Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 33
Viðtal 33Helgarblað 16.–18. mars 2012
„Þá koma ömmur og afar sterk
inn. Þetta er bara spurning um að
forgangsraða. Fjölskyldan og börnin
eru það sem skipta mestu máli og ég
reyni að eyða tíma með þeim þótt við
séum ekkert endilega að gera eitt
hvað sérstakt. Ég vil bara vera til stað
ar fyrir börnin mín því þannig upp
eldi fékk ég sjálf,“ segir hún og bætir
við að hún sé mjög náin foreldrum
sínum. „Ég hringi líklega aðeins of
oft í mömmu á dag. Ennþá – þótt ég
sé komin á þennan aldur,“ segir hún.
Tekur af skarið
Aðspurð um ráð til handa þeim sem
þurfa á sparki að halda til að ná
markmiðum sínum segist hún sjálf
gjarnan stíga reglulega út úr þæg
indarammanum.
„Það er nauðsynlegt að setja sér
markmið og hafa trúa á sér og vilja
gera aðeins meira en það sem er
þægilegt. Það tekur á og skapar fiðr
ildi í magann en er þess virði. Svo er
það alltaf spurningin hverjir þora að
taka af skarið. Ég reyni að hafa kjark
til að framkvæma en fæ mikla sálu
hjálp í leiðinni bæði frá mannin
um og öðrum í fjölskyldunni og það
skiptir miklu máli að fá stuðning. Ég
ber það undir þau öll þegar ég þarf
að taka stórar ákvarðanir,“ segir hún
og bætir við að sjálf sé hún sinn mesti
gagnrýnandi.
„Klárlega. Það kemur varla sú
stund sem ég er ekki að skamm
ast í sjálfri mér yfir að hafa ekki gert
hlutina öðruvísi, sagt þetta en ekki
hitt. Ég held að það sé bara eðlilegt
og bæti mann jafnvel. Ég er svo ný í
þessu fagi og er svo tilbúin að læra af
þeim reynslumeiri.“
Kjaftasögur og klíkuskapur
Edda segist lítið finna fyrir því að
vera orðin þekkt. „Ég er allt of mikið
að flýta mér til að taka eftir slíku og
fjölskyldan heldur mér líka vel niðri
á jörðinni. Lífið er alveg eins og það
var. Við erum líka svo fá á þessu
landi. Það er ekkert pláss fyrir miklar
stjörnur.“
Hún játar að hafa heyrt sögusagn
ir um að Hemmi hafi kippt í spotta
og séð til þess að hún fengi starfið í
Gettu betur. „Ég hef heyrt kjaftasögur
um slíkan klíkuskap og hafði undir
búið mig fyrir slíkt. En það er afar
kjánalegt að halda því fram og það
vita þeir sem þekkja til. Hann frétti
þetta bara eftir á eins og allir aðrir.“
Hvítt hveiti og sykur
Fyrir utan fjölskylduna, ræktina,
námið og sjónvarpsframann hefur
Edda einnig áhuga á bakstri. „Mér
finnst alveg dásamlegt að hafa bök
unarlykt á heimilinu. Þar stangast á
líkamsræktin og eldhúsið. Ég kem
oft úr leikfimi og hendi í köku. Lítið
af öllu er best held ég. Það er hinn
gullni meðalvegur sem gildir og hver
og einn verður að finna sitt jafnvægi.
Þegar ég baka vil ég baka með
hvítu hveiti og sykri en ég ven mig
á að fá mér lítið. Ég vil líka kenna
börnunum að það sé allt í lagi að
fá sér kökusneið á þriðjudegi og að
það þurfi ekki að missa sig í sætind
in á laugardögum. Samt er ég algjör
nammigrís og þarf að vera dugleg að
stilla neyslunni í hóf.
Hugarfarið skiptir svo miklu máli.
Hreyfingin hjálpar okkur að verða
hraust og líða vel og ef við viljum
grennast og styrkjast skiptir mat
aræðið máli en það er hugarfarið og
þetta jafnvægi sem er aðalatriðið,“
segir Edda sem getur ekki hugsað sér
lífið án hreyfingar.
Litlu mikilvægu atriðin
„Líkamsræktarstöðvar eiga ekki við
alla og ég held að fólk verði að finna
sér það sem því finnst skemmtilegt.
Ég reyni að hafa sem mestan fjöl
breytileika í minni kennslu auk þess
sem ég er dugleg að fara út að labba
og í sund með fjölskylduna. Svona
lítil atriði skipta svo miklu máli.
Áður en ég eignaðist börnin mín
hafði ég ekki fundið þetta hugar
far sem skiptir svo miklu máli. Ég
var alltaf í átaki og gleymdi að passa
upp á mataræðið. Eftir að ég varð
mamma fór ég að huga meira að
hollustunni enda erum við víst fyrir
myndir barnanna okkar. Þess vegna
er kannski slæmt að segja frá því að
dóttir mín tilkynnir meira að segja
ókunnugum að mamma hennar sé
algjör nammigrís,“ segir hún hlæj
andi og bætir svo við: „Það er óþarfi
að vera heilagur. Það svindla allir og
við eigum bara að njóta þess án þess
að fá samviskubit.“
Vantar stelpur í Gettu betur
Edda segist vonast til þess að eiga
eftir að eignast fleiri börn. „Núna er
bara hálfleikur – smá hlé – enda er ég
búin að vera lengi í mömmuleik. Mig
langar að klára námið og finna mér
framhaldsnám. Ég hef nægan tíma
ennþá enda bara 25 ára.“
Aðspurð segist hún njóta þess að
vinna með krökkunum í spurninga
þættinum. „Ég hafði mikla aðdáun
á þessum krökkum þegar ég var í
menntaskóla og hef enn í dag. Mér
finnst ekkert svo langt síðan ég sat
þarna sjálf í salnum. Þessir krakkar
eru frábærir og það er ótrúlegt hvað
þeir eru góðir í þessu og leggja mik
ið á sig fyrir keppnina. Ég hef gam
an af því að kynnast þeim og fylgjast
með þeim og finn mikið til með þeim
þegar ég þarf að segja að svar þeirra
hafi verið rangt. Það tekur mikið á,“
segir hún og bætir við að það vanti
fleiri stelpur í liðin.
„Þótt strákarnir séu ágætir eru
svo margar klárar stelpur sem væri
gaman að hafa þarna með. Sjálf fór
ég aldrei í þetta, ég var meira í því að
sjá um skipulagningu og halda inn
tökuprófin. Einhverra hluta vegna
var þetta eitthvað sem stelpur gerðu
ekki. Það eru margar stelpur þarna
úti sem geta þetta en hafa ekki nógu
mikla trú á sjálfum sér og brjóta sig
niður áður en þær mæta. Laufey
[Haraldsdóttir] í liði Kvennaskólans í
fyrra og í ár er hins vegar frábær fyrir
mynd fyrir stelpur.“
Langar að gera allt
Edda var í nemendaráði í mennta
skóla og sat í eitt ár í stúdentaráði í
háskólanum. Hún segist hafa áhuga
á pólitík en segir af og frá að hún
stefni á frama í stjórnmálum.
„Mér finnst málefnalegar um
ræður mjög skemmtilegar en ég hef
ekki sérstaklega gaman af hörkunni
sem pólitíkinni fylgir. Það var gam
an að prófa en þetta umhverfi hent
ar mér ekki. Ég á alltaf mín markmið
og stefni lengra en ég veit ekki hvað
mun koma út úr því. Ég veit hvert
mig langar en tíminn leiðir í ljós hvað
gerist,“ segir hún og bætir við að einn
af hennar göllum sé sá að hún taki of
mikið að sér.
„Þar af leiðandi næ ég ekki að
gera hlutina eins vel og ég gæti. Ég
er almennt fljótfær og á mjög erfitt
með að segja nei. Ég vil ekki missa af
neinu og verð að passa að ég sé alls
staðar að gera allt það sem mig lang
ar að gera. Ég er þó farin að þekkja
betur hvað það er sem ég vil og hvað
það er sem ég er góð í að gera. Ég hef
líka góðan tíma. Það er engin klukka
sem tifar á mér og því þarf ég ekki að
flýta mér um of.“
„Ég get verið mjög
snögg upp en ég
hef lært að fara jafn-
skjótt niður aftur.
Með fjölskyldunni Edda og Halldór Svavar fóru að vera saman þegar Edda var aðeins 16
ára. Þau voru í fjarbúð í fimm ár. Þau eru gift í dag og eiga saman tvö börn.