Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 32
32 EM 2012 8.–10. júní 2012 Helgarblað Þetta þarftu að vita Þýskur slagari Einkennislag EM 2012 er lagið Endless Summer eftir þýsku poppsön g- konuna Oceana. Að auki hefur UEFA haldið , til að nota í ár, melódíunni sem samin var af R ollo Armstrong úr Faithless fyrir mótið 2008. Okrað á gestum Michel Platini, forseti UEFA, lét hafa eftir sér í apríl síðastliðnum, í kjölfar eftirlitsferðar um úkraínsku borgina Lviv, að rekstrar- aðilar hótela væru „þjófar og þorparar“ fyrir að hækka verð sín óhóflega fyrir keppnina. Síðan þetta kom í ljós hafa stjórnvöld talið hóteleigendur á að lækka verð sín. Yfirmaður skipulagsnefndar EM í Úkraínu, Markian Lubkivsky, segir verðin nú aftur orðin viðráðanleg eftir að hafa verið í okurhæðum. Miðafár 1,4 milljónir miða voru boðnar til sölu fyrir 31 leik EM 2012. Eftirspurnin var meiri en framboðið því 12 milljónir umsókna bárust á heimasíðu UEFA. Ásóknin í miða hefur aldrei verið meiri. Ódýrustu miðarnir, sæti bak við mörkin í riðlakeppninni, kosta 30 evrur (tæpar 5.000 krónur). En dýrustu, löglegu, miðarnir í aðal- stúkunni á úrslitaleiknum sjálfum kosta 600 evrur, eða rétt tæplega 100.000 krónur stykkið. Lífleg lukkutröll Það eru tvíburabræðurnir Slavek og Slavko sem eru lukkutröll keppninnar að þessu sinni og fara þeir hvor fyrir sinni gestgjafa- þjóðinni. Nöfn þeirra voru valin með netkosningu. Blaðran hamin Keppnisboltinn á EM 2012 að þessu sinni er Adidas Tango 12 sem er ha nnaður með það fyrir augum að auðveldara sé að rekja hann og hemja samanborið við hinn óstýriláta Adid as Jabulani sem var notaður á HM í S-Afríku árið 2010 o g mikið var rætt um. Boltarnir eiga það til að stela sen unni á stór- mótum. Spennandi verður að sjá hvað geri st núna. Írska útrásin Írland er eina landsliðið á EM sem er ekki með neinn leikmann sem leikur með liði úr heimalandinu. Á sama tíma er England eina liðið þar sem allir leikmenn leika í heima-landinu. Robbie Keane (La Galaxy) og Christian Wilhelmsson (Al-Hilal) eru einu leikmennirnir á EM sem leika með liðum utan Evrópu. Dýrt heimboð Í aðdraganda keppninnar þurfti, að kröfu UEFA, að taka samgöngukerfi borganna í Póllandi og Úkraínu algjörlega í gegn. Tryggja þurfti að þau hreinlega stæðust það álag sem fylgir hundruðum þúsunda fótboltaáhugamanna. Og það er dýrt að bjóða öllu þessu fólki heim. Kostnaðurinn við að lappa upp á kerfið í Póllandi er talinn nema 18 milljörðum evra (það eru 3 þúsund milljarðar!). Forseti Úkraínu hefur staðfest að kostnaðurinn þar nemi minnst 3,3 milljörðum evra. Þyngdar sinnar virði Verðlaunabikarinn sem keppt er um úr hreinu silfri og er áætlað verðmæti hans í peningum um 20 þúsund evrur, tæpar 3,3 milljónir króna. Hann er 60 sentímetrar á hæð og vegur 8 kíló. City-mótið Englandsmeistarar Manchester City eiga flesta leikmenn allra félagsliða á EM (18), en aðeins tveir leikmenn, Markus Rosenberg (Svíþjóð) og Paul Green (Írland), eru án félagsliðs. Málaliðarnir Þrír þjálfarar á EM eru ekki frá því landi sem þeir stýra. Portúgalinn Fernando Santos er landsliðsþjálfari Grikk- lands. Hollendingurinn Dick Adcocaat þjálfar rússneska liðið og Ítalinn Giovanni Trapattoni stýrir Írlandi. Sá síðastnefndi er einnig elsti þjálfarinn á EM, 73 ára, en sá yngsti er 42 ára gamall, Paulo Bento, þjálfari Portúgals. Söguleg stund Einkenn- isorð EM 2012 er „Saman mörkum við spor í söguna“ (e. Creating History Together) táknar að mótið í ár sé næsti kafli í sögu sem hófst árið 1960 þegar keppnin var fyrst haldin. Mótið í ár er það fyrsta sem haldið er í Austur- Evrópu og fer því í sögubækurnar. „Allir sem tengjast UEFA EURO 2012, allt frá skipuleggjendum, gestgjafaþjóðunum, leikmönnum, stuðningsmönnunum – innlendum jafn sem erlendum – eru að skrifa nýjan kafla í sögu Evrópu og knattspyrnunnar.“ Svona ef þið viljið vera háfleyg í EM-teitinu. Þristurinn Aðeins átta sinnum hafa verið skoraðar þrennur á lokamóti EM. Michel Pla tini, núverandi forseti UEFA, er eini leikmaðurin n sem skorað hefur tvær þrennur, á EM 1984. Dav id Villa var síðastur til að skora þrennu, á EM 2008 í 4–1 sigri Spánar á Rússlandi. Fyrir það hafði ekk i verið skoruð þrenna síðan árið 2000. Reynslan Miroslav Klose, framherji Þýskalands, hefur skorað flest landsliðsmörk allra leikmanna á EM, 63, en Iker Casillas hefur leikið fleiri landsleiki en nokkur annar, 129.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.