Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Síða 40
A
nnie Le var myrt 8. sept-
ember 2009 á lóð Yale-
háskólans í New Haven í
Connecticut í Bandaríkj-
unum þar sem hún var í
doktorsnámi í læknisfræði. Annie
sást síðast á lífi í byggingu sem
hýsir rannsóknaraðstöðu skólans
8. september og 13. sama mán-
aðar. Einmitt þann dag hafði ver-
ið ætlun hennar að ganga í hjóna-
band.
Að morgni 8. september yfirgaf
Annie íbúð sína og fór í Sterling
Hall-bygginguna á háskólasvæð-
inu. Um tíuleytið fór hún fót-
gangandi þaðan í aðra háskóla-
byggingu, Amistad-bygginguna,
þar sem rannsóknarstofan var
til húsa, en hafði skilið hand-
tösku sína, farsíma, krítarkort og
reiðufé eftir á skrifstofu sinni í
Sterling Hall.
Upptökur úr eftirlitsmynda-
vél sýna hana ganga inn í Amis-
tad-bygginguna rúmlega 10 að
morgni. Annie Le sást aldrei yfir-
gefa bygginguna. Um níuleytið
um kvöldið, þegar Annie hafði
ekki skilað sér heim, hringdi einn
samleigjenda hennar í lögregluna
og viðraði áhyggjur sínar.
Blóðug föt
Lögreglu fannst undarlegt að
hvergi á upptökum úr öryggis-
myndavélum sást Annie yfirgefa
bygginguna og innsiglaði því alla
bygginguna. Lögreglan rannsak-
aði einnig sorpbrennsluna í von
um að finna eitthvað sem varpað
gæti ljósi á hvarf Annie.
Það var ekki fyrr en 13. septem-
ber sem lík Annie fannst milli þilja
í rannsóknarstofu í kjallara Amis-
tad-byggingarinnar, en þar höfðu
áður fundist blóðug föt.
Um 75 eftirlitsmyndavélar
fylgjast með svæðinu og til að
komast inn í bygginguna og þaðan
inn í hinar ýmsu vistarverur þarf
aðgangskort. Rannsókn lögregl-
unnar beindist því fyrst og fremst
að starfsmönnum og nemendum
Yale-háskólans.
Á hvolfi á milli þilja
Til að byrja með var ástandi líksins
af Annie haldið leyndu af lögregl-
unni en síðar var gert opinbert að
lík hennar hafði verið á hvolfi inni
í veggstokki í kjallara byggingarinn-
ar. Brjóstahaldarinn hafði verið tog-
aður upp að höfði hennar og nær-
buxur hennar niður að ökklum. Á
meðal áverka voru brotin kjálki og
viðbein, og ljóst að það hafði gerst
fyrir dauða hennar.
Nú gerðust hlutir hratt; 17.
september handtók lögreglan
Raymond J .Clark, 26 ára tækni-
mann við Yale-háskólann, sem
hafði verið við störf í bygging-
unni þegar Annie hvarf. Raymond
hafði reyndar verið kallaður til
daginn áður og hafði gefið DNA-
sýni en síðan verið sleppt.
Eftir að Raymond var handtek-
inn var honum haldið í hámarks-
öryggisfangelsi í Connecticut og
kom fyrir dómara 6. október 2009
en gaf ekki neina yfirlýsingu um
sekt eða sakleysi. Réttarhöldunum
var frestað til 26. janúar 2010 þar
sem lögfræðingar höfðu fengið öll
gögn málsins og þann sama dag
lýsti Raymond yfir sakleysi sínu.
Iðraðist gerða sinna
Það var ekki fyrr en 17. mars
2011 sem Raymond J. Clark ját-
aði sig sekan um morðið á Annie
Le gegn því að fá ekki lengri dóm
en 44 ár. Raymond var einn-
ig ákærður fyrir tilraun til að
beita kynferðislegu ofbeldi gegn
Annie og lýsti sig sekan sam-
kvæmt svonefndri Alford-játn-
ingu: „Ég er sekur en ég gerði
það ekki,“ og viðurkenndi þann-
ig að það lægju fyrir nægar vís-
bendingar til að sakfella hann.
Raymond lýsti yfir mikilli
iðrun vegna gjörða sinna en
gaf engar skýringar á ástæðum
verknaðarins og engin ástæða
var nokkurn tímann gefin.
Raymond J. Clark losnar
sennilega úr fangelsi árið 2053.
40 16.–18. mars 2012 Helgarblað
Sakamál 9. febrúar-morðinginn er viðurnefnið meints raðmorðingja, grunaður um þrjú morð í Utah í Bandaríkjunum. Sonia Mejia var barnshafandi og gengin sex mánuði með þegar hún var myrt í Taylors-ville 9. febrúar 2006 og Damiana Castillo var myrt í West Valley City – 9. febrúar 2008. Það var þó ekki fyrr en árið 2009 sem DNA-greining leiddi í ljós að morðin tengdust. Morðin voru aldrei upplýst.U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s
F
lugfreyjan Helle Crafts var myrt 19.
nóvember 1986. Banamaður hennar
var eiginmaður hennar, Richard, sem
var bæði laus í rásinni og laus höndin.
Helle var vel kunnugt um kvennastand Rich-
ards og var fyrir dauða sinn farin að vinna í
skilnaði þeirra hjóna.
Að kvöldi 19. nóvember hafði vinur Helle
skutlað henni heim, í Newtown í Connecti-
cut í Bandaríkjunum. Eftir það sá hana eng-
inn á lífi nema Richard.
Næstu vikur reyndu vinir Helle ítrekað að
ná í hana en Richard var með margar ólíkar
sögur á takteinunum; Helle hafði farið í
heimsókn til móður sinnar í Danmörku; hún
hafði einfaldlega farið eitthvert og hann vissi
ekki hvert; hún hafði farið til Kanaríeyja með
vini sínum.
Vinir Helle fylltust tortryggni og áhyggj-
um því skapofsi hans var þeim vel kunnugur
og Helle hafði haft á orði, einhvern tímann,
„ef eitthvað kemur fyrir mig, ekki álykta að
um slys hafi verið að ræða“.
Lögreglan hafði fengið heimild til hús-
leitar á heimili Craft-hjónanna 25. desember
og hnaut um nokkrar vísbendingar. Búið var
að skera burt búta hér og þar af gólfteppinu
í svefnherbergi hjónanna, húshjálpin sagði
lögreglunni frá einum blett sem hún hafði
séð en var búið að skera burt og blóðblettur
var á hjónarúminu.
Þegar lögreglan kannaði kortayfirlit Rich-
ards kom í ljós að hann hafði keypt sér ýmis-
legt bæði fyrir og eftir hvarf Helle. Á meðal
þess var frystikista sem hvergi var sjáanleg,
nýr sængurfatnaður og rúmteppi og einnig
hafði Richard leigt sér viðarkurlara.
Einkaspæjari sem Helle hafði ráðið en
síðan rekið fann í pappírum sem Helle hafði
komið til hans kvittun fyrir keðjusög. Um-
rædd keðjusög fannst síðar í Zoar-vatni og
við ítarlega rannsókn fundust hvort tveggja
hár og blóð sem hægt var að rekja til Helle.
Bílstjóri snjóplógs gaf sig fram við lögregl-
una og upplýsti að hann hefði séð Richard
önnum kafinn við viðarkurlarann á brú yfir
Zoar-vatn – í miðjum hríðarbyl – sama kvöld
og Helle hvarf.
Vegna þessara upplýsinga leitaði lögregl-
an vísbendinga á því svæði í marga daga og
hafði upp úr krafsinu 85 grömm af líkams-
leifum; tönn, tánögl, beinflísar, hár, fingur-
neglur og blóð sem stemmdi við blóðflokk
Helle. Greining staðfesti að allt þetta hafði
farið í gegnum viðarkurlara.
Kenning lögreglunnar var að Richard
hefði slegið Helle í svefnherbergi hjónanna
þannig að hún missti meðvitund, sett líkama
hennar í frystikistuna og geymt hann þar í
smátíma. Síðar um kvöldið, sama kvöld og
sást til hans við Zoar-vatn, bútaði Richard lík
Helle niður og setti líkamshlutana í viðar-
kurlarann.
Richard var sakfelldur 21. nóvember
1989, í kjölfar langra réttarhalda og í janúar
1990 var hann dæmdur til 50 ára fangelsis-
vistar.
Bútaði eigin-
konuna niður
Setti líkamsleifarnar í viðarkurlara
„Á meðal áverka
voru brotin kjálki
og viðbein, og ljóst að
það hafði gerst fyrir
dauða hennar.
n Annie Le fór grunlaus á rannsóknarstofu Yale-háskóla
Raymond J. Clark Iðraðist gjörða sinna en útskýrði aldrei ástæður þeirra.
Á hvolfi inni í stokk