Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Side 50
50 Lífsstíll 16.–18. mars 2012 Helgarblað
Virkilega flott
róðrarvél
Róður er ein besta líkamsrækt
sem völ er á. Róðrarvélar hafa
löngum verið vinsæl æfingartæki
en núna er loksins komið slíkt
æfingatæki sem ekki þarf að fela á
heimilinu – því það er einfaldlega
virkilega flott. WaterRower Row-
ing Machine er smíðað úr viði og
er búið sérstaklega hönnuðu Wa-
terFlywheel-hjóli sem nær að líkja
nokkuð nákvæmlega eftir vatni.
Tækið þykir sérstaklega vel útbúið
og að það skapi rétta taktinn og
hreyfingarnar á móti æfingunum
sem maður gerir á vélinni þannig
að æfingin er sú sama og ef maður
væri á raunverulegum báti að róa.
Mottuleir
Það eru ótalmargir karlmenn sem
taka upp á því að safna yfirvara-
skeggi, eða mottu, í marsmán-
uði í tilefni átaksins Mottumars.
Með Moustache Pomade geturðu
mótað skeggið og gert það enn
flottara. Leirinn er unninn úr líf-
rænum efnum og er með örlítið
af ilmolíu sem lætur skeggið ilma.
Leirinn fer líka vel með húðina
og skeggið og er því í raun ekki
vitlaust að nota leirinn. Hægt er
að kaupa Moustache Pomade á
netinu fyrir tíu dali, jafnvirði 1.300
íslenskra króna.
Ketilbjöllur
djöfulsins
Það má með sanni segja að ketil-
bjölluæði hafi gripið um sig á Ís-
landi og víðar. Bjöllurnar sem not-
aðar hafa verið hingað til eru þó
allar frekar látlausar og ekki hægt
að segja að mikið sé hugsað um
útlit þeirra. Það þarf þó ekki að
vera þannig. Fyrir áhugasama er
í boði að kaupa Demonbells, eða
djöflabjöllur, sem eru hannaðar
eins og andlit á hinum ýmsu ver-
um. Ketilbjöllurnar eru því orðnar
hálfgerð listaverk og þætti mörg-
um ekki leiðinlegt að hafa þessar
bjöllur heimavið þar sem fólk gæti
séð. Bjöllurnar er hægt að kaupa á
netinu fyrir 80 til 200 dali, jafnvirði
10.000 til 25.000 króna.
n Skortur getur valdið ýmsum einkennum
Drekktu átta glös
af vatni á dag
n Árið 1945 sendi lýðheilsustöð Banda-
ríkjanna frá sér leiðbeiningar sem kváðu á
um að fólk ætti að drekka minnst átta glös
af vökva á dag. Áður en langt um leið voru
margir farnir að tala um að nauðsynlegt
væri að drekka átta glös af vatni fyrir utan
það sem við borðum og drekkum alla
jafnan. Sannleikurinn er hins vegar sá að
þó að vatn sé frábært er inni í þessum átta
glösum af vökva allur annar vökvi sem þú
kannt að drekka yfir daginn, þar með talinn
djús, mjólk og jafnvel kaffi.
Borðaðu við kvefi,
sveltu þig við hita
n Kvef og hiti á sér yfirleitt orsakir í víruss-
miti sem varir í sjö til tíu daga, sama hvað
þú gerir. Það hafa engin tengsl fundist á
milli mataræðis eða matarvenja að öðru
leyti en því að mikilvægt er fyrir alla,
sama hversu veikir þeir eru, að fá vökva.
Það er því í raun þveröfugt miðað við full-
yrðinguna um að fólk eigi að svelta sig við
hita að það má í raun alls ekki gera, þar sem
líkaminn þarf alltaf á næringu og vökva
að halda.
Stress gerir hárið á
þér grátt
n Það er ekki óalgengt að fólk segi að það
sé að verða gráhært af stressi. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að það eru engar
líkur á því að það sé satt. Of mikið stress
og álag hefur líkamleg áhrif og getur haft
mikil áhrif á andlega líðan okkar. Það hefur
hins vegar aldrei verið sýnt fram á tengsl á
milli stress og grárra hára á höfði okkar.
Ferskt er alltaf
betra en frosið
n Lengi hefur verið talað um mikilvægi þess
að borða ferskt grænmeti og ávexti en sú
fullyrðing gefur til kynna að frosið grænmeti
og ávextir séu ekki jafn góðir. Það er hins-
vegar ekkert sem bendir til þess að frosið
grænmeti eða ávextir séu verri en þeir fersku.
Það er þó að sjálfsögðu mikilvægt hvenær
frystingin átti sér stað og má færa rök fyrir
því að sé grænmeti og ávextir frosnir við
tínslu séu þeir í raun ferskari en þeir sem fara
ófrosnir í flutninga á milli landa.
Að lesa í lélegri
birtu er slæmt
n Þú hefur líklega heyrt um þetta hjá
mömmu þinni að það fari illa með augun
að lesa í lélegri birtu. Sannleikurinn er hins
vegar sá að lestur í lélegri birtu getur reynt
mikið á augun og þreytt þig en það hefur
engin varanleg áhrif á augun í þér. Þreytt
augu geta verið þurr og þig gæti verkjað
í þau en það er ekkert sem nokkurra klukku-
stunda svefn getur ekki lagað.
Kuldi veldur kvefi
n Þetta hafa líklega allir heyrt en það gerir
það ekki satt. Sannleikurinn er sá að undir
flestum kringumstæðum hefur kuldi engin
áhrif á ónæmiskerfi líkamans og varnir
hans til að takast á við vírussmit. Líkaminn
þarf að ofkælast til að það geti haft áhrif
á ónæmiskerfið og þá er margt annað en
kvef sem þú þarft að hafa áhyggjur af. Það
er hins vegar alveg satt að fólk fái frekar
kvef á veturna en sumrin en það er vegna
þess að á veturna er fólk frekar inni á meðal
fólks en úti við og því auðveldara fyrir
vírussmit að berast á milli manna.
Kaffi er virkilega
slæmt fyrir þig
n Þó að of mikið kaffi geti haft áhrif á þig
og fengið þig jafnvel til að halda að kaffi-
neysla sé slæm fyrir þig. Það er þó ekki rétt.
Kaffineysla hefur ýmis áhrif á líkamann og
gefur sumum hverjum það auka orkuskot
sem þarf til að byrja daginn. Það hafa þó
aldrei fundist bein tengsl á milli sjúkdóma
og kaffineyslu.
Varaliturinn getur
gert þig veika
n Árið 2007 sögðu forsvarsmenn Campaign
for Safe Cosmetics að varalitir gætu valdið
skaða vegna blýsmits. Sögðu samtökin að
smit úr hylkjunum utan um varalitinn sjálfan
orsökuðu þetta en það er staðreynd að blý
getur haft slæm áhrif á heilsuna. Sannleikur-
inn er hins vegar sá að blýmagnið sem smitast
í varalit er í það litlu magni að ekki þykir líklegt
að það hafi áhrif á heilsu þína. Í raun eru
talsvert meiri líkur á að fólk fái blýeitrun af
gömlum rörum og málningu á heimilum.
1
5
2
6
3
7
4
8
8 hlutir sem ekki
þarf að óttast
n Heilsutengdar áhyggjur oftar en ekki byggðar á misskilningi
Þ
að er margt sem nútímafólk
hefur áhyggjur af varðandi
heilsu. Með tilkomu inter-
netsins hefur fólk aukinn að-
gang að upplýsingum um hvað gæti
haft áhrif á heilsuna og hvað það á
að gera til að bæta heilsu sína og
hvernig á að lækna hina ýmsu sjúk-
dóma. Það er þó oftar en ekki algjör
vitleysa sem kemur fram á netinu og
getur verið varasamt að taka upp-
lýsingum af spjallborðum og blogg-
síðum sem öruggum staðreyndum.
Rich Buhler, stofnandi vefsíðunnar
truthorfiction.com, þar sem sann-
leiksgildi sögusagna á netinu er
kannað, tók saman lista yfir nokkur
áhyggjuefni fólks sem ekki eiga við
rök að styðjast.
Skortir þig magnesíum?
Þ
að er ýmislegt sem skort-
ur á steinefninu magnesí-
um getur valdið. Magn-
esíum er lífsnauðsynlegur
efnahvati í virkni ensíma sem
hjálpar til við upptöku kalks og
kalsíums. Magnesíumskortur
getur haft áhrif á flutning tauga-
og vöðvaboð og valdið depurð
og taugaveiklun.
Með því að taka inn magn-
esíum er hægt að vinna gegn
þunglyndi, svima, slappleika í
vöðvum, vöðvakippum og fyrir-
tíðaspennu. Það hjálpar einnig
við að viðhalda eðlilegu sýrustigi
í líkamanum og líkamshita.
Magnesíum verndar veggi
slagæða gegn álagi þegar
skyndilegar breytingar á blóð-
þrýstingi verða. Það skipar
einnig stórt hlutverk í myndun
beina og í efnaskiptum kolvetna
og vítamína/steinefna. Magn-
esíum ásamt B6-vítamíni get-
ur hjálpað við að draga úr og
leysa upp nýrnasteina og fyrir-
byggir myndun þeirra. Rann-
sóknir sýna að magnesíum get-
ur einnig fyrirbyggt hjarta- og
æðasjúkdóma, beinþynningu
og ákveðnar tegundir krabba-
meins. En það er ekki það eina;
inntaka magnesíums á með-
göngu getur dregið verulega úr
fósturskaða við fæðingu, unn-
ið gegn fyrirburafæðingum og
samdráttarkrömpum hjá þung-
uðum konum. Mögulegar birt-
ingarmyndir magnesíumskorts
eru ruglingur, svefnleysi, slök
melting, hraður hjartsláttur, flog
og æðisköst. Magnesíumskortur
getur líka valdið svipuðum ein-
kennum og sykursýki.
Magnesíumskortur kemur
gjarnan í ljós við upphaf margra
hjarta- og æðavandamála. Hann
getur verið meginorsök ban-
væns hjartakasts, mikillar tauga-
spennu og skyndilegs hjarta-
stopps, auk astma, síþreytu,
krónísks sársauka, þunglyndis,
svefnleysis, ristiltruflana og
lungnasjúkdóma. Rannsóknir
hafa einnig sýnt að magnesíum-
skortur getur ýtt undir myndun
nýrnasteina. viktoria@dv.is
Magnesíum finnst í flestum
matvælum Kasjúhnetur, tómatar,
spergilkál og þistilhjörtu innihalda
einna mest magnesíum.