Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 4
Fjögur þúsund í framhaldsskóla
n Flestir komust í þann skóla sem þeir vildu
L
angflest íslenskra ungmenna
sem sóttu um framhaldsskóla-
nám á næstkomandi hausti
fengu inni í þeim skóla sem
vilji þeirra stóð til. Tólf prósent
nemendanna komust inn í skólann
sem þeir merktu sem sitt annað val
og aðeins 2,4 prósent var ráðstafað
skólaplássi í öðrum skóla en þeim
sem tilgreindir voru á umsókninni
þeirra. Alls fengu 4.275 nemend-
ur pláss í framhaldsskólum næst-
komandi haust. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá menntamálaráðu-
neytinu.
Þar kemur einnig fram að í þeim
tilfellum þar sem ekki var unnt að
veita nemendum pláss í þeim skólum
sem þeir sóttust eftir hafi verið farið
eftir fyrirframákveðnum reglum sem
gilda um slíkar umsóknir. Meðal þess
sem reynt er að gera er að finna skóla
sem er næst heimili nemandans og
hefur í boði nám sem er hliðstætt því
sem sótt var um upphaflega. 103 nem-
endur þurftu að sætta sig við slíka til-
högun.
DV hefur fjallað um skilyrði inntöku
í íslenska framhaldsskóla og hefur í
umfjöllunum blaðsins meðal annars
komið fram að ekki sé marktækur
munur á milli nemenda í Háskóla Ís-
lands eftir því úr hvaða framhalds-
skóla þeir útskrifuðust. Það er hins
vegar talsverður munur á hversu góðar
einkunnir nemendur þurfa að hafa til
að komast inn í vinsælustu framhalds-
skólana. Sé rýnt í tölur menntamála-
ráðuneytisins sem nú hafa verið birtar
virðist hins vegar koma í ljós að flestir
hafi sótt um skóla sem þeir áttu raun-
hæfan möguleika á að fá inngöngu í
miðað við námsárangur.
ELDHEIT
ÍSLENSK
HÖNNUN
SVUNTA
HANSKI
HÚFA
Í HANDSKREYTTUM
GJAFAPOKA
Útsölustaðir:
Kokka - Dúka - Grillbúðin - Álafoss - 18 Rauðar Rósir - Þjóðminjasafnið -
Dalía - Blómasmiðjan - Garðheimar - Hús handanna, Egilsstöðum -
Pottar og Prik, Akureyri, Aðalbúðin, Siglufirði - Þröstur Ormsson, Ísafirði -
Motivo, Selfossi - Hverablóm, Hveragerði - Póley, Vestmannaeyjum.
Dreifing: Auntsdesign, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi - s. 618 - 3022
„Ég var alveg
búinn á því“
É
g hafði um tvennt að velja á
þessum sekúndubrotum. Það
var annað hvort að slíta af mér
höndina eða að stökkva fyrir
borð,“ segir Arnþór Jónsson,
tvítugur sjómaður frá Stokkseyri,
sem var bjargað af félaga sínum, Ei-
ríki Guðbergi Guðmundssyni, eft-
ir að hann fór fyrir borð á skipinu
Skálafelli ÁR 50 á meðan það var við
veiðar á Selvogsbanka á miðvikudag.
Það var um klukkan hálf ellefu að
morgni sem áhöfnin var að leggja net
úr skipinu þegar mistök áttu sér stað
sem gerðu það að verkum að Arn-
þór flækti höndina í netinu og ákvað,
líkt og fyrr segir, að stökkva fyrir borð
til að bjarga henni. Áður en Eiríkur
Guðberg stökk út til að bjarga Arn-
þóri hafði hann ýtt félaga þeirra í
burtu svo hann færi ekki einnig með
netinu.
Eiríkur sagðist í samtali við DV.is
á miðvikudag hafa ákveðið að bíða
með að stökkva á eftir félaga sínum
sem fór útbyrðis því hann náði að
halda sér í stertinn og beið Eiríkur
eftir því að hann kæmi sér nær skip-
inu.
Stökk út á eftir honum
„Á meðan á því stóð kom ég mér í
gallann og stökk út á eftir honum og
kom honum í Markúsarnet og aftur
upp í skip,“ sagði Eiríkur sem gerir
lítið úr sínum hlut. „Hann hefði gert
það sama fyrir mig. Þetta er bara að
stökkva í sjóinn.“
Arnþór segist hafa verið feginn að
sjá Eirík félaga sinn stökkva útbyrðis
á eftir sér en hann var orðinn úr-
vinda. „Ég var alveg búinn á því við
að reyna að koma mér upp að skip-
inu þegar liðið var á seinni hálfleik,“
segir Arnþór.
Snarræði hafði mikið að segja
Skipstjóri Skálafells, Sigurður Viggó
Gunnarsson, sagði í samtali við DV.is
á miðvikudag að snarræði Eiríks við
að koma sér í flotgalla og fara á eftir
Arnþóri hafi haft mikið að segja. Hann
segir að um leið og Arnþór fór fyrir
borð hafi verið sett af stað áætlun til
að koma honum aftur um borð í skip-
ið. „Hún gekk mjög vel, það tók ekki
nema tvær til þrjár mínútur að koma
honum aftur um borð,“ sagði Sigurður
Viggó. Arnþóri leið þó líkt og það hefði
liðið mun lengri tími þar til hann var
kominn um borð. „Mér leið eins og
þetta hafi verið korter. Þetta var bara
viðbjóður,“ segir Arnþór sem er við
ágætis heilsu í dag en lemstraður.
Slysavarnanámið að skila sér
Sigurður Viggó skipstjóri sagði
að sett hafi verið af stað áætlun
sem menn höfðu æft í Slysavarna-
skóla sjómanna. Hilmar Snorra-
son er skólastjóri Slysavarnaskólans
en hann segir ánægjulegt að heyra
þegar tekst svona vel til við björgun.
„Það er sannarlega ánægjulegt þegar
svona vel tekst til. Þeir hafa sannar-
lega haft snör handtök,“ segir Hilmar
sem segir alla sjómenn eiga að ljúka
námi við skólann og sækja endur-
menntun á fimm ára fresti.
„Þetta gerir það að verkum að ís-
lenskir sjómenn eru mjög vel þjálf-
aðir, því við höfum haft þetta ákvæði
hjá okkur í tíu ár. Þetta dæmi sýnir
svo sannarlega að þetta er að skila
sér. Á árabilinu 2008 til 2011 urðu
engin banaslys í íslenskri atvinnusjó-
mennsku sem er sannarlega mæli-
kvarði líka. Það er fyrir okkur, sem
störfum að þessu, afar ánægjulegt að
heyra svona fregnir. Þetta segir okkur
að við séum á réttri braut í þessum
málum.“
n Mannbjörg á Skálafelli ÁR 50 n „Hann hefði gert það sama fyrir mig“
„Á meðan á því
stóð kom ég mér í
gallann og stökk út á eftir
honum og kom honum í
Markúsarnet og aftur upp
í skip.
Hundrað ósáttir? Ríflega hundrað umsækjendur fengu ekki inni í þeim skóla sem þeir
sóttu um.
Fóru frítt til Brussel:
Leynd yfir
nafnalista
Leynd hvílir yfir lista með nöfn-
um þeirra sveitarstjórnarmanna
sem þáðu boð Evrópusambandsins
um ferð til Brussel fyrr í mánuðin-
um. Ferðin var farin í þeim tilgangi
að kynna sambandið fyrir sveitar-
stjórnarmönnum og hvaða áhrif
aðildarviðræðurnar og hugsanleg
aðild að sambandinu hefði á sveit-
arstjórnarstigið hér á landi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá sendi-
skrifstofu Evrópusambandsins hér
á landi ríkir trúnaður um gögn á
borð við nafnalistann og er því ekki
hægt að afhenda hann, þar sem
um persónulegar upplýsingar er að
ræða. Slíkar upplýsingar séu aldrei
afhentar þriðja aðila.
Ferðin sem um ræðir var farin
dagana 18.–20. júní og var öllum
sveitarstjórnum landsins boðið að
senda fulltrúa í ferðina. Samband
íslenskra sveitarfélaga sendi aug-
lýsingu fyrir ferðina á aðildarfélög
sambandsins en hafði samkvæmt
upplýsingum frá framkvæmdastjóra
þess enga aðkomu að skipulagi
ferðarinnar. Samkvæmt auglýs-
ingunni og gögnum um ferða-
skipulagið fengu þeir sem þáðu
boðið hótelgistingu á fjögurra
stjörnu hóteli og dagpeninga með-
an á heimsókninni stóð. Samkvæmt
heimildum DV fengu fulltrúarnir
dagpeningana afhenta í reiðufé sem
hverjum og einum var afhent í um-
slagi, eins og venjan er hjá Evrópu-
sambandinu þegar dagpeningar
eru greiddir út til aðila sem ekki
starfa sjálfir fyrir sambandið.
Önnur ferð á borð við þá sem
farin var í mánuðinum er á dag-
skrá í haust. Ekki liggur fyrir hvaða
fulltrúar hafa tækifæri á að fara í
þá ferð.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
Bjargaði félaga sínum Eiríkur Guðberg Guðmundsson bjargaði Arnþóri Jónssyni
eftir að sá síðarnefndi fór fyrir borð af Skálafelli ÁR 50.
Hafði tvennt um að velja Arnþór
Jónsson segist hafa haft um tvennt
að velja þegar hann flæktist í netinu.
Annað hvort að slíta af sér hendina
eða stökkva fyrir borð.
Við Selvogsbanka Skálafellið var á
veiðum á Selvogsbanka þegar slysið átti sér
stað. Mynd: Skipperinn.Blogcentral.iS.
4 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Túristi féll í
Öxarárfoss
Ferðamaður féll á fimmtudag
niður af steinbrúnni sem ligg-
ur yfir Öxará, við Drekkingarhyl
á Þingvöllum. Þaðan féll hann
fimm metra niður í Öxarárfoss.
Maðurinn lenti illa og meiddist
á baki og úlnlið, samkvæmt til-
kynningu frá Landsbjörg. Hon-
um kólnaði við volkið og var
nokkuð þjáður þegar hann náð-
ist á þurrt.