Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 16.–18. mars 2012 Helgarblað
Pressan bað DV afsökunar
n Bendluðu ritstjóra blaðsins við kynferðisbrot
V
efmiðillinn Pressan baðst á
fimmtudagskvöldið afsökun-
ar og fjarlægði frétt að beiðni
lögmanns og ritstjóra DV. Vef-
miðillinn Pressan birti á fimmtudag-
inn frétt, þar sem sagði í fyrirsögn að
ritstjórar DV væru flæktir í kynferð-
isbrot. Með fréttinni var birt mynd
af öðrum ritstjóra DV. Þegar nánar
var að gáð reyndist um falska ásök-
un að ræða. Fréttin byggði á tilvitn-
un í dæmi sem Vilhjálmur Hans Vil-
hjálmsson lögmaður setti upp í grein
í Fréttablaðinu.
Í yfirlýsingu sem ritstjórar DV
sendu frá sér síðdegis á fimmtudag
kom fram að þeir sem störfuðu á
fjölmiðlum væru viðbúnir óvæginni
gagnrýni „… en það hefur ekki ver-
ið gefið skotleyfi til að ráðast að fjöl-
miðlafólki með uppdiktuðum ásök-
unum um aðild að kynferðisbrotum.“
Lögmaður DV fór fyrir hönd
blaðsins fram á að Pressan fjarlægði
fréttina og að DV yrði beðið afsökun-
ar. Pressan varð um kvöldmatar leytið
við þeirri beiðni. Á vef þeirra kem-
ur fram: „Að því fram komnu hefur
Pressan ákveðið að verða við ósk lög-
mannsins um að fjarlægja fréttina,
biðjast afsökunar á framsetningu
fyrirsagnarinnar og jafnframt birta
yfirlýsingu blaðsins. DV er hér með
beðið afsökunar á framsetningunni.
Fréttin hefur verið fjarlægð.“
H
jörtur Magni Jóhannsson,
prestur í Fríkirkjunni, fær
árangurstengdar bónus-
greiðslur fyrir hvern nýj-
an meðlim með skráir sig í
söfnuðinn, samkvæmt heimildum
DV. Mun þetta vera ákvæði í ráðning-
arsamningi hans og bætast bónus-
greiðslurnar ofan á föst laun. Heim-
ildirnar herma að um sé að ræða 1,5
til 2 milljónir króna á ári. Samkvæmt
skatta- og útsvarsskrá árið 2010 var
Hjörtur Magni með tæpar 800 þús-
und krónur í mánaðarlaun.
Heimildarmenn DV höfðu orð á
því að hann ætti það til að seilast ansi
langt til þess að skrá fólk í söfnuðinn.
Hann byði til að mynda brúðhjónum
upp á hjónavígslur án endurgjalds,
gegn því að þau skráðu sig í söfnuð-
inn. Þá hefði hann einnig tekið upp
á því í erfidrykkjum að bjóða fólki að
skrá sig í Fríkirkjuna.
Meirihlutinn gekk af fundi
DV hefur síðustu daga fjallað um log-
andi deilur innan Fríkirkjunnar en
meirihluti safnaðarráðsins, fjórir full-
trúar af sjö, gengu af fundi í síðustu
viku og sögðu sig úr ráðinu vegna „…
óásættanlegrar framgöngu Hjartar
Magna Jóhannssonar í mörgum mál-
um, bæði gagnvart starfsfólki safnað-
arins og okkur í safnaðarráðinu í lang-
an tíma,“ að því er segir í tilkynningu
frá fulltrúunum.
Mun hafa verið reynt til þrautar að
ná sáttum við Hjört Magna, án árang-
urs. Fulltrúarnir sáu því ekki annan
kost í stöðunni en að segja sig frá störf-
um. Höfðu þeir allir starfað sem sjálf-
boðaliðar við Fríkirkjuna í 7 til 8 ár.
Samkvæmt heimildum DV var
það kornið sem fyllti mælinn hjá
safnaðarráðinu að Hjörtur Magni
vildi losna við Bryndísi Valbjarnar-
dóttur, sem einnig starfar sem
prestur í Fríkrikjunni, úr söfnuðnum.
Hann einn hefur þó ekki völd til að
segja henni upp störfum heldur þarf
safnaðarráðið að samþykkja það.
Beitt andlegu ofbeldi
Á miðvikudag lýsti Ása Björk Ólafs-
dóttir, starfandi sóknarprestur á Ír-
landi, því hvernig Hjörtur Magni
hrakti hana burt úr starfi prests við
Fríkirkjuna árið 2008. Hún segir
hann hafa beitt sig andlegu ofbeldi
og lagt í einelti.
DV hefur rætt við fjölda einstak-
linga síðustu daga, bæði fyrrverandi
starfsfólk og sjálfboðaliða við Frí-
kirkjuna, og eru frásagnir flestra af
hegðun Hjartar Magna á sama veg.
Hann sé eins og „kóngur í ríki sínu“,
treysti engum, sé valdasjúkur og
njóti þess að baða sig í athygli. Yfir
tugur einstaklinga hefur hrakist úr
störfum fyrir kirkjuna á síðustu árum
vegna framkomu hans.
Eins og í „sértrúarsöfnuði“
Hjörtur Magni kemur mjög vel fyrir
út á við og flestir eru sammála um að
hann sé góður prestur og vel liðinn í
söfnuðnum. „Hann er bara kominn
með mikilmennskubrjálæði eftir öll
þessi ár þarna. Vill stjórna öllu og þar
með talið peningunum sem stjórnin
ber ábyrgð á,“ segir fyrrverandi með-
limur í safnaðarráði Fríkirkjunnar,
sem ekki vill koma fram undir nafni.
Heimildir herma að ástandið síð-
astliðin 10 ár hafi verið eins og í „sér-
trúarsöfnuði“.
Ekki náðist í Hjört Magna við gerð
fréttarinnar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
n Fær um 1,5 til 2 milljónir á ári ofan á föst laun
Fær bónus-
greiðslur fyrir
nýja meðlimi
„Hann er bara
kominn með
mikilmennskubrjálæði
eftir öll þessi ár þarna
Bónusgreiðslur Samkvæmt
heimildum DV er kveðið á um það í
ráðningarsamningi Hjartar Magna
að hann fái bónusgreiðslu fyrir
hvern nýjan meðlim sem skráir sig
í söfnuðinn.
Lögregla kom
smyrli til bjargar
Lögreglan kom smyrli til hjálpar
fyrr í vikunni en sá fannst skammt
frá Elliðavatnsvegi í Garðabæ, að
því er fram kemur á vef lögregl-
unnar.
Fuglinn gat ekki flogið og því
var hann færður í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn til aðhlynningar.
Ekki er ljóst hvort um karl- eða
kvenfugl er að ræða enda sést það
víst ekki svo glöggt, að sögn lög-
reglu, sem segir óvíst hvort smyr-
illinn sé vængbrotinn en reynist
það raunin eru batahorfur litlar.
Fær bætur
vegna kals
Karlmaður sem starfaði við lönd-
un á frosnum fiski og missti hluta
þriggja fingra þegar hendur hans
kól fær bætur vegna þess líkams-
tjóns sem hann varð fyrir sam-
kvæmt dómi Hæstaréttar.
Maðurinn sagði að verkstjóri
hans hefði skipað honum að halda
áfram að vinna þrátt fyrir að hann
fyndi fyrir miklum verkjum í fingr-
um. Mun hann hafa unnið í tólf
tíma í tuttugu og fimm stiga frosti.
Dómur Hæstaréttar staðfestir
ábyrgð vinnuveitanda á því lík-
amstjóni sem maðurinn varð fyrir.
Þar sem starfsmaðurinn slasast
við vinnu sína er ábyrgðin vinnu-
veitandans, því rekja má atvikið
til athafnaleysi eða saknæmrar
athafnar vinnuveitanda, eins og
segir í dómnum. Kal var í þremur
fingrum vinstri handar og tveimur
fingrum á hægri hönd mannsins.
Þá þurfti að fjarlægja hluta af báð-
um löngutöngum og taka af beini
fjærkjúku beggja baugfingra.
Hæstiréttur mat það svo að
verkstjórn í þessu tilviki hefði
verið áfátt og að maðurinn hafi
ekki fengið leiðbeiningar um það
hvernig hann ætti að bera sig að
við vinnu í þessum mikla kulda.
Fjarlægðu fréttina Björn Ingi Hrafnsson á Pressuna.