstjóri.“Jóhann og nokkrir aðrir úr skólahljómsveitinni stofnuðu svo band- ið Strauma sem gerði það gott í Borgarnesi og nærsveitum. „Ég, Eiríkur bróðir og Karl Her- mannsson, sem var upprunalega í Hljómum, höfðum svo ákveðið að stofna hljómsveit sem átti að heita Óðmenn þegar ég kæmi af Bifröst og það varð af því.“ Lifir af listinni Þar með hófst atvinnulistamannaferill Jóhanns og hefur hann reynt að lifa eingöngu af listinni allar götur síðan þá. „Ég einsetti mér það að ef ég þyrfti að vinna að öðru en listsköpun þá yrði það innan tónlistar- og myndlistargeirans.“ Jó- hann stofnaði síðar listagallerí sem hét Gallery Lækjartorg. Það varð svo seinna að Listamið- stöðinni.“ Síðar stofnaði hann Púlsinn – tónlist- arbar. „Að lifa af listinni hefur verið endalaus barátta. En ég hef alltaf tekið þann slag og það hefur líka orðið til þess að maður hefur gert ým- islegt til að geta haldið áfram á listabrautinni. Ég hef oft spurt mig; á ég að hætta hér og fá mér vinnu. Fara að nota Samvinnuskólamenntunina og fara vinna á einhverjum kontor. Eða á ég að hunskast til harka af mér og reyna að selja verkin mín eða láta mér detta eitthvað sniðugt í hug.“J- óhann segist hafa öðlast mikla reynslu í gegnum allt þetta ferli því í eðli sínu sé hann óframfær- inn. „Mér leiðist þetta orð feiminn. Ég er ekkert mikið fyrir sviðsljós og því finnst mér versti hlut- inn við sýningar eða útgáfur á plötum að þurfa að kalla á athygli. En það hefur kennt manni ým- islegt að þurfa takast á við það.“ Jóhann hefur alla tíð staðið fast á sínum skoð- unum og verið baráttumaður. Hann er einn af stofnendum SATT, Samtaka alþýðutónskálda og tónlistarmanna, sem síðar leiddi til þess að FTT, Félag tónskálda og textahöfunda, var stofn- að. „Við hófum baráttuna við STEF um að kom- ast þar inn því við höfðum verið utangarðsmenn frá upphafi.“ Úr Náttúru í poppið Það er eitt lag eftir Jóhann sem óneitanlega hef- ur vakið mesta athygli í gegnum tíðina og það er smellurinn Don´t Try To Fool Me sem margir Ís- lendingar halda jafnvel að hafi verið samið og flutt af erlendum listamanni. Jóhann segir mikla sögu í kringum lagið sem hann hafi svo seinna lært mikið af. Jóhann hefur þó einnig samið fjöl- mörg þekkt lög eins og Eina ósk, Traustur vin- ur og Hvers vegna varst´ekki kyrr? svo fátt eitt sé nefnt. „Ég var á þessum tíma í hljómsveit sem hét Náttúra og var talin þá með þyngstu böndum sem stofnuð höfðu verið hér á landi. Áskell Más- son tónskáld var í þeirri hljómsveit, Björgvin Gíslason,gítar, Shady Owens, Ólafur Garðars- son, trommur og Sigurður Árnason, bassi. Ég var fenginn inn í þetta band á gítar sem var nú ekki mitt aðalhljóðfæri og sem söngvari.“Sjál- fur segir Jóhann að gengi sveitarinnar hafi ekki verið nógu gott og að einhvertímann hafi hann grínast með það að kannski vildi fólk bara heyra eitthvað svona.. og fór þá að raula og spila á gít- arinn. Úr varð frumútgáfa lagsins. „Bróðir minn Guðmundur og þáverandi sambýliskona mín voru þarna viðstödd og þau vildu endilega að ég tæki þetta upp til gleyma þessu ekki.“ Jóhann gerði það og á ennþá þá upptöku til. „Þá komu þessi orð eins og Don´t Try To Fool Me.“ Þúsund pund í vaskinn Á endanum gerði Jóhann heimademo af laginu sem hann leyfði Ámunda Ámundasyni að heyra. „Ámundi vildi strax senda mig út til Bretlands til þess að taka upp og endanum fór ég.“ Jóhann hafði haldið góðu sambandi við upptökustjóra að nafni Derek Watsworth. „Hann var upptöku- stjóri okkar Óðmanna þegar við tókum upp plötu í London árið 1969 með lögunum Spilltur heim- ur og Bróðir.“ Jóhann segir Svavar Gests heitinn hafa kostað upptökur Óðmanna og að hann hafi gert það af góðvildinni einni. „Hann vildi bara gera vel við okkur því honum líkaði það sem við vorum að gera og kunni að meta þann metnað sem við höfðum. Hann sagði seinna frá því að hann hefði þurft að selja tíu þúsund eintök af plötunni bara til að ná upp í kostnað.“Jóhann fór síðar út með verkið Brotinn gítar, Þögnin rofin sem þótti einstaklega framúrstefnulegt og hitti Derek við það tækifæri. Hann hélt svo út í þriðja sinn til þess að vinna með Derek lög til útgáfu á vegum Á. Á hljómplatna. Eftir fyrsta upptöku- daginn á Dont Try To Fool Me var Jóhann hins vegar ekki sáttur við útkomuna og sagði hana ónothæfa. Það varð uppi fótur og fit í hljóð- verinu enda var stúdíótími ekki gefins.„Menn höfðu ekki fengið nægjanlegar upplýsingar í byrjun, til dæmis um hvað tónlistin eða textarnir snérust.“ Meðal þeirra sem léku á hljóðfæri í lag- inu eru Mickey Waller trommari Rod Stewart og Miller Anderson sem spilar kassagítarinn í lag- inu. „Upp frá þessu urðu þeir miklir vinir mínir. Þeir komu upp á hótelherbergi til mín og við fór- um yfir það hvaða hugmyndir ég hefði.“ Jóhann segir að Ámundi hafi skiljanlega ekki verið sátt- ur þar sem þúsund pund voru farin í vaskinn en Jóhann var harður á því að útgáfan myndi aldrei ganga svona. Eftir að hafa túrað með Derek um Skotland og unnið sameiginlega að útsetningu lagsins varð að lokum til sú útgáfa þess sem landsmenn og margir fleiri þekkja svo vel. „Þetta kenndi mér það hversu ótrúlega miklu máli út- setning skiptir. Og að það sé nánast hægt að gera hvaða lag sem er gott ef útsetningin er góð og fagmannlega unnin.“ Hof tilfinningalífs karlmannsins Árið 2007 urðu mikil kaflaskipti í lífi Jóhanns. Eftir að hafa lent í úrtaki hjá Hjartavernd kom í ljós að hann væri hugsanlega með krabbamein í blöðruhálskirtli. „Ég lenti í úrtaki hjá Hjarta- vernd og fór þá í nokkur próf hjá þeim. Það var allt í fínu standi nema ég fékk þau skilaboð að ég þyrfti að passa mig til að fá ekki áunna syk- ursýki eftir tíu ár. Passa matarræðið og aðeins of þungur og allt það.“Jóhanni var því ráðlagt að fara í frekari skoðun og ákvað að fara til heim- ilislæknisins síns. „Hann sagði við mig „Jóhann þegar ég sendi menn á þínum aldri í blóðprufu þá læt ég alltaf taka PSA“ en ef það er of hátt get- ur það bent til þess að um krabbamein í blöðru- hálskirtli sé að ræða.“ Þegar niðurstöðurnar lágu fyrir kom í ljós að hátt PSA hafði mælst í Jóhann. „Talan á að vera undir fjórum en hún var í sautj- án hjá mér.“ Í kjölfarið var Jóhanni vísað til sér- fræðings þar sem hann var mældur aftur. „Þá var ég enn hærri svo að ég var látinn fá lyf og bókað- ur í sýnatöku.“ Þegar heim var komið fór Jóhann að velta þessu mikið fyrir sér. „Ég leggst þá í tölu- verða rannsóknarvinnu og fer að lesa mig mik- ið til á netinu og annarstaðar. Fljótlega kemst ég að því að það vitlausasta sem ég geti gert sé að fara í þessa sýnatöku. Því að því fylgi ákveðin hætta. Blöðruhálskirtillinn er mjög vel varinn og einskonar hof tilfinninga karlmannsins. Þarna er fullnægingin og ýmsar aðrar tilfinningar. Og að bjóða einhverju þangað inn skildi maður ekki gera nema að vandlega athuguðu máli.“ Notast við heildrænar lækningar Jóhann lét því lækninn vita að hann ætlaði ekki í sýnatöku né taka lyfið en að hann væri til í skoð- un. „Þá er þreifað á kirtlinum og reynt að finna hvort að hann hafi stækkað. Hann gat ekki dreg- ið neina ályktun af því aðra en þá að eins og yf- irleitt gerist hjá karlmönnum þá stækki þessi kirtill með aldrinum.“ Jóhann hafði rekist á ým- islegt á netinu sem hann taldi að gæt gagnast honum í þessari stöðu. „Ég var líka búinn að lesa mig til um það að blöðruhálskrabbi sé yfir- leitt mjög hæggengur. Að menn geti gengið með hann í einhver tíu, tuttugu ár og drepist svo úr einhverju allt öðru á endanum.“ Jóhann tilkynnti því lækni sínum að hann ætlaði ekki að þiggja frekar meðferð að svo stöddu vegna þessa held- ur reyna að ná PSA-magninu niður með heild- rænum aðferðum. Annað áfall Skömmu seinna var Jóhann á leið í sumarbú- stað með eiginkonu sinni þegar annað áfall reið Berst við krabbamein án lyfja Jóhann G. Jóhannsson hefur undanfarin tvö ár barist gegn krabbameini. Eftir eina aðgerð hefur hann tekið þá ákvörðun að fara í ekki í fleiri að svo stöddu og hafna lyfjameðferð. Hann berst gegn þessu banvæna meini með heildrænum lækningum. Jóhann er að undirbúa myndlistarsýningu þar sem hann býður meðal annars upp verk til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands. Hann er einnig að leggja lokahönd á nýja plötu en Jóhann hefur samið nokkur af bestu lögum Íslands fyrr og síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.