Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Page 17
„Vissum að Við fengjum ekki að Vera í friði“ Leynikarlaklúbbur í sáttahug Fimm fulltrúar allra flokka í atvinnuveganefnd hafa myndað með sér óformlega nefnd sem leita á sátta um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og innheimtu veiðigjalds svo ljúka megi fundi. Heimildarmaður blaðsins segir mikinn kurr í stjórnar- þingmönnum vegna þess hversu langt sé reynt að seilast til þess að þóknast stóru hagsmunaöflun- um í sjávarútvegi. Með því að búa til sérstakan hóp þar sem öll helstu málin eru rædd sé í raun verið að víkja þeim Ólínu Þorvarðardóttur og Lilju Rafney Magnús- dóttur frá, en þær hafa haldið hvað fastast í stefnu flokkanna innan atvinnuveganefndarinnar til þessa. Ætla má að karlarnir fimm reyni á næstu dögum að halda fundum sínum áfram. Hvort þeir komist að niðurstöðu um sanngjarna skiptingu á einu helsta fjöreggi þjóðarinnar – kvótanum í sjónum – mun tíminn einn leiða í ljós. Fréttir 17Helgarblað 8.–10. júní 2012 n Aðgerðum LÍÚ lokið n Mótmælendur púuðu á ræðumenn n Tvær fylkingar á samstöðufundi Samfylking Kristján Möller formaður atvinnu- veganefndar, situr í hópn- um fyrir Samfylkinguna Vinstri grænir Björn Valur Gíslason er fulltrúi VG í hinum óformlega og leynilega sáttahópi Sjálfstæðisflokkur Einar K. Guðfinnsson er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í hópnum Framsóknarflokkur Sigurður Ingi Jóhannsson er fulltrúi Framsóknarflokks í hópnum Hreyfingin Þór Saari situr í sáttahópnum fyrir hönd Hreyfingarinnar Vildi ekkert tjá sig Kristján Möller mætti til fundar en sá ekki ástæðu til að tjá sig við DV. Hann er einn fimm aðila sem situr í leynisáttanefnd innan atvinnuveganefndar. Mótmælendur púuðu Adolf Guð- mundsson formaður LÍÚ mátti búa við að mótmælendur púuðu linnulaust undir ræðu hans. Kjósum um kvótann Hópi mótmælenda var umhugað um að afnema það sem hann telur forréttindi núverandi handhafa aflahlutdeilda. Látið okkur í friði Fiskverkafólk hvetur stjórnvöld til að láta kvótakerfið í friði. Lét sig ekki vanta Eiríkur Stefánsson útvarpsmaður lét sig að vanda ekki vanta. Framíköll hans urðu meðal annars til þess að Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiski- mannasambands Íslands gerði hlé á ræðu sinni og skaut föstum skotum á Eirík. S tarfsmönnum í frystihúsi Nesfisks ehf. í Garði á Reykjanesi var boðið upp á frítt áfengi tækju þeir þátt í mótmælum LÍÚ. Þá bauð fyrir- tækið einnig upp á fríar rútuferð- ir til Reykjavíkur fyrir þá sem kusu að taka þátt í mótmælunum. Þeim starfsmönnum sem ekki þáðu boð fyrirtækisins var gert að vinna á meðan hinir fengu frí. Heimildir DV herma að á meðal þeirra sem þáðu áfeng- ið hafi verið fólk sem ekki hefur aldur til að neyta áfengis. Fyrir því er að minnsta kosti eitt staðfest tilfelli. Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks, neitar að taka af allan vafa um það hvort starfsfólk hafi verið verðlaunað með áfengi. Það var á miðvikudaginn sem auglýs- ingar voru settar upp í frystihúsi Nesfisks, en á þeim voru rútuferðirnar á „samstöðu- fund“ LÍÚ auglýstar. Daginn eftir, eða sama dag og fundurinn var haldinn, fór síðan að kvisast að frítt áfengi yrði í boði fyrir þá sem tækju þátt í mótmælunum. Heimildir DV herma að keypt hafi verið mikið magn af bjór sem starfsfólk fékk að gæða sér á fyrir rútuferðina og í rútunum sjálfum. Þeir sem kusu að fara ekki til Reykjavíkur gafst ekki kostur á því að fá frí úr vinnu eða drekka áfengi á kostnað fyrirtækisins. Þeir starfsmenn frystihússins sem DV hefur rætt við vildu lítið tjá sig um málið. Einn þeirra sagði þó að flestir hefðu kosið að taka þátt enda frí í vinnu og frítt áfengi í boði. Aðspurður hvort einhverjar óánægju- raddir hefðu heyrst innan frystihússins sagði hann: „Nei, maður verður bara að vita hvenær maður á að þegja.“ Á Facebook-síðu eins starfsmanns sem er nítján ára mátti sjá mynd af bjór og skilaboð um að hann væri að mótmæla nýja kvótakerfinu á launum og með bjór í boði fyrirtækisins: „Mótmæla nýju kvóta kerfinu. Á launum og með bjór í boði Nesfisks.“ Bergþór Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Nesfisks, sagði einhvern hluta starfsfólks fyrirtækisins hafa mætt á mótmælin. Hann staðfestir að fyrirtækið hafi boðið upp á rútuferðir frá Garði fyrir starfsmenn en þvertekur þó fyrir að mót- mælendur fyrirtækisins hafi þegið laun fyr- ir mætingu á kvótafundinn. „Fólkið er ekki á launum, þetta er bara alrangt,“ svarar Bergþór spurningu DV um hvort rétt sé að starfsfólk hafi þegið laun og frítt áfengi frá fyrirtækinu fyrir mætingu á Austurvöll. „Ég veit ekki hvaða umræðu þú ert í. Fólkið var ekki á launum í þessu ferðalagi,“ segir Bergþór en neitar þó að taka af allan vafa um hvort starfsfólk Nesfisks, sem sá sér fært að mótmæla fyrir utan Alþingi, hafi verið verðlaunað með áfengi. „Eigum við ekki bara að heyrast á morgun vinur. Þá liggur betur á þér,“ er meðal þess sem Bergþór svaraði ítrekuðum spurningum um hvort starfsfólki hafi boðist áfengi fyrir mótmælin. „Þetta er rangt með launin,“ sagði Bergþór í lok samtalsins. Verðlaunuð með áfengi„Maður verður bara að vita hvenær maður á að þegja. Starfsmaður Nesfisks Bergþór Baldvinsson Framkvæmdastjóri Nesfisks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.