Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 64
Tilboð
69.400
Hafa menn
engan
mottu-
metnað!
Skartaði mottu
n Íslenskir karlmenn sýna fjöl-
margir stuðning sinn í verki og
skerða ekki yfirvararskegg sitt,
mottuna, í tilefni af Mottumars,
átaki Krabbameinsfélagsins sem
nú stendur yfir. Þetta metnaðar-
fulla átak er nú haldið í þriðja sinn
og stendur yfir allan marsmán-
uð og keppast nú þeir karlmenn
sem geta á annað borð látið sér
vaxa yfirvararskegg við að safna
í þá allra flottustu. Viðtökur síð-
ustu ára voru mjög góðar og virð-
ast þær ekki vera síðri að þessu
sinni. Við vitnaleiðslur í lands-
dómi sáust nokkrir fjölmiðlamenn
skarta slíkum mottum, sem og
nokkrir þjóðþekktir einstakling-
ar. Þar á meðal var viðskipta- og
efnahagsráðherra,
Steingrímur J. Sig-
fússon, sem aug-
ljóslega lætur sitt
ekki eftir liggja og
mætti til vitna-
leiðslunnar með
ágætis
mottu.
Þrjár sjúskaðar
stjörnur
n „Rosa gott hvernig Engilbert syng-
ur Þú og ég yfir klámkynslóðinni
að sulla í sér,“ skrifar tónlistarmað-
urinn og ofurbloggarinn Dr. Gunni á
heimasíðu sína en hann gefur kvik-
myndinni Svartur á leik þar þrjár
stjörnur. Lagið Þú og ég gengur þar
í endurnýjun lífdaga og hefur vakið
mikla athygli. Hann lofar
tónlistina í myndinni og
segir að leikstjóranum
hafi tekist vel upp með
að fanga lok níunda ára-
tugarins. Dr. Gunni gef-
ur myndinni annars
„þrjár sjúskaðar
stjörnur“ og segir
hana vera nokk-
uð góða. Hann
gagnrýnir þó
endi myndar-
innar og segir
hann að mynd-
in sé „óþarf-
lega cheap og
pölpuð í blá-
lokin“.
Góðhjartaður
knattspyrnukappi
n Knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sig-
urðsson, leikmaður Swansea í ensku
úrvalsdeildinni, hefur heldur betur
slegið í gegn að undanförnu. Gylfi
hefur leikið við hvern sinn fingur og
ljóst að stórliðin munu berjast um
þjónustu hans í sumar. Gylfi gefur
þó ekki bara af sér innan vallar því
hann gefur líka af sér utan vall-
ar. Fotbolti.net greinir frá því að
Gylfi hafi ákveðið að gefa áritaða
treyju á uppboð til
styrktar Emmu
Lind Aðalsteins-
dóttur, þriggja
ára, sem greindist
með krabbamein
á dögunum. Allur
ágóðinn af uppboð-
inu mun renna
til hennar.
Hægt er að
bjóða í treyj-
una með því
að senda
tölvupóst á
fotbolti@
fotbolti.net.
H
ann kemur oft og kaupir tíu
happaþrennur,“ segir fyrr-
verandi vaktstjóri á N1 um
Davíð Oddsson, fyrrverandi
seðlabankastjóra og núverandi
ritstjóra á Morgunblaðinu. Hann
vill ekki að nafn hans komi fram.
Aðspurður segist hann þó ekki
vita hvort Davíð hafi fengið stóra
vinninga eða sé að græða eitt-
hvað á þessu. „Hann leysir aldrei
út – kaupir bara og kaupir. Þetta
er örugglega bara eitthvert áhuga-
mál hjá honum,“ segir vaktstjórinn
fyrrverandi.
Starfsmaður Olís-stöðvar í
Vesturbænum, sem DV talaði við,
hafði sömu sögu að segja: „Hann
kom um daginn og keypti fullt af
happaþrennum. Tíu 7-9-13 happa-
þrennur og Víkingalottó.“
„Þetta er ein vinsælasta happa-
þrennan okkar,“ segir Steinunn
Björnsdóttir, rekstrarstjóri Happ-
drættis Háskóla Íslands, um 7-9-13
happaþrennuna. „Það er er hægt
að vinna 7, 9 og 13 milljónir – auk
fjölmargra smærri vinninga.“ Ljóst
er því að til mikils er að vinna.
Eins og áður greinir er Davíð
Oddsson í góðri vinnu og hefur
gegnt valdamiklum stöðum lung-
ann úr merkum starfsferli sínum.
Áður en hann var seðlabankastjóri
sat hann í stóli utanríkisráðhera
en áður forsætisráðherra frá árinu
1991 til ársins 2004 – lengst allra.
Hann ætti því ekki að vera á flæði-
skeri staddur fjárhagslega.
Davíð Oddsson sólginn í lottó
n Fyrrverandi seðlabankastjóri freistar gæfunnar
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 16.–18. mArS 2012 32. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Freistar gæfunnar „Hann leysir
aldrei út – kaupir bara og kaupir,“
segir fyrrverandi vaktstjóri á N1.