Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 6
6 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað
F
járfestingarfélagið Kista
skuldar tæplega 13,4 millj-
arða króna en á einung-
is eignir upp á um 1,3 millj-
arða króna. Félagið hefur
tapað rúmlega 12 milljörðum króna
frá bankahruninu árið 2008. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
fyrir árið 2010 sem skilað var árs-
reikningaskrár ríkisskattstjóra í lok
árs í fyrra.
Kista var fjárfestingarfélag í eigu
nokkurra sparisjóða, meðal annars
Sparisjóðsins í Keflavík, SPRON,
Sparisjóðs Svarfdæla og Sparisjóðs-
ins í Mýrasýslu. Kista var stofn-
að árið 2006 til að kaupa hlutabréf
í eignarhaldsfélaginu Exista árið
2007. Exista var að mestu í eigu
Bakkabræðranna, Lýðs og Ágústs
Guðmundssona, en Kista var einn
stærsti hluthafinn í því. Exista var
svo aftur stærsti hluthafi Kaup-
þings. Von er á skýrslu um starf-
semi sparisjóðanna næsta haust en
hún er unnin að beiðni Alþingis,
líkt og skýrslan um starfsemi bank-
anna.
Aðgöngumiðinn í bankapartíið
Málefni íslenskra sparisjóða hafa
verið mikið rædd síðastliðnar vik-
ur í kjölfarið á umfjöllun fréttastofu
RÚV um svarta skýrslu sem endur-
skoðendafyrirtækið PwC vann
um Sparisjóðinn í Keflavík. Fjár-
festingarfélagið Kista er eitt dæm-
ið um þá óráðsíu sem einkenndi
rekstur nokkurra helstu spari-
sjóðanna í landinu þar sem þeir
hófu áhættufjárfestingar í félögum
tengdum íslensku bönkunum.
Einn af heimildarmönnum DV
hefur orðað starfsemi Kistu með
eftirfarandi hætti. „Kista var að-
göngumiði í partíið fyrir spari-
sjóðina í gegnum Exista. Lögð var
gríðarleg pressa á sparisjóðina að
taka þátt í þessu. Sagt var við þá:
Þið eruð ekki að hugsa um hags-
muni sparisjóðanna ef þið takið
ekki þátt í þessu. Vissulega högn-
uðust menn til að byrja með en
menn kunnu sér ekki hóf og stopp-
uðu ekki og fóru of langt í þessu
… Menn voru komnir svo langt út
fyrir stofnsamþykktir og grunnhug-
myndafræði sparisjóðanna.“
Keypti í Exista eftir stofnfjár-
aukningar
Kista keypti mikið magn hluta-
bréfa í Exista á árunum fyrir banka-
hrunið. Meðal annars keypti Kista
hlutabréf í Exista fyrir 11,4 millj-
arða króna í júní árið 2007. Fjár-
munirnir fyrir hlutbréfakaupunum
komu frá einstökum hluthöf-
um Kistu. Í lok árs 2007 átti Kista
hlutabréf í Exista sem metin voru
á rúmlega 20 milljarða króna. Til
að fjármagna hlutabréfakaupin var
vitanlega gengið á þá fjármuni sem
til voru í sparisjóðunum sem áttu
Kistu, fjármuni sem meðal annars
höfðu fengist með sölu á stofnfjár-
bréfum í sparisjóðunum í stofnfjár-
aukningum.
Athygli vekur að í ársreikningi
Kistu fyrir árið 2008 kemur fram að
hlutafé Kistu hafi verið aukið um
rúma 11 milljarða króna á árinu
2008 sem síðan voru notaðir til að
greiða niður skuldir félagsins. Þess-
ir fjármunir voru að hluta til sóttir
til stofnfjáreiganda í sparisjóðun-
um með stofnfjáraukningum en
margir óbreyttir fóru flatt á því að
taka þátt í þessum stofnfjáraukn-
ingum. Til dæmis fólk í Keflavík, á
Hvammstanga og á Dalvík.
Telur sig svikinn
DV hefur meðal annars rætt þessi
mál við Karl Sigurgeirsson, 67 ára
skrifstofumann á Hvammstanga,
sem keypti stofnfjárbréf í Spari-
sjóðnum í Keflavík með lánum
frá sjóðnum. Hann telur sig hafa
verið blekktan í viðskiptunum,
meðal annars vegna eignarhlutar
sparisjóðsins í Exista. „Mér finnst
ég hafa verið blekktur. Ég er alveg
sannfærður um það að staða Spari-
sjóðsins í Keflavík hafi ekki verið
eins góð og hún var sögð vera. Stór
hluti af eignum sparisjóðsins var í
Exista. Þess vegna held að ég þessar
stofnfjáraukningar lánveitingar geti
ekki talist vera löglegar … Tilfinning
mín segir mér að þetta hafi verið
svik og að þessi gjörningur eigi að
ganga til baka,“ sagði Karl. Þannig
fjármögnuðu stofnfjáreigendur
einstakra sparisjóða viðskipti Kistu
með hlutabréfin í Exista.
Unnið er að slitum á Kistu í sam-
vinnu við kröfuhafa félagsins, sam-
kvæmt ársreikningi félagsins.
Kista sparisjóðanna
sKuldar 13 milljarða
n Kaupin í Exista fjármögnuð með stofnfjáraukningar
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Samtvinnaðir hagsmunir Sparisjóðirnir keyptu
í Exista, stærsta hluthafa Kaupþings, í gegnum
Kistu. Hagsmunir bankakerfisins og sparisjóðakerf-
isins voru því samtvinnaðir í Kistu: Fall Kaupþings
þýddi fall Kistu og þar með tap fyrir sparisjóðina.
„Kista var
aðgöngu-
miði í partíið
fyrir sparisjóð-
ina í gegnum
Exista
„Hún er mér
svo kær“
„Hún er eins og barnið mitt,“ seg-
ir Guðrún Pálsdóttir sem sakn-
ar hundsins síns, Fíu Sólar, sem
kölluð er Fífí og er átta ára silki
terríer-hundur. Fía Sól týndist frá
Hjaltabakka 2 í Breiðholti. Hún er
ólarlaus en svarar nafninu Fía Sól
og Fífí. Reyndar telur Guðrún að
hundinum hafi verið stolið.
„Honum var líklega stolið.
Við erum búin að leita úti um
allt,“ segir hún í samtali við DV.is.
Hundaeftirlit Reykjavíkur telur lík-
legt að einhver hafi tekið hundinn
þar sem hann hefur ekki fundist
nú níu dögum eftir að hann hvarf.
Guðrún og fjölskylda hennar
sakna hundsins sárt og vilja höfða
til samvisku þess sem gæti vitað
eitthvað um afdrif hundsins að
hafa samband án nokkurra eftir-
mála. „Hún er mér svo kær,“ segir
Guðrún og grátbiður fólk sem veit
hvar hundinn er að finna að hafa
samband í síma 899-0418.
Bilið minnkar
aftur
Bilið milli forsetaframbjóðend-
anna Ólafs Ragnars Grímsson-
ar og Þóru Arnórsdóttur hef-
ur minnkað talsvert frá síðustu
könnun, en samkvæmt nýrri
könnun Gallup hefur Ólafur Ragn-
ar aðeins átta prósentustiga for-
skot á Þóru. Í könnun sem Stöð
2 og Vísir gerðu í síðustu viku
mældist Ólafur Ragnar Gríms-
son með 58 prósent fylgi en Þóra
Arnórsdóttir með 28 prósent. Ari
Trausti Guðmundsson og Her-
dís Þorgeirsdóttir hafa bætt við
sig fylgi frá síðustu könnun; Ari
Trausti er með 10,5 prósent og
Herdís 5,5. Fylgi Andreu Jóhönnu
Ólafsdóttur og Hannesar Bjarna-
sonar hefur hins vegar lítið breyst.
Andrea mælist með 1,5 prósent og
Hannes 0,8 prósent.
Ný Hobby hjólhýsi
Til sýnis og sölu - getum afgreitt strax!
HOBBY 540 ufe excellent.
Hjónarúm, stór ísskápur, setustofa. Nýtt 2012.
Verð 3.630.000.-
HOBBY 560 kmfe excellent.
Stór ísskápur, hjónarúm, 2 kojur, setustofa
Nýtt 2012. Verð 3.890.000.-
Upplýsingar gefur Bóas í síma 777 5007, netfang: b1@b1.is
B1.is - Fagradalsbraut 25 - 700 Egilsstaðir -
HOBBY 560 ul premium.
Tvö rúm sem hægt er að gera að einu
stóru, stór ísskápur, setustofa.
Nýtt 2012.
Verð 4.530.000.-
B1.is - Fagradalsbraut 25 - 700 Egilsstaðir
og fleira.
Ný Hobby hjólhýsi