Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Page 41
Lára Hanna Einarsdóttir,
mbl.is
„Langbesti bloggarinn. Nákvæm, góð-
ur penni og skrifar af mikilli þekkingu
á þeim málefnum sem hún tekur fyrir.
Myndbrotin hennar bæta enn frekar
við gæði bloggsins.“
„Meira en bloggari, eiginlega fjölmiðill og gagnasafn
í ákveðnum málaflokkum. Dugleg að setja inn
upptökur af viðtölum og öðru athyglisverðu efni. Auk
blaðagreina. Flott kona!“
„Rökföst, fylgist vel með tíðarandanum og því sem er
að gerast.“
„Nákvæm og vinnur sína vinnu kauplaust fyrir þjóð
sína. Hún safnar öllum upplýsingum og vinnur svo
úr þeim og notar þegar það á við. Safn hennar er
gullkista og er hún einn mest upplýsandi fjölmiðill
Íslands.“
Egill Helgason, eyjan.is
„Veit náttúrlega allt sem þarf að vita í
samfélaginu og þorir að skrifa um það.“
„Egill stendur fyrir sínu, enda með
mikið forskot á alla aðra.“
„Stuttur og hnitmiðaður.“
Illugi Jökulsson, DV.is.
„Illugi er fjölhæfur og afkastamikill.
Yfirleitt áhugavert og ágætlega fram
sett hjá honum.“
„Bloggið var búið til fyrir fólk eins og
Illuga, punktur!“
Ármann Jakobsson
„Skrifar skemmtilega og afar gáfulega
pistla, enda bæði rithöfundur og
gáfumaður.“
„Hinar stuttu, hnyttnu pælingar og
beitt samfélagsgreining hans björguðu
oft deginum hjá mér. Yrði það mikið gleðiefni ef hann
tæki til við bloggið aftur.“
Ketill Sigurjónsson, mbl.is
„Orkubloggið markar sér einstaka
sérstöðu vegna þess að þar er aðeins
rætt um einn tiltekinn, en mjög
mikilvægan málaflokk, orku, í löngum,
mjög vel skrifuðum og áhugaverðum
færslum sem fræða, skemmta og upplýsa. Dæmi um
það hvernig blogg bæta við og víkka út fjölmiðlun en
eru ekki álappaleg endurvinnsla frétta.“
„Súper.“
Eiríkur Jónsson, DV.is.
„Stutt, hnitmiðað og myndrænt. Eiríkur
í hnotskurn - vægðarlaus og fyndinn á
sama tíma.“
„Hittir oft naglann á höfuðið - það er
iðulega broddur í skrifum hans sem
gaman er að.“
Stefán Pálsson,
kaninka.net/stefan
„Gamalreyndur bloggari sem er ekkert
að fara út af sinni gömlu línu og er
fastur á sínu.“
Bolur Bolsson, mbl.is
„Geystist fram á ritvöllinn í ágúst-
mánuði 2007 og náði því að verða
vinsælasti Moggabloggarinn á innan
við tveimur vikum með gríni og glensi,
drakk Carlsberg í morgunmat og lét
ýmsa fá það óþvegið, þá helst Moggabloggara. Eftir
vikurnar tvær lokaði hann blogginu sínu og reyndist
hann þá vera Henry Þór Gunnarsson íþróttafréttamað-
ur á Fréttablaðinu.“
Guðríður Haraldsdóttir,
DV.is
„Lýsingarnar hennar á Bold eru ómiss-
andi – þarf ekki að horfa á Bold þegar
Gurrí stendur sig! Og einhvern veginn
tekst henni að gera strætóferðir af
Skaganum ótrúlega spennandi! Eitthvað svo einlæg.“
Þórarinn Þórarinsson, dv.is
„Hárbeittur og fer gegn straumnum.
Gerir kannski heldur mikið í því stund-
um að vera rebel en það er gaman að
honum.“
Stefán Friðrik Stefánsson,
mbl.is
„Líklega umdeildasti bloggarinn og
ótrúlega margir sem láta hann fara í
taugarnar á sér. Ég hef lært að meta
Stefán Friðrik og sjá bloggfærslurnar
hans með kómískum augum. Þeir sem ekki þola hann
ættu að hætta að taka sig svona hátíðlega.“
Dr. Gunni, this.is/drgunni
„Maður les alltaf þótt Doktorinn sé
sjaldnast neitt mjög núanseraður í
skoðunum sínum. Það er hins vegar
einhver glaðhlakkalegur og vinsam-
legur tónn í bloggunum sem gleður
og kætir.“
Nanna Rögnvaldardóttir,
nannar.blogspot.com
„Því miður að mestu hætt að blogga
en Konan sem kyndir ofninn sinn var
til skamms tíma eitt albesta blogg sem
til var, bæði fræðandi og skemmtilegt.
Nanna var persónuleg og skemmtileg en sparaði sér
heimskulega umorðun fréttatímanna og sagði manni
eitthvað nýtt.“
Jónas Kristjánsson,
jonas.is
„Beittur og skrifar stuttan og snarpan
stíl. Hins vegar á ég til að hrökkva við
þegar ég les það sem hann skrifar
þegar hann er hvað hvassastur því oft
finnst mér færslurnar á mörkum þess að sæmandi sé
að birta þær.“
Óli Gneisti Sóleyjarson,
truflun.net/oligneist
„Skemmtilegar pælingar um allt
milli himins og jarðar. Hef gaman af
að fylgjast með honum og öðrum
Vantrúarmeðlimum.“
Matthías Ásgeirsson,
orvitinn.com
„Skemmtilegt sambland af sögnum úr
einkalífinu og samfélagsumræðu. Oft
mjög gagnrýninn og því gaman að
rýna í það sem hann hefur fram að færa
því það hrærir oft upp í skoðunum manns.“
Ólafur Arnarson,
pressan.is
„Hefur kjark og þor til að taka öðruvísi
á málunum og segja óvinsæla hluti.“
Margrét Hugrún Gústavs-
dóttir, eyjan.is
„Fjallar um allt milli himins og jarðar,
bendir oft á ýmislegt sérkennilegt og
skemmtilegt, er með frjótt hugmynda-
flug.“
Marta María Jónasdóttir,
pressan.is
„Skemmtilegur lífsstílsbloggari sem
fylgist mjög vel með straumum og
stefnum.“
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir,
eyjan.is
„Stórskemmtilegar og ljóðrænar
lýsingar á daglegu lífi skreytt með
fallegum myndum.“
Sigrún Daníelsdóttir,
eyjan.is
„Mjög flott blogg. Rýnir í yfirborðs-
kenndan lífsstíl nútímakonunnar og
reynir að vinda ofan af megrunarrugl-
inu.“
Jens Guð, mbl.is
„Skemmtilegastur. Með ólíkindum
fær um að gera stórar sögur úr engu,
skeytingarlaus gagnvart því hvað
öðrum finnst um hann og hvað hann er
að skrifa fær mann oft til að hlæja.“
Björn Bjarnason, bjorn.is
„Þurr en málefnalegur.“
Páll Vilhjálmsson, mbl.is
„Hnyttinn og rökfastur.“
helgarblað 11. september 2009 föstudagur 41
Stefán Friðrik Stefánsson,
mbl.is.
„Eyðilagði fréttabloggið - ófrumlegur
og hefur lítið að segja og bætir nánast
engu við sjálfa fréttina.“
„Konungur endurvinnslunnar sem
gæti drepið risaeðlu úr leiðindum kynni slík skepna
að lesa. Tuggusendingar Stebba eru eins og þýðing-
arforrit Google, vart er frétt komin inn á netmiðlana
fyrr en umritun hennar er komin inn á Stebbasíðu.
Elja Stebbans er ein og sér það merkilegasta við
bloggið hans.“
„Ofvirkur og tjáir sig um allt milli himins og jarðar, oft
af meiri vilja en mætti.“
„Ótrúlega andlaust tuð og staðreyndabelgingur.“
Jón Valur Jensson, mbl.is
„Langlokur Jóns Vals og trúarhræsni
hans fer illa í flest fólk þótt honum hafi
tekist að klifra upp metorðastigann
á Moggablogginu, en þar þarf ekki
mikið til.“
„Ef hann væri fyndinn væri vaðallinn þolanlegur en
dauðasynd Jón Vals er hve leiðinlegur, fyrirsjáanlegur
og staglkenndur hann er. Alvarlegast er þó framlag
hans til haturs, misklíðar og heiftúðugskapar í samfé-
laginu. Slíkar raddir eru sannarleg samfélagsmein.“
Páll Vilhjálmsson, mbl.is
„Beinlínis kvalafullt að lesa bloggið
hans. Ótrúlegt að fréttamiðlar skuli
alltaf vera að vitna í þessi skrif.“
Egill Helgason, eyjan.is
„Fellur oft í þann pytt að birta dylgjur
um fólk og leggja neikvætt til.“
Jakob Falur Kristinsson,
mbl.is
„Dæmigerður copy/paste bloggari,
tekur hverja fréttina á fætur annarri og
kópíerar hana beint inn á bloggið sitt.“
Guðbjörg Hildur
Kolbeins, mbl.is
„Einn misheppnaðasti bloggarinn
hlýtur að vera sjálfur kennarinn í
blaðamannaskólanum sem geystist
fram á ritvöllinn um árið og sá
klámmynd út úr mynd af fermingarstelpu á forsíðu
Smáralindarbæklingsins og neyddist til að loka
blogginu sínu um tíma eftir ritsmíð sína.“
Sigurður Kári Kristjáns-
son, mbl.is.
„Leiðinlegur og ófrumlegur bloggari
og stjórnmálamaður - úr deild
stuttbuxnadrengja Sjálfstæðisflokksins
og það er álíka að lesa bloggið hans
og að drekka súra mjólk.“
Tryggvi Þór Herbertsson,
eyjan.is.
„Pínlegt, nánast óbærilegt að lesa
blogg hans, veruleikafirring hans
virðist svo algjör - alveg burtséð frá
ritstíl.“
Ólína Þorvarðardóttir,
mbl.is
„Lélegasta og aumasta bloggið. Segist
blogga til að vera í tengslum við fólkið
og til að finna vilja þjóðarinnar og
hælir sér mikið af því á eigin síðu.
En svo ef einhver vogar sér að mótmæla henni eða
setja út á störf hennar eða hennar flokks þá bregst
hún ókvæða við og hótar að hætta að blogga. Blogg
Ólínu fjallar ekki um neitt í raun, er hvorki fugl né
fiskur, og með eindæmum barnalegt og þrasgjarnt.
Er með ólíkindum að hér fari háttvirt þingkona okkar
Íslendinga.“
Jens Guð, mbl.is
„Besserwisser sem telur sig vita allt
best.“
Dr. Gunni, this.is/drgunni
„Maðurinn er almennt leiðinlegur
og sjálfsöruggur, sem sýnir sig best
á að hann skreytir sig með stolnum
fjöðrum, það er doktorstitli.“
Lára Hanna Einarsdóttir,
mbl.is
„Ofmetnasti bloggarinn, þó dugleg
sé. Hún vill vera talsmaður og tekin
alvarlega en hún tekur sjálfa sig allt of
alvarlega.“
Jónas Kristjánsson,
jonas.is
„Fellur því miður oft í þann pytt
að birta dylgjur um fólk og leggja
neikvætt til.“
Össur Skarphéðinsson
„Innihaldslaus, ómálefnalegur og
lélegur að hætta að blogga núna
þegar þjóðin hefði loks áhuga á að
heyra í honum.“
Ólafur Arnarson,
pressan.is
„Innistæðulítill besservisser.“
bestu og verstu bloggararnir
VERSTu BLOGGARARNIR
ÞAu VORu LÍKA NEFND:
Sigurður Jónsson, mbl.is
„Með sínar órökstuddu röngu fullyrðingar skorar hann hátt fyrir rógburð sinn á Moggabloggi.“
Eiður Guðnason, mbl.is
„Mesta tuð aldarinnar. Málfarsröfl um ekki neitt og sem skilar ekki neinu.“
Friðjón R. Friðjónsson, mbl.is
„Sameinar það versta sem bloggið hefur upp á að bjóða: spunavitleysu og ofurtrú á flokksskírteini
sínu. Hefur þann leiða ávana að vera aldrei fyndinn og yfirleitt alltaf vælandi. Hægrimönnum er ekki
greiði gerður með skrifum Friðjóns.“
Jakobína Ólafsdóttir, mbl.is
„Einhver mislukkaðasti bloggari landsins, hún er svo fljótfær, les greinilega ekki til enda það sem
hún er að kommentera á, og konan með háskólagráðu. Hreint út sagt ótrúlegt. Og þá snýst þetta
við, að maður fer að lesa hana sér til skemmtunar.“
Kristján B. Jónasson, bókaútgefandi
Anna Kristjánsdóttir, bloggari
Svanur Már Snorrason, blaðamaður
Helgi Seljan, fjölmiðlamaður
Katrín Rut Bessadóttir, ritstýra á smugan.is
Anna Kristine Magnúsdóttir, blaðamaður
Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrv. þingmaður
Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrv. þingmaður
Rannveig Karlsdóttir, meistaranámsnemi
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi
Arndís Þorgeirsdóttir, fréttastjóri
Halla Rut Bjarnadóttir, verslunarkona
Bjarni Harðarson, bóksali
Karen D. Kjartansdóttir, blaðamaður
Guðmundur Franklín Jónsson,
athafnamaður
ÁLITSGJAFAR: