Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Síða 36
36 Viðtal 16.–18. mars 2012 Helgarblað
kunni norsku og þess vegna var allt-
af náð í mig til að hlusta á talstöð-
ina. Ég þýddi og þá komumst við
kannski að því að þeir væru að koma
og gátum brugðist við því og komist
undan eins og við hefðum ekkert
verið í Smugunni.“
Þrátt fyrir þessa heldur slælegu
og furðulegu byrjun á sjómennsku-
ferlinum hélt hann áfram á sjón-
um. „Þegar ég er á sjónum er ég í
tengslum við náttúruöflin. Ég finn
þar fyrir innri ró og ég sæki í þá til-
finningu. Ég fer enn á sjóinn, fer í da-
gróðrartúra í félagi við annan. Það er
vel upp úr því að hafa þegar veður
leyfir,“ segir hann og lítur á klukkuna.
Þeir ætla nefnilega að vita hvort það
sé á það hættandi að fara út á mið-
nætti. Það voru skipverjar á bátnum
Hrafni föðurlausa sem skráðu hann
til leiks í Idol-stjörnuleit og Kalli
sló til. „Ég hugsaði með mér að sjó-
mannssið: Þeir einir fiska sem róa
– og ákvað að taka þátt og gefa allt
í þetta. Ég skráði mig upp á von og
óvon. Það var árið 2003 og mér finnst
óravegur síðan, heil níu ár eru liðin,“
segir hann íhugull.
Í öðrum veruleika
Veruleiki Kalla Bjarna breyttist á ógn-
arhraða. Hann líkir breytingunni við
fæðingu Jesú Krists. „Lífið eftir Idol-
ið er svona eins og fyrir Krist og eftir
Krist. Það var algjört æði fyrir þess-
ari keppni á Íslandi og það gat eng-
inn gert sér í hugarlund áður. Hvorki
ég né aðrir er stóðu að keppninni. Ég
áttaði mig aldrei á því að eftir þetta
yrði ekkert eins og gerði mér enga
grein fyrir því hversu víðtæk áhrif
velgengnin myndi hafa.
Ég gat ekki lengur verið Jón Jóns-
son og gert það sem ég vildi. Mað-
ur hefði spurt sig áður hvort maður
hefði viljað þetta. Á Íslandi þarftu að
vera í ákveðnum ramma. Fólk veit
hver þú ert og maður þarf að haga
sér á ákveðinn máta. Maður er alltaf í
ákveðnu hlutverki.“
Hann áttaði sig á því að hann var
orðinn frægur í Kringlunni. „Í fyrsta
skipti sem ég fattaði að ég var frægur
var ég í rúllustiganum í Kringlunni
og var að fara upp. Ég leit á rúllustig-
ann til hliðar þar sem fólk var á leið
niður og sá að allir í stiganum störðu
á mig. Það var bara allur rúllustig-
inn að horfa. Ég fór að þreifa svona
varfærnislega á mér, hvort ég hefði
sullað á mig remúlaði eða einhverju
öðru. Þetta var svolítið skrýtið og ég
verð að viðurkenna að mér fannst til-
finningin að hluta til óhugnanleg.“
Notaði dóp til að keyra sig
áfram
Við tók álagstími í lífi Kalla Bjarna.
Hann spilaði á fjölda tónleika á
skömmum tíma og var keyrður
áfram. Hann fór að missa tökin á til-
verunni.
„Því miður fór ég að nota dóp
til þess að koma mér í gegnum allt
prógrammið fram undan. Það voru
kannski átta gigg á einni helgi og ég
hefði aldrei átt að bóka mig svona
stíft. Ég var bæði bókaður stíft og
dýrt. Þetta var bara mjólkun í fjóra
mánuði og svo var þetta bara búið.
Reyndar ekki alveg, en miðað við
hvað það var. En ég var aldrei þessi
maður. Ég vildi ekki þessa keyrslu
og vildi ekki selja mig svona dýrt. Ég
vildi bara spila fyrir fólk.“
Skorti reynslu
Kalli Bjarni segir sig hafa skort
reynslu og að hann hafi þess vegna
aldrei átt möguleika á því að lifa af
í bransanum. Hann bregður upp
myndlíkingu. „Tökum Formúluna
sem dæmi. Ef það væri haldin keppni
í formúluakstri fyrir óvana ökumenn.
Sigurvegarinn væri svo settur beint
úr þeirri keppni inn í hringinn með
atvinnumönnunum. Það sjá allir
hvernig færi. Hraðinn er of mikill.
Mig skorti reynsluna sem fólk nær
sér í með því að vera búið að prófa
harkið og taka ömurleg gigg og góð
gigg. Ég vissi nákvæmlega ekkert um
bransann og átti aldrei möguleika á
að lifa af. Það er fyrst núna sem ég
á möguleika af því ég er reynslunni
ríkari. Sem betur fer hélt ég áfram í
músíkinni og nú finnst mér ég geta
samið lög í fullri einlægni.“
Smyglið og svikin
Kalli Bjarni vill lítið ræða um það
hvernig það kom til að hann fór úr
því að vera í neyslu til þess að smygla
tveimur kílóum af kókaíni til lands-
ins. Hann sætti sig við dóminn en
segist hafa verið svikinn en tekið þá
ákvörðun að taka á sig alla sök og
standa fast í báða fætur.
„Ég varð að sætta mig við það sem
ég hafði gert og reyna að gera það
besta úr því. Ég passaði mig á því að
halda öllum öðrum en sjálfum mér
utan við málið. Það var mikill styrkur
í því. Það er heldur ekki minn karakt-
er að benda á einn né neinn. Í sam-
bandi við þetta mál var ég svikinn
illa en ég tók alla sökina á mig. Von-
andi launast það síðar. Ég náði að
nýta mér fangelsisvistina vel. Ég var
fljótlega kominn á Kvíabryggju og
allt í einu var ég kominn með fjalla-
sýnina sem ég ólst upp við hjá ömmu
Elnu. Þetta er náttúrulega bara fyrir
aftan Kirkjufellið. Þessi fjallasýn og
nálægðin við ömmu, skömmin og
auðmýktin gerðu það að verkum að
ég náði að jarðtengja mig. Ég tengdi
við hlýjuna úr æsku og allt það góða
sem ég einu sinni lærði.
Ég fékk stundum að fara með
starfsfólkinu þegar það var að fara
út í búð og það skildi mig eftir hjá
ömmu í skamman tíma. Þetta var
gott fyrir mig. Ég vildi frekar nýta mér
þau úrræði sem voru í boði. Ég fékk
aðstöðu til að semja og útsetja tón-
list, sem ég gerði. Horfði til fjalla og
spilaði á hljómborðið. Mörg þeirra
laga sem ég samdi í fangelsinu verða
á næstu plötu.“
Óþekku strákarnir úr
Breiðholtinu í fréttum
Það er stundum sagt að sumir for-
herðist við það að fara í fangelsi. Kalli
Bjarni segist hafa valið auðmýkt.
Hann segist þó þekkja vel til þeirra
manna sem eru hvað helst nafn-
togaðir í undirheimum Reykjavíkur.
Fólk verði að vara sig á því að fella
dóma.
„Ég er ekki að reyna að fegra eitt
eða neitt, sumir af þeim eru í vafa-
sömum félagsskap en ég þekki þetta
lið. Þetta eru bara óþekkir strákar og
sumir auðvitað úr Breiðholtinu,“ seg-
ir hann og brosir.
„Það er verið að búa til æsifréttir
úr engu. Það eru mistök hjá lögreglu
að vígbúast og efna til stríðs. Því að
gengin tvíeflast. Auðvitað á lögreglan
að skipta sér af því sem er brotlegt en
ég er ekki viss um að allur þessi æs-
ingur skili nokkru. Og hinn almenni
borgari þarf ekki að hafa áhyggjur.
Það eru þeir sem eru í neyslu og
skulda pening sem eru í hættu. En
þeir sem keyra Löduna sína bara
niðri í bæ þurfa ekki að hugsa um
þetta. Í Golfklúbbi Reykjavíkur eru
örugglega menn sem eru á sama stað
í lífinu og þeir nafntoguðu í undir-
heimum Reykjavíkur,“ bætir hann
við og glottir út í annað. „Þeir ættu
kannski að fara að athuga það.“
Á dánarbeði föður síns
Það voru erfiðir tímar hjá Kalla
Bjarna stuttu áður en hann afplánaði
dóm sinn. Konan hans þáverandi fór
frá honum, samskipti hans við börn-
in voru skert og hann missti föður
sinn.
„Þetta kom allt á sama tíma. Ég og
fyrrverandi konan mín hættum sam-
an og pabbi dó. Það var ofboðslega
erfitt. Ég hélt í höndina á honum þeg-
ar hann tók síðasta andardráttinn. Ég
hefði samt aldrei viljað sleppa því að
vera hjá honum og halda í höndina á
honum þegar hann fór.“
Pabbi Kalla Bjarna var Guðmund-
ur Aðalsteinn Sveinsson, góðvinur
Bubba Morthens.
„Þegar ég var að keppa í Idol mátti
Bubbi ekki frétta af því að hann væri
faðir minn. Pabbi var að flytja út Ut-
angarðsmenn og Egó og Bubbi vissi
þetta ekki fyrr en á úrslitakvöldinu
þegar hann sá karlinn koma til að
fagna sigri mínum.“
Missti fótanna eftir fangelsisvist
Eftir fangelsisvistina rasaði Kalli
Bjarni örlítið út en hann dvelur ekki
við þau mistök. „Ég tók smá flipp sem
endaði á því að ég var tekinn með tvö
grömm af grasi og það komst í fréttir.
Þá féllust mér svolítið hendur því nóg
var skömmin fyrir. Allir fóru að tala
um að ég væri á kafi í neyslu. Það var
ekki rétt. Næstu mánuðir eftir þessa
opinberu niðurlægingu voru ónýtir
hjá mér en sem betur fer náðum við
að hlífa fjölskyldunni fyrir þessu.
Börnin mín lesa fréttir af mér og
það er svo mikið af vondu fólki til
sem hlakkar í þegar öðru fólki geng-
ur illa. En það fær ekkert til að tala
um í dag. Það eina sem vont fólk fær
að tala um í dag er hversu vel mér
líður. Ég er ástfanginn og horfi bjart-
sýnn til framtíðar.“
Hann segist eiga bágt með að
skilja dómhörkuna. Allir Íslendingar
þekki áfengissýki og fíkn.
„Ég skil ekki þessa grimmd. All-
ar fjölskyldur þekkja fíknivandann
af eigin raun. Ég veit reyndar að ég
er enn í afneitun með fortíðina. Ég
stóð til dæmis á AA-fundi um daginn
og sagði: Ég heiti Kalli Bjarni og er í
afneitun. Mér líður ekki vel í þessu
kerfi. Á einum kafla lífs míns hall-
aði bratt undan fæti, ég viðurkenni
að hafa verið í rosalegri neyslu. En
ég held ég hafi samt ekki enn áttað
mig á því í hversu slæmu ástandi ég
var. Ég var líka í blússandi vörn og
að berjast fyrir einhverja gaura. Í dag
berst ég bara fyrir góðu lífi mínu og
barna minna og ég er yfirmáta ást-
fanginn. Unnusta mín styður við mig
og er mikill styrkur í lífi mínu í dag.“
Missti sambandið við dóttur sína
Unnusta hans Kalla Bjarna er kom-
in sex mánuði á leið. Þetta er fjórða
barnið sem er á leiðinni. „Maður
skýtur engum púðurskotum,“ segir
Kalli Bjarni. „Elsta stelpan mín
fermdist í fyrra og ég hlakka til þess
að byggja upp okkar samband. Ég
missti sambandið við dóttur mína
vegna neyslu minnar og fangelsis-
dómsins. Án þess að ég vildi það.
Hún varð fyrir áreiti í skóla fyrir það
eitt að vera dóttir mín. Ég veit ekki
hversu gott það er að ræða þetta
hennar vegna, en ég held að það sé
betra að vera einlægur en ekki. Við
erum nýbyrjuð að kynnast aftur.
Hún sendi mér styrkjandi skilaboð
um daginn og sagði við mig: Maður
getur allt saman sem maður vill. Þig
verður bara að langa það nógu mik-
ið. Þetta voru hjartastyrkjandi skila-
boð frá henni sem hreyfðu við mér.
Þessi stelpa er með allt sitt á hreinu.
Ég samdi til hennar ofboðslega fal-
legt lag sem verður á næstu plötu
minni sem heitir My Own Blood. Ég
set það fljótlega í spilun og er að tala
til hennar í því.“
Hann og unnusta hans búa í
Grindavík til þess að vera nærri son-
um Kalla Bjarna úr fyrra sambandi.
„Börnin pluma sig vel í Grindavík og
þetta er góður staður að búa á. Þetta
er ekki eins og í Breiðholtinu í gamla
daga. Strákarnir leika sér í mesta
áhyggjuleysi og ég gæti vel hugsað
mér að búa hér áfram þótt ég fari til
náms í Reykjavík. Það er engin fyrir-
staða í því.“
Með BA-próf í skóla lífsins
Nýr kafli er við það að hefjast í lífi
Kalla Bjarna. Hann hefur fengið inn-
göngu í leiklistardeild Kvikmynda-
skóla Íslands og byrjar í námi næsta
haust.
„Ég söng lag eftir sjálfan mig og
svo lék ég lítinn leikþátt og ég virtist
hafa það sem til þarf.
Það var ótrúlegt að ég skyldi fá að
fara í inntökupróf því forkröfur voru
stúdentspróf eða háskólapróf. En ég
ákvað samt að fylla út umsókn eftir
hvatningarorð frá unnustunni og
móðir mín lét mig ekki í friði með
þetta. Ég skrifaði á umsóknina að ég
væri með BA-próf í skóla lífsins og að
ef þeir vildu vita eitthvað meira þá
skyldu þeir bara gúggla mig á net-
inu. Þetta kom mér í áheyrnarpruf-
ur og það kom mér innilega á óvart.“
Einlægari og auðmjúkari
Kalli Bjarni segist hafa breyst mik-
ið síðustu ár. Fram undan er undir-
búningur geisladisks sem ætlunin
er að gefa út í haust. Á honum verða
frumsamin lög eftir hann þar sem
hann sýnir óhræddur tilfinningar
sínar.
„Ég er einlægari og auðmjúkari
en áður og mörgum finnst ég full
einlægur. Ég vil bara frekar láta allt
vaða. Það er ákveðin tenging sem ég
er komin með í tónlistinni núna. Ég
er hættur að semja lög sem ég held
að einhverjum eigi eftir að líka við.
Tónlistin kemur til mín af fullum
krafti í dag því allt það sem ég hef
gengið í gegnum hefur á einhvern
máta opnað mig.“ n
„ Í sambandi við
þetta mál var ég
svikinn illa en ég tók alla
sökina á mig.
„Ég missti
sam-
bandið við dótt-
ur mina vegna
neyslu minnar
Yfirmáta ástfanginn
Kalli Bjarni á von á barni
með unnustu sinni, hefur
nám í Kvikmyndaskólanum
næsta haust og líður vel.