Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Síða 38
S
kítamórallinn var mikið
ævintýri og uppgangur á
árunum um og fyrir 2000.
Eiginlega lærði ég allt á
þessum árum sem ég kann í
þessum bransa í dag,“ segir Ein-
ar umboðsmaður þegar hann
glaður á brá lítur til baka.
Lag og texti Einars, Ertu þá
farinn, tröllreið öllum útvarps-
stöðvum og ballhúsum hér á
landi og hvarvetna mátti heyra
fólk söngla lagið. „Ég ferðað-
ist mikið með þeim á tímabili
og kannski er minnisstæðast
að strákarnir voru alltaf með
mjólk og matarkex í pásum,
þetta stríddi á móti allri ímynd
rokkarans,“ rifjar Einar upp.
En það sem honum þykir
að öðru leyti vænt um á ferl-
inum er að hafa tekið þátt í
að gera plötu Garðars Cortes.
„Þessi plata var tilnefnd til
bresku tónlistaverðlaunanna
og er ein af allra bestu klass-
ísku plötum ársins 2007. Ég er
stoltur af henni,“ segir þessi
óþreytandi athafnamaður.
38 16.–18. mars 2012 Helgarblað
Dansar kannski
við Pál Óskar
É
g er fædd og uppalin í
Þingholtunum og gekk
í Miðbæjarskólann. Það
var mikið líf í hverfinu
og pabbi rak hér heild-
söluna Einar Ágústsson og co.
Eftir skyldunám fór ég í Verzl-
unarskólann og lauk námi
þaðan.“
Meðfram námi starfaði
María í frystihúsi Júpíters og
Mars hjá Tryggva Ófeigssyni á
Kirkjusandi. Eftir nám hóf hún
svo störf á skrifstofu Skeljungs.
„Ég var ekki langi þar, varð ólétt
að henni Elísabetu minni og
hætti snemma að vinna. Ég
hef alltaf sagt að vegna þess
hvað ég hugsaði vel um okkur
mæðgur á meðgöngunni hafi
stelpan verið óvenjulega vel
heppnuð. Hún er falleg, 1979
varð hún ungfrú Útsýn og svo
ungfrú Reykjavík og 1980 varð
hún ungfrú Ísland, þú sérð að
ég hef vandað mig,“ segir þessi
glaðlynda kona stolt af sinni
stelpu.
Eftir að hún eignaðist stelp-
una stofnaði hún með Trausta
manni sínum iðnfyrirtæki
sem hét Nælonplast og fram-
leiddi vinnuvettlinga, gólf-
klúta, viskustykki og ótal margt
fleira. Upp úr 1970 seldu þau
fyrirtækið og gengu til liðs við
heildsölu föður hennar hvar
þau störfuðu fram til 1996 að
þau seldu fyrirtækið. „Þá fór
ég að færa bókhald hjá dóttur
minni og tengdasyni í Svefni
og heilsu en 2010 veiktist ég og
var marga mánuði á spítala og
er nú hætt að vinna og sinni
bara áhugamálum auk þess
að prjóna mikið eins og ég hef
alltaf gert. Ég prjóna ættar-
sokka eins og amma mín gerði
og eins og hún gef ég allt sem
ég prjóna.“
Hún segist hafa verið haldin
söfnunaráráttu frá barnsaldri
og sýnir stolt hundruð söfnun-
argripa á heimilinu sem allir er
merktir og skráðir. „Ég hef alltaf
haft gaman af að safna og nú
er ég komin með 1.598 fingur-
bjargir frá fjölmörgum löndum,
97 dúkkur af öllum stærðum og
gerðum og 100 kveikjara sem
eru yndislega asnalegir í laginu
margir. Það gefur mér mikið
að dunda við þetta,“ segir hún
hugsi og dregur nautnalega að
sér smókinn úr smávindli.
„Ekki man ég nú hvað ég
ætlaði að verða þegar ég yrði
stór, man þó að ég var viss
um að ég ætlaði að vinna
mikið. Á þeim árum þótti
mikið til duglegs fólks koma.
Ég hef gert það svikalaust að
vinna mikið allt mitt líf og sé
ekki eftir því, það hefur verið
skemmtilegt.“
Hún segist ekki hafa verið
mikið fyrir að halda upp á af-
mælisdagana sína, helst þó að
hún hafi ferðast í tengslum við
þá. „Það er samt ekki þannig að
ég hafi ekki gaman af veislum,
ég elska þær og hef gaman af
að dansa. Ég get dansað með
glasið á höfðinu með drykkn-
um í og hef aldrei misst það og
fer varla að missa það héðan af.
Svo á ég til að gleyma mér þeg-
ar fjör færist í veislur og dansa
uppi á borðum, maður á alltaf
að njóta augnabliksins. Ég veit
satt að segja ekki hvernig deg-
inum verður varið. Páll Óskar
er búinn að bjóða mér í partí
á Nasa. Kannski að ég fari og
dansi við hann í kvöld,“ segir
afmælisbarnið glettið og býður
vindil.
María Á. Einarsdóttir, safnari og bókari, er sjötug þann 16. mars
Einar Bárðarson er fertugur þann 18. mars
Mjólk og matarkex í pásum
Stórafmæli
Fjölskylda Maríu
n Foreldrar: Sigríður Einarsdóttir húsfreyja f. 1920 d. 1990
Einar Ágústsson verslunarmaður f. 1917 d. 1983
n Maki: Trausti Ólafsson, glímukóngur og verslunarmaður, f. 1935
n Dóttir: Elísabet Traustadóttir, fegurðardrottning og verslunarkona, f. 1962
n Hennar maður: Sigurður Matthíasson, spjótkastari og verslunar
maður. f. 1961
n Þeirra börn: Matthías Trausti Sigurðsson f. 1988, Aldís María
Sigurðardóttir f. 1989, Bjartur Snær Sigurðsson f. 1999, Elísa Sól
Sigurðardóttir f. 2000
Fjölskylda
Einars
n Foreldrar: Klara Sæland
bóndi f. 1951, Bárður Einarsson
húsasmiður f. 1950
n Fósturfaðir: Haraldur
Arngrímsson bóndi f. 1951
n Eiginkona: Áslaug Thelma
Einarsdóttir sviðsstjóri f. 1975
n Börn: Klara Þorbjörg
Einarsdóttir f. 2006, Einar
Birgir Einarsson f. 2008
Páll Óskar er búinn að bjóða
mér í partí „Kannski að ég fari
og dansi við hann í kvöld,“ segir af
mælisbarnið glettið og býður vindil.
Heimir 51 árs
Fjölmiðlamaðurinn Heimir
Karlsson fagnar 51 árs af-
mæli sínu á sunnudaginn.
Heimir stjórnar þættinum
Í bítið alla virkna morgna
á Bylgjunni. Þá er Heimir
fyrrverandi atvinnumaður
í knattspyrnu en hann
vann einnig Íslandsmeist-
aratitilinn tvívegis með
liði Víkings, árið 1980 og
1981. Heimir er giftur Rúnu
Hjaltested Guðmunds-
dóttur og saman búa þau í
Hafnarfirði.
Franskur 75
Kokteillinn French 75 er
ótrúlega einfaldur en góður
í hvaða afmælisveislu sem
er. Í hann þarf gin, kampa-
vín, sítrónusafa og sykur.
Franskur 75 er vanalega
borinn fram í kampavíns-
glasi.
Hráefni:
Rétt ríflega einn hluti gin
1/4 hluti sykur
1/4 hluti sítrónusafi
Kampavín eða freyðivín
Aðferð:
Setjið öll hráefnin í kokteilhristara
sem er fullur af ís og hristið
mjög vel. Hellið svo í hálftglas í
gegnum sigti og fyllið glasið með
kampavíni. Skreytið með sneið af
sítrusávexti.
Óþreytandi athafnamaður
Einar Bárðarson fagnar fertugs
afmæli um helgina.
Fagnar tímamótunum
Finnbogi Karl Andrésson er þrítugur þann 18. mars
F
innbogi er Reykjavík-
urbarn en ættaður af
Ströndum. Í æsku áttu
íþróttir allan hans huga.
„Ég spilaði allar íþróttir, sama
hvað þær hétu þegar ég var
barn og unglingur. Ekki er úti-
lokað að mig hafi dreymt um
að verða íþróttamaður þegar
ég yrði stór. En þeir draumar
voru svo sem breytilegir,
einu sinni ætlaði ég að verða
teiknimyndahetja og svo
ninja,“ segir Finnbogi og hefur
gaman af að rifja upp frum-
bernskuna.
Enn hefur hann áhuga
á íþróttum þó áhuginn fara
víðar um en áður var. „Helstu
áhugamál mín nú eru útivera
og ferðalög. Við ferðumst
mikið til Bandaríkjanna þar
sem tengdaforeldrarnir búa
og næst fer strákurinn með
okkur, hann verður þá orðinn
hálfsárs og tilbúinn að takast
á við heiminn.“
Finnbogi hefur starfað við
ýmislegt á lífsleiðinni en mörg
undafarin ár hefur hann stund-
að verslunar störf og síðustu ár
hefur hann starfað hjá Dress-
mann í Kringlunni og hjálpað
landanum að klæða sig.
Hann kvíðir ekki tíma-
mótunum heldur tekur þeim
fagnandi. „Þetta er tími sem
kemur í lífi hvers manns og
ekki ástæða til að óttast það.
Ég hef aldrei verið hræddur
við að eldast. Ég mun fagna
þessu með mikilli veislu með
vinum ættingjum. Það verður
boðið upp á súpu og kökur.
Þetta verður miðdagsveisla
fyrir alla aldurshópa. Það er
miklu skemmtilegra þegar
fólk getur komið með börnin
sín með í veislur,“ segir kaup-
maðurinn knái um leið og
hann selur útlendum ferða-
manni jakkaföt.
Óttast ekki „Þetta er tími sem
kemur í lífi hvers manns og ekki
ástæða til að óttast það.“
23 ára
Theo Walcott knattspyrnumaður
hjá Arsenal á afmæli á
föstudaginn, þann 16. mars.
47 ára
Hjartaknúsarinn Rob Lowe yngist
með árunum og á afmæli á
laugardaginn, þann 17. mars.
48 ára
Vanessa Williams sem leikur eitt
aðalhlutverkanna í Desperate Housewives
á afmæli á sunnudaginn, þann 18. mars.