Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 32
32 Viðtal 16.–18. mars 2012 Helgarblað É g held að ég sé gömul sál. Ég er alltaf að flýta mér. Líka að eldast,“ segir Edda Hermanns- dóttir, 25 ára, gift, tveggja barna móðir, nemi á lokaári í hagfræði við Háskóla Íslands, lík- amsræktarþjálfari og spyrill í Gettu betur. Þrátt fyrir ungan aldur er Edda með mörg járn í eldinum. Hún þreytti frumraun sína í sjónvarpi í fyrra þeg- ar hún tók að sér spyrilsstarf í spurn- ingaþættinum vinsæla Gettu betur og fetaði þar með í fótspor helstu sjónvarpsstjarna landsins. Hún seg- ist ekki hafa þurft að hugsa sig lengi um þegar henni bauðst starfið en yngra barn Eddu var aðeins eins og hálfs mánaðar gamalt þegar fyrsti þátturinn fór í loftið. „Þetta var mjög undarleg staða – að vera með nýfætt barn og bjóð- ast svona spennandi tækifæri. Ég varð að grípa það. Sonurinn var sem betur fer ofboðslega vær og sat alla fundi með mér og svaf bara á meðan. Svo skrapp ég eitt kvöld í viku í smá- stund. Hann tók ekkert eftir þessu,“ segir hún og bætir við að hún hafi strax fengið góð viðbrögð. Í fótspor stjarna „Eflaust fannst mörgum brjálæði að setja óreynda manneskju í þetta starf en Sigrún [Stefánsdóttir, dagskrár- stjóri RÚV] treysti mér til verksins. Þetta gekk vel og var tekið vel á móti mér – furðu vel, fannst mér. Kannski af því að fólk vissi ekkert á hverju það ætti von. Vanalega erum við búin að mynda okkur skoðun á þeim sem eru í sjónvarpinu en það er erfitt þegar við þekkjum ekkert til. Það virtust allir tilbúnir að gefa mér tækifæri og leyfi til að gera mín mistök. Auðvitað var ég dauðstressuð yfir að feta í fótspor sjónvarpsfólks eins og Evu Maríu og Loga Bergmanns en ég vildi fá að spreyta mig og ég bann- aði sjálfri mér að bera mig saman við þau. Það væri aldrei sanngjarn samanburður. Ég vildi bara vera ég sjálf og þróa minn eigin stíl,“ segir Edda sem viðurkennir að hafa gælt við þann draum að komast í sjón- varp. „En sannarlega ekki á þessum tímapunkti. Í rauninni opnaðist nýr heimur fyrir mér með þessu. Hugur- inn er rétt að fara af stað.“ Fimm ára fjarbúð Edda er gift Halldóri Svavari Sigurðs- syni sjúkraþjálfara og eiga hjónin tvö börn, Sigurð sem er rúmlega eins árs og Emilíu, fjögurra ára. Þau Hall- dór Svavar kynntust þegar Edda var aðeins 16 ára og var að hefja nám í Menntaskólanum á Akureyri en Halldór, sem er fjórum árum eldri, hafði þá útskrifast úr sama skóla. „Hann var besti vinur bróður míns og við höfum verið saman í allan þennan tíma. Við vorum samt í fjar- búð í fimm ár. Fyrst fór hann í nám til Reykjavíkur og svo fórum við bæði að ferðast. Við gáfum hvort öðru það svigrúm sem við þurftum,“ segir hún og bætir við að það hafi allavega ver- ið búið að reyna vel á sambandið þegar börnin komu. Hún segir að það hefði ekki átt við hana að fara í fast og rótgróið sam- band svona ung. „Ég vildi fá mitt rými til að vera með vinkonum mín- um. Hann ferðaðist um Suður-Amer- íku en ég um Evrópu en svo fundum við að þetta var orðið gott og ég kom heim. Auðvitað reyndi svona löng fjarbúð á sambandið en við vorum alltaf ákveðin í að láta þetta ganga. Kannski virkar þetta undarlegt en okkur fannst þetta lítið mál og vorum aldrei í því að hætta og byrja saman. Eftir á að hyggja hljómar þetta kannski pínu undarlegt. Við vorum svo ung. En að sama skapi var þetta mín besta ákvörðun í lífinu. Það er yndislegt að eiga svona góðan eigin- mann og minn besta vin sem styður mig í öllu og þekkir mig vel. Við höfum þroskast í svipaða átt og eigum bara mjög vel saman. Hann er mjög rólegur, með milt skap en það hef ég alls ekki. Saman myndum við gott jafnvægi. Ég get verið mjög snögg upp en ég hef lært að fara jafn- skjótt niður aftur. Ég hef alltaf haft mikið skap en ég fæ enga útrás fyrir það þar sem ég á mann sem tekur ekkert í þetta þegar ég reyni það,“ segir hún brosandi. Au pair hjá Eiði Smára Edda var um tíma au pair hjá knatt- spyrnumanninum Eiði Smára Guð- johnsen og eiginkonu hans, Ragn- hildi Sveinsdóttur, á Spáni sem hún segir hafa verið mikla upplifun. „Það var dásamlegt að vera í Barcelona,“ segir hún og játar því að þarna hafi hún orðið vitni að veröld sem hún þekkti ekki áður. „Ég var samt mest í fjölskyldurútínunni með þeim og þar var bara hversdagslegt líf fjölskyld- unnar. Hins vegar hitti ég nokkra heimsfræga fótboltamenn án þess að gera mér grein fyrir því fyrr en eftir á. Enda hafði ég engan áhuga á fótbolta. Eiginmanni mínum fannst hins vegar ekkert sanngjarnt að hann væri ekki á staðnum.“ Enginn djammari Hún segist hafa notið þess að passa drengi hjónanna og fljótlega gert sér grein fyrir að hún vildi sjálf verða mamma. „Drengirnir þeirra eru yndislegir og fljótlega eftir að ég kom heim ákvað ég að ég vildi líka eignast börn. Barneignirnar voru því planaðar. Ég vildi eignast börn í háskóla. Mér finnst dásamlegt að vera með frjálsan tíma til að vera með þeim,“ segir Edda og bætir við að hún hafi því ekki upplifað þetta hefðbundna háskólalíf með tilheyr- andi drykkju og skemmtanahaldi. „Ég á fullt af vinum í skólan- um en ég læt það alveg eiga sig að mæta í vísindaferðir og slíkt. Á meðan bekkjarsystkini mín eru að fá sér bjór eru pítsukvöld hjá mér og krökkunum. Ég hef aldrei verið mikill djammari og byrjaði ekki að smakka áfengi fyrr en ég útskrifaðist úr MA svo mér fannst ég aldrei vera að missa af neinu. Auðvitað kíki ég út ef tilefnið er gott en annars finnst mér best að vera heima í rólegheit- unum. Þessi fjölskyldurútína á mjög vel við mig,“ segir hún og bætir við að henni þyki það ekki spennandi til- hugsun að vakna eldsnemma með krökkunum eftir gott skrall um nótt- ina. Frægur pabbi Edda er Akureyringur í húð og hár. Mamma hennar heitir Emilía Jó- hannsdóttir og fósturfaðir hennar Eiður Guðmundsson. Líkt og marg- ir vita er fjölmiðlamaðurinn Her- mann Gunnarsson líffræðilegur fað- ir Eddu. „Eiður hefur alltaf verið pabbi minn. Hann ól mig upp frá sex mánaða aldri. Ég vissi samt alltaf af Hemma og samband okkar hef- ur aukist í seinni tíð. Við erum góð- ir vinir í dag og hann er mjög hjálp- samur og sérstaklega í tengslum við margt sem viðkemur þættinum,“ segir hún og bætir aðspurð við að það hafi verið skrítið að eiga svona frægan pabba. Grátur og bónorð Edda var 22 ára þegar hún varð móðir en þau Halldór giftu sig árið 2009 þegar stelpan þeirra var eins árs. Brúðkaupið var ekta sveita- brúðkaup og fór fram í sveitinni hjá tengdaforeldrum hennar sem búa rétt fyrir utan Kópasker. Hún segir Halldór Svavar hafa beðið um hönd hennar. „Hann vissi að hann yrði að fylgja öllum amerískum reglum í þeim efn- um,“ segir hún brosandi og bætir við að bónorðið hafi verið borið upp þeg- ar þau voru úti að borða. „Þegar við vorum að gera okkur tilbúin til að fara á veitingastaðinn spurði hann mig hvort ég gæti ekki verið aðeins fínni enda var ég ennþá í vinnugallanum. Þarna var ég komin 20 vikur á leið og hálfþreytt. Skapið fór alveg með mig og ég byrjaði að gráta og harðneit- aði að fara út að borða. Sem betur fer hætti hann ekki við enda höfðu skap- sveiflurnar lægst þegar hann bar upp bónorðið. Hann er orðinn vanur þessu skapi mínu. Við vegum hvort annað vel upp. Hann er þessi rólegi og ljúfi mað- ur sem ég þarf. Hann er líka passlega spontan og skemmtilegur og hefur jafn gaman af því og ég að brjóta upp rútínuna. Við þrífumst illa í of mikilli rútínu.“ Krefjandi móðurhlutverk Hún segir þau strax hafa tekið meðvit- aða ákvörðun um að láta börnin ekki koma í veg fyrir að þau myndu lifa sínu lífi eins og þau vildu. „Ég hef oft verið spurð hvort börn- in hafi verið plönuð. Ég held samt að öllum í kringum okkur hafi fund- ist þetta eðlileg þróun. Okkur finnst ofsalega gaman að ferðast og erum heppin með ömmur og afa sem koma og hjálpa okkur að passa. Æskuvin- konurnar hafa líka verið duglegar að hjálpa mér en þeim hefur ekki legið jafn mikið á og mér og hafa því getað hjálpað mér í uppeldinu,“ segir hún brosandi. Hún segir móðurhlutverkið mest krefjandi hlutverk sem hún hafi tekist á við. „Að vera mamma er dásamlegt en um leið mjög krefjandi. Við höfum verið heppin, það hefur alltaf gengið vel með krakkana. Við erum líka dug- leg að taka þau með okkur og leyfa þeim að upplifa hlutina með okkur. Næst á dagskrá er að ferðast meira með þau en stelpan er orði spennt fyrir hinum og þessum lönd- um og þjóðum og það verður gaman að kynna fyrir þeim nýja heima,“ seg- ir hún og bætir aðspurð við að Em- ilía fylgist spennt með mömmu sinni í sjónvarpinu. „Hún situr og bíður spennt eftir að ég veifi til hennar og skilur ekki af hverju hún fær aldrei neitt frá mér.“ Stendur á tímamótum Dagurinn byrjar snemma hjá Eddu. Oftast nær er hún mætt um sexleyt- ið í líkamsræktarstöðina World Class þar sem hún kennir námskeiðin Súperform, Þol og styrk og Tabata. „Ég vel að vakna svona snemma til að sprikla og eiga smátíma fyr- ir sjálfa mig því mér finnst verra að fara frá krökkunum eftir leikskóla. Þá er heilög stund. Dagurinn er oft þrí- skiptur hjá mér. Á morgnana er það leikfimin, á daginn er það hagfræðin og þessa dagana er það svo sjónvarp- ið á kvöldin. Ég stefni í þrjár áttir,“ segir Edda sem á erfitt með að segja til um hvaða átt togi sterkast í hana. „Ég stend á tímamótum. Ég er á lokasprettinum í hagfræðináminu og mun ljúka við BS-ritgerðina í sumar. Á sama tíma finnst mér mjög spenn- andi að skoða fjölmiðlana nánar. Ég elska að hafa mörg járn í eldinum og er búin að komast að því að ég þrífst best þegar það er mikið að gera og mikið um að vera. Ég á erfitt með að sjá mig fyrir mér staðna lengi á sama staðnum. Álag á vel við mig og ég er vön að þurfa að skipuleggja tímann mjög vel. Til dæmis vildi ég alltaf vera í vinnu meðfram náminu í MA því mér fannst ég læra meira ef ég var undir pressu. Margir hafa reynt að fá mig til að hægja aðeins á en það hef- ur ekki gengið vel hingað til,“ segir Edda en viðurkennir að vissulega sé álagið stundum mikið. Þrátt fyrir að vera aðeins 25 ára er Edda Hermannsdóttir með mörg járn í eldinum. Edda er gift tveggja barna móðir, nemi á lokaári í hagfræði, líkams- ræktarþjálfari og spyrill í Gettu betur. Hún hafði fundið rétta manninn þegar hún var aðeins sextán ára en parið var í fjarbúð í fimm ár áður en það fóru að búa saman. Hún hefur alltaf átt drauma um frama í sjónvarpinu og segir nýjan heim opnast. Edda spjallaði við Indíönu Ásu Hreinsdóttur um draumana, fjölskyld- una og markmiðin en Edda veit hvað hún vill og setur markið hátt. Grét fyrir bónorðið Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal „Ég vissi samt alltaf af Hemma og samband okkar hefur aukist í seinni tíð. Dreymdi um að komast í sjónvarpið Eddu Hermannsdóttur langaði alltaf að komast í sjónvarpið en var ekki með hugann við það takmark sitt þegar boðið kom enda með nýfætt barn á brjósti. Hún lét það þó ekki stoppa sig. mynDIr Eyór ÁrnASon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.