Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 22
„Átti ekki að lifa þetta af“
22 Fréttir 16.–18. mars 2012 Helgarblað
A
tvikalýsing hinnar alvar-
legu líkamsárásar sem átti
sér stað á heimili konu
aðfaranótt 22. desember
varpar ljósi á grimman
veruleika undirheima Reykjavíkur.
Fjórir einstaklingar sem tengjast
Hells Angels sitja í gæsluvarðhaldi
vegna málsins, þar á meðal Einar
„Boom“ Marteinsson, forseti Hells
Angels á Ísland.
Árásin var tilkynnt lögreglu að-
faranótt 22. desember síðastliðinn
en tilkynnt var um slagsmál í til-
teknu húsi í Hafnarfirði. Fram kom
að einn aðili væri meðvitundarlaus.
Þegar lögreglumenn komu á stað-
inn sáu þeir konuna liggja með-
vitundarlausa á gólfinu. Árásin var
hrottaleg og aðkoman í íbúðinni
var ljót. Blóð og hárlokkar úr kon-
unni voru á víð og dreif um íbúð-
ina. Fórnarlambið lýsti því fyrir lög-
reglu að þrír aðilar hefðu ruðst inn
á heimili hennar og ýtt vini hennar
sem var gestkomandi út úr íbúðinni
og læst.
Ætluðu að klippa
af henni fingur
Í skýrslutöku skömmu eftir árás-
ina, þegar konan lá enn á sjúkra-
húsi, greindi hún frá því að þrír ein-
staklingar hefðu ráðist á hana með
höggum og spörkum. Einn, þeirra
hafi strax kýlt hana hnefahöggi með
þeim afleiðingum að hún rotaðist
næstum því. „Jón sló mig nánast
strax í rot og Andrea sparkaði ítrek-
að í mig þegar ég lá á gólfinu.“
Þegar hún rankaði við sér eftir
eitt höggið hafi Andrea verið með
litlar garðklippur og gert sig líklega
til að klippa af henni fingurinn, en
hún hafi náð að forðast það.
Beitt kynferðislegu ofbeldi
Því næst hafi grímuklæddur maður
stungið hönd sinni inn fyrir buxur
og nærbuxur og stungið fingrum
inn í leggöng og endaþarm hennar
og kreist fingurna saman. Hann
hafi þá hvíslað að henni: „Ég er ekki
jafn góður strákur og þú hélst að ég
væri,“ og spurt hana hvort hún vildi
að hann klippti á milli endaþarms
og legganga. Á meðan þetta gekk á
hafi Andrea ítrekað sparkað í höfuð
hennar. Síðan hafi hann rifið niður
buxurnar og þá hafi hún misst þvag
af hræðslu. Þá hafi hann togað bux-
urnar aftur upp. Hún sagði að þau
hefðu pyntað sig og meitt og skorið
hana hér og þar um líkamann.
Andrea hafi sagt: „Þú gerir þér enga
grein fyrir hvað við erum stór fjöl-
skylda.“
Íhugaði sjálfsvíg
Fórnarlambið segir ástæðu árásar-
innar tengjast deilum milli sín og
Andreu og símtali við Einar „Boom“
en hann hafi hótað henni því fé-
lagar í Hells Angels myndu vinna
henni mein. Hún sagðist mjög
hrædd um líf sitt. „Ég geri mér grein
fyrir að ég á ekki von a góðu þegar
þessu er lokið. Það er búið að koma
skilaboðum til fjölskyldu minnar
um að enginn sé óhultur vegna þess
hvernig ég sé að vinna að mínum
málum.“ Hún segir líf sitt vera í rúst
eftir árásina og hún geti ekki treyst
neinum. Fram kemur í skýrslu að
brotist hafi verið inn á heimili henn-
ar og allt hafi verið eyðilagt. Hún
gæti ekki verið með dóttur sinni
og öryggi hennar væri ógnað. Hún
sagði við skýrslutöku, með ekka, að
hún gæti ekki umgengist dóttur sína
lengur. Hún hefði misst takt við líf
sitt og árásarfólkið hefði valdið eins
miklum skaða og hægt væri. Hún
þyrfti að vera í felum og gæti eng-
um treyst. Hún ætti þann eina kost
að vera í felum. Hún hefði íhugað
sjálfsvíg og meðal annars skorið á
vinstri úlnlið í þeim tilgangi.
„Átti ekki að lifa þetta af“
Konan segist ekki vera í nokkrum
vafa um að árásarmennirnir hafi
ætlað að ráða henni bana. „Þau
tóku húslyklana af mér og síma. Það
þarf að læsa með lykli þegar farið er
út. Þau læstu mig inni í íbúðinni. Ég
man það ekki en vinur minn sagðist
hafa sparkað í hurðina og fleira og
ég hafi síðan skriðið að hurðinni og
opnað fyrir honum en ég man þetta
ekki. Þau tóku síma og allt frá mér
svo það var ekki hægt að hringja á
hjálp. Þannig að ég átti örugglega
ekki að lifa þetta af.“ Hún segist ekki
hafa þorað af sjúkrahúsinu, þar sem
hún taldi sig vera í lífshættu. Því
hafi hún óskað eftir því að lögregl-
an tryggði öryggi hennar. Hún væri
verulega hrædd um líf sitt.
Svo virðist sem hræðsla kon-
unnar um líf sitt sé rökrétt því lög-
reglu bárust upplýsingar stuttu eftir
árásina um að ráða ætti henni bana
henni. Þetta var þegar hún lá enn á
slysadeild. Því var sendur lögreglu-
þjónn á sjúkrahúsið til að gæta ör-
yggis hennar.
Þekkti hana lítillega
Eins og fram hefur komið er Einar
„Boom“ Marteinsson einn þeirra
sem situr í gæsluvarðhaldi vegna
málsins. Lögreglan telur sig hafa
rökstuddan grun um að hann hafi
fyrirskipað árásina á konuna. Ein-
ar neitaði alfarið sök í óformlegri
skýrslutöku hjá lögreglu og segist
ekki hafa vitað til þess að ráðast
ætti á konuna, sem hann kannaðist
aðeins lítillega við en þekkti ekki
persónulega.
Hann segist hafa blandast inn
í málið þegar fórnarlambið hafi
hringt til hans eina nóttina. Hann
hafi vitað hver hún er því hún hafði
verið besta vinkona Andreu en
hann hafi sjálfur ekkert þekkt hana.
Hann sagðist hafa sagt við hana að
það væri best fyrir hana að skila
símanum til Andreu.
Segir lögreglu ekki
kæra sig um sannleikann
Síðar í opinberri skýrslutöku hjá
lögreglu neitaði Einar að tjá sig um
málið en gaf þó út munnlega yfir-
lýsingu. „Eftir að ég var tekinn í yfir-
heyrslu þá gaf ég skýrslu sem var í
vídeó tekin af ykkur, fyrsta skýrsla.
Þar svaraði ég öllum spurningum
neitandi. Ég kaus að tjá mig ekki um
neitt sem þið spurðuð mig. Niður-
staðan úr því var að þið sögðuð að
hér með væri ég handtekinn og á
leið í gæsluvarðhald. Þá ákvað ég,
fyrst ég kom þessu máli ekkert við,
að gefa skýrslu sem að snéri að
minni hlið þessa máls. Ég ákvað að
segja sannleikann og hann skilaði
sér í því að ég var settur í gæslu-
varðhald. Þannig þið virðist ekki,
hvorki þið né rannsóknarlögreglu-
menn né yfirboðarar ykkar kæra sig
um að heyra sannleikann og ætla
ég því ekki að tjá mig um þetta mál.“
Skýrslutöku var á endanum hætt
vegna þess að Einar neitaði alfarið
að tjá sig um málið.
„Full on revenge“
Andrea Kristín Unnarsdóttir er
ákærð fyrir sinn þátt í árásinni en
hún og fórnarlambið voru eitt sinn
nánar vinkonur. Svo virðist sem þær
hafi sakað hvor aðra á víxl um að
hafa stolið hlutum og fjármunum
frá hvor annarri.
Lögregla hefur í höndum sms-
skilaboð og Facebook-samskipti á
milli Andreu og annarra sem tengj-
ast árásinni þar sem hún meðal
annars segir að hún ætli að rústa
fórnarlambinu og að þetta verði
„full on revenge.“
Þegar lögregla spurði hana hvað
hún meinti með „full on revenge“
sagði hún: „Æ, þetta var bara eitt-
hvað sem ég sagði.“ Síðar við aðra
skýrslutöku, spurði lögreglan hana
út í Facebook-samtal við aðila sem
tengist árásinni þar sem fram kom
að Einar „Boom“ kæmi væntanlega
með til fórnarlambsins. Fórnar-
lambið ætti hins vegar ekki að vita
af því. Um þetta atriði sagði hún við
lögreglu: „Þetta var bara lygi. Ég var
búin að hugsa um allskonar mögu-
leika og Einar Boom ætlaði aldrei
með okkur.“ Hún sagði að hún hefði
vonað að viðmælandinn læki því
til fórnarlambsins. Það myndi hafa
þær afleiðingar að fórnarlambið
skilaði henni síma og öðrum mun-
um sem það hafði í fórum sínum. Í
símanum hefðu meðal annars verið
viðkvæmar myndir af sér. Andr-
ea vill meina að fórnarlambið hefði
hótað að setja myndirnar á inter-
netið.
Ekki eins slæm og
hún virðist vera
Þegar Andrea hafði setið í gæslu-
varðhaldi í einhvern tíma óskaði
hún sjálf eftir skýrslutöku hjá lög-
reglu og var yfirheyrð á Litla-Hrauni
þar sem hún sat í einangrun. „Sko.
Það sem ég vildi, ég vil vera eins
einlæg og ég mögulega get. [Fórn-
arlambið] er að reyna gera miklu
meira mál úr þessu en mér finnst
vera. Fyrir það fyrsta þá er orð-
sporið sem fer af mér langt frá því
að vera rétt. Þetta orðspor finnst
mér vera mitt öryggi og barnanna
minna, það er að ég sé innan um
þessa MC stráka og svona. Mér
finnst þetta auka öryggi heimilis
míns og barnanna minna. Ég er ekki
eins slæm og ég lít út fyrir að vera.
Ég tengist ekki neinni skipulagðri
glæpastarfsemi. Ég vil ekki að fleiri
n Lögregluskýrslur lýsa hrottafenginni árás í Hafnarfirði í desember
Atburðarásin
Lögreglan telur að atburðarásin hafi
verið á þessa leið á tímabilinu frá
klukkan 02.25 til 02.40 um nótt-
ina. Áréttað skal að svona telur lög-
reglan að atburðarásin hafi verið, en
atburðarásin er ósönnuð.
01.53 Andrea, Jón og Elías eru
heima hjá Einari Inga Marteinssyni.
02.03 Komin á N1 í Lækjargötu.
Þau stoppa þar stutt áður en þau fara
í Hafnarfjörð til að sækja Óttar.
02.18 Eru að sækja Óttar, sam-
kvæmt símagögnum, og fara síðan
yfir á Einivelli. Óttar fer fyrstur inn í
íbúðina en hin tvö bíða úti í bíl í 1–2
mínútur áður en þau fara inn.
02.25 Fara inn í íbúðina.
Eftir árásina fara þau út í bíl og bíða
aðeins eftir Óttari sem kom ekki út.
Líklega líða tvær mínútur áður en þau
fara af stað frá Völlunum.
02.42 Árásin yfirstaðin. Jón og
Óttar eiga í símasamskiptum. Talin
leggja af stað frá heimili fórnarlambs-
ins.
02.46 Óttar hringir í Jón sem var
staddur í miðbæ Hafnarfjarðar. Lög-
regla telur því ljóst að þau voru farin
frá heimili fórnarlambsins en nokkrar
mínútur tekur að aka í miðbæ Hafnar-
fjarðar.
02:50 Óttar og Jón hringjast
reglulega á, því Óttar var skilinn eftir
á vettvangi, en hin þrjú fóru á heimili
annars manns.
02.57 Jón og Andrea koma aftur
á Velli, hringja í Óttar og sækja hann
að nærliggjandi húsi. Þau keyra hann í
annað hús í Hafnarfirði.
03:01 Óttar er kominn að húsinu
í Hafnarfirði.
03.04 Andrea sendir sms þar
sem hún biður móttakandann um
afsaka „snappið“, hún hafi verið full af
adrenalíni en sé á leiðinni til baka.
03.05 Andrea reynir að hringja
í Elías.
03.18 Jón og Andrea stödd í
Kópavogi á heimleið.
Blóð og hár Ummerki um árásina mátti sjá víðs vegar um íbúðina.
Ljót aðkoma Sjúkraflutningamenn hlúa að fórnarlambi árásarinnar.