Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Blaðsíða 8
Kynferðisofbeldi og veiðigjald n Ósáttur við framgöngu í sjávarútvegsmálum Á rni Johnsen tengdi fram­ göngu ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum við kyn­ ferðislegt ofbeldi í ræðu sem hann hélt á Alþingi í vikunni. „Ís­ lenska ríkisstjórnin, virðulegur forseti, er að setja íslenskan sjávar­ útveg í nauðung. Það er annað orð sem maður ætti að nota sem ligg­ ur mjög nærri en er venjulega not­ að í kynferðislegu ofbeldi og þess vegna nota ég ekki það orð,“ sagði Árni og bætti við stuttu seinna: „Hvílík ósvinna, hvílíkur sóða­ skapur. Þetta eru orð um einhverja ljótustu verknaði sem um getur í samfélagi siðaðs fólks.“ Þung orð hafa áður verið látin falla um fyrirhugaðar breytingar ríkisstjórnarinnar á fiskveiði­ stjórnunarkerfinu. Forkólfar út­ gerðarinnar hafa til að mynda líkt þeim við helför gyðinga, en ekki er vitað til þess að kynferðislegt of­ beldi hafi áður verið nefnt í þessu samhengi. Aðspurður segir Árni Johnsen að engin sérstök ástæða hafi verið fyrir orðalagi hans. „Ég var bara að meina að það [orðið „nauðgun“, innskot blaðamanns] gengur aðeins lengra en nauð­ ung, en ég notaði það ekki, þótt það væri kannski ástæða til þess. Ég notaði nauðung og minntist á nauðgun, en notaði ekki orðið.“ Stór orð Árni Johnsen „Minntist á nauðgun en notaði ekki orðið.“ „Óheppilegt,“ segir forseti lagadeildar Þ að hafa engar efnislegar athugasemdir verið gerð­ ar við rannsóknarniðurstöð­ ur hans,“ segir María Thejll, forstöðumaður lagastofnun­ ar Háskóla Íslands, um rannsóknir og skrif Helga Áss Grétarssonar, en staða hans við Lagastofnun Háskóla Íslands er greidd af hagsmunasamtökum út­ gerðarmanna, LÍÚ. Róbert Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, segir að í samstarfs­ samningnum, milli lagastofnunar og LÍÚ sé sérstaklega tekið fram að rann­ sóknarfrelsi Helga Áss sé algert. ,,Kost­ aðar stöður og fjármögnun til rann­ sókna er alltumlykjandi í Háskóla Íslands. Þú ert í rauninni að gefa þér, og ég er ekki viss um að það sé rétt nálg­ un, að vegna þess að LÍÚ kosti þenn­ an samstarfssamning þá muni það ósjálfrátt skekkja rannsóknarniður­ stöðurnar kostunaraðilanum í hag.“ Helgi fræðir laganema Námskeiðið Eignaréttur er kennt í grunnnámi í lögfræði við Háskóla Ís­ lands. Það er eini kúrsinn í grunn­ áminu þar sem kafað er ofan í túlkun á lögum um stjórn fiskveiða. Í þessu námskeiði er hluti úr bók Helga, Þjóð­ in og kvótinn, eina námsefnið sem lagt er til grundvallar kennslu, að undan­ skildu efni sem haft er til hliðsjónar. Fræðimennirnir Sigurður Líndal og Skúli Magnússon hafa í skrifum sínum komist að þeirri niðurstöðu, ólíkt Helga, að aflaheimildir sem út­ gerðirnar hafa fengið útdeilt til sín myndi svokölluð atvinnuréttindi þeim til handa. Atvinnuréttindi eru réttindi manna til að stunda áfram þau störf sem þeir hafa lagt fyrir sig. Helgi telur hins vegar að vegna framseljanleika aflaheimildanna séu þær í eðli sínu ólíkar atvinnu­ réttindum og myndi þess í stað sér­ stakt form óbeins eignarréttar – kvótaréttindi. Túlkun skiptir miklu Sá munur er í stuttu máli á þessum ólíku sjónarmiðum að ef litið er svo á að aflaheimildirnar myndi þann eignarrétt, sem Helgi heldur fram í sínum skrifum, er erfiðara fyrir Al­ þingi með tilliti til stjórnarskrárinn­ ar, að afturkalla, að hluta eða í heild, aflaheimildir útgerðarmanna án þess að til bótaskyldu komi – sem gæti numið háum fjárhæðum. Þessi málflutningur, það er að segja að Alþingi eigi erfitt með að aft­ urkalla aflaheimildir útgerðanna, án þess að til ríkrar bótaskyldu komi, er í samræmi við þann málflutning sem LÍÚ hefur haldið á lofti í þeim deilum sem hafa staðið um kvótakerfið. Tengslin skipta engu Friðrik Arngrímsson er fram­ kvæmdastjóri LÍÚ. Aðspurður um hvort þessi líkindi í skoðunum laun­ veitanda og launþega séu gruggug segir Friðrik: „Gruggugt? Er ekki allt í lagi? Veistu það, Baldur, þetta er komið út fyrir það sem er eðlilegt. Gruggugt?“ Segir Friðrik og hlær og bætir við: „En ef ég og þú höfum svip­ aða skoðanir eða sýn á ákveðnum hlutum? Er það þá gruggugt? Nei, nei þetta er bara orðin tóm vitleysa.“ Óheppilegt Spurður nánar út í það hvort tengslin sem slík séu óheppileg, með tilliti til þess að laganemar séu látnir lesa bækur Helga sem aðalefni, enda þótt ekki sé hægt að benda á það ná­ kvæmlega hvar Helgi hygli útgerðar­ mönnum segir Róbert: ,,Ég myndi svara spurningunni þannig að ef það væri ekki upplýst að framsetning efn­ isins væri frá höfundi sem vann það í tengslum við rannsókn af þessu tagi þá væri það óheppilegt.“ Samkvæmt heimildum DV kom það hvergi fram í kennslu í eignar­ rétti að höfundur námsefnisins væri á launum frá LÍÚ. Eyvindur G. Gunnarsson, einn tveggja umsjónarmanna námskeiðsins Eignarréttur, segir, að enda þótt eina námsefnið í fiskveiðistjórnunarlögun­ um sem fram kemur á kennsluáætlun, sem ber heitið nákvæm kennsluáætlun og er 10 bls., sé efni eftir Helga þá reyni þeir við kennslu að skoða málið frá öll­ um hliðum. Ekki sammála Helga og LÍÚ Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra sjávarútvegsmála sem kom að undir­ búningi að breytingum á fiskveiði­ stjórnunarlögunum sem tóku gildi árið 1990, segir að vilji löggjafans hafi verið alveg skýr: ,,Aflaheimildirnar mynda hvorki bein né óbein eignarréttindi út­ gerðunum til handa. Ég er algerlega ósammála því að Alþingi geti ekki aftur kallað aflaheimildirnar, í heild eða að hluta, án þess að til bótaskyldu komi. Ég tel að það sé hafið yfir vafa að þetta sé sameiginleg auðlind og að ríkið fari með forræði yfir henni og þau réttindi sem útgerðirnar fá til að nýta hana séu hvorki bein né óbein eignarréttindi,“ segir Steingrímur en leggur þó áherslu á að meðal­ hófs og sanngirni skuli gætt við slíkar breytingar, gagnvart þeim sem verða fyrir áhrifum frá þeim. „Það er útgangspunktur frum­ varp anna um stjórn fiskveiða núna að þeim deilum sé einfaldlega lok­ ið. Það er að segja að menn séu hætt­ ir rifrildum um það að þetta sé sam­ eiginleg auðlind þjóðarinnar og eini aðilinn sem geti þar af leiðandi far­ ið með hana fyrir hönd eigandans; þjóðarinnar, sé ríkið; löggjafarvald og framkvæmdarvald. Það hefur ver­ ið talinn annar megingrunnurinn af sátt, innan gæsalappa, um þessi mál að menn einfaldlega hætti þeirri þrætu.“ Varðandi það, að laganemar séu látnir lesa sem aðalnámsefni bækur eftir Helga Áss, segir Steingrím­ ur engar forsendur hafa til að meta hvort það sé eðlilegt. Hann leggur þó áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um hið akademíska frelsi, heiðar leika og trúverðugleika alls fræðslu og rannsóknarstarfs. Ófrægingarherferð Helgi Áss Grétarsson vildi í sam­ tali við DV lítið gefa upp um málið, enda væri DV í ófrægingarherferð gegn starfsheiðri hans. Hann stað­ festi þó að hann teldi að hand­ höfn aflaheimildanna myndaði óbeinan eignarrétt, kvótaréttindi, útgerðunum til handa, þrátt fyr­ ir skýran fyrirvara um að út­ hlutun aflaheimildanna myndi ekki eignarrétt eða óafturkallan­ legt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimild unum í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Helgi telur að verið sé að búa til tengingar til þess eins að draga úr trúverðugleika þeirra sem reyna að segja eitthvað. Vilji skattborgar­ ar að stöður sem þessar séu borg­ aðar úr vösum ríkisins þá eigi bara að auka ríkisumsvif. n Helgi Áss er á launum hjá útgerðarmönnum við gerð kennsluefnis í fiskveiðistjórnunarlögum„Kostaðar stöður og fjármögnun til rannsókna er alltumlykj- andi í Háskóla Íslands. Um þetta er deilt n Miklar deilur hafa staðið um túlkun laga um stjórn fiskveiða. Einkum og sér í lagi fyrstu greinina: n 1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is Þiggur launin frá LÍÚ Helgi og Steingrímur eru á öndverðum meiði. Róbert Spanó segir óheppilegt að ekki sé tekið fram að Helgi Áss þiggi laun sín frá LÍÚ. 8 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.