Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 16.–18. mars 2012 Helgarblað Stal frá húsfélagi n Nýtti peningana í eigin þágu H éraðsdómur Reykjavíkur hef- ur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir fjárdrátt. Maðurinn, sem er fæddur árið 1963, var ákærð- ur fyrir að hafa á tímabilinu frá 23. mars 2010 til 24. nóvember sama ár, í starfi sem gjaldkeri húsfélags í Breið- holti, dregið sér og nýtt í eigin þágu rúmar ellefu hundruð þúsund krón- ur. Tók maðurinn fjármunina út af reikningi húsfélagsins í Arion banka. Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi en hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Að því virtu og með hliðsjón af skýlausri játningu mannsins þótti hæfileg refsing fangelsi í þrjá mánuði, en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Maðurinn samþykkti að greiða húsfélaginu 805 þúsund krónur til baka. A ndri Árnason, hæstaréttar- lögmaður og verjandi Geirs Haarde, segir að skýringuna fyrir því að hann fór þess á leit við Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaup- þings, að hann sværi eið að vitnis- burði sínum sé að einhverju leyti að finna í vitnisburði Tryggva Pálssonar, framkvæmdastjóra Seðlabankans. Sigurður Einarsson gaf skýrslu á mánudag en Tryggvi á þriðjudaginn. Kaupþingsmaðurinn var eina vitnið sem látið var sverja eiðstaf að fram- burði sínum fyrir landsdómi. Yfirleitt er ástæða þess að farið er fram á slíkt sú að vitnisburður manna er ekki tal- inn trúverðugur. Mikið ósamræmi var á milli vitnisburðar Sigurðar og þeirra starfsmanna Seðlabanka Íslands sem hafa tjáð sig um aðdraganda hrunsins og ástæður þess fyrir landsdómi. Sýn Kaupþingsmanna Andri vill ekki tjá sig um það sérstak- lega af hverju hann fór þess á leit við Sigurð að hann sværi eið að vitnis- burði sínum en lætur þó áðurnefnd orð um vitnisburð Tryggva fylgja með: „Ég vil ekki tjá mig sérstaklega um vitnisburð einstakra vitna. Dóm- ararnir bara vega og meta þýðingu framburðar hvers vitnis fyrir sig […] En ég held að það hafi að einhverju leyti skýrst í skýrslugjöf Tryggva Páls- sonar daginn eftir.“ Fyrir landsdómi sagði Sigurð- ur meðal annars að fernt hefði fellt Kaupþing, engin þessara ástæðna snéri beint að Kaupþingi sjálfu og rekstri stjórnenda hans á bankan- um. Ástæðurnar sem hann nefndi fyrir falli Kaupþings voru: alþjóð- lega fjármálakreppan, hávaxta- stefna Seðlabankans, neyðarlögin og aðgerðir breska fjármálaeftirlits- ins (FSA) gagnvart Singer og Friedl- ander, dótturfélagi Kaupþings í Bretlandi. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, nefndi einnig í sínum vitnisburði að neyðarlögin hefðu fellt Kaupþing að hans mati. „Djúp afneitun“ Í máli Tryggva Pálssonar kom hins vegar fram að þeir bankastjórar sem litu svo á að fyrirtæki þeirra hefðu getað lifað af eftir haustið 2008 væru í afneitun. „Fyrrverandi bankastjór- ar sem halda því fram að þeir hefðu getað lifað þetta áfall af, jafnvel fjórum árum síðar, eru í djúpri afneitun,“ sagði Tryggvi í vitnisburði sínum.   Samstarfsmaður Tryggva í Seðla- banka Íslands, Sigurður Sturla Páls- son, sagði í vitnisburði sínum í síð- ustu viku að Kaupþing hefði verið rúið trausti á alþjóðamörkuðum strax í febrúar 2008. Þá sagði hann jafnframt að erlendir aðilar hefðu haft áhyggj- ur af krosseignatengslum í íslenska bankakerfinu. „Tvær fjármálastofnanir sögðu að Kaupþing væri algerlega rúið trausti en áhyggjurnar af hinum bönk- unum væru líka miklar […] Erlendir aðilar töldu að þó að það hefði verið undið ofan af miklum eignatengslum eftir krísuna 2006 þá væru krosseigna- tengsl þannig að fall eins banka hlyti að hafa mjög mikil áhrif á þann næsta.“ Vitnisburður seðlabankamanna var því á þá leið að erfiðleikar íslensku bankanna hefðu að hluta til verið inn- anhússvandamál hjá þeim en ekki ytri vandamál sem aðrir aðilar bæru ábyrgð á. Kaupþingsmennirnir Sig- urður og Hreiðar bentu hins vegar á ytri ástæður fyrir falli Kaupþings. Hagsmunir Geirs Þeir lögfræðingar sem DV hefur rætt við um málið segja nokkuð líklegt að Andri hafi metið vitnisburð Sigurðar sem svo að hann væri ekki trúverð- ugur og hafi því viljað að sú sýn hans kæmi fram með því að hann yrði lát- inn sverja eið um sannleiksgildi hans. Einn lögfræðingur bendir á að krafa um slíkan eiðstaf sé eins konar hirt- ing, eða umvöndun, þar sem lögmað- ur vilji koma því áleiðis að vitnið hafi ekki verið trúverðugt. Andri sjálfur vill ekki ræða þessa kröfu sína efnislega heldur vísar til orða Tryggva og segir: „Þetta er það sem allir mega búast við þegar þeir gefa framburð, að þurfa að staðfesta hann.“ Í landsdómsmálinu gegn Geir Ha- arde þjónar það hagsmunum hans að grafa undan skýringum á banka- hruninu þar sem opinberir aðilar eru taldir bera mesta ábyrgð á því en ekki stjórnendur bankanna sjálfra með áhættusækni, blekkingum og vafa- sömum rekstri til margra ára. Skýr- ingar Sigurðar á hruni Kaupþings voru að hluta til opinberar skýringar, meðal annars neyðarlögin, sem sett voru af ríkisstjórn Geirs, og aðgerð- ir Seðlabankans. Hagsmunir Geirs felast því meðal annars í því að fyr- ir liggi að stjórnendur og hluthafar bankanna beri mesta ábyrgð sjálfir á falli þeirra en ekki hann, aðrir ráð- herrar, Seðlabanki Íslands eða aðrir opinberir aðilar. Skýringuna að finna í vitnisburði Tryggva n Sigurður Einarsson sór eið n Seðlabankamaður talar um afneitun bankastjórnenda „Fyrrverandi bankastjórar sem halda því fram að þeir hefðu getað lifað þetta áfall af, jafnvel fjórum árum síðar, eru í djúpri af- neitun. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Eina vitnið Andri Árnason fór fram á að Sigurður Einarsson myndi sverja eið að vitnisburði sínum í landsdómi á mánudaginn. Andri sést hér með Geir í landsdómi. Ólík sýn Þeir starfsmenn Seðlabankans sem borið hafa vitni eru með aðra sýn á íslenska bankahrunið en stjórnendur íslensku bankanna, meðal annars Kaupþings. Lögmaður Geirs Haarde segir skýringuna á eiðstaf Sigurðar Einarssonar vera að finna í skýrslugjöf Tryggva Pálssonar. Játaði brotið Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.