Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Qupperneq 62
Slær í gegn á Youtube
n Vissi ekki að neinn vildi hlusta á hana
É
g er bara orðlaus yfir
viðbrögðunum sem ég
hef fengið frá fólki sem
ég þekki ekki neitt,“ seg-
ir Tinna Gunnlaugsdóttir,
27 ára Reykjavíkurmær, sem
sendi frá sér lag og mynd-
band á vefsíðuna Youtube
á dögunum en þar syngur
Tinna lagið Make you feel
my love af mikilli innlifun.
Hún segist aldrei áður
hafa sungið opinberlega. „Ég
byrjaði að syngja í vinnunni.
Fyrst á jólahlaðborðinu og
svo á árshátíðinni. Annars
hafði enginn heyrt í mér
nema þá kærastinn og son-
urinn,“ segir Tinna en bætir
við að hún hafi alltaf vitað að
hún gæti sungið. „Mér hefur
alltaf þótt gaman að syngja
en mér datt aldrei í hug að
einhverjir vildu hlusta á mig.
Ég bjóst alls ekki við þessum
viðbrögðum og setti þetta
bara inn á netið svo vinir
mínir gætu séð þetta.“
Aðspurð segir hún upp-
átækið virðast ætla að opna
nýjar dyr. „Það er eitthvað
í gangi og einhverjir búnir
að hafa samband við mig
en ekkert sem ég er búin að
skoða almennilega. Von-
andi verður eitthvað meira
úr þessu. Ég væri alveg til
í að vinna sem söngkona,“
segir hún og bætir aðspurð
við að tónlistarkonan Adele
sé í miklu uppáhaldi. „Mér
finnst Adele æðisleg. Hún
er svo einlæg og stólar bara
á röddina sína. Hún er ekk-
ert að reyna að vera eitthvað
annað en hún er heldur er
bara hún sjálf,“ segir Tinna
og bætir við að þannig vilji
hún líka vera. „Ég vil bara
syngja og hef engan áhuga á
að sýna mig. Ætli fólk kunni
ekki að meta það,“ segir hún
og bætir við að hún myndi
aldrei láta undan þrýstingi
um að sýna af sér kynþokka
til að komast lengra í brans-
anum. „Það er alls ekki ég.
Ég held líka að maður verði
að hafa hlutina eins og mað-
ur sjálfur vill en ekki eins og
aðrir vilja að þeir séu. Ég er
bara ég og ætla að halda því
áfram.“
62 Fólk 16.–18. mars 2012 Helgarblað
María Sigrún
„kú kú“ í Cocoa
Puffs
Fréttakonan ófríska María Sigrún
Hilmarsdóttir er ein þeirra sem
er ósáttir við nýja Cocoa Puffs-ið
sem er hollara en það gamla og
öðruvísi á bragðið. „Þið getið tekið
gleði ykkar á ný. Sjálfri líður mér
eins og Sonny í þessari auglýs-
ingu. Gamla góða Cocoa Puffs-
ið mun fást í Kosti á allra næstu
dögum! Sullenberger gekk í málið
og splæsti í gám þegar hann frétti
af ófrískri konu, öðru reiðu og
óánægðu fólki sem henti nýja
óæta stöffinu fram af svölum sín-
um sem fuglafóðri í bræðiskasti.
Húrra fyrir honum!“ skrifar frétta-
konan á Facebook-vegg sinn.
Herra Gay
Ísland í flug-
freyjuna
„Þetta hefur lengi verið draumur
hjá mér en þar sem ég var 130 kíló
fyrir nokkrum árum gerði ég mér
aldrei vonir um að fá að starfa við
þetta fag,“ segir Vilhjálmur Þór
Davíðsson, fyrrverandi herra Gay
Ísland, sem er byrjaður í flug-
þjónanámi hjá Icelandair. Vil-
hjálmur flutti heim til Íslands frá
Noregi fyrir jólin. „Ég fór í gegnum
umsóknarferlið hjá þeim síðasta
vor án þess að fá ráðningu en
svo höfðu þau samband núna í
febrúar og vildu fá mig í viðtal.
Það gekk líka svona vel,“ sagði Vil-
hjálmur þegar DV hafði samband
við hann.
Ýmislegt í pípunum Við eigum eflaust eftir að sjá meira af Tinnu í
framtíðinni.
Einar Bárðarson
vill Geir-dal
Athafnamaðurinn Einar Bárðar-
son hefur komið með nýja hug-
mynd að gjaldmiðli ef marka má
fésbókarfærslu hans. „Margir eru
að tala um að taka upp Kanada
Dal hérna á Íslandi. Sumir tala
um Bandaríkja Dal - Ég hef vilja
ræða um að taka upp Geir-dal
(Jón Gunnar Geirdal) þá helst,“
skrifar Einar og Jón Gunnar, sem
er þekktur grínisti og höfundur
flestra frasanna sem festust á heila
landsmanna eftir Vakta-seríurnar,
var ekki lengi að setja „like“ á þráð
útvarpsstjórans. „Heyrheyr vinur...
eflaust margt vitlausara!“
n Breytti nafninu í leiklistarskóla n Tók ættarnafn skoskrar konu
Damon heitir Ásgeir
L
eikarinn Damon Youn-
ger fer með eitt aðal-
hlutverkanna í íslensku
myndinni Svartur á
leik sem gerir það gott
í kvikmyndahúsum lands-
ins. Tugir þúsunda hafa séð
myndina sem er byggð á sam-
nefndri skáldsögu rithöfund-
arins Stefáns Mána. Damon
leikur glæpamanninn sið-
blinda Brúnó í myndinni og
hefur fengið góða dóma fyrir
frammistöðu sína.
Fólk heldur að ég sé
útlendingur
Þrátt fyrir erlenda nafnið er
Damon Íslendingur og var
skírður Ásgeir Þórðarson en
hann segir söguna á bak við
nafnið í nýjasta hefti Monitor.
„Fólk heldur oft að ég sé út-
lendingur. Ég lendi stundum
í því að heyra: „Svakalega tal-
ar þú nú góða íslensku.“ Ég er
auðvitað sífellt spurður hvers
vegna ég heiti þessu nafni. Ég
heiti sem sagt Ásgeir Þórðar-
son, þótt ég hafi reyndar lesið
í blaðinu um daginn að ég héti
Ásgeir Ásgeirsson en ég veit
ekki hvaðan það kom.“ segir
hann og heldur áfram: „Þegar
það fór að nálgast útskrift úr
leiklistarskólanum úti þá kall-
aði skólameistarinn mig til sín
og sagði við mig: „Jæja, það er
kominn tími til að þú veljir þér
eitthvað leikaranafn því þú átt
aldrei eftir að fá vinnu hérna
sem Ásgeir Þórðarson.“,“ segir
Damon en hann lærði leiklist
í The Webber Douglas Aca-
demy of Dramatic Art í Eng-
landi og útskrifaðist þaðan
árið 2001. „Ég tók hann á orð-
inu,“ segir Damon í Monitor
um ábendingu skólameistar-
ans en nafnið sem hann valdi
sér tengdist góðri konu sem
hann kynntist í Skotlandi.
Nýtti sér Damon Albarn-
æðið
„Ég ólst upp í Skotlandi og það
var kona þar sem gekk mér
hálfpartinn í ömmustað sem
hét May Young og hún átti
enga afkomendur. Hvort sem
þú trúir því eða ekki þá ákvað
ég það þegar ég var lítill að ef
ég þyrfti einhvern tímann að
taka upp enskt nafn, þá myndi
ég vilja taka upp eftirnafnið
hennar,“ segir Damon en fyrra
nafnið kemur úr Blur-æðinu
sem var hér heima á sínum
tíma. „Ég var að ræða við einn
félaga minn um hvaða fornafn
ég ætti að velja og hann spurði
hvort það væri ekki eitthvað
Damon Albarn-æði á Íslandi
og við hlógum mikið að því
svo ég ákvað að nota fornafn-
ið Damon. Daginn eftir fór ég
í leikarasambandið í Bretlandi
og ætlaði að fá að skrá þetta
nafn. Þá kom í ljós að það var
einhver annar leikari skráður
sem Damon Young. Þá barði
ég í borðið og spurði hvort að
Damon Younger væri laust og
það reyndist vera. Síðan festist
nafnið bara við mig úti enda
var svo sem alltaf dálítið snúið
að heita Ásgeir þarna úti,“ seg-
ir leikarinn Damon Younger í
viðtalinu.
tomas@dv.is
„Ég lendi
stundum í því
að heyra: „Svaka-
lega talar þú nú
góða íslensku.“
Slær í gegn Damon Younger
er góður í Svartur á leik.