Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 17
Fréttir 17Helgarblað 16.–18. mars 2012 Samráðshópur en ekki kaffiklúbbur n Saksóknari Alþingis segir ríkisstjórn fullvalda ríkis hljóta að geta gripið til aðgerða Forsætis- ráðuneytið Geir Hilmar Haarde Fer með stjórnskipan Íslands. Forsætis­ ráðherra fer með ráðherranefndir og forystu um verkstjórn innan stjórnarráðs. Forsætisráðherra stjórnar ríkisstjórnar­ fundum samkvæmt stjórnarskrá. „Ráðherrafundi skal halda um nýmæli í lögum og um mikilvæg stjórnarmálefni. Svo skal og ráðherrafund halda, ef ein­ hver ráðherra óskar að bera þar upp mál. Fundunum stjórnar sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis, og nefnist hann forsætisráðherra.“ Þá fer ráðuneytið með almannavarnir. Á árunum 1999 til 2009 heyrði seðlabankinn undir forsætisráðuneytið. Viðskipta- ráðuneytið Björgvin G. Sigurðsson Ráðuneytið varð til árið 1939 og starfaði sem sjálfstætt ráðuneytið allt til ársins 2009 þegar nýstofnað efnahags­ og viðskiptaráðuneyti varð til. Venjan var þó sú að sami ráðherra færi yfir iðnaðarráðu­ neytinu og viðskiptaráðuneytinu. Í ríkis­ stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var þó ákveðið að Björgvin G. Sigurðsson yrði viðskiptaráðherra en Össur Skarp­ héðinsson iðnaðarráðherra. Verkefnasvið ráðuneytisins var til dæmis samkeppnis­ mál, málefni fjármagnsmarkaðarins, banka­ og verðbréfaviðskipti, félagaréttar, samninga­ og kauparéttur, neytendamál og málefni verslunarinnar almennt. Fjármála- ráðuneytið Árni M. Mathiesen Fer með stefnumörkun og langtíma­ áætlun í ríkisfjármálum. Ráðherra er í Forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga. Þá fer ráðu­ neytið með lánamál og lántöku og hefur fjallar um Ríkisaðstoð, ríkisábyrgðir og styrki til einkafyrirtækja. Seðlabankinn Davíð Oddson - Ingimund Friðriks- son - Eiríkur Guðnason (látinn) Sjálfstæð stofnun sem heyrir formlega undir efnahags­ og viðskiptaráðuneytið. Það var þó forsætisráðuneytið sem bankinn féll undir á þeim tíma sem Geir H. Haarde var forsætisráðherra. Seðla­ bankinn fer með stjórn peningamála og hefur þar að meginmarkmiði stöðugleika í verðlagsmálum. Seðlabankinn á enn fremur að sinna varðveita gjaldeyris­ varasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þar á meðal greiðslukerfi í landinu og við útlönd. Seðlabankinn hefur ekki né hafði áður heimild til að grípa með beinum hætti inn í starfsemi banka. Reglur um gjaldeyrishöft, bindi­ skyldu og laust fé sem seðlabankinn setur hefur þó áhrif á bankanna. Fjármála- eftirlitið Jónas Fr. Jónsson Heyrir undir viðskiptaráðuneytið en er þó sjálfstæð stofnun með sjálfstæða tekjustofna. Rekstrarkostnaður FME er greiddur af eftirlitsskyldum aðilum sem eru. viðskiptabankar, sparisjóðir, vátryggingafélög, vátryggingamiðlanir, lánafyrirtæki (fjárfestingarbankar og greiðslukortafyrirtæki), verðbréfafyrir­ tæki, verðbréfamiðlanir, rekstrarfélög verðbréfasjóða og lífeyrissjóðir, auk annarra aðila sem heimild hafa til að taka á móti innlánum. Í greinargerð sam­ ráðshópsins frá árinu 2006 kemur fram að fjármálaeftirlitinu skorti valdheimildir komi til fjármálaáfalls. „Fjármálaeftir­ litið skortir hins vegar eftirlitsheimildir sem nauðsynlegar eru í tengslum við aðgerðir í aðdraganda, upphafi eða úrlausn fjármálakreppu. Þannig hefur Fjármálaeftirlitið ekki skýrar heimildir til að grípa inn í stjórnun fjármálafyrirtækis. Ekki er sérstaklega kveðið á um að Fjár­ málaeftirlitið geti skipt um stjórnendur eða endurskoðendur fjármálafyrirtækis, eða boðað til hluthafafundar, beitt sér þar eða tekið yfir ákvörðunarvald hans,“ segir í greinargerð hópsins. Eftirlitið hefur í dag þessar heimildir en sú breyting er í megindráttum tilkomin vegna setningu neyðarlaganna. Tilgangur hópsins Samráðshópi forsætisráðuneytis, fjár- málaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans um fjármálastöðugleika og viðbúnað var komið á fót 21. febrúar 2006. Til- gangurinn var að formbinda samráð aðilanna með því að leitast við að skerpa hlutverkaskiptingu, hindra tvíverknað og auka gegnsæi. Hópurinn væri vettvangur upplýsinga- og skoðanaskipta, væri ráðgefandi og tæki ekki ákvarðanir um aðgerðir. Aðilar hans fóru allir með hlut- verk og skyldur á málefnasviðum þar sem fjármálastöðugleiki og viðbúnaður vegna hans hafði mikla þýðingu. Með stofnun hópsins fluttust þó engar beinar skyldur yfir til hans sem slíks heldur hvíldu þær áfram á aðilum hans, allt eftir lagalegri stöðu og hlutverki hvers um sig. Bolli Þór Bollason Forsætisráðuneytið Jónas Fr. Jónsson Fjármálaeftirlitið Áslaug Árnadóttir Viðskiptaráðuneytið Ingimundur Friðriksson Seðlabankinn Baldur Guðlaugsson Fjármálaráðuneytið ekki þyrfti að sýna fram á að Geir hefði getað komið í veg fyrir fall bankanna. Geir hefði hins vegar hefði borið skylda til að eiga frum- kvæði að aðgerðum til að minnka bankana. Ákæruliðirnir gegn Geir snúa ekki að því að hann hefði get- að komið í veg fyrir fall bankanna. Geir er þó ákærður fyrir að hafa ekki frumkvæði að aðgerðum til að minnka bankana og hafa ekki hald- ið ríkisstjórnarfundi um mikilvæg málefni þótt kveðið sé á um slíkt í stjórnarskránni. Í ákærunni gegn honum segir að lítið sé fjallað um yfirvofandi háska á vettvangi ríkis- stjórnarinnar á tímabilinu febrúar til október árið 2008. Þá á hann að hafa vanrækt að fullvissa sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Icesave-reikninga Lands- bankans í dótturfyrirtæki og eins og áður sagði ekki hafa gætt þess að starf samráðshópsins skilaði tilætl- uðum árangri. n Nýi uppáhaldsstaðurinn þinn í Reykjavík! Borðapantanir í síma 553 5323 AÐALSTRÆTI 2 - 101 REYKJAVÍK - WWW.RUB23.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.