Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 40
40 EM 2012 8.–10. júní 2012 Helgarblað
Hverjir vinna eM?
Spánn
„Spánverjar halda áfram að einoka knattspyrnuna og vinna þetta mót. Ef
þeir spila á eðlilegri getu þá dugar það þeim. Þeir eru það langt á undan að
ef þeir gera það þá klára þeir þetta mót.“
Heimir Guðjónsson
þjálfari meistaraflokks FH.
Holland
„Holland. Það er einhver tilfinning sem ég hef. Ég held þeir mæti hungraðir.
Það er oft þannig að þegar menn eru næstbestir í einhverri keppni, eins og
þeir voru á HM, þá koma þeir geðveikir inn í næsta slag.“
Hjörvar Hafliðason
sparkspekingur og sjónvarpsmaður.
Svíþjóð
„Eigum við ekki bara að segja Svíþjóð. Svona fyrst maður býr hérna verður
maður að halda með þeim. Eru með fleiri góða leikmenn og framherja sem
geta klárað leikinn. Zlatan er alveg ágætur!“
Katrín Jónsdóttir
fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins og leikmaður Djurgarden í Svíþjóð.
Holland
„Ég ætla að spá því að Hollendingar nái að stíga skref fram á við
og tryggja sér Evrópumeistaratitilinn. Maður verður að halda með
sóknarleiknum og Holland er með ótrúlega möguleika fram á við
og einnig harða kletta á miðjunni. Það dugar til sigurs. Klaas Jan
Huntelaar tekur gullskóinn.“
Elvar Geir Magnússon
ritstjóri Fótbolta.net.
Þýskaland
„Ég held að það verði lið úr B-riðli sem vinnur mótið. Ef bæði Þýskaland
og Holland fara upp úr riðlinum, fer annað hvort þessara liða alla leið. Ég
ætla hins vegar að spá því að það verði Þjóðverjar sem standa uppi sem
Evrópumeistarar enda með virkilega góða leikmenn í lykilstöðum.“
Hallbera Guðný Gísladóttir
landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Piteä í Svíþjóð.
Spánn
„Ég gef Spáni mitt atkvæði. Þeir eru bara svo sætir og góðir í fótbolta.
Ég er mikil Sergio Ramos-kona og finnst unaðslegt að horfa á hann spila
knattspyrnu. Hjarta mitt reyndar slær fyrir Ítalíu líka. En þar sem elskhugi
minn Gattuso og allir gömlu folarnir eru ekki með þá hefur Spánn vinninginn.
Ef Spánverjar bara slaka á vælinu og leikaraskapnum er bikarinn þeirra.“
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
fótboltaáhugakona og ritstjóri Séð og heyrt
England
„Ég spái sigri Englands, það sem bjargar Roy Hodgson er að hann fékk Gary
Neville til starfa og hann mun stjórna þessu öllu. Rooney kemur svo vel
graður til leiks í síðasta leiknum í riðlinum og hann mun draga vagninn í átt
að dollunni.“
Hörður S. Jónsson
ritstjóri 433.is.
Spánn
„Spánn. Spánverjar hafa verið kóngarnir í heimsboltanum undanfar-
in ár og þeir verða það áfram. Ótrúlega vel spilandi lið með magnaða
leikmenn í öllum stöðum.“
Magnús Már Einarsson
ritstjóri Fótbolta.net.
Knattspyrnuskóli
Hermanns Hreiðarssonar
og Soccerade
Námskeið kl.9-13: Aldur: Verð:
1.námskeið 11.-15.júní 11-13 ára (‘99-‘01) 16.000 kr.
2.námskeið 18.-22.júní 14-16 ára (’96-’98) 16.000 kr.
Kennarar við skólann eru Hermann Hreiðarsson, Nigel
Quashie, ásamt leikmönnum meistaraflokks karla hjá ÍR og
leynigestum.
Skráning er í fullum gangi á www.ir.is
Gengið er frá greiðslu við skráningu á netinu með kreditkorti, en ef
greitt er með öðrum hætti þarf að hafa samband við skrifstofu í síma
587-7080.