Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 42
Hvað er að gerast? Laugardagur Föstudagur Sunnudagur 17 mar 16 mar 18 mar La Bohème frumsýnd Óperan La Bohème eftir Giacomo Puccini í uppfærslu Íslensku óper- unnar er frumsýnd í Hörpu í kvöld. Daníel Bjarnason er hljómsveitar- stjóri. Sýningin hefst klukkan 20 og miðaverð er frá 4.000 krónum upp í 12.000 krónur. Ingó töframaður Töframaðurinn Ingó Geirdal verður með töfrasýningu fyrir alla fjöl- skylduna í Salnum Kópavogi í dag. Ingó hefur sýnt töfrabrögð sín víða um Evrópu og Asíu. Á sýningunni býður hann upp á sjónhverf- ingar, hugarlestur og töfrabrögð á heimsmælikvarða. Sýningin hefst klukkan 15 og aðgangseyrir er 1.800 krónur. Afinn á Húsavík Sigurður Sigurjónsson ferðast um landið með leikverkið Afann. Í kvöld er sýning á Fosshóteli Húsavík sem hefst klukkan 20. Miðaverð er 3.700 krónur. Palli og Blár Opal Páll Óskar treður upp á heimavelli sínum, Nasa, ásamt hljómsveitinni Bláum Ópal. Partítónlist verður í hávegum höfð ásamt glingri, blöðrum og konfetti-bombum. Miðaverð er 1.500 krónur í forsölu á midi.is. David Bowie Tribute Tónleikar til heiðurs David Bowie á Úrillu Górillunni. Þekktir söngvarar hafa skotið upp kollinum með Karli Örvarssyni og Kóngulónum frá Mars á undanförnum tónleikum, svo sem Magni Ásgeirsson, Eyþór Ingi og fleiri. Það má því búast við góðum gestum að þessu sinni. Hefjast klukkan 23.59 og miðaverð er 2.000 krónur. Söngkonur stríðsáranna Kristjana Skúladóttir leikkona flytur á tón- leikunum lög sem voru vinsæl í síðari heimsstyrjöld- inni. Marlene Dietrich, Veru Lynn, Edith Piaf og fleiri söngkvenna verður minnst, bæði með söng en ekki síður með frásögnum af afrekum þeirra á stríðsárunum. 42 16.–18. mars 2012 Helgarblað „Sorinn beint í æð“ „Ævintýri með íslensku ívafi“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Svartur á leik Kingdoms of Amalur: Reckoning Þ etta leggst almennt bara mjög vel í mig. Ég er búinn að sjá fyrstu þættina, þannig að ég er bara góður,“ segir grínistinn og textahöf- undurinn Ari Eldjárn um gamanþætti Mið-Íslands- hópsins sem fara í sýningar á Stöð 2 næsta fimmtudag. Ari ásamt þeim Bergi Ebba Benediktssyni, Dóra DNA og Jóhanni Alfreð, hefur kitlað hláturtaugar lands- manna undanfarin ár eftir að grínhópurinn var stofn- aður og fá þeir nú tækifæri til að gera sjónvarpsþætti. Ari segir framsetningu þáttanna nýstárlega þó að í grunninn sé ekkert nýtt undir sólinni þegar kemur að gamanefni. Sjálfur heldur hann í mikið ferðalag í sumar og ætlar að skemmta á nánast hverjum einasta stað sem hann kemst á. Sex vikur í tökum „Þetta byrjaði að rúlla mjög fljótlega eftir að við byrjuðum í Þjóðleikhúsinu,“ segir Ari um aðdraganda sjónvarps- þáttarins sem ber sama heiti og hópurinn, Mið-Ísland. „Við vorum í Þjóðleikhúskjallar- anum í svona sex mánuði og höfðu þá oft rætt okkar á milli að gera sjónvarpsþátt. Við vorum allir almennt til í þetta og þetta gerðist fljótt eftir að við fórum að þreifa fyrir okkur. En við vorum mjög ánægðir þegar Stöð 2 ákvað að gera þetta með okkur. Við erum mjög ánægðir með að vera á sömu stöð og Fóst- bræður voru,“ segir Ari. Við upphaf síðasta árs fundu strákarnir sér skrifstofu og fóru að skrifa. „Fyrst hitt- umst við og eyddum tveimur mánuðum bara í að fá hug- myndir. Næstu tvo mánuði vorum við að raða þeim sam- an í þætti og skrifa og endur- skrifa. Þegar fór að líða á maí vorum við fyrir löngu komnir með átta handrit og var meira að segja rosalega miklu hent. Eftir það tókum við smá frí til að læra handritið og tökur hófust í ágúst á síðasta ári. Þær stóðu í sex vikur með tveggja vikna hléi,“ segir Ari Eins og átta litlar bíómyndir Ari segir hvern og einn af þeim átta þáttum sem sýndir verða að mestu leyti sjálf- stæðan. „Í sjálfu sér er ekkert nýtt undir sólinni í þessum efnum en framsetningin á þáttunum er ný og fersk. Þetta verða átta þættir sem eru að miklu leyti sjálfstæðir eða að það eru tengingar í hverjum og einum þætti. Þetta er eins og átta litlar bíómyndir. Þetta eru í grunninn sketsar en með upphaf, miðju og endi og hnýttir saman á öðruvísi hátt,“ segir Ari en á veggspjaldinu fyrir þáttinn má sjá strákana í ýmiss konar gervi. Verð- ur mikið um skemmtilega karaktera í þáttunum? „Það er slatti af þeim og margir koma bara einu sinni fyrir. Ég vil samt ekki segja neitt of mikið frá þeim,“ segir Ari en finnst honum hópur- inn ekki hafa náð langt á af- skaplega skömmum tíma? „Ég er bara ekki dómbær á það því mér finnst þetta alltaf vera eins,“ segir hann og hlær við. „Maður lifir bara viku frá viku og staldrar aldrei við til að hugsa hversu mikið þetta hefur undið upp á sig. Ég á rosalega erfitt með að sjá muninn á okkur þegar við vorum að byrja og hvernig við erum núna. Ég hef alltaf átt rosalega erfitt með að setja hluti í samhengi því mér finnst bara alltaf eins og allt sé eins.“ Ástfangnir af Þjóðleikhúsinu Meðlimir Mið-Íslands eru að verða algjörar mublur í Þjóðleikhúsinu en þar hélt hópurinn gríðarlega vinsæl uppistandskvöld í kjallara hússins lengi vel. Fyrr á þessu ári hófu þeir að sýna á stóra sviðinu fyrir fullum sal. „Ég hafði einu sinni staðið á stóra sviðinu þegar ég var að kynna á Reykjavík International Film Festival. Það var eina skiptið sem ég hafði séð salinn frá sviðinu. Við höfðum verið slatta mikið í kjallaranum og rætt hversu gaman það væri að komast upp ef við fengjum tækifæri til þess. Svo losnuðu nokkur kvöld þannig að við stukkum á þau þegar okkur var boðið þetta tækifæri. Við þökkuðum bara kærlega fyrir okkur,“ segir Ari en hópnum líður vel í Þjóðleikhúsinu. „Það eru allir svo frábærir þarna. Ása, sem sér um sýn- ingarnar okkar, hefur verið frábær sem og Ari Matt og Tinna. Þau hafa haft rosalega mikið frumkvæði og eru flink að láta sér detta hluti í hug sem hjálpa okkur. Við erum algjörlega ástfangnir af Þjóð- Stukku á tækifærið Grínhópurinn Mið- Ísland hefur kitlað hláturtaugar lands- manna undanfarin ár. Næsta fimmtu- dag hefjast sýningar á grínþætti þeirra á Stöð 2 sem Ari Eldjárn, einn með- lima hópsins, segir verða nýstárlegan og ferskan. Sjálfur heldur Ari í lang- ferð í sumar þegar hann ætlar að túra um allt landið með uppistand sitt. Sá fyndnasti Ari Eldjárn á sér fáa jafnoka þegar kemur að uppistandi. mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.