Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Síða 20
20 Fréttir 8.–10. júní 2012 Helgarblað
Staða MileStone var
„Stórt núll“ í Maí 2008
S
taða fjárfestingarfélagsins
Milestone var orðin það
slæm á fyrri hluta árs 2008
að fjármálastjóri félagsins,
Arnar Guðmundsson, lýsti
henni sem einu „stóru núlli“ í tölvu
pósti til forstjóra félagsins, Guð
mundar Ólasonar, í maí það ár. Þá
hafði Milestone gert árangurslaus
ar tilraunir til að endurfjármagna
félagið frá því um sumarið 2007
með því að leita til tuga fjármála
fyrirtækja eftir lánafyrirgreiðslu.
Enginn vildi þó lána Milestone pen
inga nema Glitnir og Sjóvá, sem
Mile stone átti að fullu eða hluta. Á
þessum tíma var orðið ljóst að Mile
stone, sem var í eigu Karls Werners
sonar, var komið í verulega rekstrar
erfiðleika.
Um þetta er fjallað í skýrslu sem
ráðgjafarfyrirtæki í eigu tveggja fyrr
verandi starfsmanna sérstaks sak
sóknara, Jóns Óttars Ólafssonar og
Guðmundar Hauks Gunnarssonar,
vann um gjaldþol Milestone fyrir
þrotabú félagsins.
Ógjaldfært í lok nóvember
2007
Skýrslugerðin komst í hámæli í fjöl
miðlum fyrir skömmu þegar greint
var frá því að embætti sérstaks sak
sóknara hefði kært þá Jón Óttar og
Guðmund Hauk til ríkissaksóknara
fyrir að notfæra sér upplýsingar úr
rannsókn sérstaks saksóknara á
Milestone og Sjóvá við gerð hennar.
Fjölmargt áhugavert um starfsemi
Milestone kemur fram í skýrslunni.
Niðurstaða hennar er sú að Mile
stone hafi verið orðið ógjaldfært í
lok nóvember 2007 og að félagið
hafi ekki getað staðið við skuld
bindingar sínar eitt og óstutt eftir
þann tíma nema með aðstoð Glitnis
og Sjóvár. Þá segir að í lok apríl 2008
hafi „… greiðsluvandræði Mile
stone ehf. verið orðin það mikil að
forsvarsmenn félagsins ræddu þau
opinskátt í tölvupóstum sín á milli.“
Hagsmunirnir spyrtir saman
Ástæðan fyrir því að Glitnir lánaði
Milestone einn banka, segir í skýrsl
unni, er sú að „hagsmunir bankans
og félagsins voru spyrtir saman“
vegna eignarhalds Milestone á fé
laginu Þætti International sem
átti 7 prósenta hlut í bankanum. Í
niðurstöðukafla skýrslunnar segir
að vegna þessa eignarhalds séu
verulegar líkur á því að ef Milesto
ne hefði farið í þrot þá hefði bank
inn einnig gert það. „Ef Milestone
ehf. hefði farið í þrot var raunveru
leg hætta á að bankinn fylgdi í kjöl
farið.“
Í skýrslunni er vísað sérstaklega
til Vafningsmálsins svokallaða sem
sérstakur saksóknari hefur gefið út
ákæru í. Þar eru tveir af starfsmönn
um bankans, þeir Lárus Welding og
Guðmundur Hjaltason, ákærðir fyr
ir lánveitingu frá Glitni til Mile stone
upp á 102 milljónir evra í febrúar
2008. Lánið var notað til að greiða
upp skuld Þáttar International við
bandaríska fjárfestingarbankann
Morgan Stanley sem hafði lánað fé
laginu fyrir 7 prósenta hlut þess í
Glitni. DV hefur fjallað ítarlega um
Vafningsmálið, meðal annars að
komu Bjarna Benediktssonar for
manns Sjálfstæðisflokksins að
því, en faðir hans og frændi, Ein
ar Sveinsson, voru hluthafar í Þætti
International á móti Milestone. Svo
segir í skýrslunni: „Glitnir virðist
því hafa gengið langt í því að greiða
úr fjárhagsvanda Milestone ehf.,
svo langt að yfirvöld telja að hegn
ingarlög hafi verið brotin.“
Glitnir „gerði allt“
Í skýrslunni segir að þessir sameig
inlegu hagsmunir Glitnis og Mile
stone hafi gert það að verkum að
bankinn hafi verið reiðubúinn að
leggja umtalsvert á sig til að tryggja
að Mile stone kæmist ekki í greiðslu
vanda eða yrði gjaldþrota. „Þess
ir sameiginlegu hagsmunir voru
ástæða þess að Glitnir gerði allt til að
tryggja það að Milestone gæti greitt
skuldir sínar við Morgan Stanley og
kom þannig í veg fyrir að félagið yrði
gjaldþrota þegar allir aðrir bankar
höfðu snúið baki við félaginu.“
Niðurstaðan um þetta atriði í
skýrslunni er sú að Glitnir hafi ekki
viljað að hlutabréfin í bankanum
kæmust í hendur Morgan Stanley
og því hafi bankinn lánað Þætti
International til að greiða lánið upp.
„Strategískur hlutur“
Skýrsluhöfundar draga þessa álykt
un um sameiginlega hagsmuni Mile
stone og Glitnis um að fjárfestingar
félagið yrði ekki gjaldþrota vegna
hlutabréfaeignarinnar í Glitni út frá
skýrslu sem unnin var af starfsmanni
Milestone fyrir stjórn sænska fjár
málafyrirtækisins Invik sem var í eigu
fjárfestingarfélagsins. Skýrslan var
samin í lok febrú ar, um þremur vik
um eftir að Glitnir hafði lánað Þætti
International 102 milljónir evra til að
greiða upp lánið við Morgan Stanley.
Þar sagði meðal annars, og er kafl
inn þýddur úr ensku: „Strategískur
hlutur Mile stone í Glitni hefur gert
það að verkum að við höfum feng
ið það forskot sem er nauðsynlegt
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Strategískur
hlutur Mile stone
í Glitni hefur gert það að
verkum að við höfum
fengið það forskot sem
er nauðsynlegt.
Skýrslan til Invik
„Á síðustu vikum höfum við rætt um
endurfjármögnun við allnokkra banka,
meðal annars Glitni, Caylon og Hand-
elsbanken. Allir hafa þeir dregið sig út úr
samningaviðræðunum við okkur – meira
að segja Caylon – nema Glitnir banki
sem hefur staðið með okkur og lagt sig
í líma við að þjónusta Milestone. Glitnir
hefur staðið við bak okkar þegar aðrir
bankar hafa snúið við okkur baki. […]
Strategískur hlutur Mile stone í Glitni
hefur gert það að verkum að við höfum
fengið það forskot sem er nauðsynlegt
og er ein af ástæðunum fyrir því af
hverju Glitnir er reiðubúinn til að halda
áfram að aðstoða okkur í þessari stöðu.“
n Glitnir hélt lífinu í Milestone n Ógjaldfært í nóvember 2007
Barnaníðingur tjáir sig:
„Fikta við
SoFandi
SMáStelpur“
„Ég var að fikta við sofandi smá
stelpur, það er alveg satt, og fyrir
það er ég búinn að taka út minn
dóm og hljóta mína refsingu.“
Þetta er á meðal þess sem kemur
fram í símaviðtali Útvarps Sögu við
dæmdan barnaníðing sem í fyrra
hafði aðgang að fósturheimili fyrir
börn. Í viðtalinu segir hann með
al annars að hann sé „pedófíll“ og
það sé jafn heimskulegt að ætla að
koma í veg fyrir barnagirnd „ped
ófíla“ eins og þegar reynt sé að „af
homma.“ Á miðvikudag var mað
urinn nafngreindur á vef Útvarps
Sögu. Eftir að hafa skipt um nafn
heitir hann í dag Gunnar Jakobsson
en hét áður Roy Svanur Shannon.
Umræða hófst um hann á ný þegar
RÚV greindi frá því að hann hefði
haft aðgang að fósturheimili í fyrra
sumar þar sem börn eru vistuð af
barnaverndaryfirvöldum. Fyrir til
viljun komst upp um hvern var að
ræða. Í viðtali við Útvarp Sögu sagði
Gunnar meðal annars: „Það hef
ur aldrei nokkurn tímann, nokkurt
barn eða unglingur og reyndar ekki
kona heldur, aldrei sagt við mig,
stoppaðu, hættu, ekki gera þetta,
má ekki gera þetta eða nokkuð í þá
áttina, aldrei nokkurn tímann.“
Gunnar var í apríl árið 1997
dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn sex barnungum
stúlkum og var það þyngsti dómur
sem hafði fallið í barnaníðingsmáli
hérlendis á þeim tíma en hann var
einnig fundinn sekur um að hafa
gífurlegt magn af barnaklámi undir
höndum. Þá var Gunnar sakfelld
ur fyrir að hafa framleitt og deilt
barnaklámi á vefnum en meðal
þess sem kemur fram í dómi Hér
aðsdóms Norðurlands eystra er að
Gunnar hafði tekið sum brota sinna
upp á myndbandsupptökuvél. Við
rannsókn málsins var eldra mál
gegn Gunnari tekið upp en það mál
má rekja til ársins 1991 en þá átti
Gunnar að hafa áreitt barnungar
stúlkur kynferðislega í sumarhúsi
í Húsafelli. Það mál var kært árið
1992 en var fellt niður 1994. Eftir
að hafa setið af sér dóminn breytti
maðurinn sem þá hét Roy Svanur
Shannon nafninu sínu í Gunnar
Jakobsson og flutti til Danmerkur.
Ólafur með
mest fylgi
Ólafur Ragnar Grímsson mælist
með mest fylgi, tæplega 46 pró
sent, í nýrri skoðanakönnun
Capacent Gallup sem RÚV greindi
frá á fimmtudag. Fylgi Þóru Arn
órsdóttur virðist heldur hafa dalað
en hún mælist með 39,3 prósenta
fylgi. Þau tvö eru turnarnir tveir
hvað fylgi varðar því næstur kem
ur Ari Trausti Guðmundsson með
9,2 prósenta fylgi. Herdís Þorgeirs
dóttir mælist með 2,6 prósent,
Andrea J. Ólafsdóttir 2,1 og Hann
es Bjarnason 1,1.