Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 2
Jón Ásgeir
2 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Flest ríki banna
langa valdasetu
3 Ísland er í hópi fjögurra lýðvelda í Evrópu þar sem
engar takmarkanir er að finna
varðandi hve
lengi þjóðhöfð-
ingi getur setið.
Langalgengast
er að ríki tak-
marki setuna við
tvö fjögur til sex
ára kjörtímabil.
Ólafur Ragnar
Grímsson er nú
í framboði til forseta fimmta
kjörtímabilið í röð. Enginn lýð-
ræðislega kjörinn þjóðarleið-
togi í Evrópu, eða annarra vest-
rænna ríkja, hefur nú setið að
völdum í 20 ár líkt og Ólafur
Ragnar sækist eftir að gera.
Kaupir blokkir
2 Einkahlutafélagið South Properties, sem er að stór-
um hluta til í eigu Steinþórs
Jónssonar, eignaðist í upphafi
mánaðar tvær
íbúðablokkir í
Innri-Njarðvík.
Fyrirtæki tengd
Steinþóri hafa
að undanförnu
fengið milljarða
afskrifaða, en
Steinþór, sem
var stjórnarmað-
ur í Sparisjóðn-
um í Keflavík, hefur verið mikið
í kastljósinu vegna óreiðunnar
sem ríkti í sparisjóðnum. Stein-
þór segist ætla að gera blokk-
irnar upp og selja þær svo aft-
ur, en kaupin voru að hluta til
fjármögnuð með lánum.
Ósáttir við Cruise
1 Öryggisverðir Tom Cru-ise ráku bændur af gamla
þjóðveginum við Vaðlaheiði
í vikunni. Bændurnir voru að
koma af fjöll-
um en þangað
höfðu þeir rek-
ið fé sitt fyrr um
morguninn eins
og alltaf er gert
á þessum tíma
árs. Þremur karl-
mönnum, sem
smalað höfðu
hópi af sauð-
fé upp á Vaðlaheiði fyrr um
morguninn, var á heimleiðinni
mætt af öryggisvörðum á veg-
um Öryggismiðstöðvarinnar.
Verðirnir beindu smölunum
burt af svæðinu þrátt fyrir að
um opna þjóðleið sé að ræða.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Svikari
eignaði
Sér
barnið
Guðrún Ósk varar við:
8
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð
d a g b l a ð
20.–21. júní 2012 miðvikudagur/fimmtuda
gur
70
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Deloitte ver
StórkoStlegt
ofmat á Spkef
n „Auðvelt að horfa í baksýnisspegilinn“
Hvar er
ódýrast
að eyða
fríinu?
árum
Síðar
DúkkulíSurnar
30
n Steinþór fékk hverja íbúð á 6,5 milljónir
fékk fJÖlbÝlin
á brunaútSÖlu
12
18–19
22
2–3
„... eins og við séum stórkrimmar„
Þetta er ekki
Texas hérna
26–27
árekStur StórStJÖrnu og SamfélagS
bænDur
við tom
CruiSe
óSáttir
Davíð Örn Arnarsson:
ætlar að
SigraSt á
meininu
n Beitir óhefðbundnum aðferðum
í baráttu við krabbamein
3
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð
d a g b l a ð
18.–19. júní 2012 mánudagur/þriðjudagur
6
9
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
STEINÞÓR
KAUPIR
BLOKKIR
n Fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
og
varaformaður bankaráðs mjólkaði SpKef
n 4 milljarðar afskrifaðir vegna fyrirtækis han
s
ATvINNULífIð
á RéTTRI LEIð
SígARETTU-
ÞRæLAR á
BARNSALdRI
14–15
í BOðI
ESB TIL
BRUSSEL
n Frítt hótel og matur
n Dagpeningar í umslagi
„Aftastir í röðinni“
31 árs lesblindur:
KEMST
EKKI INN
í SKÓLA
HETJAN
LáTIN
BíðA
11
n Sjö og hálft ár frá slysi
n „Svo gerist ekkert“
Elur upp
fótbolta-
dreng
Garðar Gunnlaugs:
26
8
NAUðgUNAR-
MáLIð „ALgJÖR
vITLEYSA“
Lögmaður Gillzeneggers:
Sveitarstjórnarmenn í fríferð:
n Óvissa um aðra
nauðgunarkæru 12
2–3
HÖfUðPAUR úR SPKEf á gRæNNI gREIN
10–11
6
„Það eru sumir sem hafa trú á Suðurnesjum
Sögðu brandara í dómsal
n Fagnaðarfundir voru með þeim ákærð
u í réttarsalnum
Ö
nnur fyrirtaka í máli Annþórs
Kristjáns Karlssonar og Bark-
ar Birgissonar var í Héraðs-
dómi Reykjaness á þriðju-
dag. Að þessu sinni voru þeir báðir
mættir í dómsal til að taka afstöðu til
ákærunnar en þeir höfðu ekki mátt
mæta við fyrri fyrirtöku málsins þar
sem þeir sátu í einangrun grunaðir
um morð á samfanga sínum.
Gríðarleg öryggisgæsla var við
dómhúsið og einnig sátu óeinkennis-
klæddir lögreglumenn inni í dómsal.
Annþór og Börkur neituðu báðir sök
fyrir dómi en þeir eru meðal annars
ákærðir fyrir fjölda alvarlegra ofbeld-
isverka og fjárkúgun. Málinu var frest-
að til 16. ágúst en verjendur ákærðu
fengu frest til að skila greinargerð
vegna málsins.
Samkvæmt heimildum DV báru
Annþór og Börkur sig vel í dómsal og
fagnaðarfundir voru með þeim og sex
öðrum einstaklingum sem einnig eru
ákærðir í málunum. Eiga þeir að hafa
sagt brandara, yngri vinum sínum og
samákærðu til mikillar gleði.
Börkur er einnig ákærður fyr-
ir brot gegn valdstjórninni með því
að hafa hrækt að dómara í Héraðs-
dómi Reykjaness á dögunum. Það
mál verður tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum
DV eru líkur á því að allir dómarar
við Héraðsdóm Reykjaness muni lýsa
sig vanhæfa til að dæma í máli þeirra
Annþórs og Barkar þar sem Börkur
er ákærður fyrir að ráðast gegn sam-
starfsfélaga þeirra. Mun málið þá að
öllum líkindum verða sent annað og
tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
n Ísland eitt örfárra Evrópulýðvelda með enga
r takmarkanir á setu forseta
Í
sland er í hópi fjögurra lýðvelda í
Evrópu þar sem engar takmarkanir
er að finna varðandi hve lengi þjóð-
höfðingi getur setið. Langalgengast
er að ríki takmarki setuna við tvö
fjögur til sex ára kjörtímabil. Aðeins Ís-
land, Aserbaídsjan, Hvíta-Rússland og
Ítalía hafa engar takmarkanir á þessu.
Ólafur Ragnar Grímsson er nú
í framboði til forseta fimmta kjör-
tímabilið í röð. Ef hann nær kjöri, sem
flest bendir til, mun hann að líkindum
sitja samfellt sem forseti Íslands í 20 ár.
Fáir setið lengur
DV greindi frá því á dögunum að
aðeins í einu lýðræðisríki í heim-
inum hefur lýðræðislega kjörinn
þjóðarleiðtogi setið lengur en Ólafur
Ragnar, en það Jean-Claude Juncker,
forseti Lúxemborgar, sem hef-
ur ríkt í rúm 17 ár. Af 25 þaulsætn-
ustu þjóðarleiðtogum heims skera
þeir tveir sig því alveg úr. Enginn
lýðræðislega kjörinn þjóðarleið-
togi Evrópu, eða annarra vestrænna
ríkja, hefur nú setið að völdum í 20
ár líkt og Ólafur Ragnar sækist eftir
að gera.
Arfgengt embætti
Í Evrópu eru tólf ríki sem eru kon-
ung- eða furstadæmi. Í þeim ríkjum
gengur embætti þjóðhöfðingja í arf.
Í lýðveldisríkjum eru langflest lönd
hins vegar með reglur um að þjóð-
höfðingjar geti bara gegnt embætti
þjóðhöfðingja í tvö kjörtímabil. Lýð-
veldi er tegund stjórnarfars þar sem
þjóðhöfðinginn er kjörinn eða út-
nefndur. Oftast eru þjóðhöfðingjar
kjörnir en sums staðar er það þannig
að hann er valinn af þingi eða fá-
mennri valdaklíku.
Pútín tvisvar forseti
Sums staðar, eins og í Rússlandi, er
það þannig að sami maðurinn get-
ur gegnt forsetaembættinu oftar en
einu sinni. Þannig var Vladimír Pútín
kjörinn forseti í vor eftir að hafa gegnt
stöðunni árin 2000 til 2008. Í milli-
tíðinni gegndi hann stöðu forsætis-
ráðherra landsins. Í smáríkinu San
Marínó ræður sá sem fer með forseta-
vald, kjörinn af þinginu, í sex mánuði
í senn en hann má stýra landinu oftar
en einu sinni.
Mun breytast
Eins og áður segir er Ísland í hópi
fárra landa sem hafa engar tak-
markanir á setu þjóðhöfðingja. Þetta
kann þó að breytast nái stjórnarskrá
stjórnlagaráðs fram að ganga. Þar
segir að forseti skuli ekki sitja lengur
en þrjú kjörtímabil. Nái frumvarpið
um stjórnarskrána fram að ganga er
ljóst að Ólafur Ragnar er síðasti for-
setinn til að gegna embættinu leng-
ur en 12 ár.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Reglur um þjóðhöfðingja
innan Evrópulanda
6 Fréttir
20. júní 2012 Miðvikudagur
Konungdæmi/furstadæmiEngar reglur
Tvö kjörtímabil (fjögur til sjö ár í senn)
Þjóðhöfðingi valinn til hálfs eða eins árs í s
enn
(ótakmarkað oft, en ekki tvisvar í röð)
Ólafur Ragnar
Grímsson
15 ár
Vladimir Putin
Rússland,
8 ár
Silvio Berlusconi
Ítalía,
9 ár
Flest ríki banna
langa valdasetu
Umfjöllun 8. júní 2012
Nursultan
Nazarbayev
Kasakstan,
22 ár
(Fyrsti þjóðhöfðingi
landsins. Reglurnar
gilda ekki á meðan
hann situr.)
Alexander
Lukashenko
Hvíta-Rússland,
17 ár
Grunaðir Annþór og
Börkur eru ákærðir fyrir
ofbeldisbrot.
Íslandsbanki
styrkir
hestamenn
Íslandsbanki og Ergó, fjármögn-
unarþjónusta bankans, hafa
gert samning við Landssam-
band Hestamannafélaga sem
felur í sér að bankinn verði aðal-
styrktaraðili sambandsins næstu
þrjú árin. Sambandið er þriðja
stærsta sérsambandið innan
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands. Bankinn mun í gegn-
um samstarfssamninginn styðja
Landsmót hestamanna sem
fram fer síðar í mánuðinum auk
þess sem viðskiptavinir bankans
fá 20 prósenta afslátt á dagmiða-
verði á Landsmótið. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá bankan-
um.
Braut glugga á
barnaherbergi
Á þriðjudagsmorgun fékk lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu
tilkynningu um að maður væri
að berja á glugga í íbúðarhúsi í
austurborginni. Þegar lögreglu-
menn komu á staðinn var búið
að brjóta rúðu í svefnherbergis-
glugga þar sem barn svaf fyrir
innan. Fyrir utan húsið sat ungur
maður í tröppum og var hann illa
áttaður vegna vímuefnaneyslu.
Hann var handtekinn og færður
á lögreglustöð þar sem hann var
vistaður í fangageymslu þar til
hægt var að taka af honum
skýrslu, segir í tilkynningu frá
lögreglunni.
J
ón Ásgeir Jóhannesson fjárfest-
ir hefur haft margra milljóna
króna bifreið til afnota sem er
í eigu dótturfélags 365 miðla,
fjölmiðlasamsteypu í eigu eig-
inkonu hans, Ingibjargar Stefaníu
Pálmadóttur. Bifreiðin var keypt glæ-
ný 16. maí síðastliðinn og er um að
ræða Range Rover Evoque. Sam-
kvæmt listaverði kostar slíkur bíll
minnst 11,64 milljónir króna. Jón
Ásgeir segist sjálfur aðeins hafa haft
takmarkaðan aðgang að bílnum og
að bíllinn sé einn af fjölmörgum bíl-
um fjölmiðlasamsteypunnar sem
starfsmenn hafa til afnota.
Á sjálfur þrjá bíla
„Bíllinn er ekki keyptur fyrir mig, en
ég hafði hann til takmarkaðra afnota
og greiði að sjálfsögðu skatt af þeim
afnotum eins og öðrum greiðslum og
hlunnindum sem ég hef frá félaginu,“
segir Jón Ásgeir í svari við fyrirspurn
DV vegna bílsins. Hann svaraði
spurningum DV í gegnum tölvupóst
en hann svaraði því ekki hvort hann
teldi fjárhagsstöðu fyrirtækjanna
tveggja, 365 miðla og Hverfiseigna
ehf., sem er skráð eigandi bílsins,
vera nógu góða til að kaupa bifreið-
ar á borð við þessa fyrir starfsmenn
sína.
„365 miðlar eiga tæplega 30 bif-
reiðar af ýmsum stærðum og gerð-
um og þær bifreiðar ganga í gegnum
sitt endurnýjunarferli eins og geng-
ur, en ég mun ekki hafa mikil afnot
af bifreiðum þaðan,“ segir hann og
bætir við að hann sé lítið á landinu
og noti því bílinn væntanlega lítið.
„Ég dvel einungis í um 30 daga á Ís-
landi á ári og á sjálfur þrjá bíla.“ Jón
Ásgeir segist þó reikna með því að
nota bílinn aftur í framtíðinni, þó að
hann sé ekki keyptur fyrir hann sér-
staklega. „Gæti þó verið að ég þyrfti
að fá afnot af bíl 365 í 2 daga í sept-
ember og einn dag í október ég læt
þig vita hvernig það verður þegar
nær dregur …“ skrifaði Jón Ásgeir
svo að lokum.
Starfsmönnum sagt upp
Bíllinn er skráður á einkahlutafélagið
Hverfiseignir sem er í eigu 365 miðla
en fyrirtækið var rekið með tapi árið
2010, samkvæmt síðasta birta árs-
reikningi þess. Félagið tapaði 2,6
milljónum króna samkvæmt rekstr-
arreikningi þess og var eigið fé nei-
kvætt um 2,2 milljónir í lok þess árs.
Tilgangur félagsins samkvæmt sama
ársreikningi er að stunda rekstur
fasteigna, lánastarfsemi og skyldan
rekstur.
Niðurskurður hefur einnig verið hjá
365 miðla undanfarna mánuði. Fréttir
hafa verið af uppsögnum starfsmanna
og endurskipulagningu í fyrirtækinu.
Sagði Viðskiptablaðið meðal annars
frá því að heimildir blaðsins hermdu
að vera Jóns Ásgeirs í höfuðstöðvum
365 miðla um tíma hafi tengst með
beinum hætti niðurskurðaraðgerðun-
um sem hann vildi ráðast í hjá fyrir-
tæki eiginkonu sinnar.
Áður verið á bíl 365
DV hefur áður sagt frá því að Jón
Ásgeir Jóhannesson hafi haft bif-
reiðar í eigu 365 miðla til umráða.
Hann hefur starfað sem ráðgjafi
fyrirtækisins og hefur undanfarið
haft skrifstofu í höfuðstöðvum fjöl-
miðlasamsteypunnar. Árið 2010
sagði Ari Edwald, forstjóri fyrir-
tækisins, að Jón, sem er fyrrver-
andi aðaleigandi félagsins og fyrr-
verandi stjórnarformaður þess,
væri „toppráðgjafi“. Í ljósi þess að
hann ekur um á bifreið frá félaginu
má ætla að hann sé enn álitinn
góður ráðgjafi.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Glænýr og dýr Bíllinn sem um ræðir er af gerðinni Range Rover Evoque og kostar hann allt að 12 milljónum.
á glænýjum
Range Rover
n Dótturfélag 365 miðla keypti bíl sem Jón Ásgeir hefur til afnota
Góður ráðgjafi Ari
Edwald hefur lýst því yfir
að Jón Ásgeir sé góður
ráðgjafi. Svo góður er
hann að hann fær margra
milljóna króna bíl frá
fyrirtækinu til afnota.
Sameinast
um Þóru
Fyrrverandi mótframbjóðend-
ur Ólafs Ragnars Grímssonar frá
árinu 1996 hafa fylkt sér að baki
Þóru Arnórsdóttur og hyggjast
taka þátt í Þórudeginum svokall-
aða sem haldinn verður á sunnu-
daginn.
Í þeim hópi eru Guðrún Agn-
arsdóttir, fyrrverandi alþingismað-
ur, Pétur Kr. Hafstein, fyrrverandi
hæstaréttardómari og dr. Guðrún
Pétursdóttir, en hún dró framboð
sitt til baka á sínum tíma.
Guðrún Agnarsdóttir heldur
vöffluboð í Svarfaðardal og Pétur
Hafstein hefur skipulagt kaffiboð
á heimili sínu að Stokkalæk. Guð-
rún Pétursdóttir og Ólafur Hanni-
balsson, eiginmaður hennar sem
er föðurbróðir Þóru Arnórsdóttur,
verða með kaffiboð í garðinum
sínum.
Ekki er vitað til þess að Ástþór
Magnússon Wium hyggist taka
þátt í Þórudeginum en að sögn
Guðrúnar Pétursdóttur er fram-
takið „svolítið í anda Inspired by
Iceland.“
6 milljónir í
dagsektir
Félag Ingunnar Wernersdóttur
skuldar hátt í 6 milljónir króna
í dagsektir vegna seinagangs
við framkvæmdir við húseign-
ina Þingholtsstræti 29a þar sem
áður var bókasafn til húsa. Húsið
stendur nú autt en var lengi í eigu
Borgarsjóðs. Jafnframt átti Guðjón
Már Guðjónsson, kenndur við Oz,
húsið um tíma, en félag Ingunn-
ar Wernersdóttur keypti það árið
2007. Hún ákvað að láta gera það
upp en hætti framkvæmdum síðla
árs 2008. Dagsektirnar hafa verið
sendar í innheimtu og má búast
við fjárnámi vegna þeirra.