Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 6
Vilja reka Jón Gnarr n Undirskriftasöfnun gegn borgarstjórnarmeirihlutanum R agnar Torfi Geirsson, Leó Már Jóhannsson og Eggert Teits- son hafa sett af stað undir- skriftasöfnun með það að markmiði að koma núverandi borg- arstjórnarmeirihluta frá völdum. „Okkur er full alvara með söfnun- inni – þetta er ekkert grín,“ segja þeir á vefsíðunni rekinn.is, sem þeir hafa hleypt af stokkunum. Á vefsíðunni kemur fram að aðstandendurnir séu kjósendur í Reykjavík sem hafi fengið nóg af illa rökstuddum og illa undir- búnum ákvörðunum meirihlutans í skólamálum og fjármálum borgar- innar. Á vefnum segir: „Jón Gnarr Kristinsson borgarstjóri og aðrir borg- arfulltrúar meirihlutans í Reykjavík sem starfið í umboði kjósenda. Ykkur er hér með sagt upp störfum. Ástæður uppsagnarinnar eru óábyrg fjármálastjórnun, röng for- gangsröðun fjármagns, stöðugur niðurskurður í grunnþjónustu og mik- ill skortur á samráði og íbúalýðræði. Uppsögnin öðlast gildi nú þegar.“ Athygli vekur að Jón Gnarr er kall- aður „Kristinsson“ í yfirlýsingunni, en í opinberri umræðu er hann aðeins kallaður því nafni í ritstjórnargrein- um Morgunblaðsins. Jón notar ekki sjálfur föðurnafn sitt. Þá má einnig benda á að titillinn á vefsíðunni rek- inn.is hefur skírskotun í frægt grínat- riði úr Fóstbræðrum þar sem persónu sem Jón Gnarr lék var sagt upp með orðunum: „Þú ert rekinn.“ Persóna Jóns kom undrandi út af fundinum og sagði samstarfsmönnum sínum að yfir maðurinn hefði sagt við sig: „Þú ert drekinn.“ 6 Fréttir 8.–10. júní 2012 Helgarblað n Menntaskólinn lagður niður eftir skólaárið É g kannast eiginlega ekki við að hafa orðað þetta með þess- um hætti,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi um þau ummæli Ólafs H. Johnson, eiganda og skólastjóra Menntaskól- ans Hraðbrautar, um að hann sé hlynntur því að menntamálaráðu- neytið geri nýjan þjónustusamning við skólann. Ólafur sendi frá sér til- kynningu á miðvikudaginn þar sem hann greindi frá því að skólinn yrði ekki starfræktur á næsta skólaári vegna andstöðu menntamálaráðu- neytisins við skólann. „Ljóst er að þegar skólanum var synjað um nýj- an þjónustusamning var um aðför stjórnvalda að einkarekstri að ræða. Sú aðför hefur heppnast vel. Tjón- ið sem af þessu hlýst hjá nemend- um, starfsmönnum og eigendum er þungbært. Síðast en ekki síst er tjón þjóðfélagsins mikið.“ Ólafur hélt því svo fram að mikill stuðningur væri við það að gerður yrði nýr samningur við skólann og vísaði meðal annars til Sveins í orðum sínum. Ýkir stuðninginn Orðrétt sagði Ólafur um þennan stuðning: „Ríkisendurskoðandi, for- ystumenn allsherjar- og mennta- málanefndar og fjölmargir þing- menn eru hlynntir því að gerður verði nýr þjónustusamningur við Menntaskólann Hraðbraut.“ Sveinn segist ekki muna eftir því að hafa sagt að þeir ættu að fá nýjan samn- ing. „Það sem ég sagði var að ráðu- neytið ætti að ræða við Hraðbraut, rétt eins og aðra aðila sem sækja um samning við ráðuneytið um rekstur. Burtséð frá því hvort þeir geri við þá samning eða ekki. Við ráðum auðvit- að engu um það hvort tilteknir aðil- ar fái samning við menntamálaráðu- neytið eða ekki og tjáum okkur ekki um slíkt.“ Þá segir Skúli Helgason, þing- maður Samfylkingarinnar og vara- formaður allsherjar- og mennta- málanefndar, að nefndin hafi ekki ályktað neitt um þjónustusamn- inginn við Hraðbraut og að nefndin hafi því ekki lýst þeirri skoðun að gera ætti nýjan samning við skól- ann. „Við höfum ekki rætt þetta á vettvangi nefndarinnar en höfum fylgst með samskiptum Hraðbraut- ar við ráðuneytið. Mín persónulega skoðun er sú að það sé óverjandi að ræða endurnýjun á samningnum án þess að Ólafur greiði til baka þá fjármuni sem hann fékk ofgreidda frá ríkinu á sínum tíma,“ segir Skúli. Ólafur virðist því einnig hafa oftúlk- að þennan stuðning allsherjar- og menntamálanefndar. „Ólafur getur ekki fengið að borga þessa skuld við ríkissjóð með því að fá nýjan þjón- ustusamning. Það væri auðvitað ansi langt gengið.“ Kolsvört skýrsla Þó nokkuð var fjallað um Hraðbraut í fjölmiðlum árið 2010 eftir að DV greindi frá því að Ólafur Johnson hefði greitt sér 160 milljónir króna út úr rekstrarfélagi og fasteignafélagi skólans á tímabilinu 2005 til 2008. Menntaskólinn Hraðbraut var fjár- magnaður að 80 prósentum með opinberu fé og 20 prósentum með skólagjöldum. Í kjölfarið skrifaði Ríkisendur- skoðun svarta skýrslu um starfsemi Hraðbrautar þar sem Ólafur var gagnrýndur fyrir að taka tugi millj- óna í arð út úr rekstrarfélagi skólans og fasteignafélaginu sem á skóla- bygginguna og fyrir að lána þaðan álíka upphæðir til fjárfestingaver- kefna. Jafnframt var sagt frá því að Hraðbraut hefði fengið of háar fjár- veitingar frá ríkinu sem ekki voru greiddar til baka. Menntamálaráðuneytið ákvað í febrúar 2011 að endurnýja ekki þjónustusamninginn við Hraðbraut á grundvelli þessarar skýrslu og úti- lokaði áframhaldandi skólastarf í Hraðbraut eftir þetta skólaár. Starf- semi skólans var hins vegar heim- iluð út þetta skólaár til að tryggja hagsmuni nemenda skólans. Fátt nýtt hefur því gerst í málinu, þrátt fyrir tilkynningu Ólafs. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Síðast en ekki síst er tjón þjóð­ félagsins mikið n „þetta er búið að ganga ákaflega vel“ n kennarar telJa Sig UnDirbOrgaða n greiDDi 27 MillJÓnir Í arð á tapári n ÓlafUr JOhnSOn kvÍðir ekki rannSÓkn ÓSÝNILEGA VALDA- STÉTTIN Á ÍSLANDI fréttir JÓHANNA GIFTIST JÓNÍNU fréttir beStU tJalDStÆðin MánUDagUr og þriðJUDagUr 28. – 29. JÚNÍ 2010 dagblaðið vísir 73. tbl. 100. árg. – verð kr. 395 neytenDUr ScOOter Í lanDi karlS n þJÓðverJinn Spilar Í galtalÆk fÓlk n hélDU Upp á Daginn Í Sveitinni ÞorGErðUr ENDUr- NÝJAðI SAmNINGINN KATrÍN SENDIr mÁLIð TIL rÍKISENDUrSKoðUNAr BJörN SAmDI VIð ÓLAF TÓK TUGI mILLLJÓNA Í Arð FrÁ SKÓLANUm eigandi og SKÓLaSTJÓRi MennTaSKÓLanS HRaÐBRaUTaR: millja rður í ríkiss tyrk 28. júní 2010 sagði ósatt um stuðning við Hraðbraut Rekinn? Kjósendur reyna nú að reka Jón Gnarr með undirskriftasöfnun. Ýkir stuðninginn Ólafur H. Johnson ýkir stuðning Ríkisendur- skoðunar og Alþingis við skóla hans. Skólinn leggur upp laupana í kjölfarið á opinberun- um um arðgreiðslur og lánveitingar út úr skólanum. Með haglabyssu í íbúðahverfi Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu var kölluð til á seinnipartinn á fimmtudag eftir að tilkynnt hafði verið um karlmann á sextugsaldri sem gekk um íbúðahverfi í austur- borginni með haglabyssu á lofti. Umsvifalaust var sérsveit ríkislög- reglustjóra send á vettvang. Var maðurinn afvopnaður og kom þá í ljós að ekki var um raunverulegt skotvopn að ræða heldur eftirlík- ingu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggur ekki fyrir hvað manninum gekk til með gervi- byssuna en hann var undir áhrif- um áfengis og vart viðræðuhæfur þegar hann hann var loks færður fyrir varðstjóra. Hann var látinn gista í fangaklefa þar sem til stóð að láta manninn sofa úr sér. Þjófur fór um gistiheimili Lögreglan var kölluð að gisti- heimili í miðborg Reykjavíkur á fimmtudag þar sem upp komst um þjófnað á myndavél og vega- bréfi. Svo virðist sem þjófurinn hafi farið inn í starfsmannaað- stöðu á gistiheimilinu og látið greipar sópa um eigur starfs- manns. Lögreglan leitar þjófsins. Í vímu á vespu Um sexleytið á fimmtudag var karlmaður á fimmtugsaldri stöðv- aður í austurborginni. Hann ók um götur á vespu en grunur lék á að hann væri undir áhrifum fíkni- efna. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina í Kópa- vogi. Hann var látinn laus að sýna- töku lokinni. Mikið úrval af fallegum skóm og töskum Gæði & Glæsileiki www.gabor . i s - f a cebook . com/gaborse r ve r s lun FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060 Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16 Sérverslun með 25 ár á Íslandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.