Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Qupperneq 32
32 viðtal umsjón: ingibjörg dögg kjartansdóttir ingibjorg@dv.is 8. október 2010 föstudagur
Þú mátt ekki láta þennan dóna, / þennan fylliraft og róna / glepja þig. // Þú mátt ekki falla í hans hendur, / oft hann völt-um fótum stendur. // Ó, hlustaðu á mig
/ því ég elska þig, / Heiða Kristín.“ Árið er 2004.
Við erum stödd á kvöldvöku á Akureyri í hring-
ferð Jafningjafræðslunnar. Ungur maður tekur
upp gítar og syngur fyrir eina í hópnum, Heiðu
Kristínu Helgadóttur. Með þeim í för eru vinir og
vinnufélagar og þessi hegðun veldur fólki hug-
arangri, því stendur ekki á sama. Vegna þess að
kærastinn bíður hennar heima. Alla vikuna hef-
ur sá orðrómur verið á kreiki að hann sé stöðugt
að gera sér dælt við hana. Sumir trúa þessu ekki
en aðrir benda réttilega á að andrúmsloftið sé
greinilega spennuþrungið á milli þeirra. Fólk hef-
ur oftar en einu sinni komið að þeim í innilegum
samræðum eða jafnvel rifrildum. En nú er þeim
öllum lokið. Þetta er of pínlegt. Ungi maður-
inn með ljósu lokkana á bak við gítarinn gubbar
út úr sér ástarjátningu yfir allan hópinn. Heiða
Kristín fölnar, sekkur ofan í sófann og segir lágt
svo varla heyrist: „Hættu!“ Hún er þó ekki lengi
að finna röddina og rís upp, gengur ákveðin að
honum, rífur gítarinn af honum og segir hátt og
skýrt: „Ekki hér. Ekki núna. Ekki fyrir framan alla.“
Hann maldar í móinn, segist elska hana og geti
ekki haldið því inni í sér lengur. Það verður upp-
þot. Áhorfendur sitja agndofa og á meðan ein-
hver flissar vandræðalega grætur annar. Heiða
Kristín lítur yfir salinn og skyndilega springa þau
bæði úr hlátri. „Djók!“ Þau taka höndum saman
og hneigja sig. Atriðið er búið. Þetta var þeirra
gjörningur. Hann stóð yfir í viku. Ekkert daður í
raun, engin raunveruleg rifrildi. Þetta var svið-
sett, leikur, einkasýning fyrir vini og vinnufélaga.
„Við vorum að fokka í ykkur!“ segir hún stríðni-
slega.
brandarinn endalausi
Þetta er konan sem byggði Besta flokkinn upp
með Jóni Gnarr. Enda náðu þau strax saman þeg-
ar þau kynntust í janúar og sátu saman og lögðu
á ráðin á Mokka, Jón, Gaukur Úlfarsson og Heiða
Kristín. „Besti flokkurinn var það besta sem ég
gat lent í því þetta er brandari sem tekur aldrei
enda en hefur alvarlegan undirtón. Það sem mér
fannst best er að það vissi enginn hvar hann hafði
okkur. Ísbjörninn var til dæmis ekkert djók, það
var snilldarhugmynd en Disneyland í Vatnsmýr-
inni, það var grín.“
Heiða Kristín vakti athygli sem kosningastjóri
flokksins en saman náðu þau að rífa upp ótrúlegt
fylgi við flokkinn á örfáum mánuðum og end-
uðu með stjórnartaumana í ráðhúsinu í höndum
sér. Síðan hefur hún starfað sem aðstoðarmaður
borgarstjóra, eins og Jón stakk fyrst upp á í febrú-
ar þegar ljóst var að hann myndi sennilega ná
manni inn. Samkomulagið handsöluðu þau svo
fyrir utan húsið hans í maí.
Á sama tíma og þau voru að takast á við nýtt
og viðamikið verkefni, að stýra heilli borg, voru
þau enn að kynnast og reka sig á. Eftir nokkurra
mánaða ævintýri hætti Heiða Kristín sem aðstoð-
armaður borgarstjóra í vikunni.
erfitt fyrir alla
Hún átti erfitt með að átta sig á því hvert henn-
ar hlutverk sem aðstoðarmaður borgarstjóra ætti
nákvæmlega að vera. „Mér fannst það erfitt en
ég held að það hafi líka verið erfitt fyrir hann að
átta sig á hlutverki sínu, fyrir konuna hans, alla
borgarfulltrúana og okkur öll. Við höfum öll ver-
ið að velta því fyrir okkur hvernig við eigum eig-
inlega að gera þetta. Til hvers er ætlast af okkur.
En ég held að það sé að koma. Auðvitað hefði
kannski verið þægilegra að vinna með einhverj-
um sem gæti sagt mér hvað ég á að gera og til
hvers er ætlast af mér en það væri kannski ekki
eins skemmtilegt. Það er krefjandi að vinna með
Jóni en með honum fékk ég tækifæri til þess að
gera alls konar hluti sem enginn annar myndi
samþykkja, eins og að skrifa bréf um skáld sem
situr að ástæðulausu í fangelsi í Kína kortéri áður
en við hittum einhverja Kínverja. Hann er algjör-
lega svellkaldur í svona hlutum.“
féll ekki að honum eins og flís við
rass
Allt frá því að þau kynntust hafa þau unnið mjög
náið saman. „Í svona teymi kemur alltaf eitt-
hvað upp á. Ég féll ekkert að honum eins og flís
við rass. Við vorum bara að kynnast fyrir nokkr-
um mánuðum. En það hefur verið ofsalega dýr-
mæt reynsla að vinna svona náið með honum
og ná að framkvæma allt sem við höfum gert. Að
mörgu leyti erum við mjög lík en við erum líka
mjög ólík. Ég hef mikinn áhuga á tónlist og hlusta
„Ég er feitur
fertugur karl
inni í mér“
Heiða Kristín Helgadóttir var kosningastjóri Besta flokksins og var
að hætta sem aðstoðarmaður Jóns Gnarr. Nú ætlar hún að byggja upp
flokksstarfið og skoða sóknarfærin. Markmiðið er að líta út eins og Claudia
Schiffer en hugsa eins og Karl Rove. Hún segir frá einmanalegri æsku,
erfiðum skilnaði, söknuðinum eftir sonunum og því sem gerðist í raun í innsta
kjarna Besta flokksins þar sem hún var eina konan í karlaklúbbi í opinskáu
viðtali við ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur.
m
yn
d
ir
s
ig
tr
yg
g
u
r
a
ri