Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Blaðsíða 62
62 | Fólk 6.–8. maí 2011 Helgarblað
Árlegt Drottningamót ÍR og Olís verður
haldið laugardaginn 7. maí. Drottninga-
mótið er ætlað knattspyrnudrottningum
sem náð hafa 25 ára aldri og spila ekki
með meistaraflokkum félagsliðanna.
Þetta er í fimmta skiptið sem mótið er
haldið og er stefnt á skemmtilegt og
veglegt mót að vanda. Án efa á þátttaka
stjörnuliðsins FC Ógnar eftir að lífga upp
á mótið.
Knattspyrnufélagið FC Ógn er ekkert
venjulegt knattspyrnufélag. Meðlimir eru
allir harðkjarnastelpur, flestar úr leikhúsi
og listageiranum og hafa allar áhuga á
fótbolta. Fyrirliði liðsins, Rakel Garðars-
dóttir Vesturportari með meiru, pressar
hart á liðsmenn sína. „Nú er það bara
allt eða ekkert,“ segir fótboltastýran sem
sættir sig ekki við neitt annað en sigur á
mótinu.
Rakel er sjálf í liðinu og nokkrar lið-
tækar fótboltakempur og skvísur svo sem
Vala Garðarsdóttir, Harpa Ómarsdótt-
ir, Svandís Dóra leikkona og Lilja Nótt
Þórarinsdóttir leikkona eiga eftir að sýna
tilþrif á vellinum. Einn liðsmanna átti
hugmyndina að nafni liðsins, FC Ógn,
og þykir það lýsa ógnarstjórn Rakelar vel
sem bannar alla linkind á vellinum.
Á móti FC Ógn spila stelpur úr
Breiðabliki, Stjörnunni, nokkrar drottn-
ingar úr ÍR, liðið FC Túttur, Tuðrurnar og
Grindavíkurtuðrurnar.
Rakel Garðarsdóttir er í stjörnuliðinu FC Ógn og pressar á liðsmenn sína:
Rakel sýnir
enga linkind
Fyrirliðinn sættir
sig ekki við neitt
annað en sigur
en stjörnuliðið FC
Ógn keppir á móti
sterkum liðum með
fyrrverandi land-
liðskempum. „Nú er það allt eða ekkert“
Atli Freyr Arnarsson fær ekki að vera
aðstoðarmaður átrúnaðargoðs síns, Lady
Gaga. Hann fékk hins vegar langflest með-
mæli í keppni um að verða slíkur. Keppnin
var haldin á vegum veftímarits stjörnunnar,
Lady Gaga Metro, og verðlaunin fólust í því
að vera aðstoðarmaður hennar í einn dag.
Atli hefur sýnt aðdáun sína á poppdívunni
með því að flúra mynd af henni á upphand-
legg sinn og vakti uppátækið mikla athygli.
Flúrið og meðmælin virðast þó ekki hafa
dugað til en um fjórar milljónir kepptu við
Atla um hlutskiptið. Hann þakkaði fyrir
stuðninginn og sagðist stoltur yfir því að
hafa þrátt fyrir allt saman gengið svona vel.
Lady
GaGa
Fær ekki að aðstoða
Giftist 91
árs bílasala
„Áhyggjuleysi skiptir miklu máli og
ef maður hefur nægilegt fé til að
hafa í sig og á, þá er maður á besta
staðnum,“ sagði Anna Mjöll Ólafs-
dóttir söngkona sem greindi frá því
í opinskáu viðtali við DV í febrúar að
hún væri skilin við bassaleikarann
Neil Stubenhaus, eftir stormasamt
samband. Vefmiðilinn TMZ hefur
nú greint frá því að Anna Mjöll hafi
gengið að eiga Cal Worthington,
einn ríkasta bílasala heims, í apríl.
Hann er fæddur árið 1920. Telja verður
líklegt að Anna Mjöll hafi nú nægilegt
fé til að hafa í sig og á. „Ég held að
stundum geti peningarnir orðið meira
böl en hamingja,“ sagði hún við DV í
febrúar.
V
ið Þór Eldon erum búnir
að vinna að þessari plötu í
bráðum þrjú ár,“ segir frétta-
maðurinn Heimir Már Pét-
ursson. Heimir Már myndar tvíeykið
Hnotubrjótana ásamt Þór Eldon, fyrr-
verandi Sykurmola en um er að ræða
fyrstu plötu þeirra.
Heimir Már, sem er bróðir rokk-
arans Rúnars Þórs, er ekki ókunn-
ugur tónlist þó útgáfa hans til þessa
hafi ekki farið hátt. „Ég gaf út geisla-
disk þegar ég ætlaði að verða stjórn-
málamaður árið 1999, við engar und-
irtektir. Platan seldist ekki neitt,“ segir
Heimir Már en textar eftir hann hafa
komið út á plötum Rúnars Þórs. Þá
var Heimir Már á árum áður söngvari
í pönkhljómsveitinni Reflex. Heimir
Már segir að sveitin hafi komist í und-
anúrslit í fyrstu Músíktilraununum.
„Þá var sviðið þar sem fréttastúdíóið
hjá Stöð 2 er núna,“ segir hann.
Leiðin til Kópaskers
Platan sem Hnotubrjótarnir hafa nú
lokið við að gera heitir Leiðin til Kópa-
skers, en Heimir Már á meðal annars
rætur að rekja þangað. Á henni eru
tíu lög. Heimir Már segir að tónlistin
á plötunni samanstandi af erlendum
lögum sem séu í uppáhaldi hjá hon-
um og frumsaminni tónlist sem hann
hafi tekið þátt í að semja þegar hann
var í Reflex. „Þetta er mjög blönduð
tónlist en allir textarnir eru eftir mig,
allir nema Vor í Vaglaskógi eftir Krist-
ján frá Djúpalæk.“
Naut aðstoðar góðra vina
Heimir segir að þeir félagar hafi fengið
á bilinu fimmtán til tuttugu manns
til að spila með sér meðan á tökum
hafi stóð. „Þetta ferli hefur fyrir mig
aðallega verið staðfesting á því hvað
ég á marga og góða vini,“ seg-
ir Heimir Már sem bætir við að
hann verði fimmtugur á næsta
ári. Hann sé stálheppinn að eiga
Þór Eldon að vini, sem nenni að
hanga með sér í þrjú ár við plötu-
gerð. „En ég á fleiri góða vini, til
dæmis Vilberg Viggósson sem
er til í að spila fyrir mig á besta
píanó í heimi. Ég á að minnsta
kosti fjóra góða bassaleikara fyrir
vini, trommuleikara og gítarleik-
ara. Ég á vini úti um allar tær og
trissur sem eru til í að hjálpa mér
vegna vináttu, ekki vegna peninga
eða einhvers annars,“ segir Heimir
Már. Hann tekur líka fram að bróð-
ir sinn, Rúnar Þór, hafi verið ráð-
gjafi sinn númer eitt, tvö og þrjú;
sér í lagi hvað sönginn varði. Hann
sé honum þakklátur.
Kemur út í júní
Heimir Már segist aðspurður ánægð-
ur með afraksturinn en bíður nú eft-
ir því að Smekkleysa standi við sinn
hluta samningsins og komi plötunni
í búðir. Hann vonist til að það gerist
þann 9. júní, á afmælisdegi móður
sinnar heitinnar. „Það verður að veru-
leika ef allir standa sig,“ segir hann.
Heimir Már segir að hann hafi
þegar fengið góð meðmæli með plöt-
unni. „Ég sat í gærkvöldi með Diddu
[Jónsdóttur] skáldkonu og Magnúsi
Þór [Megasi], heima hjá Diddu, þar
sem við hlustuðum allt kvöldið á síð-
ustu drögin að plötunni. Þegar við
vorum búin að því stóð Megas upp og
sagði: Ég held að það sé ekki hægt að
gera neitt í þessu.“ Það verða að þykja
góð meðmæli. baldur@dv.is
Frétta-
maður
GeFur út
plötu
n Heimir Már Pétursson er annar helmingur tvíeykisins Hnotubrjótanna
n Hefur unnið að plötu í þrjú ár n Syngur og semur textana sjálfur
n Platan Leiðin til Kópaskers, kemur út 9. júní „ef allir standa sig“„Þetta ferli hefur
fyrir mig aðal-
lega verið staðfesting á
því hvað ég á marga og
góða vini.
Hnotubrjót-
arnir Heimir Már
og Þór hafa lengi
unnið saman að
plötunni. MyNd ÚR
SAFNi HNotubRjÓtANNA
Framhliðin Leiðin
til Kópaskers er fyrsta
plata Hnotubrjótanna.
Söng ungur í pönkhljómsveit Heimir
Már samdi texta við öll lögin á plötunni
nema eitt. MyNd ÚR SAFNi HNotubRjÓtANNA