Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2010, Page 46
46 útlit umsjón: ingibjörg dögg kjartansdóttir ingibjorg@dv.is 8. október 2010 föstudagur
• Gott til að steikja úr
• Má nota í bakstur
• Gott viðbit á brauðið (smjör)
• Án transfitusýru
• Gott fyrir blóðfituna (kólesteról)
• Færri kaloríur
• Tilvalið í staðinn fyrir olívu olíu
• Án gerviefna eða rotvarnarefna
ROYaL GReen
100% lífræn kókos jurtaolía sem er laus við kókosbragð og kókoslykt
Útsölustaðir:
• Heilsuhúsið Kringlunni, Akureyri, Laugavegi, Lágmúla, Smáratorgi, Keflavík og Selfossi
• Fræið Fjarðarkaupum • Maður lifandi Borgartúni og Hæðarsmára • Heilsuver • Verslunin Vala Sólheimum.
l 1 hylki á dag
l 79% EPA/DHA Omega-3 olía í einu hylki
l Lækkar blóðfituna
l Dregur úr stirðleika í liðum
l Laust við þungamálma og kvikasilfur
l Inniheldur appelsínukjarna sem
hindrar eftirbragð
l Ekkert lýsisbragð
l Engin gerviefni eða rotvarnarefni
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið Kringlunni, Akureyri, Laugavegi ,
Lágmúla, Smáratorgi, Keflavík og Selfossi, Yggdrasill,
Heilsuver og verslunin Vala Sólheimum
• Gott til að steikja úr
• Má nota í bakstur
• Gott viðbit á brauðið ( j r)
• Án transfitusýru
• Gott fyrir blóðfituna ( l t r l)
• Færri kaloríur
• Tilvalið í staðin fyrir lí lí
• Án gerviefna eða rotv r r f a
ROYaL GRe n
100% lífræn kókos jurtaolí sem er laus við kókosbragð og kó l t
Útsölustaðir:
• Heilsuhúsið Kringlun i, Akureyri, Laug vegi, Lágmúla, Smáratorgi, Keflavík og lf ssi
• Fræið Fjarðark upum • Maður lifandi Borgartúni og Hæðarsmára • Heilsuver • Verslunin Vala Sólheimum.
Omega – 3 fitusýra eflir og styrkir heilsu manna
Berglind hefur verið lítið á klakan-um síðustu ár en fyrir fimmtán árum flutti hún til Spánar þar sem hún býr í Madríd. Þangað kom hún
fyrst sem skiptinemi í eitt ár. Síðar starfaði
hún fyrir Atlanta og bjó þá í Sádi-Arabíu,
Manchester og London áður en leiðin lá aft-
ur til Madrid. Þegar hún var aftur komin til
Madrídar ákvað hún að setjast bara að þar
og láta æskudraum sinn rætast. „Mér leið vel
hér og ákvað að athuga hvort ég kæmist inn í
fatahönnunarnám. Ég var alltaf að sauma og
allt frá ellefu, tólf ára aldri ætlaði ég að verða
fatahönnuður. Ég komst inn og í fyrstu sinnti
ég náminu samhliða skrifstofustörfum fyrir
Atlanta. Síðasta árið var það hins vegar orð-
ið of mikið fyrir mig að gera bæði þannig að
ég lét af störfum fyrir Atlanta og einbeitti mér
að skólanum. En ég hef verið rosalega hepp-
in að hafa getað gert það sem ég vil og ferðast
út um allt. Það hefur opnað margar dyr fyrir
mér og mótað mig mjög mikið. Það er líka svo
gaman að fá tækifæri
til þess að vera í Sádi-
Arabíu þar sem allar
konurnar klæðast
svörtum kuflum og
fara svo til Indlands
og sjá konurnar þar
klæðast sterkum lit-
um.“
Ári eftir útskrift
var Begga farin að
kenna fatahönn-
un í þessum sama
listaháskóla. Hún
reyndi fyrir sér sem
fatahönnuður, átti „show room“ og eigið fyrir-
tæki og seldi flíkurnar sínar í nokkrum versl-
unum. „Þá var þetta nú allt frekar óformlegt
og ég kom bara með föt í búðirnar þegar mér
sýndist. Þetta gekk svona upp og ofan. Það er
svolítið erfitt að koma sér á framfæri og sér-
staklega hér á Spáni. Heima er mun auðveld-
ara að vekja athygli á sér og ekki síst núna.
Hér er samkeppnin meiri. Spánverjar eru líka
meira fyrir hefðbundinn fatnað, klassískar
flíkur, og fatnaðurinn minn fellur ekki alveg
undir það. Þannig að mér leiðist það svolít-
ið meira að hanna fyrir Spánverja en Íslend-
inga. Ég er náttúrulega svolítið úr takt heima
en þegar ég var á landinu í sumar fannst mér
eins og Íslendingar hefðu meiri persónuleika.
Hér fara flestir í sama farið en á Íslandi virðast
flestir hafa sinn eigin stíl. Fólk er óhrætt við að
blanda saman og nota vintage-fatnað.“
Hún gafst upp á þessu harki og réð sig
sem fatahönnuð hjá barnafataframleiðanda
og síðar fyrir kven-
fatafyrirtæki sem er
nokkuð útbreitt og
vel þekkt á Spáni.
Á sama tíma hætti
hún að hanna und-
ir eigin merki. Eft-
ir áttatíu ára sögu
lagði þetta fyrirtæki þó upp laupana fyrir
rúmu ári og þá tók Berglind aftur upp þráðinn
og fór að hanna föt fyrir sig. „Ég er að vinna
mikið með kögur. Mér hefur alltaf fundist það
svo fallegt og það er mjög auðvelt að fá það
hér í Madríd. Þannig að ég er með rosalega sítt
kögur á kjólum, flétta það og alls konar. Leik
mér með það. Fjaðrir líka. Þær eru svo inn
núna. Ég gerði til dæmis fjaðravesti fyrir Pop-
Up-tískusýninguna í Hafnarhúsinu. Mér hefði
aldrei dottið í hug að ég gæti selt þessi vesti en
þegar ég tók þátt í næsta Pop-Up-markaði þar
á eftir var mikið spurt um þessi vesti þannig
að ég dró þau fram og seldi slatta á staðnum.
Þetta hefði aldrei virkað hér úti. Það er eins og
og Íslendingar vilji vera einstakir og vilji vera
öðruvísi. Það er miklu skemmtilegra. Ég fæ
meiri útrás þegar ég hef meira frelsi í sköpun-
inni.
Ég er líka mjög mikið í því að blanda prjóni
saman við tjull og fjaðrir. Það kemur mjög
vel út og virkar vel í sölu. Þessi prjónal-
ína varð til í sumar þegar ég var heima á
Íslandi og ferðaðist um landið með for-
eldrum mínum. Mér fannst ég verða að
nýta tímann og tók prjónana með mér.
Síðan sat ég í bílnum og horfði út um
gluggana á þessa náttúrufegurð og fylgd-
ist með dýralífinu á meðan ég prjónaði.
Þannig að ég sótti innblástur í náttúruna
þar sem við vorum hverju sinni. Svona
hefur allt umhverfið áhrif á það hvernig
ég hanna og hvað ég geri. Ég sæki inn-
blástur í fólk sem ég sé úti á götu, það
sem ég sé í sjónvarpinu, hugsanir mínar og
alls konar. Ég var undir miklum áhrifum
frá listamanninum Alfons Mucha þegar ég
byrjaði á sumarlínunni fyrir næsta sumar.
Ég sá sýningu með honum hér í Madríd
og varð alveg heilluð. Í þeirri línu eru létt-
ir kjólar með tjulli mjög áberandi og síðan
er ég að leika mér með andstæður í litavali.“
Fötin hennar er hægt að fá á Pop-Up
en hún er einnig að vinna að því að komast
inn í verslanir hér á landi. „Nú er ég komin
með tvær stelpur sem eru að vinna að sölu-
og markaðsmálum fyrir mig á meðan ég sé
um hönnunina. Ég vona að þetta gangi upp
hér úti líka. Ég held að það ætti alveg að geta
gert það, allavega hér í Madríd og eins í Bar-
selóna, en ég er að flytja þangað og ætla að
fara að kenna aftur við listaháskóla sem er
þar. Þannig að það er allt að gerast. Annars
togar Ísland alltaf meira og meira í mig. Hér
áður fyrr sá ég ekki fram á að geta unnið fyrir
mér sem fatahönnuður á Íslandi. En núna er
svo margt að gerast í þessum bransa heima og
það er þrælskemmtilegt að fylgjast með því.
Það eru margir íslenskir hönnuðir að gera það
gott heima og erlendis.“
Eins og fyrr segir tekur Berglind oft þátt í
Pop-Up en þar að auki er hægt að fá hönnun
hennar á vefnum: http://beggadesign.com.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað
Íslendinga
Berglind Arnardóttir vakti eftirtekt fyrir falleg
prjónavesti, fjaðrakraga og fleiri dásemdir á Pop-up í
sumar en hún hannar fötin undir nafninu Begga design.
Skemmtilegra að hanna fyrir