Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 21
11 GLÆPAHÓPAR ÍSLANDS Fréttir 21Helgarblað 16.–18. mars 2012 n Glæpahópar skjóta rótum á Íslandi n Lögregla fylgist með 11 hópum n Vélhjólagengi og stuðningsklúbbar keppa við erlenda glæpamenn 1 Hells Angels Interpol skilgreinir Hells Angels sem skipulögð glæpasamtök. Forseti Hells Angels á Íslandi er Einar „Boom“ Marteinsson sem situr í gæslu- varðhaldi grunaður um aðild að líkamsárásinni í Hafnarfirði fyrir jól. Íslenski klúbburinn hét áður MC Iceland og hafði farið í gegnum nokkurra ára inngönguferli í samtökin áður en hann fékk fulla aðild. Lögreglan telur að Hells Angels tengist fíkniefnaheiminum hér á landi, en auk þess er forvígismaður hópsins grunaður um að fyrir- skipa hrottalega líkamsárás. Einar hefur hins vegar þrálátlega haldið fram sakleysi sínu og sagt Hells Angels vera fjölskylduklúbb. 10 Bandidos Alþjóðleg vélhjólasamtök sem tilheyra svo- kölluðu „eina prósentinu“, en það er hugtak er notað yfir þau samtök véhjólamanna sem fara ekki að lögum og reglum – hin 99% vél- hjólaklúbbanna geri það hins vegar. Bandidos eru skilgreind sem skipulögð glæpasamtök og teygja anga sína út um allan heim. Klúbburinn var stofnaður í Texas árið 1966 með slag- orðinu „Við erum fólkið sem foreldrar okkar vöruðu okkur við.“ Samtökin eru með 2.400 meðlimi í 16 löndum. Bandidos-samtökin eru tengd við fíkniefnasmygl, vopnasmygl, fjárkúgun, morð, peningaþvætti og ógun við vitni. Lögreglan telur sig hafa vitneskju um að sendiboðar Bandidos hafi komið hingað til lands til þess að undirbúa að samtökin geti skotið rótum hér. Ekki er vitað hvort einhverjir Íslendingar tengist samtökunum, en þau eru skilgreind sem bandamenn Outlaws-sam- takanna og óvinir Hells Angels-samtakanna. 11 Mongols Alþjóðleg glæpa- og vélhjólasamtök sem falla einnig inn í skilgreininguna um „eina prósentið“. Samtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum árið 1969 af mönnum frá Rómönsku-Ameríku sem var neitað um aðild að Hells Angels vegna litarháttar síns. Mongols eru með starfsemi í 14 ríkjum Bandaríkjanna, auk þess sem þau hafa skotið rótum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni og fleiri ríkjum. Meðlimir í Mongols eru taldir á bilinu 1.000 til 1.500 um allan heim. Þeir eru taldir tengjast fíkniefnasmygli, vopnasmygli, bílþjófnaði, okurlánastarfsemi, fjárkúgun og leigumorðum. Líkt og með Bandidos eru Hells Angels-samtökin skilgreind sem óvinir Mongols. Lögreglan telur að samtökin séu að undirbúa að skjóta rótum hér á landi. Framhald á næstu opnu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.