Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2009, Síða 22
22 föstudagur 20. nóvember 2009 helgarblað
Frískandi og góður!
EI
N
N
, T
V
EI
R
O
G
Þ
R
ÍR
2
98
.0
46
Lífrænn
Lífrænar
mjólkurvörur
Margir eru í vafa um hvort þeir eigi
að láta bólusetja sig gegn svína-
flensunni eður ei. Heilbrigðisyfirvöld
halda því statt og stöðugt fram að það
sé meiri áhætta fólgin í því að sleppa
bólusetningu. Á internetinu er mik-
ið skrifað um svínaflensufaraldurinn
og þar er að finna sögur margra sem
halda því fram að bóluefni hafi haft
alvarleg áhrif á heilsuna.
Eðlileg aftur á bak
Eitt mál hefur vakið sérstaklega mik-
inn óhug. Desiree Jennings, 26 ára
klappstýra frá Virginíu í Bandaríkj-
unum, var ákaflega heilsuhraust
áður en líf hennar breyttist á dram-
atískan hátt 23. ágúst síðastliðinn. Þá
fékk hún bóluefni gegn árstíðabund-
inni inflúensu. Tíu dögum seinna
fékk hún flensu og eftir það hrakaði
henni mikið. Hún féll títt í yfirlið og
þurfti að leggjast tvisvar inn á sjúkra-
hús.
Desiree var í sjónvarpsviðtali við
Inside Edition fyrir stuttu sem vakti
óskipta athygli vestan hafs. Desiree á
nú í erfiðleikum með að tala, borða
og ganga. Hún getur ekki gengið án
þess að kippast við í sífellu nema þeg-
ar hún gengur aftur á bak - þá getur
hún gengið eðlilega. Hún getur líka
hlaupið eðlilega og það merkilega er
að þegar hún hleypur getur hún tal-
að eðlilega. Læknar hafa greint hana
með sjaldgæfan taugasjúkdóm sem
kallast dystonia og halda að hann
sé bein afleiðing flensusprautunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá banda-
ríska heilbrigðisráðuneytinu var
bóluefnið sem Desiree fékk ekki gall-
að.
Margir bloggarar og fréttamiðlar
hafa skrifað um mál Desiree og sum-
ir halda því fram að það sé eitt stórt
plat. Er því haldið fram á nokkrum
síðum að ötulir andstæðingar bólu-
setninga standi á bak við fréttina.
Komst varla á salernið
Í lok október var búið að tilkynna um
110 tilvik í Svíþjóð þar sem aukaverk-
anir svínaflensusprautunnar höfðu
valdið fólki veikindum. Þá höfðu
um sex hundruð þúsund Svíar verið
bólusettir. Algengast er að fólk hafi
fundið fyrir hita og flensueinkenn-
um. Þó eru nokkrar undantekningar.
Lotta Lindström, 49 ára, fékk mjög
hvimleiðar aukaverkanir.
„Allur líkami minn hristist. Ég gat
ekki einu sinni haldið á vatnsglasi,“
segir Lotta í samtali við sænska blað-
ið Ekspressen. Henni leið svona í
rúma viku og er hún alls ekki viss
hvort hún vilji láta bólusetja sig fyrir
árstíðabundnu inflúensunni á næsta
ári.
Maria Strindlund, 27 ára, fékk
mjög háan hita eftir svínaflensu-
sprautuna og þurfti að leggjast inn
á sjúkrahús í þrjá daga samkvæmt
Ekspressen. Nokkrum tímum eft-
ir bólusetninguna byrjaði henni að
líða illa.
„Mér var mjög illt í handleggnum
og gat ekki lyft honum. Ég skalf og
mér var mjög kalt. Ég stóð lengi und-
ir sturtunni til að ná í mig hita. Ég hef
fengið bólusetningu áður og aldrei
fundið fyrir neinu,“ segir Maria.
Jennely Ottosson, 26 ára, var frísk
þegar hún fékk bóluefnið en daginn
eftir var hún komin með 39 stiga hita
og gat varla gengið.
„Ég gat varla gengið fimm metra
til að komast á salernið.“
Tveir látnir
Heilbrigðisyfirvöld í Kína gáfu út
yfirlýsingu 13. nóvember um að
tvær manneskjur, sem höfðu feng-
ið bóluefni gegn svínaflensu, hefðu
dáið. Fólkið lést aðeins nokkrum
klukkustundum eftir bólusetningu.
Bólusetningar hófust í september í
Kína og þegar yfirlýsingin var send
út höfðu tólf milljónir Kínverja
fengið svínaflensusprautu.
Bráðabirgðakrufning sýndi að
önnur manneskjan sem lést hafði
fengið hjartaáfall á meðan hún
spilaði körfubolta. Talsmaður heil-
brigðisráðuneytisins sagði það
ekki tengjast bóluefninu. Engar
upplýsingar hafa verið gefnar upp
um andlát hinnar manneskjunnar.
Í lok október sýndi könn-
un í dagblaðinu China Daily að
54 prósent Kínverja ætluðu ekki
að láta bólusetja sig gegn svína-
flensu vegna ótta við aukaverkan-
ir. Rúmlega tólf hundruð manns
hafa kvartað yfir aukaverkunum
sem eru allt frá aumum handleggj-
um, útbrotum og höfuðverkjum til
skyndilegs falls á blóðþrýstingi.
Kínversk yfirvöld stefna á að
bólusetja 65 milljónir manns, eða
fimm prósent þjóðarinnar, fyrir lok
árs.
Mál klappstýrunnar Desiree Jennings hef-
ur vakið sérstaklega mikla athygli. Eftir
bólusetningu getur hún ekki gengið eðlilega
og er haldin sjaldgæfum taugasjúkdómi.
Getur bara
gengið
aftur á bak
„Allur líkami minn
hristist. Ég gat ekki einu
sinni haldið á vatns-
glasi.“
lilJa KaTrín GunnarsDóTTir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Dramatísk breyting Tíu dögum
eftir bólusetningu fékk Desiree
flensu og í dag á hún í erfiðleikum
með að ganga, tala og borða.
Ef fjögur þúsund þungaðar konur
verða bólusettar hér á landi á næstu
vikum má búast við að fósturlát
verði hjá einni eða tveimur konum á
fyrsta sólarhring eftir bólusetningu.
Á fyrstu vikunni eftir bólusetningu
má búast við fósturláti hjá um ellefu
konum og um 67 konum á sex vikna
tímabili eftir bólusetningu þó að
ekkert orsakasamband sé við bólu-
setninguna sjálfa.
Þetta kemur fram í upplýsing-
um frá Landlæknisembættinu sem
byggðar eru á tölum frá Bretlandi.
Þar er talið að tólf prósent af öllum
þungunum endi með fósturláti.
Meðal þess sem andstæðingar
bólusetninga hafa haldið fram að
undanförnu er að þunguðum kon-
um sé ekki óhætt að fara í bólusetn-
ingu gegn svínaflensunni vegna
hættu á fósturláti. Staðreyndin er
hins vegar sú að engin tengsl hafa
fundist þarna á milli. Engu að síður
eiga fósturlát sér áfram stað, óháð
bólusetningunum.
Vægar aukaverkanir
Áætlað er að um áramótin hafi um
tvö hundruð þúsund skammtar af
bóluefninu Pandemrix borist hing-
að til lands og í byrjun árs 2010 muni
þrjú hundruð þúsund skammtar
hafa borist. Vægar aukaverkanir eru
algengar eftir bólusetningu, helst
staðbundin bólga eða roði á stungu-
stað en einnig beinverkir og jafnvel
útbrot. Þar sem stór hluti þjóðarinn-
ar verður bólusettur má búast við að
á sama tíma komi upp alvarleg atvik
hjá bólusettum einstaklingum sem
óhjákvæmilega vekja upp spurning-
ar um orsakasamhengi.
Landlæknisembættið hefur af
þessu tilefni gefið út upplýsingar um
væntanlega tíðni fósturláta, bólgu í
sjóntaug, skyndidauða og Guillain
Barre-heilkennis á hverjum tíma.
Guillain Barre-heilkenni
Guillain Barre er sjúkdómur sem
lýsir sér sem tímabundin lömun í
útlimum. Orsakir þessa sjúkdóms
eru ekki að fullu þekktar en sjást
oftast í kjölfar sýkinga og þar á með-
al eftir inflúensu. Guillain Barre var
lýst eftir bólusetningu gegn inflú-
ensu í Bandaríkjunum á árinu 1976
en niðurstöður viðamikilla rann-
sókna á inflúensubólusetning-
um eftir 1976 hafa ekki sýnt fram á
tengsl við Guillain Barre.
Á Íslandi greinast að meðaltali
um þrír til fjórir einstaklingar ár-
lega með Guillain Barre og því má
búast við að einn einstaklingur að
hámarki greinist með sjúkdóminn
á fyrstu sex vikum eftir bólusetn-
ingu hér á landi án þess að það sé
af völdum bólusetningarinnar.
Bólga í sjóntaug
Ýmsir hafa viljað bendla inflúensu-
bólusetningu við bólgu í sjóntaug
sem oft er fyrsta einkenni MS-sjúk-
dómsins. Þótt niðurstöður rann-
sókna hafi sýnt að inflúensubólu-
setning veldur ekki bólgu í sjóntaug
hefur verið bent á að nauðsynlegt
sé að fylgjast með þessum sjúk-
dómi í tengslum við bólusetningar-
átakið sem nú stendur yfir.
Þar sem MS er til muna algeng-
ari hjá konum en körlum er áhætt-
an á bólgu í sjóntaug hér reiknuð
hjá konum. Í Bandaríkjunum er
áætlað að á hverju ári sjáist bólga
í sjóntaug hjá sjö til átta konum af
hverjum hundrað þúsund. Því má
búast við að um ein til tvær konur
greinist hér landi með bólgu í sjón-
taug á fyrstu sex vikum eftir bólu-
setningu þótt engin orsakatengsl
séu við bólusetninguna.
skyndidauði
Með skyndidauða er átt við dauðs-
fall þar sem aðdragandi þess er
innan við ein klukkustund. Fyrri
rannsóknir á bólusetningum gegn
inflúensu hafa ekki sýnt fram á
tengsl við skyndidauða en slíkt get-
ur gerst þegar margir einstaklingar
eru bólusettir á stuttum tíma þótt
engin orsakatengsl séu til staðar.
Í Bretlandi er talið einn einstakl-
ingur á hverja hundrað þúsund
íbúa að hámarki deyi skyndidauða
á hverju ári. Á sex vikna tímabili
eftir bólusetningu má því búast við
að einn einstaklingur deyi skyndi-
dauða hér á landi sem ekki er af
völdum bólusetningarinnar.
Engin tengsl við
bólusetningar
Fósturlát, skyndidauði og bólgur í sjóntaug halda áfram að eiga
sér stað á sama tíma og bólusetningar standa sem hæst hér á
landi. Það þýðir þó ekki að orsakasamband sé þar á milli eins
og efasemdarmenn um bólusetningar vilja halda fram.
Erla HlynsDóTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Forgangshópur Óléttar konur voru í forgangshópi vegna bólusetningar við
svínaflensunni. Ekki hefur verið sýnt fram á orsakasamband milli bólusetningar
og fósturláts.