Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Blaðsíða 23
Hann hefði gert
það sama fyrir mig
Ætlaði að halda upp
á þetta í kyrrþey
Eiríkur Guðberg bjargaði félaga sínum úr sjónum eftir að hann fór útbyrðis með neti. – DVSteingrímur Dúi Másson varð 50 ára 20. júní. – DV
Hin fullkomna fáfræði
Spurningin
„Tala minna, vinna meira.“
Haukur Sigurbjörn Magnússon
28 ára blöndunarmaður
„Nei, af því að það er allt búið að
fara til fjandans. Mér líst ekkert á
þetta fólk.“
Kolbrún Gígja Björnsdóttir
20 ára vaktstjóri á Hressó
„Nei, ég hefði t.d. verið til í að sjá
kvótafrumvarpið koma aðeins
fyrr í gegn.“
Vésteinn Bjarnarson
19 ára nemi
„Ég er hlutlaus, ég fylgist ekki
það mikið með pólitíkinni.“
Gísli Sigurðsson
20 ára nemi
„Ég er ánægð með þau af því að
mér líkar við starfið mitt.“
Raja Riahi
28 ára vinnur í Kvosinni
Ertu ánægð/ur
með störf Al-
þingis á árinu?
1 „Svo hissa á því að einhver vildi ríða grátandi stelpu“ Erla
Hlynsdóttir segir frá reynslu sinni af
nauðgunartilraun.
2 Fáklædd stúlka í heitum potti býður vegfarendum gos
Markaðsátak Ölgerðarinnar og 10-11
vakti hneykslun.
3 Bændur ósáttir við Tom Cruise Öryggisverðir Tom Cruise ráku bændur
af gamla þjóðveginum við Vaðlaheiði.
4 Guðbergur um Gillz: „Meyj-arhaftavörn sem kallast
femínismi“ Guðbergur Bergsson
rithöfundur skrifaði umdeildan pistil
um Gillz-málið.
5 Kvensköpum skolaði á land Feðgar í fjöruferð römbuðu á kynlífstól.
6 Svikari eignaði sér barnið á Facebook Óprúttinn aðili tók
barnamyndir af Facebook og sagði þær
vera af dóttur sinni.
7 Tav og Linda hætt saman Tav MacDougall ræddi um sambandsslit sín
við Lindu Pétursdóttur í viðtali við DV.
Mest lesið á DV.is Stjörnustríð á Norðurlandi
T
om Cruise trúir því að við séum
öll að verða fyrir mengun af
völdum geimvera sem sprungu
í kjarnorkusprengingum í eld
fjallagígum fyrir 75 milljónum ára.
Geimverurnar voru sendar hingað til
jarðarinnar fyrir 75 milljónum ára, úr
Stjörnustórveldinu, af vonda leiðtoga
þess, Xenu. Hann gabbaði þegna sína
til að koma saman í milljarðatali, und
ir því yfirvarpi að þeir ættu að koma í
skattayfirlit. Hann raðaði þeim saman
í kringum eldfjöll og sprengdi kjarn
orkusprengjur ofan í gígunum. Eftir það
svifu sálir þeirra um og klínast ennþá
utan á líkama lifandi fólks, eins og and
leg mengun, og valda þeim sjúkdóm
um, skilnuðum og drykkjuvandamál
um, svo eitthvað sé nefnt. Eftir þessa
óhugnanlegu atburði var Jörðinni vísað
úr Stjörnustórveldinu og hún gerð að
fangelsisplánetu undir leynilegri stjórn
hersveita Stjörnustórveldisins.
Það er því ekki skrítið að Tom hafi
orðið hverft við þegar nokkrir bænd
ur ráku sauðkindur sínar eftir gamalli
þjóðleið nálægt glæsisumarbústað
hans í Eyjafirði.
Íslenskir bændur hafa löngum þótt
skara fram úr í atgervi og eru ógnun
við aðra eftir því. Sauðkindin er einnig
þekkt fyrir að vera harðger. Þar sem
klaufaþytur hersveitar hornóttra kinda
drundi í loftinu tók Tom Cruise á loft
á þyrlunni sinni í snarhasti og þeyst
ist á brott. Öryggisverðir hans mættu
óvinahernum á þjóðleiðinni og reyndu
að bola vígasveitinni burt. Bændur og
ómannaðir stríðsfákar þeirra störðu
ógnandi á eftir þessum djarfa presti
Vísindakirkjunnar.
Í erlendum fjölmiðlum er talað
um að Tom Cruise sé ætlað stórt
hlutverk. Fyrr eða síðar muni hinn
illi Xenu snúa aftur. Tom og Vís
indakirkjan vilja ekki kannast við
þetta. Kannski trúir hann ekki raun
verulega kenningum Vísinda
kirkjunnar. Hins vegar
er það kjarninn í starfi
kirkjunnar að fólk
þurfi að vinna sig
upp í ákveðið and
legt stig, svoköll
uð OT stig, áður en
það fær að heyra
ritninguna. Því
venjulegt fólk
skilur ekki og
ræður ekki við þessa þekkingu.
Sagan af Xenu er í OT 3.
Æðsta stigið er OT 8. Tom
er OT 7.
Við hin vitum ekki og
skiljum ekki hvaða hætta
stafar af íslenskum bænd
um og sauðkindum. Við
vitum bara að Tom Cruise
veit það.
E
itt sinn bjó strákur í nágrenni við
mig, hann hafði þann háttinn
á að reyna ávallt að koma öll
um afglöpum sínum yfir á aðra.
Hann reyndi sífellt að ljúga sig útúr
öllum vanda. En auk þess var hann
bæði þjófóttur og einstaklega fáfróð
ur. Fáfræðina sótti hann til beggja
foreldra og mátti vart á milli sjá hvort
þeirra var viljugra að lepja upp lygi
sonarins og breiða yfir strákapörin.
Ég nefni þennan hnokka hér,
vegna þess að ég sé svo marga fáfróða
menn; menn sem eru svo illa settir
að þeir vita ekki að fáfræðin er móðir
græðginnar, sverð lyginnar og skjöldur
þjófsins. Í dag heyrum við menn, sem
vissulega voru valdir að hruninu hér á
landi, halda því fram að það sé núver
andi ríkisstjórn að kenna að þjófnaður
manna í sparisjóðasukkinu í Keflavík
lendi á skattgreiðendum.
Menn segja að ríkisstjórnin geri
ekki neitt af viti. En sömu menn vita
að verið er að leysa hér allan vanda,
þótt ekki sé hér allt gert með offorsi.
Það vita það allir sem vita eitthvað
að þjófafélag Framsóknar og glæpa
menn Sjálfstæðisflokksins stálu hér
öllu steini léttara. Og síðan breiða
þessir menn út þá fáfræði sem seg
ir að allt sé þetta ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur að kenna. Fáfróður
lýðurinn lepur upp lygina og er viss
um að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur
geti skapað hér hið fullkomna samfé
lag. Já, það merkilegasta við fáfræðina
er, að hún leyfir mönnum ekki að
læra af reynslunni. Hún deyfir menn
og gerir þá svo siðblinda að þeir sjá
akkúrat ekki neitt.
Annað gott dæmi um siðblindu fá
fræðinnar er að finna hjá íslenskum
útgerðarmönnum. En ógeðslegustu
birtingarmynd hennar er að finna í því
að sjómenn, fiskvinnslufólk, sveitar
stjórnarmenn og ýmsir aðrir áhang
endur kvótasvindlsins eru einsog
þorskar í neti eða þorskhausar í kippu;
aumur lýðurinn hefur kokgleypt fá
fræðina og er tilbúinn að láta etja sér
í það að mótmæla réttlætinu sem
meirihluti þjóðarinnar þráir. Fólk,
sem maður hefði getað haldið að væri
með öllum mjalla, trúir lyginni og fet
ar slóð græðginnar í algleymi fullkom
innar fáfræði.
Ég þori vart að hugsa þá hugsun til
enda, að fáfróð þjóð eigi eftir að kjósa
sér nýja ríkisstjórn; allt þetta fólk sem
heldur að ríkisstjórn Jóhönnu sé svo
skelfilega slæm. Við gætum fengið
Bjarna Ben sem forsætisráðherra, Sig
mund Davíð sem utanríkisráðherra,
Guðlaug Þór sem ráðherra dómsmála,
Tryggva Þór Herbertsson sem fjár
málaráðherra og Vigdísi Hauksdóttur
sem menntamálaráðherra.
Já, kæru landsmenn, víst getur
ástandið orðið verra en það er nú þegar.
Fáfræðina, ljóst og leynt,
landsmenn vilja mæra
og afar margir munu seint
af mistökunum læra.
Fögnuður og freyðivín Það voru Piltarnir sem komu fyrstir í mark í WOW Cyclothon-hjólreiðakeppninni sem lauk á fimmtudag. Piltarnir eru þeir Hafsteinn Ægir Geirsson, Árni
Már Jónsson, Pálmar Kristmundsson og Kári Brynjólfsson. Þeir hjóluðu túrinn á 40 klukkustundum og 57 mínútum og komu í mark eftir hádegi á fimmtudag við mikinn fögnuð
áhorfenda. mynd Eyþór Árnason
Myndin
Svarthöfði
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Umræða 23Helgarblað 22.–24. júní 2012
„Fólk, sem maður
hefði getað haldið
að væri með öllum mjalla,
trúir lyginni og fetar slóð
græðginnar í algleymi full-
kominnar fáfræði.
Kannski getur maður
bætt við einhverju fútti
Björk Eiðsdóttir, nýr ritstjóri tímaritsins Séð og heyrt. – DV