Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Blaðsíða 20
11 GLÆPAHÓPAR ÍSLANDS
20 Fréttir 16.–18. mars 2012 Helgarblað
n Glæpahópar skjóta rótum á Íslandi n Lögregla fylgist með 11 hópum n Vélhjólagengi og stuðningsklúbbar keppa við erlenda glæpamenn
L
ögreglan hefur sérstakar
gætur á nokkrum hópum
sem hún telur að tengist
skipulagðri glæpastarfsemi.
Lögreglan gerir greinarmun
á vélhjólasamtökum og vélhjóla-
gengjum, en þau síðarnefndu eru
talin tengjast glæpastarfsemi. Alls
eru taldir vera 89 meðlimir í ís-
lenskum vélhjólagengjum. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur fjölgað
í slíkum samtökum meðal annars
vegna þess að þau bjóða vernd í
undirheimunum. Þannig séu dæmi
um að menn sem skulda háar fjár-
hæðir vegna fíkniefnaskulda í
undirheimunum gangi í slík gengi
til þess að njóta verndar frá hand-
rukkurum annarra gengja.
Heft frelsi
Sú staðreynd að lögreglan rann-
sakar mál þessara gengja ítarlega,
hefur gert þeim erfitt fyrir. Þann-
ig herma heimildir DV að menn
hafi hætt í slíkum gengjum þar
sem stíft eftirlit lögregluyfirvalda
hafi sína ókosti. Þannig geti menn
ekki ferðast um óáreittir, meðlimir
Hells Angels eða Outlaws komast
til dæmis ekki til Bandaríkjanna og
hafa verið stöðvaðir við að reyna
að komast inn í ýmis lönd. Þannig
hafa íslenskir Vítisenglar verið
stöðvaðir í Noregi og norskir Vítis-
englar verið stöðvaðir við komuna
hingað til lands. Í ýmsum ríkjum,
þar sem hryðjuverkalög eru í gildi,
svo sem á Spáni og í Bandaríkj-
unum, geta meðlimir skipulagðra
glæpasamtaka á borð við Hells
Angels og Outlaws verið handtekn-
ir á grundvelli þeirra og vistaðir
ótímabundið í fangelsi.
Glæpasamtökum hefur fjölgað
hratt hér á landi að undanförnu og
nú eru vísbendingar um að sam-
tök á borð við Bandidos og Mon-
gols séu að undirbúa að skjóta hér
rótum.
Hvítþvo ímynd sína í fjölmiðlum
„Koma þessara samtaka er núna
það sem gæti blasað við okkur, með
enn frekari aukningu á glæpastarf-
semi,“ segir Karl Steinar Valsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn.
Jón F. Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn hjá ríkislögreglustjóra,
segir að skipulögð glæpasamtök á
borð við Hells Angels hafi mótað
sér fjölmiðlastefnu en einnig séu
þekkt dæmi um að glæpasamtök
hafi ógnað eða kúgað fjölmiðla-
menn.
„Hells Angels-samtökin hafa
sína fjölmiðlastefnu, við höfum
orðið varir við það að þeir reyni að
láta líta út fyrir að þau séu friðsæl
og fjölskylduvæn samtök sem séu
með barnaskemmtanir og annað
slíkt. Þetta er liður í áróðursstríði
þeirra og þeir hafa náð árangri við
það,“ segir Jón F. Bjartmarz.
Lögreglan hefur gert tillögu um
að banna slík samtök með lögum
og líka gert tillögur um að banna
merkingar þeirra, en vélhjólagengi
eiga það sameiginlegt að klæðast
einkennisfatnaði. n
„Koma þess-
ara samtaka er
núna það sem gæti
blasað við okkur, með
enn frekari aukningu á
glæpastarfsemi.
2 Black Pistons (Outlaws)
Black Pistons er íslenskur vélhjólaklúbbur sem sótti um inngöngu í alþjóðlegu
vélhjólasamtökin Outlaws, sem lögreglan skilgreinir sem hættuleg alþjóðleg
glæpasamtök. Black Pistons-samtökin hafa ekki fengið fulla
inngöngu í Outlaws, þar sem þau hafa enn stöðu „prospect“
eða áhangenda klúbbsins. Íslenski hópurinn hefur engu
að síður tekið upp nafnið Outlaws, en strangar reglur eru
um inngöngu klúbba í alþjóðlegu samtökin en ferlið hefur
gengið talsvert hraðar fyrir sig hjá Black Pistons en hjá
MC Iceland. Forvígismenn hópsins hafa verið dæmdir fyrir
hrikaleg ofbeldisbrot, en Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, forseti
Outlaws, og Davíð Freyr Rúnarsson voru dæmdir í þriggja og
þriggja og hálfs árs fangelsi í fyrra. Þeir réðust hrottalega á mann í maí í fyrra
og héldu fórnarlambi sínu í gíslingu í nærri sólarhring. Gíslinn slapp frá þeim
og náði hringja á lögregluna. Þeir ætluðu að krefja hann um 10 milljónir króna í
reiðufé, sem hann gat ekki útvegað þeim. Þrír menn eru ákærðir fyrir skotárás í
Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember. Tveir mannanna eru félagar í Outlaws, en
málið snérist um að þeir tveir voru fengnir til að hjálpa öðrum manni við að hræða
fórnarlamb skotárásarinnar frá því að innheimta meinta fíkniefnaskuld. Þeir
skutu á bíl fórnarlambsins og veittu honum síðan eftirför þar sem þeir skutu aftur
á bílinn. Fórnarlambið lét ekki sjá sig í dómsal fyrr en handtökuskipun hafði verið
gefin út á hendur honum og þegar í dómsal var komið sagðist hann ekki muna
eftir atburðinum, annað en að skotið hefði verið á sig.
7-9 SOD
SOD eru opinberir
stuðningsklúbbur
Hells Angels og
eru nokkrir slíkir
starfandi á landinu.
Merki félagsins eru
í rauðum og hvítum
litum líkt og merki Hells
Angels, en lögreglan telur
fullvíst að í heimi vélhjólaklúbba sé slíkt
merki um stuðning við Hells Angels.
Meðal forsvarsmanna SOD-hópanna má
nefna Óttar Gunnarsson sem talinn er
vera hættur og Jón Ólafsson sem situr í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að
líkamsárásinni í Hafnarfirði. Lögreglan
telur að stuðningshópar vinni svokölluð
„skítverk“ fyrir aðalsamtökin sjálf. Þeir
séu hálfgerðir verkamenn fyrir þau.
Vésteinn Guðmundsson er talinn hafa
verið forseti SOD Suðurnes.
3 Semper Fi
Fram hefur komið að lögreglan fylgist grannt með for-
sprökkum hópsins Semper Fi, en Jón H. Hallgrímsson,
betur þekktur sem Jón stóri, er talinn vera formaður
hópsins. Ekki er vitað til þess að meðlimir hópsins hafi
gerst brotlegir við lög í nafni hópsins, en meðlimir hans
hafa engu að síður verið viðriðnir mörg afbrot. Jón
stóri hefur alltaf neitað því að Semper Fi séu skipulögð
glæpasamtök, miklu frekar hópur vina með sam-
eiginleg áhugamál. Lögreglan telur hins vegar að tilurð
hópsins megi rekja til ótta manna við aukin umsvif
glæpahópa Pólverja og Litháa í undirheimunum. Ís-
lendingarnir hafi því sameinast til þess að geta mætt
ógnunum og ofbeldisverkum. Lögreglan telur einnig að
uppbygging Semper Fi sé sambærileg og í vélhjólagengjum.
4-5 Glæpahópar
Pólverja og Litháa Lögreglan telur að glæpa-
hópar Pólverja og Litháa hafi komið upp starfsemi sinni hér á landi. Afbrotamenn
frá löndunum tveimur hafi myndað hóp sem hafi sterk tengsl í útlöndum.
Hópurinn standi að framleiðslu og sölu sterkra fíkniefna, einkum amfetamíns,
hér á landi og til marks um mátt hópsins er talið að hann búi yfir styrk til að
framleiða fíkniefni og flytja þau úr landi til sölu annars staðar í heiminum.
Meðlimir eru sagðir bera vopn og hika hvergi við að beita grófu ofbeldi. Jafnt
gagnvart öðrum hópum og einstaklingum.
6 Torpedo Crew
Lögreglan hefur ekki mikla vitneskju um Torpedo Crew aðra en þá að á vestum
meðlima eru merki í litum Hells Angels þar sem stendur „Known associates“, eða
þekktir samstarfsaðilar. Lögreglan telur fullvíst að Andrea Kristín Unnarsdóttir,
sem er í gæsluvarðhaldi í líkamsárásarmálinu í Hafnarfirði, sé forseti sam-
takanna. Ekki er vitað hverjir eru meðlimir í Torpedo Crew eða við hvað meðlimir
hópsins hafa fengist.