Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 14
Skerðingar
koma niður
á barneignum
14 Fréttir 16.–18. mars 2012 Helgarblað
Stærð 140x200
100% dúnn
100% bómull
790 grömm
dúnfylling
engin
gerfiefniFermingartilboð
Dúnmjúkar
dúnsængur
áður 33.490 kr
nú 24.990 kr
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
É
g spáði því að þetta myndi ger-
ast í kjölfar þess að fæðingar-
orlofið var skert,“ segir Ingólfur
V. Gíslason, dósent í félags-
fræði við Háskóla Íslands,
um nýjar tölur Hagstofu Íslands
yfir fæðingar árið 2011. Þá fæddust
4.496 börn með lögheimili á Íslandi
sem er nokkur fækkun frá árinu
2010 þegar 4.907 börn fæddust. Ekki
hafa færri börn fæðst á Íslandi frá
árinu 2006 þegar 4.415 börn komu
í heiminn.
Miklar skerðingar
Réttindi foreldra í fæðingarorlofi
hafa tekið miklum breytingum á
undanförnum árum og áratugum.
Ingólfur segir að skerðingin sem
hann vísar til hafi komið í tveim-
ur áföngum, fyrst árið 2008 og svo
við fjárlagagerðina 2009. Þá var sett
þak á greiðslur sem gerir það að
verkum að einstaklingar í fæðingar-
orlofi fá 80 prósent af tekjum sínum
upp að 200 þúsund krónum og 75
prósent af tekjum umfram það að
300 þúsund krónum. Ekki sé hægt
að fá meira en 300 þúsund krónur.
Ingólfur bendir á að í lögum sem
samþykkt voru árið 2000 hafi ekkert
þak verið á greiðslum. „Það skipti
engu máli hvað þú hafðir í tekjur,
þú fékkst 80 prósent af launum,“
segir Ingólfur og bætir við að árið
2004 hafi þak verið sett á sem ein-
ungis fjögur prósent feðra og um
eitt prósent mæðra rákust í. Í dag sé
staðan önnur og verri. „Síðustu töl-
ur frá Fæðingarorlofssjóði sýna að
rétt tæpur helmingur feðra og um
fjórðungur mæðra rekst í þetta þak.
Þannig að þetta er svakalega mik-
il breyting,“ segir Ingólfur og bætir
við að á árunum 2000 til 2008 hafi
einungis þeir allra launahæstu rek-
ist í þak Fæðingarorlofssjóðs.
Óvissuástand
Ingólfur vill þó undirstrika það að
aðeins sé um kenningu að ræða
þar sem fækkun fæðinga hefur ekki
verið skoðuð sérstaklega. „Það er
allavega alveg ljóst að þessi tvö stóru
skref sem hafa verið tekin til að
bæta fæðingarorlofið, annars veg-
ar árið 1986 og svo árið 2000, höfðu
mjög jákvæð áhrif á barneignir Ís-
lendinga. Mér finnst ekki óeðlilegt
að draga þá ályktun að skerðingar
koma niður á barneignum.“ Hann
segir að annar möguleiki sé óvissu-
ástandið í þjóðfélaginu. Fjárhagsleg
staða margra hafi versnað eftir hrun
og þá hiki fólk. Hann setur samt fyr-
irvara við þá kenningu. „Mér finnst
að það hefði þá átt að koma miklu
fyrr fram,“ segir Ingólfur en sem
dæmi fjölgaði fæðingum hrunárið
2008 og aftur árið 2009. „Ég er miklu
hrifnari af hinni skýringunni og ég
held að fólk sé núna farið að átta sig
á þessum breytingum. Jafnvel þó
fólk hafi séð fréttir um breytingar
á lögum um fæðingarorlof þá síast
það ekki inn. Svo koma sögurnar frá
ættingjum og vinum og þá mynd-
ast dýpri skilningur á því hvað þetta
hefur verið djúp og mikil skerðing.“
Í tölum Hagstofunnar kemur
fram að 2.327 drengir hafi fæðst hér
á landi í fyrra en 2.169 stúlkur. Því
fæddust 1.073 drengir á móti hverj-
um 1.000 stúlkum árið 2011. Ár-
gangurinn 2011 er sá 26. stærsti frá
1951.
Skert fæðingarorlof Ingólfur segist
hafa spáð því að fæðingum myndi fækka
eftir að fæðingarorlofið var skert árin 2008
og 2009.
n Fæðingum fækkar n Félagsfræðingur segir skerðingar hafa áhrif
„Þannig að þetta
er svakalega mikil
breyting.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Sleginn með
glasi í ennið
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt rúmlega tvítugan karlmann
í fimm mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir sérstaklega hættu-
lega líkamsárás. Atvikið átti sér
stað á veitingastaðnum Jacobsen í
Austurstræti þann 15. maí 2010 en
maðurinn sló fórnarlamb sitt með
glasi í andlitið þannig að glasið
brotnaði. Þá sló hann fórnarlamb-
ið með krepptum hnefa í maga í
nokkur skipti.
Fórnarlambið hlaut fjölmarga
skurði og rispur hægra megin á
enni og mar þar undir.
Árásarmaðurinn játaði brot sitt
skýlaust fyrir dómi. Honum var
gert að greiða fórnarlambi sínu
250 þúsund krónur í bætur.
Kjaraskerðing
eldri borgara
„Það er búið að afturkalla kjara-
skerðingu ráðherra, þingmanna
og embættismanna en ekki kjara-
skerðingu lífeyrisþega,“ segir
í ályktun kjaranefndar Félags
eldri borgara sem samþykkt var
á þriðjudag. Nefndin krefst þess
að þessi mismunun verði leiðrétt
þegar í stað.
Í ályktuninni segir að ekki verði
séð að ríkisstjórnin sé á þeim bux-
unum að leiðrétta þá miklu kjara-
skerðingu sem aldraðir og öryrkjar
urðu fyrir eftir hrun.
„Kjaranefnd Félags eldri borg-
ara krefst þess að þessi kjara-
skerðing verði leiðrétt strax og
þar á meðal að afturkölluð verði
nú þegar kjaraskerðing aldraðra
og öryrkja frá 1. júlí 2009. Í lögum
um málefni aldraðra segir að aldr-
aðir eigi að njóta jafnréttis á við
aðra þegna þjóðfélagsins,“ segir í
ályktuninni þar sem bent er á að
ráðherrar, þingmenn og embætt-
ismenn hafi endurheimt sín kjör.
Nefndin bendir á að þessi mis-
munun sé brot á ákvæði laga um
málefni aldraðra og krefst leiðrétt-
ingar strax.
4.
09
1
4.
04
9
4.
14
3
4.
23
4
4.
28
0
4.
41
5
4.
56
0
4.
83
5
5.
02
6
4.
90
7
4.
49
6
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
n Eins og hér sést hafa ekki færri börn fæðst á Íslandi frá árinu 2006. Fæðingum fjölgaði nokkuð eftir hrun en þeim hefur aftur fækkað.
HeiMild: HagStofa ÍSlandS
Fjöldi fæðinga eftir árum