Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 27
F
ólk ætti að fara varlega í að
hrekkja félaga sína á sam
skiptavefnum Facebook. Breytt
hjúskaparstaða 24 ára móður,
Leanne McNuff, á Facebook,
varð henni að fjörtjóni. Hún leiddi til
þess að Ian Lowe, hermaður og kær
asti hennar, greip til þess örþrifaráðs
að myrða hana köldu blóði. Hjúskap
arstaðan hafði breyst úr „í sambandi“
yfir í „stundar skyndikynni“ (e. sleep
ing around).
Fórnarlamb Facebook-hakkara
Ian stakk kærustu sína Leanne til
bana fyrir framan fjögurra ára son
þeirra í bænum Droylsden í Man
chestersýslu í Englandi á sunnudag
inn. Hann var handtekinn skömmu
eftir verknaðinn en hann hafði ekki
fasta búsetu á heimili þeirra en var
nýkominn til Bretlands eftir að hafa
sinnt herskyldu í Afganistan. Aðeins
klukkustund áður hafði Leanne greint
vinkonu sinni frá því að einhver hefði
komist yfir Facebookaðgang hennar.
Breski vefurinn Daily Mail greinir frá
þessu en Leanne var stungin allmörg
um sinnum. Lífgunartilraunir á leið á
sjúkrahúsið báru engan árangur.
Skrifaði ljóta hluti um hana
„Ég talaði við hana um 50 mínútum
áður en þetta gerðist. Hún var í basli
með Facebook og hringdi í mig til að
fá aðstoð. Hún sagði mér að einhver
hefði skráð sig inn á hennar aðgangi,
breytt lykilorðinu hennar og væri að
skrifa um hana ljóta hluti, sem voru
ekki sannir,“ segir Emma Barlow, 26
ára, besta vinkona McNuff. „Hún var
í uppnámi því það stóð að hún væri
að stunda skyndikynni. Það var ekki
rétt og ég var að reyna að hafa sam
band við Facebook.“ Emma heyrði
svo í fréttum að ung, ónefnd kona
hefði verið stungin til bana í bænum.
Hún segist hafa fengið hnút í mag
ann. „Ég reyndi að hringja í hana en
hún svaraði ekki.“
Bróðir Leanne og móðir, Ryan og
Margaret, komu að henni eftir verkn
aðinn.
Í tilkynningu sem Margaret sendi
frá sér kom fram að Leanne hafi ver
ið elskuð af öllum þeim sem hana
þekktu. Hún hafi verið hreinskil
in og frökk ung kona. „Við erum öll
í áfalli, við erum dofin. Leanne var
hjartagóð, skemmtileg og falleg ung
stúlka. Hún lifði fyrir son sinn, sem
var augasteinn hennar og yndi. Jay
den dáði mömmu sína.“ Emma tók í
sama streng. „Við erum harmi slegin,
sérstaklega fyrir hönd Jayden. Hann
er frábær ungur drengur og hann var
móður sinni allt. Þetta er óbærilegt.“
Var í Basra þegar sonurinn
fæddist
Leanne og Lowe komu fram í fjöl
miðli í bænum í febrúar árið 2008. Þá
var hann kominn heim eftir að hafa
sinnt herskyldu í Írak. Þegar hann
kom heim sá hann son sinn, Jayden í
fyrsta skipti. Í viðtalinu lýsti hann því
hversu miklar áhyggjur hann hafði
af Leanne meðan á fæðingunni stóð.
Hún ól honum son aðeins tíu dögum
efitir að hann fór til Basra. „Ég hafði
séð myndir af honum, áður en ég kom
heim, en það var ótrúleg tilfinning að
sjá hann í fyrsta sinn. Félagar mínir í
hernum vissu að ég var orðinn pabbi
og sýndu mér mikinn skilning.“
Fjölmiðlar hafa þó greint frá því,
eftir voðaverkið, að samband þeirra
hafi verið stirt undanfarin ár og að
þau hafi í það minnsta einu sinni
hætt saman um hríð.
Missti liðsfélaga sinn
Vinir Leanne hafa þó sagt að hún hafi
verið að íhuga að flytja til Catterick,
í NorðurJórvíkurskíri, til að búa nær
kærasta sínum, sem er með herdeild
sinni í Lancaster.
Eins og áður sagði var Ian nýkom
inn heim frá Afganistan þar sem einn
félagi hans í hersveitinni var drep
inn, ásamt fimm öðrum hermönn
um. Vígasveitir hliðhollar talibönum
sátu fyrir herdeildinni.
Erlent 27Helgarblað 16.–18. mars 2012
n Rannsókn á hörmulegu rútuslysi í Sviss í fullum gangi
Vettvangur ódæðisins „Leanne var hjartagóð, skemmtileg og falleg ung stúlka. Hún
lifði fyrir son sinn, sem var augasteinn hennar og yndi. Jayden dáði mömmu sína.“
n Óprúttinn hakkari komst yfir lykilorð og breytti hjúskaparstöðunni
Myrt eftir inn-
rás á facebook
„Ég reyndi að
hringja í hana en
hún svaraði ekki.“
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Með soninn nýfæddan Ian Lowe var í Írak þegar sonurinn fæddist. Hann lýsti því í viðtali við fjölmiðil hve erfitt það hefði verið að geta
ekki verið viðstaddur fæðinguna.
Heimsmet-
hafi ekki
hættur
Ashrita Furman, 57 ára karlmað
ur frá New York, mun á næstu
dögum reyna að bæta eigið
heimsmet í sippi neðansjávar.
Þetta væri vart í frásögur færandi
nema vegna þess að Furman
hefur nánast helgað líf sitt heims
metum og á hvorki fleiri né færri
en 137. Það þarf ekki að koma á
óvart að Furman á heimsmet í
fjölda heimsmeta.
Furman ætlar að freista þess
að sippa 900 sinnum í kafi en til
raunin verður gerð í Brasilíu um
helgina. Meðal heimsmeta sem
Furman á er að hlaupa eina mílu
á tæpum átta mínútum með
mjólkurflösku á höfðinu.
Þarf að deila
milljónavinningi
Verkamaður frá New Jersey í
Bandaríkjunum, Americo Lopes,
þarf að deila 38,5 milljóna dala
lottóvinningi, eða tæplega fimm
milljörðum króna, með vinnufé
lögum sínum. Americo og fimm
samstarfsmenn hans höfðu um
árabil lagt saman í púkk og keypt
lottómiða. Americo tók jafnan
að sér að kaupa miðana en dag
einn ákvað hann fyrirvaralaust að
segja starfi sínu lausu.
Síðar kom í ljós að ástæða
uppsagnarinnar var sú að vinn
ingur kom á einn miðann og
ætlaði Americo að freista þess að
sitja einn að vinningnum. En upp
komast svik um síðir og nú hefur
dómstóll dæmt Americo til að
deila vinningnum.